Vísir - 26.05.1977, Side 2
Þórunn Haraldsdóttir, húsmóOir: g
— Já ég geri það. Meðan ekki eru |
betri kartöflur fluttar inn en nú, B
þá borgar það sig.
■
í Reykjavík
...""'y
Ræktaröu kartöflur?
Fimmtudagur 26. mai 1977.
VISIR
Aðalbygging Kleppsspítalans
HLUTI NYRRAR VIÐBYGGINGAR
TEKINN f NOTKUN Á AFMÆLINU
Einar Kristjánsson, sjómaður: —
Nei, ég bý i kauptúni þar sem ekki
er mikið gert af þvi. Það hefur
ekki borið árangur.
A morgun eru liðin 70 ár siðan
Kleppspitalinn var tekinn i notk-
un. Það var 27. mai árið 1907 sem
fyrsti sjúklingurinn kom á spital-
ann.
Fyrsti yfirlæknir stofnunarinn-
ar var Þórður Sveinsson, en nú-
verandi yfirlæknir er Tómas
Helgason prófessor.
A afmælisdaginn verður tekin i
notkun ný borðstofa starfsfólks i
nýrri viðbyggingu sem reist hefur
verið við spitalann. Fram til
þessa hefur starfsfólk orðið að
matast i litlu herbergi, en i nýju
borðstofunni verður sæti fyrir um
90 manns og inn af henni setu-
stofa. t öðrum hluta nýbygging-
arinnar verður siðan innréttað
húsnæði fyrir iðjuþjálfun og
fleira.
A Kleppspitalanum er nú rúm
fyrir hátt á þriðja hundruð sjúkl-
inga á mörgum deildum og eru
átta þeirra á spitalalóðinni en
aðrar dreifðar.
Afmælisins verður minnst á
morgun er nýja borðstofan verð-
ur vigð og þar veröur greint frá
sögu spitalans og framtiðarhorf-
um. —SG
Verið var að leggja síðustu hönd á innréttingu nýju borðstofunnar fyrir afmælisdaginn. (Visismynd
Jens).
Sigurður Þórarinsson, hljómlist-
armaður: — Nei, ég rækta ekki '
kartöflur og hef aldrei gert. Það g
stóð einu sinni til, en þótti of mikil g
fyrirhöfn, miðað við ágóða.
Jóhann Marinósson, hjúkrunar-
fræðingur: — Nei, ég á engan
garð. Þetta borgar sig þó senni-j
lega. I
Jónas Jónsson, vinnur viö blikk-
smiðju: — Nei, við erum bara tvö|
heimili, svo það er svo litið
nagn að það tekur þvi ekki. g
Algjör endurnýjun flugflota Flugleiða:
Kostar jafn mikið og
tvœr Sigölduvirkjanir!
-„Frumhlaup og vanhugsaðar framkvœmdir geta riðið félag-
inu að fullu/ segir Kristján Guðlaugsson, stjórnarformaður
Endurnýjun flugþota
Flugleiöa mun þýöa kaup
á f lugvélum fyrir svipaða
upphæö og tvær Sigöldu-
virkjanir kosta.
Þetta kom fram i ræðu
Sigurðar Helgasonar, forstjóra,
á aðalfundi Flugleiða.
Hann sagði, að lauslega áætl-
að myndi algjör endurnýjun nú-
verandi flugflota þýða kaup á
flugvélum að upphæð 120-130
milljónir bandariskra dala, sem
jafngildir 23-25 þúsund milljón-
um islenskra króna. Til saman-
burðar nefnir hann, að áætlað
sé, að virkjunarframkvæmdir
við Sigöldu kosti um 66 milljónir
bandariskra dala.
,,Auðvitað er ekki nauðsyn-
legt, að slikt yrði framkvæmt á
einu ári, og óhjákvæmilegt væri
að slikt tæki nokkurt árabil”,
sagði Sigurður.
Hann nefndi sem dæmi, að ný
flugvél af gerðinni B-727-200
kostaði vorið 1979 um 14 milljón-
ir bandariskra dala (tæplega
2700 milljónir króna), og ný gerð
af vélinni DC-10-30 kostaði á
sama tima um 42 milljónir dala
(rúmlega 8000 milljónir króna).
Hvetja til varfærni
Vikið var að endurnýjun flug-
flotans i röðum annarra for-
ystumanna Flugleiða á aðal-
fundinum.
Kristján Guðlaugsson, stjórn-
arformaður, sagði að „þótt flug-
vélakostur félagsins sé heppi-
legur miðað við daginn i dag, er
ekki þar með sagt, að hann
verði það til langframa, en
endurnýjun flugflotans krefst
gifurlegs fjármagns, sem félag-
inu mun reynast ofviða án opin-
bers stuðnings. Frumhlaup og
vanhugsaðar framkvæmdir i
þessu efni geta riðið félaginu að
fullu. Þótt við þykjumst vita að
hvaða marki beri að stefna
verðum við sökum fjárskorts að
gæta allrar varúðar og stefna að
markinu i áföngum, svo sem
gert hefur verið á liðnum ár-
um”.
örn Johnson, forstjóri, sagði,
að ,,á siðustu árum hefir dregið
úr þeim möguleikum, sem áður,
svo sem sérstaklega á sjötta og
sjöunda áratugnum, voru til
staðar sem sé þeim að mæta
jafnan hækkun tilkostnaðar með
stöðugt fullkomnari og hag-
kvæmari flugvélum, þ.e.a.s.
með stökkbreytingum i tækni-
þróun. Þar eru þó enn mögu-
leikar fyrir hendi, sem stefna
verður að að nýta, ef og þegar
aðstæður skapast, þ.e.a.s. kaup
og rekstur breiðþotu eða þotna á
Norður-Atlantshafsleiðinni. Sú
aðstaða er þó ekki til staðar i
dag, þótt það sé von okkar allra
að sá timi nálgist”. —ESJ