Vísir - 28.11.1977, Page 3
3
vism
Mánudagur
28. nóvember 1977
Stefán Edelstein skólastjóri
Tónmenntaskóla Reykjavikur og
einn af höfundum Handbókar I
námsefnisgerö. —JEG
fslendingar hafa yfir-
leitt sótt allar nýjungar í
skóla- og kennslumálum
til annarra þjóða. Þetta
er þó ekki einhlítt því nú
er unnið eftir handbók í
námefnisgerð sem fs-
lendingar hafa samið, í
tilraunaskyni í einni borg
í Bandaríkjunum.
Þetta kom fram hjá Stefáni
Edelstein skólastjóra Tón-
menntaskóla Reykjavikur i viö-
tali viö blaðamenn en hann er
einn þeirra er samið hefur þessa
bók. Tildrög þessa eru þau aö
Tónmenntaskóli Reykjavikur
hefur undanfarin ár fengið styrk
frá Ford-stofnuninni f New York
i þvi skyni að semja handbók I
námsefnisgerð. Þetta verk hef-
ur verið unnið af Stefáni Edel-
?(:■ :■
--.A
Islensk náms-
skrá í Banda-
ríkjunum
stein, Njáli Sigurðssyni og þrem
bandariskum tónlistarprófess-
orum. Bókin er að koma út i
Bandarikjunum og hefur einnig
verið þýdd á íslensku. Er hún
notuð sem kennslubók i
kennaradeild Tónlistarskólans.
1 Ames i Iowa i Bandarikjun-
um fer fram tilraunakennsla
samkvæmt handbókinni. Nær sú
tilraun til allra nemenda skóla-
kerfis borgarinnar, frá forskóla
tilmenntaskóla og einnig til tón-
menntakennaranáms við há-
skólann þar. Samskonar tilraun
er i gangi hér þó i smærri mæli
og mun verða náið samband
milli Reykjavikur og Ames og
skifst á upplýsingum.
Handbókin er byggð þannig
upp að hver og einn kennari hef-
ur mikið svigrúm til vals á
námsefni sem er best við hæfi
nemenda hverju sinni og hentar
þeim markmiðum sem kennsl-
unni eru sett. — KS.
Hann
er
góður
þessi
• Já, þaöer ekkihægt aöneita þvlaönýjasti SAMÚEL er afbragös
góöur. i blaöinu er Reykjavikurbréf eftir grínistann Birgi
Bragason, viötöl viö einstæðar mæöur um karlmenn, hjónaband
og kynlif. Sagt er frá fyrirhugaðri stofnun hlutafélags um rekst-
ur frjálsrar útvarpsstöövar og siöast en ekki sist annar hluti fé-
lagatals Frimúrarareglunnar.
• Jólablað SAMÚELS kemur út I byrjun desember og þá mun
hljómplata fylgja hverju eintaki. Þaö blað á eftir aö seljast upp á
fáeinum dögum. Tryggöu þér eintak meö þvi aö gerast áskrif-
andi. Askriftarsiminn er 23060 og 53615.
„Óheillastarfsemi
þrýstihópa verður
ekki vel tekið"
— segir Matthías Bjarnason,
sjávarútvegsráðherra á fundi LÍÚ
„Þeir sem fara út fyrir.
þessi mörk geta ekki á
eftir komið til stjórn-
valda og krafist þess að
fá rekstrargrundvöll,
eins og það er orðað.
Slíkri óheillastarfsemi
þrýstihópa verður ekki
vel tekið í sjávarútvegs-
ráðuneytinu meðan ég er
þar innandyra".
Svo tók Matthias Bjarnason
til orða á aðalfundi LtU er hann
ræddi meðferð á fiski. Hann
sagði að um leið og við setjum
okkur reglur um hámarksafla
af þorski innan 200 milna, þá
settum við ókkur jafnframt það
takmark að vanda alla meðferð
á fiski.
,,Það má ekki henda að komið
sé að landi með margra daga
gamlan fisk, sem ekki fullnægir
itrustu gæðakröfum og sem ekki
er hægt að vinna nema i lægstu
verðflokka.
Ef við ætlum að halda úppi
heilbrigðum rekstri i sjávarút-
vegi, er það skýlaus krafa til
fiskkaupenda, að þeir virði
kröfur um gæðamat og kaupi
aflann i samræmi við það verð
sem Verðlagsráð sjávarútvegs-
ins ákveður á hverjum tima”,
sagði ráðherra.
Hann sagði að menn sem færu
út fyrir þessi mörk gætu ekki
krafist þess að fá rekstrargund-
völl. —SG
Matthias Bjarnason
á super 8 filmu!
Austurstræti 7, s: 10966.