Vísir - 26.05.1977, Page 1
iSS^
VERKAMANNASAMBANDIÐ:
VIUA FA MEIRA
f SÉRKRÖFURNAR
Forystumenn Verka-
mannasambands
íslands eru mjög tregir
tíi að fallast á þá lausn
á sérkröfum sam-
bandsins, sem sátta-
nefnd gerði tillögu um
og vinnuveitendur hafa
nú samþykkt.
Sumir aðilar innan Alþýðu-
sambandsins, svo sem iðn-
verkafólk, verslunarmenn og
sóknar-konur hafa skýrt frá
þvi, að þeir geti fallist á þessa
lausn, ef samkomulag næst um
það innan ASÍ. Hins vegar hefur
andstaðan einkum komið frá
Verkamannasambandinu, sem
telur þessa aðferð við afgreiðslu
sérkrafna mjög slæma fyrir sig.
Areiðanlegar heimildir tjáðu
blaðinu i morgun, að hugsan-
lega myndi Verkamannasam-
bandið fallast á þessa aðferð, en
þá með þvi skilyrði að meira en
2.5% fari i sérkröfurnar.
Stefnt mun að þvi að reyna að
koma sérkröfumálinu út úr
heiminum, en það getur þó auð-
veldlega tekið nokkra daga i
viðbót að afgreiða það.
—ESJ.
Landar loks íslenskt
skip í Bretlandi?
Stapavik SI lagði af stað frá
Siglufirði um hádegisbiiið i gær
með um 80 tonn af þorski, sem
ætlunin er að landa erlendis.
M iklir möguleikar eru á að aflan-
um verði landað i Bretlandi og ef
af yrði myndi það verða i fyrsta
sinn sem það er gert siðan fyrir
siðasta þorskastrið.
ÓmarHauksson skrifstofustjóri
hjá Þormóði ramma, er gerir út
Stapavik, sagði við Visi í morgun
að menn óttuöust að ekki fengist
landað úr skipinu i Bretlandi og
þvi væru menn nokkuð hræddir
við að senda skipið þangað.
Stapavfk landaði fyrir skömmu
i Belgiu, en verðið þar er lægra en
i Bretlandi.
Ef ekki verður að þessu sinni
landað i Bretlandi, sagði Ómar að
Stapavikin héldi aö öllum likind-
um til Færeyja. Þar hafa all-
margir islenskir bátar landað
undanfariö.
— EKG
Hroll-
vekia
norður
ó
Strönd-
um
Visir rœðir við
leikarana Helga
Skúlason og Róbert
Arnfinnsson, sem
leika aðalhlutverk
i kvikmyndinni
,Blóðrautt sólgrlag'
en hún verður
frumsýnd i
sjónvarpinu ó
annan dag hvita-
sunnu. Viðtalið er
ó tiundu og elleftu
siðu
Varðskip
flutti
slasaðan
sjómann til
Akureyrar
Varðskipið Ægir koin til
Akureyrar um klukkan 23 i
gærkvöldi með slasaðan sjó-
mann af vélbátnum Sjóla frá
Reykjavik.
Það var sfðdegis i gær sem
hjálparbeiðni barst frá Sjóla
þar sem hann var að veiðum
við Kolbeinsey. Hafði skip-
verji orðið fyrir slysi og reið á
að koma honum undir læknis-
hendur sem fyrst.
Varðskipið var þá statt i
mynni Eyjafjarðar og hélt
þegar af stað i átt aö Sjóla.
Samtfmis var þyrla frá Ægi
send til Siglufjarðar og sótti
hún lækni og flutti um borð i
varöskipið.
Ægir og Sjóli mættust siðan
ekki langt frá Grimsey. Þá
var það kyrrt i sjó að báturinn
lagðist að Ægi og geröi læknir
að sárum hins slasaða sem
hafði hlotið slæmt fótbrot. Æg-
ir hélt siðan með hann til
Akureyrar og kom þangað i
gærkvöldi.
—SC
VERDLÆKKANIR VIRDAST HAFA
LÍHL ÁHRIF Á EFTIRSPURN
Sölufélag garðyrkjumanna segist þurfa að kasta allt að 30%
gúrkuframleiðslunnar vegna þess að ekki er hœgt að selja
hana. Nánar segir frá þessu í frétt á baksíðu