Vísir - 26.05.1977, Blaðsíða 17
VISIR
Fimmtudagur 26. mai 1977.
17
—
ff— f- - | • ' ■ Umsjón: Hálfdán Heigason
isr fiPiitti rriiM ArlrimtltlV Lorens Rafn
VI flVIIIII IIIIII VI ImJlIIIIIlI Sigurður Pétursson
Þessir hlutir eru meðal hinna ágætu muna sem boðnir verða upp á frimerkjauppboðinu.
Afmœlisuppboð F.F.
Svo sem margoft hefur verið
bent á og a.m.k. flestir safnarar
vita verður Félag frimerkja-
safnara tvltugt I júnf n.k. eða
nánar tiltekið þann 11. þess
mánaðar. Af þvl tilefni efnir
F.F. til veglegrar frimerkja-
sýningar I Álftamýraskólanum
dagana 9.-12. júni með þátttöku
innlendra og erlendra safnara.
Er ekki að efa að sú sýning mun
verða öllum þeim er hana
sækja, til ánægju og fróðleiks
um frimerkiog frímerkjasöfnun
og jafnframt þessari skemmti-
legu og fjölbreyttu tómstunda-
iðju til framdráttar eins og fyrri
frlmerkjasýningar hafa jafnan -
ið.
Auk frimerkjasýningarinnar,
sem hlotið hefur nafnið
FRÍMEX 77, mun Félag frl-
merkjasafnara I tilefni afmælis
sins halda frlmerkjauppboö að
Hótel Loftleiðum laugardaginn
11. júni. Eins og kunnugt er
meðal safnara hefur F.F. um
nokkurra ára skeið haldiö
a.m.k. eitt og þó oftar tvö upp-
boð á ári og hafa þau jafnan
verið mjög vinsæl og reyndar
einn af aðal þáttunum I starfi
F.F. Hefur margur safnarinn
eignast þar hina eftirsóknar-
veröustu hluti fyrir sanngjarnt
verð. Efni það sem nú er á boð-
stólum er óvenjuglæsilegt og
fjölbreytt eins og kemur fram I
uppboðs skrá sem komin er út.
Er ástæða til aö staldra hér við
og þakka uppboðsneínd F.F.
geysimikið og tlmafrekt starf
viö allan undirbúning uppboös-
ins en I nefndinni eru þeir Sig-
urður Agústsson, Óskar Jóna-
tansson, Sigurður P. Gestsson
og Siguröur Pétursson. Ef við
snúum okkur aftur að uppboö-
inu má sjá I uppboðsskránni aö I
boöi verða alls 326 númer. Má
þar fyrst nefna óstimplað fjór-
blokkarsett af Hópflugi Itala og
er lágmarksboð 875 þúsund
krónur. Einnig er þetta sama
sett boðið á afklippingi, stimpl-
að í Hafnarfirði og er lágmarks-
boð 195 þús. krónur. Er óhætt
aö segja aö þar sé sýnd veiði en
ekki gefin. Þá má nefna ýmiss
skildingamerki stimpluö og ó-
stimpluö og ber þar trúlega
hæst óstimplaöa og ótakkaöa
2ja skildinga fjórblokk á 390
þúsund króna lágmarksveröi en
tökkuö blokk af sama verögildi
er metin I Facit verölistanum á
sem samsvarar 780 þúsund Isl.
króna. Ýmiss auramerki eru I
boði, stimpluð og óstimpluð og
m.a.s. nokkur hinna sjaldgæfari
i fjórblokkum svo sem 5 aur
blátt, lágmarksverð 80 þús. og
20 aur blátt á 65 þúsund kr.
lágmarksverði. Þeim sem
áhuga hafa á umslögum bend-
um viö sérstaklega á tvö umslög
með auramerkjum þ.e. 20 aur
blátt, stimplað með önundar-
fjarðar kórónustimplinum, lág-
marksboð 30 þús. og umslag
sent frá Reykjavík meö 40 aura
merki fjólubláu og þar er lág-
marksboðið einnig 30 þúsund
krónur. Vissulega er hægt aö
t.elja upp marga fleiri girnilega
hluti en sjón er sögu rikari og
hvetjum við alla safnara að fjöl-
rnenna á uppboöið þann 11. júnf.
SMÆLKI
Fyrir skömmu gaf Póst- og
simamálastjórnin út skrá yfir
póstnúmer tii notkunar við
flokkun póstsendinga, en þvi
kerfi hefur viða verið komið á
erlendis. Þessu til áréttingar
hefur verið tekin i notkun hjá
póstinum auglýsingavélstimpill
sérstakur sem nú „skreytir”
a.m.k. hluta þess pósts, sem fer
i gegnum aðalpósthúsið i
Reykjavik. Jafn sjálfsagt og
það er að almenningur verði við
þessum tilmælum um notkun
póstnúmera finnst okkur að
þessi vélstimpill verði sem allra
skammstan tima i notkun.
Vestur i Kaliforniu i Banda-
rikjunum hefur nú um rúmlega
tveggja ára skeið verið gefið Ut
frímerkjablað, sem eingöngu
er helgað islenskum frimerkj-
um. Nefnist blaðið Iceland
Philatelic Journal og kemur út
annan hvern manuð. Er efni
blaðsins fjölbreytt og fróðlegt
og er hér um að ræða merkilegt
framtak áhugamanns um is-
lensk frimerki og islensk mál-
efni. Útgefandi blaðsins er Bry-
an Whipple.P.O. BoxK Graton,
Ca. 95444, U.S.A.
Frá Landssambandinu
Frá Landssambandi Is-
lenskra frlmerkjasafnara hef-
ur borist eftirfarandi frétta-
bréf.
Tlunda landsþing Lands-
sambands Islenskra fri-
merkjasafnara verður haldið I
Álftamýrarskóla I Reykjavlk,
sunnudaginn 12. júnl næst-
komandi. Verður þingið haldið
I sambandi viö frlmerkja-
sýninguna „FRt-MEX 77”,
sem er 20 ára afmælissýning
Félags frlmerkjasafnara I
Reykjavlk en það félag hefur
sótt um inngöngu I L.t.F. á
þessu þingi.
Þetta afmælisþing markar
þannig spor I sögu Landssam-
bandsins. Að þvi loknu eru all-
ir frlmerkjaklúbbar og félög I
landinu innan þess vébanda,
auk þess sem breytingar á
stofnskrá verða framkvæmd-
ar þannig að héðan af munu
félögin eiga fulltrúa á þingi
eftir höfðatölureglunni. Þá er
auk þess framkvæmd sú
breyting nú, að þetta er I
siðasta sinn sem tillaga þarf
aðfara fyrir tvö Landsþing til
aö ná samþykki. Samkvæmt
þessu eiga um 40 manns rétt
til setu á Landsþingi islenskra
frlmerkjasafnara, auk stjórn-
ar og áheyrnarfulltrúa.
Stjórn Landssambandsins
skipa nú: Sigurður H. Þor-
steinsson, skólastjóri, forseti,
en hann hefur verið forseti
þess frá upphafi. Sigurður P.
Gestsson, varaforseti,
Hartvig Ingólfsson ritari,
Kristján Friösteinsson gjald-
keri og meðstjórnendur eru
Bolli Daviðsson, Jón Halldórs-
son og Siguröur Ágústsson.
Fundur hefst klukkan 9 að
morgni sunnudaginn 12. júni
eins og áður segir. Veröur
reynt að ljúka þingstörfum
fyrir opnun sýningarinnar
þann dag.
Daginn áöur eöa þann 11.
júni er svo Félag frlmerkja-
safnara 20 ára en þaö er elsta
starfandi félag frfmerkjasafn-
ara I landinu. Formaður þess
er Sigurður R. Pétursson.
Sýningin FRIMEX 77 er
með stærstu frímerkjasýning-
um sem haldnar hafa verið
hérlendis og þátttaka I henni
frá ýmsum löndum, mest frá
Sviþjóö, en m.a. frá USA og
öðrum Norðurlöndum. Hefir
m.a. Þýska frlmerkjafyrir-
tækiö Sieger sent verðlaun er
veita skal á sýningunni.
Á siðasta þingi Landssam-
bandsins var tekinn upp sá
háttur að skipa umdæmis-
stjóra I hinum ýmsu kjördæm-
um landsins. Hafa þeir nú ver-
ið skipaöir I flestum umdæm-
um og starf þeirra þegar boriö
ávöxt.
Þá er alveg á næstunni að
koma út kennslubók I fri-
merkjasöfnun á vegum L.I.F.
og verður henni dreift um allt
land.
RANX8
Fi»6rir
Eigum fyrirligg jandi
eftirtaidar fjaörir i
Volvo og Scania Vöru-
bifreiöar.
Framf jaörir í Scania L -
56/ L 76/ LB 80, LB 85,
LB 110, LBT 140, LS 56.
Afturfjaðrir í Scania L
56, L 80, LB 80, LB80, LB
110, LBS 140.
Stuðfjaðrir í Scania L
56.
Afturf jaörir í Volvo FB
88, NB 88, G 89.
Framfjaðrir í Volvo F
86, FB 86.
Augablöð og krókblöð i
Scania LB 110.
Hjalti Stefánason
Simi 84720.
VITINN
viðbótarblöðin
komin
Frímerkjamiðstöðin, S|'m;
Skólavörðustíg 21 a 21170
VISIR visar á
BILAVARAHLUTIR
Nýkomnir varahlutir í
Peugeot 404 '66
Skoda 110 L '72
Fiat 124 '68
Fiat 125 '71
Moskvitch '72
Ford Falcon '63
Taunus 17 M órg. '66
BILAPARTASALAN
Höfðatúni 10, simi 11397.
Opið frá kl. 9-6.30, laugardaga
kl. 9-3 og,sunnudaga kl. 1-3.