Vísir - 26.05.1977, Síða 5
Morðum haldið áfram í Uganda
í nýútkominni skýrslu
Alþjóðanefndar lög-
fræðinga, um Uganda,
segir að minnsta kosti
80-90 þúsund manns hafi
verið myrtir i landinu
fyrstu tvö árin sem Idi
Amin var við völd, og að
morðum sé haldið
áfram. í skýrslunni er
einnig sagt að fleiri
sannanir liggi nú fyrir
um að Amin, forseti,
beri persónulega ábyrgð
á mörgum morðanna.
Alþjóöanefnd lögfræöinga af-
henti Sameinuðu þjóðunum þessa
skýrslu nýlega. Hún telur sig ekki
geta gefið nákvæma tölu um þá
sem myrtir voru á fyrstu tveimur
árunum, en segir að tveir fyrr-
verandi ráðherrar úr stjórn Am-
ins hafi verið sammála um að
þeirhafi verið milli 80-90 þúsund.
I skýrslunni segir aö nokkuð
hafi sljákkað i morðsveitunum
slðustu tvö árin en þrátt fyrir það
séu morð, pyntingar og manns-
hvörf ennþá daglegt brauð. 1
skýrslunni segir og að nú liggi
fyrir meiri sannanir um að Amin
beri persónulega ábyrgð á mörg-
um morðum.
„Ein af helstu morðsveitunum
er „Rannsóknardeild ríkisins”
sem er undir beinni stjórn forset-
ans. Sagt er að I sumum tilfellum
hafi morðin verið framin sam-
kvæmt beinni skipun hans. I öðr-
um tilfellum gerði hann ekkert til
þess að hindra morð, eða til að
refsa þeim sem voru sekir um
morð, þegar honum var bent á
ódæðisverk þeirra.”
Á afvikinn stað
Rannsóknardeild rikisins hefur
nú breytt mjög starfsaðferðum
slnum. A fyrstu tveimur árunum
var algengt að fjöldamorðin væru
framin fyrir opnum tjöldum, I
vitna viðurvist. Núna fara af-
tökurnar oftast fram með leynd,
það er farið með fórnardýrin á af-
vikinn stað.
1 skýrslunni segir að þar sem
aðeins nánustu ættingjar og vinir
viti um þessi óhæfuverk, hafi
þeirra litið verið getiö I fjölmiðl-
um. Nefndinni tókst þó að hafa
uppi á sjónarvottum að nokkrum
morðum og er frásagnir þeirra aö
finna I skýrsunni.
Sem sönnun fyrir þvl að morð-
um er haldiö áfram, bendir lög-
fræðinganefndin meöal annars á
dauöa Luwums erkibiskups, og
tveggja fyrrverandi ráðherra I
febrúar á þessu ári. Amin lét
handtaka þessa menn og hélt þvl
svo fram að þeir heföu látið llfið I
bílslysi, þegar jseir reyndu að yf-
irbuga bilstjóra sinn og flýja.
Fullvíst þykir hinsvegar að
mennirnir hafi veriö myrtir og
þvi var jafnvel haldið fram að
Amin hefði skotið biskupinn meö
eigin hendi.
Breska stjórnin bað mannrétt-
indanefnd Sameinuðu þjóðanna
að rannsaka þetta mál á sínum
tlma. En stuðningsmönnum Am-
ins, hjá Sþ, hefur tekist að tefja
málið svo að ekkert er fariö að
gera I því ennþá og óllklegt aö
nokkuð gerist nokkurntlma.
Um
Ps. Málvöndunarmenn hafa án
efa rekið augun harkalega I fyr-
irsögnina á þessari slðu I gær:
„Arekstri forðað”. Þeim til hug-
arhægðar skal þess getið aö mál-
vöndunarmenn innan veggja rit-
stjórnarinnar hafa þegar tekið
sökudólginn I gegn og er hann
fullur iörunar.
Bretar endurskipuleggja
Breski herinn er að sögn að
endurskoða rækilega njósnastarf-
semi sina á Norður-lrlandi. End-
urskoðunin kemur i k jölfar h varfs
Roberts Niarc, kafteins ihernum,
sem talið er fullvist að irski lýð-
veldisherinn + hafi rænt, pyntað
ogsvomyrt. irski lýðveldisherinn
hefur sagt að kafteininn hafi verið
„tekinn af lifi”.
Kafteininn sem var 29 ára
gamall, hvarf laugardaginn 14.
þessa mánaðar. Hann hafði þá
um nokkurra mánaða skeið starf-
að fyrir leyniþjónustu hersins og
var jafnan klæddur borgaraleg-
um klæðum. Þvi hefur verið
haldið fram að hann hafi starfað
með úrvalssveitunum „Special
Air Service”, sem eru sérhæfðar I
njósnum og spellvirkjum bak við
víglinur óvinanna, en breska
herstjórnin hefur neitað þessu.
Engu að siður hefur hún tölu-
verðar áhyggjur af þeim upplýs-
ingum sem „spyrlar” irska
lýðveldishersins hefðu getað
fengið hjá Niarc, en þeir hafa illt
orð á sér vegna hroðalegra
pyntinga sem þeir beita fólk.
OOGO AjuSí
- VESTUR-ÞYSK
GÆÐAFRAMLEfÐSLA
Auói 80 er glæsilegur fólksblll sem hefir að baki sér hina
viðurkenndu vesturþýsku tæknikunnáttu og gæðaframleiðslu,
sem tryggir þægilegan, öruggan og ódýran akstur. — Gjörið svo
vel að líta inn og við munum gera okkar besta til að leysa úr
spurningum yðar varðandi Audi 80, sem á sér stærri bróður,
hinn glæsta Auómoo
HEKLAhf
Laugavegi 170—172 — Sími 21240
njósnir
Heimildir innan hersins segja að
Niarc hafi haft það hlutverk með
höndum að „riða net” njósnara i
suðurhluta Armagh, en þar um
liggur ein helsta birgðaflutninga-
leið lýðveldishersins. Þar um fá
þeir megnið af vopnum sinum og
skotfærum.
Herinn óttast að tenglar
kafteinsins séu nú I mikilli hættu
þar sem likur séu á að böðlum
lýðveldishersins hafi tekist að
pina út úr honum einhver nöfn. Er
þvi ekki talið óliklegt að lýð-
veldisherinn hefji útrýmingar-
herferð á næstunni.
„Neðanjarðarstarfsemi” hefur
annars dugað breska hernum vel
á Norður-lrlandi og töluverður
fjöldi hermanna klæðist nú borg-
aralegum fötum, talar með irsk-
um hreim og stundar njósnir.
Upplýsingar frá þessum neð-
anjarðarsveitum hafa leitt til
handtöku fjölmargra grunaðra
hryðjuverkamanna. Allar
upplýsingarnar eru geymdar i
tölvu i miðstöð herstjórnarinnar.
Þótt Robert Niarc hafi ekki
vitað mikið um neðanjarðarstarf-
semi, nema sina eigin, hefur hann
getað gefið böðlum lýðveldishers-
ins mikilvægar upplýsingar um
aðferðir og þjálfun. Það mun
koma I'ljós á næstu vikum hvort
lýðveldishernum hefur tekist að
plna út úr honum einhverjar þær
upplýsingar sem að gagni mega
koma við hryðjuverkastarfsem-
ina.
Tjöld, svefnpokar,
tjalddýnur, vindsœngur
og annar viðleguútbúnaður
í miklu úrvali
Póstsendum