Vísir - 30.11.1977, Blaðsíða 6

Vísir - 30.11.1977, Blaðsíða 6
6 Spáin gildir fyrir fimmludaginn 1. desembcr: Miðvikudagur 30. nóvember 1977 VISIR llrúturinn, 21. mars — 20. april: Þú ert eitthvað takmörkunum háð (ur) í dag. Vertu ekki svona öfgafull (ur) i athöfnum þinum, temdu þér góða hegðun. 1)' Ljónið, 24. júli — 23. ágúst: Þú þarft að leggja áherslu á að ná sem bestum samskiptum við fjölskyldu þina i dag og reyna að betrumbæta umhverfi þitt. Reyndu að létta undir með sam- býlisfólki þinu. Meyjan, 24. ágúst — 23. sept: Þú færð tilboð frá vini þinum eða kunningja, sem er mjög freistandi. Farðu samningaleið- ina frekar en að láta hart mæta hörðu. Keyptu eitthvað fallegt handa ástvini þinum. Nautið, 21. april — 21. mai: GæTtu þin vel i samskiptum þin- um við hitt kynið. Tilfinningum og ástriðum þinum hættir til að fara út i öfgar. Gættu ástvinar þins vel. Tvíburarnir, 22. mai — 21. júni: Þérgengur illa að átta þig á til- finningahita annarra, þú lærir. \ mest af mistökunum. Sýndu maka þinum eða félaga um- burðarlyndi. ^ Krabbinn, 22. júní — 23. júli: Þú skalt benda á það, sem mið- ur fer i kringum þig og ekkrt vera að skafa af hlutunum. Gerðu ættingja þinum eða tengdafólki greiða. Vogin, 24. sept. — 22. nóv: Þú hefur einhverjar áhyggjur af heilsu þinni og liklega ekki að ástæðulausu. Ekki lyfta upp þungum hlutum. Hjálpaðu sam- starfsfélaga þinum um morgun- inn. Drekinn, 24. okt. — 22. nóv.: Þér hættir til að vera tilfinn- inganæmari en venjulega. Reyndu að vera ekki svona inni- lokaður) lokuð), blandaðu meira geði við aðra. Hugsaðu um aðra. Hogmaðurin n, 23. nóv. — 21. des. Þú kemst að raun um eitthvað, sem mun bæta aðstöðu þina gagnvart einhverjum. Gerðu þér betur grein fyrir, hvað er að gerast i kringum þig. Steingeitin, 22. des. — 20. jan.: Þú ert i einhverjum vafa um til- finningalegt samband, sem þú ert i. Sambönd einhverra vina þinna koma sér einstaklega vel, þiggðu hjálp. 1% Vatnshcrinn, 21. jan. — 19. feb.: Þú færð útrás fyrir tilfinningar þinar með þvi að vinna að mannúðarmálum. Vertu vand- lát (ur) i vali vina. Hreinskilni borgar sig. Fiskarnir, 20. feb. — 20. mars: Þú færð tækifæri til aö láta ljós þitt skina i dag. Rómantlkin blómstrar og sköpunargáfa þin er mikil. Þú tekur forystuna. Löngu seinna 7) 'búðunum „timbrið' er tilbúið sagði Hall , en hvar er Olu? Gefðu honum einn dae til viðbótar sagði Tarsan áöur en við athugum málið. S-17-

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.