Vísir - 16.12.1977, Page 5
Polanski
ívarðhald
og geð-
rannsókn
Roman Polanski kvik-
myndaleikstjórinn frægi,
mun sæta varöhaldi með-
an hann gengst undir geð-
rannsókn en hann hefur
játað að hafa haft kyn-
mök við þrettán ára
stúlku.
Hinn 44 ára gamli leikstjóri
var úrskurðaöur i allt að 90'daga
gæsluvarðhald, meðan geð-
rannsóknin stendur yfir, en hún
byrjar á mánudaginn. Polanski
fér i fangelsið i dag.
Akæran gegn Polanski var
upphaflega i fimm liðum. Þar á
meðal nauögun, ósiðsamlegt
framferði gegn unglingum und-
ir lögaldri og fyrir að hafa gefið
ungu stúlkunni fikniefni að
loknu ljósmyndapartii i húsi
leikarans, Jack Nicholson, sem
var að heiman þegar þetta skeði
i mars i vor. En fallið var frá
hinum ákæruatriðunum, þegar
Polanski játaði sig sekan um
kynmök við stúlkuna.
Viða er jólahugur kominn i fólk, enda rétt rúm vika til jóla. A
liótel Waldorf Astoria i New York var mikið um dýrðir hjá börn-
unum i vikunni á jólaskemmtun þar sem útbýtt var jólagjöfum
frá Barnaspitalanum I New York. Þar var staddur Terence
Cooke kardináli og erkibiskup af New York, sem sést hér á
myndinni bregða á gaman við börnin og setja upp sinn allra siöa-
vandasta svip meðan drengurinn virðir hann fyrir sér i gegnum
sjónauka, sem hann fékk i jólagjöf.
Þessir tveir áhrifamenn i
Austurlöndum nær tefla
þessar vikurnar völdum sin-
um og áhrifum i hættu til
þess að reyna að komast að
samkomulagi um lausn deil-
unnar þar — T.v. Menachem
Begin, forsætisráðherra, t.h.
Anwar Sadat Egyptalands-
forseti.
Hittast Sadat
og Carter?
Viðrœður Begins, forsœtisráðherra ísraels,
og Carters Bandaríkjaforseta hefjast í dag
Fundur Menachem
Begins, forsætisráð-
herra israels með Cart-
er Bandarikjaforseta
hefst í hvíta húsinu i
dag, en þar er talið, að
Begin muni leggja fram
nýjar tillögur til lausnar
deilunni i Austurlönd-
um.
Það hefur ekkert verið látið
uppi um erindi Begins við Carter,
en hann fór mjög óvænt iram á
skyndifund með Bandarikjafor-
seta núna um siðustu helgi, og
mun snúa strax heim aftur á
morgun.
En flestir ætla, að israelski for-
sætisráðherrann hyggist skýra
fyrir Bandarikjaforseta, hvernig
tsraelsstjórn ætlar að svara
heimsókn Sadats Egyptalands-
forseta til Israels á dögunum og
koma til mðts við friðarumleitan-
ir hans. — Bandarikjastjórn hefur
lagt mjög fast að tsrael að reyna
til hins ýtrasta að ganga á móts
við óskir Egypta og Araba.
Bandariksir embættismenn,
sem standa i nánum tengslum við
tsraelsstjórn, segja, að hjá henni
hafi orðið veruleg hugarfars-
breyting eftir heimsókn Sadats til
tsraels. tsraelsmenn séu jafnvel
farnir að hugsa til þess að sleppa
hendi af einhverjum hernumdu
svæðanna.
Fundur Begins og Carters
stendur vafalaust að einhverju
leyti i sambandi við fyrirhugaða
ferð Carters forseta til sex landa
um áramótin. Hann mun þá m.a.
heimsækja Saudi Arabiu (3. janú-
ar). Kominn er upp kvittur um,
að Sadat Egyptalandsforseta
muni bregða sér um sama leyti til
Saudi Arabiu og hitta Carter að
máli.
Kardináli í jólaskapi
VTSIR
Fimmtudagurinn 15. desember 1977
Skattar hœkka
í Bandaríkjunum
— en lífeyrisgreiðslur þrefaldast um leið
Bandarikjaþing afgreiddi i gær,
siðasta mál fyrir þinghlé og jóla-
leyfi, frumvarp, sem felur i sér
mestu skatlahækkun I sögu USA.
Frumvarpið sem fjallar um fé-
lagsmál og tryggingar, gerir ráð
fyrir 227 milljón dollara nýjum
sköttum á næstu tiu árum.
Carter forseti fagnaði sam-
þykkt frumvarpsins og sagði að
það mundi bjarga ellilifeyris-
tryggingum frá gjaldþroti. —
Hann boðaði að i kjölfar þessa
frumvarps mundi um 100 milljón
manna fá lifeyri sinn þrefald-
aðan.
Carter sagði á blaðamanna-
fundi i gær, að hann teldi þetta
eitt mesta framfaramál, sem
hann hefði nokkru sinni beitt sér
fyrir. Hann kvað lagabreytinguna
leiða til hækkunar ellilifeyris um
33 milljóna manna, til hækkunar
örorkulifeyris, ekknalifeyris,
barnalifeyris og sjúkrapeninga
aldraðra.
Samkvæmt nýju lögunum mun
maður með 17.700 dollara tekjur á
ári greiða rúmlega 1.000 dollara i
skatta, en það eru 106 dollurum
meira en á þessu ári.
Forsetinn kvaðst hafa átt
,,mjög gott” ár með þinginu, þar
sem demókratar, flokksbræður
hans, eru i meirihluta i báðum
deildum Þingið hefur afgreitt yfir
200 ný lagafrumvörp á siðustu tólf
mánuðum.
Þó tókst honum ekki að fá þing-
ið til þess að samþykkja ráðstaf-
anir hans i orkumálum, eins og
hækkun skatta á hráoliu og verð-
hækkun á jarðgasi, en það voru
tvö veigamestu atriðin i orku-
frumvarpi Carters, sem hann
hafði sett á oddinn.
Sprengja í
kaffihúsi
Einn maður beið bana og
32 særðust (26 þeirra
franskir hermenn), þegar
handsprengju var varpað
inn á gangstéttarkaffihús í
Djibouti i gærkvöldi.
Franska setuliðið í Dji-
bouti varð að halda sig inn-
an skála meðan lögregla og
herlið leitaði dyrum og.
dyngjum, að tilræðismann-
inum i gærkvöldi og í nótt.
Frakkar hafa 3.500 manna her-
lið i landinu að beiðni heima-
manna, bæði til að aöstoða við
uppbyggingu hers hins nýja rikis
og til að vernda sjálfstæði þess,
meðan nágrannarnir, Eþiópia og
Sómalia, deila um Ogaden-svæð-
ið.
GÓLFTEPPI
fró Skotlandi
•' ý v
RYA-ULLARGÓLFTEPPI
fermetirinn með undirlagi aðeins kr. 5.750,-
100% NYLONGÓLFTEPPI
fermetirinn með undirlagi aðeins kr. 1.975,-
Opið til kl. 10 e.h. í kvöid
WELCO h.f.
(Verslanamiöstöðinni w
horni Nóatúns og Hátúns) Hótúni 4, simi 24277
Sonur Kýpurforseta
á valdi rœningja
Óvist er, hvort hinn
21 árs gamli sonur
Kýpurforseta er enn
lifs i dag, en runninn er
út fresturinn sem ræn-
ingjar hans gáfu.
Þeir höfðu hótað að
drepa Achilles Kypri-
anou liðsforingja, ef
stjórnin yrði ekki við
kröfum þeirra fyrir kl.
22 i gærkvöldi um að
sleppa öllum pólitisk-
um föngum.
Þeir munu einkum hafa haft i
huga Eoka-félaga, sem dæmdir
hafa verið eða sitja i fangelsi og
biða dóms. Um leið munu þeir
hafa krafist sakaruppgjafar
handa hinum, sem enn fara
huldu höfði.
Spyros Kyprianou forseti
efndi til skyndifundar i gær með
stjórninni og yfirmönnum lög-
reglu og hers. Eftir fundinn var
skorað opinberlega á ræningj-
ana að ihuga hversu alvarlegt
athæfi þeirra væri og sleppa gisl
sinum.
Siðar birtist Mimi eiginkona
Spyros, i sjónvarpi og grátbað
ræningjana um að sleppa syni
hennar.
Liðsforingjanum var rænt á
miðvikudagskvöld. Tveir menn
i stolnum leigubil höfðu heim-
sótt hann i herskálana við rætur
Torodos-fjalls (um 32 km frá
Nicosiu). Þegar þeir höfðu
gabbað hann frá vörðunum,
neyddu þeir hann með sér i
leigubilinn.
Nokkrir liðsmanna samtaka
Eoka-b afplána langa fangelsis-
dóma, og aðrir biða dóms. Vitað
er um ellefu EOKA-menn sem
handteknir voru i vikunni
ákærðir fyrir fjögur morð.
EOKA-b telur sig arftaka
EOKA-hreyfipgarinnar, sem
Makarios erkibiskup stjórnaði
upp úr 1950 i deilunni við Breta.