Vísir - 16.12.1977, Page 32
VtSIR
Smáfiufflýsingahappdrœlli IISIS
2fi" lilsjónrarp (á t'fVli)
(id rrrdiiiœfi kv.XttZ þús.
Luxor
FRá
KARNABÆ
.>\i
"v/r
Hrvtfió 20.des.
Smáauglýsingamóttaka:
virka daga kl. 9-22
Laugard. kl. 10-12
Sunnud. kl. 18-22
sím nuun
Drœm syör um inni-
stœður f Danmörku
llla gengur að fá svör
frá þeim 80 aðilum sem
reyndust eiga innstæður í
dönskum bönkum. Frest-
ur til að svara er útrunn-
inn hjá sumum og þann
20. desember eiga allir að
hafa svarað.
Samkvæmt upplýsingum sem
Visir fékk hjá Garðari Valdi-
marssyni skattrannsóknar-
stjóra i morgun hafa tiltölulega
fáir séð ástæðu til að svara
fyrirspurnum embættis hans.
Öskað var eftir að innstæðueig-
endur gerðu grein fyrir pening-
um þeim sem þeir eiga á banka i
Danmörku.
Þessir 80 aðilar áttu sem
svarar 140 milljónir króna á
bankareikningum i Danmörku.
Von er á upplýsingum frá fleiri
dönskum bönkum á næstu dög-
um varðandi inneignir Islend-
inga.
—SG
39 ÁREKSTRAR
Alls urðu þrjátíu og niu
árekstrar síðasta sólar-
hring eða frá klukkan sex
í gærmorgun til
klukkan sex í morgun.
Engin stór slys urðu þó.
Þrjú slys urðu i gærdag en öll
minni háttar. t einum árekstr-
anna.á mótum Háaleitisbrautar
og Miklubrautar, skarst öku-
maður annars bilsins og var
fluttur á slysadeild.
Ekið var á gangandi pilt i
Unufelli i gærkvöldi og var hann
fluttur á slysadeild. Og ekið var
á gangandi mann við Hamra-
hliðarskóla i gærkvöldi. Hann
var einnig fluttur á slysadeild.
Mjög mikil hálka var á götum
borgarinnar i morgun.en enginn
alvarlegur árekstur hafði orðið
þegar Visir hafði samband við
lögregluna.
Björn Þórhallsson og
Árni Grétar í framboð
i prófkjöri sjálfstæðismanna i
Reykjaneskjördæmi fyrir ai-
þingiskosningarnar hafa boðið
sig fram ellefu manns, en fram-
boðsfrestur rann út um mið-
nætti i nótt.
Þessir frambjóðendur eru
Árni Grétar Finsson, Hafnar-
firði, Björn Þórhallsson,
Reykjavik, Eirikur Alexanders-
son, Grindavik, Helgi Hall-
varðsson, Kópavogi, Matthias
A. Mathiesen, Hafnarfirði, Odd-
ur Ólafsson, Mosfellssveit, Ólaf
ur G. Einarsson, Garðabæ, Páll
V. Danielsson, Hafnarfirði,
Richard Björgvinsson, Kópa-
vogi, Salóme Þorkelsdóttir,
Mosfellssveit og Sigurgeir Sig-
urðsson, Seltjarnarnesi. —KS
Þorlóksmessa á hverjum degi
„Þetta er eins og þaö sé Þorláksmessa á hverjum degi,” sagði
kaupmaður nokkur i Reykjavík við VIsi. Og víst er um það að
jólaundirbúningurinn er nú i algleymingi. Fleiri kaupmenn hafa
látið þess gctið við VIsi að svo virðist sem fólk heföi hafið jóla-
innkaupin fyrr nú en oftast áður. Þegar um mánaðamótin. var
fólk farið að versla fyrir jólin.
Þessi mynd var tekin í jóiaösinni i gær. Hinn langi annatfmi
virðist ekki hafa giengiö nærri fullorðna fólkinu en eins og sjá má
eru ýmsir úr yngri kynslóðinni orðnir heldur lúnir. — SJ/VIsis-
mynd JA
Ólafur Ragnar Grfmsson
Ólofur Ragnar
formaður fram-
kvœmdastjórnar
Alþýðubondalcgs
Ólafur Ragnar Grimsson,
prófessor, var kjörinn formaður
framkvæmdastjórnar Alþýðu-
bandalagsins á fundi á mánu-
dagskvöldið. Aðrjr I fram-
kvæmdastjórninni eru Lúðvik
Jósepsson, Kjartan ólafsson,
Guðrún Helgadóttir, Tryggvi Þór
Aðalsteinsson, Benedikt Daviðs-
son, Geir Gunnarsson, Guðmund-
ur J. Guðmundsson, Haraldur
Steinþórsson, Sigurður Magnús-
son og Svava Jakobsdóttir.Vara-
menn I framkvæmdastjórninni
eru Svavar Gestsson, Ásmundur
Stefánsson og Ólafur R. Einars-
son.
—KS
Dœmt í Geir-
finnsmálinu
á mánudag
Dómur i Guömundur- og
Geirfihnsmáli verður væntan-
lega kveðinn upp i Sakadómi á
mánudaginn.
Áður hafði verið reiknað
með dómsuppkvaðningu I dag,
en samkvæmt upplýsingum
sem Visir fékk hjá Sakadómi i
morgun verður það ekki.
Forseti Sakadómsins er
Guðlaugur Briem sakadómari
og með honum sitja i dómnum
þeir Haraldur Henrýsson og
Armann Kristinsson saka-
dómarar.
—SG
Stöndum jafnir eftir ef
orkubúið tekur skuldirnar
— segir Kristján Jónsson um skiptingu verðjöfnunargjaldsins
„Miðað við að Raf-
magnsveitur rikisins
losni við þær skuldir,
sem taldar eru til Vest-
fjarða, stöndum við
nokkurn veginn jafnir
eftir”, sagði Kristján
Jónsson rafveitustjóri,
þegar Visir spurðist
fyrir um. áhrif þess á
rekstur rafmagnsveit-
anna að 20% verðjöfn-
unargjaldsins verði
látið renna til Orkubús
Vestfjarða.
í frumvarpi til laga um verð-
jöfnunargjald raforku, sem ný-
lega var lagt fram á Alþingi, er
gert ráð fyrir framlengingu
verðjöfnunargjalds um eitt ár,
en það er nú 13% af seldri raf-
orku. Ennfremur er lagt til i
frumvarpinu að 20% af gjaldinu
renni til Orkubús Vestfjarða.
Kristján Jónsson sagði, að
gerð hefði verið athugun á á-
hrifum þess aö Orkubú Vest-
fjarða fengi þennan hluta verð-
jöfnunargjaldsins. En þar sem
rúml. 20% skulda Rafmagns-
'veitna rikisins væru nú talin til
Vestfjarða, hefði þessi skipting
verðjöfnunargjaldsins engin á-
hrif, ef skuldirnar væru yf-
irfærðar á orkubúið.
Enn hefur ekki verið ákveðið
að hafa þennan háttinn á, en
Kristján sagðist vonast til að
það yrði gert. Við stofnun Orku-
bús Vestfjarða i haust gaf
Gunnar Thoroddsen iðnaðar-
ráðherra Vestfirðingum fyrir-
heit um að orkubúinu yrðu af-
hentar allar eignir Rafmagns-
veitna rikisins á Vest-
fjörðum. Eignirnar voru
bókfærðar upp á rúmlega þrjá
milljarða króna og var gert ráð
fyrir að orkubúið tæki að sér 500
milljónir af áhvilandi skuldum.
Um þetta atriði hefur þó enn
engin ákvörðun verið tekin, eins
og áður sagði. —sj