Vísir - 26.05.1977, Side 23
K.S.hafði samband við blaðið
vegna bréfa sem hér hafa birst
um gabb i sambandi við smá-
auglýsingar. K.S. sagði okkur
frá reynslu ungrar stúlku sem
auglýsti eftir herbergi, og fékk
upphringingu frá karlmanni
sem hét sama nafni og nefnt var
i öðru fyrrnefndu bréfanna:
Stúlkan, sem er 17 ára,
auglýsti eftir herbergi, og ósk-
aði helst eftir þvi i Hafnarfirði.
Karlmaður hringdi i númeriö
sem hún gaf upp, en þar sem
stúlkan haföi brugðið sér frá
svaraði systir hennar. Gaf mað-
urinn henni upp nafn, sima og
heimilisfang.
Hringdi hann aftur nokkrum
sinnum þar til hann náði tali af
ungu stúlkunni sjálfri. Kvaðst
hann þá hafa herbergi og spurði
hún um húsaleiguna. Maðurinn
sagði þá að venjuleg leiga væri
vist um 10 til 12 þúsund á mán-
uði en ef húshjálp kæmi á móti
væri hugsanlegt að breyta þvi
eitthvað. Stúlkan mun þá hafa
spurt i hverju sú húshjálp væri
fólgin. Maðurinn svaraði þvi til
að þaö væri kannski kjánalegt
að segja það svona i sima, en ef
hún svæfi hjá sér eins og einu
sinni i mánuði þá yröi leigan
tæpast mikil.
Stúlkan kvaðst hafa verið fljót
að leggja tólið á.
„Ekki fluglœs"
Athugasemd frá Guðjóni Hóim
formanni Gigtarfélags islands
1 lesendadálki þann 20. þ.m.
spyr einhver lesandi hver hafi
hreppt Mailorkaferð i happdrætti
Gigtarfélags Islands.
Þessi fyrirspurn bendir til þess,
að lesandi sé ekki fluglæs. Hann
segir nefnilega að á miðanum
standi, að dregið sé 29. april og
miðinn gildi til 1. ágúst. Þetta er
rétt, en á milli þessara lina á
miðanum stendur, að upplýsingar
um vinninga séu veiítar i tveim
númerum, sem þar eru tilgreind,
siðara númerið er á simsvara
sem hefur gengið allan sólar-
hringinn I þrjár vikur en verður
nú lokað, en hitt númerið hefur
einnig veitt upplýsingar I 3 vikur
á venjulegum skrifstofutima og
mun gera það áfram, en það er
10950.
Sex dagblöðum hafa verið send
vinningsnúmerin til birtingar i
dagbók. Einnig eru vinningar
birtir i Lögbirtingablaði, og út-
dráttur fór fram á réttum degi.
Þá sendi ég mynd af miðanum
þar sem staðreyndir málsins
koma glöggt fram.
Alls ekki
við
Laugoveg!
Haraldur Guðjónsson skrifar:
Þegar ég las Sandkorn i VIsi
ú. föstudag um Sjálfstæðishúsið
viö Bolholt, datt mér annað i
hug svipað dæmi. Það var þegar
Búnaðarbankinn eignaðist lóö-
ina Rauðarárstig 17 og byggöi
þar stórhýsi og fékk það sfðan
númerið 120 viö Laugaveg.
Húsið stendur þó alls ekki við
Laugaveg heldur við Rauðarár-
stig og Þverholt. Innsta hús við
Laugaveg er nr. 118, húsið E.
Vilhjálmsson hf.
Til glöggvunar má nefna að
hús Framkvæmdastofnunar
rikisins er i sömu húsaröð og
Búnaðarbankinn, aðeins innar,
en réttilega númer 31 viö
Rauðarárstig.
Ingi ú. Magnússon, gatna-
málastjóri, hringdi vegna
kvörtunar „Okumanns” yfir
Sætúninu.
„Astæðan fyrir þvi að litið
hefur verið gert fyrir Sætúniö
undanfarið er sú að það er á
malbikunaráætluninni hjá okk-
ur og verður byrjað á því núna
um næstu mánaðamót.”
„Búið er að malbika Sætún
frá Kleppsvegi og aö Kringlu-
mýrarbraut, en nú verður mal-
bikaðfrá Kringlumýrarbraut og
að Skúlatorgi. Það hefur þvi
ekki þótt taka þvi að leggja fé i
bráðabirgöaviðgerð á Sætúninu,
en áður en langt um liður getur
„Okumaöur” vel viö unað þar, á
slettu malbiki.”
Guðjón
út í lit
Vegna lesendabréfs sem birt-
ist frá M. i Visi á mánudag þar
sem fjallað var um útsendingar
á fréttum Guðjóns Einarssonar
sendur
fréttamanns sjónvarps frá Dan-
mörku, var okkur bent á aö það
efni sem bærist frá honum i lit
væri sent út i lit i islenska sjón-
varpinu svo framarlega sem að-
stæðurnar væru fyrir hendi. M.
og aðrir sjónvarpsáhorfendur fá
þvi allt það efni sem frá Guöjóni
kemur i lit berist það þannig.
Sjónvarpsmenn hér eru þvi ekki
að fela eitt eða neitt!
Simi notíii
Síöumula 8
Reykjavik
Ég óska að gerast áskrifandi
Nafn
Heimili
Sveitafélag
san