Vísir - 11.03.1978, Blaðsíða 27

Vísir - 11.03.1978, Blaðsíða 27
27 vism Laugardagur 11. mars 1978 ofenllkyJijm lnlD|éinnlD Steinar h.f. hafa gefið út hljómplötur um þriggja ára skeið og á þeim tíma gefið út 20 breiðskífur. Við hittum að máli Steinar Berg Isleifsson, sem veitir fyrirtækinu forstöðu og er jafnframt einn aðaleig- andi þess/ og byrjum á þvi að spyrja hann um út- gáfu síðasta árs. Steinar h.f. gáfu út fimm plöt- ur á siðasta ári og kom það i heild mjög vel út. Einnig tökum við að okkur rekstur hljómplötuútgáfunnar Ýmis h.f., sem er i eigu Gunnars Þórðarsonar, og gaf hún út eina plötu „Gamlar Góðar Lumm- ur”, sem varð söluhæsta islenska platan á árinu. Fyrir mig kom siöasta ár betur út en ’76, þó ekki vegna þess að þær plötur, sem fyrirtækið gaf þá út seldust ekki vel, heldur vegna þess að plötur síöasta árs voru ekki eins dýrar i framleiðslu. I ár verður áframhaldandi samstarf okkar og Ýmis og saman munu þessi fyrirtæki, sem reyndar eru rekin sem eitt i dag, gefa út fleiri plötur en nokkru sinni fyrr, eða 10-15 mismunandi plötutitla. Sýnir það, betur en nokkuð annað, að við höfum mikla trú á þvi að plötusalan verði góð i ár. — Geturðu sagt okkur eitt- hvað frá þvi, hverjir munu koma fram á þessum plötum? Já, Ýmir hefur nú þegar lokið við gerð annarrar plötu með Lummunum. Einnig er þar i undirbúningi sólóplata með Gunnari Þórðarsyni og ýmislegt fleira. Nú þegar er hafinn undir- búningur að plötum með Fjörefni, Randver, Dúmbó og Spilverki þjóðanna. Fleiri nöfn get ég ekki upplýst sem stendur. Annars má það gjarnan koma fram, að þó að hljómplötuútgáfa okkar sé þetta mikil þá eru Steinar h.f. fyrst og fremst inn- flutningsfyrirtæki með hljóm- plötur og útgáfan minni hluti starfseminnar. Steinar í Karnabæ — Er ekki mikil samvinna með Steinum h.f. og Karnabæ? Jú, segja má að hinn mikli vöxtur fyrirtækisins eigi rætur sinar að rekja til samvinnu, og aö hluta til samruna, þess við Karnabæ. Tel ég að samstarf jietta hafi komið sér mjög vel fyrir alla aðila og við erum stað- ráðnir i þvi aö halda áfram á þessari linu. — Hvernig seljast erlendar hljómplötur á Islandi? Það selst mjög mikið af þeim hér. Það er þó ekki raunhæft að bera saman sölu á erlendum plötum og islenskum vegna þess að fjöldi erlendra titla skiptir hundruðum, ef ekki þúsundum, og breiddin er svo miklu meiri. En margar erlendar hljómplöt- ur, sérstaklega ýmiss konar samansafnsplötur, seljast hér i mörgum þúsundum eintaka og standa vinsælustu islensku plöt- unum fyllilega á sporði. Traustari grundvöllur Aftur á móti má það segjast um islenska útgáfustarfsemi, að hún stendur nú miklu fastari fótum, en t.d. fyrir 1-2 árum og linurnar miklu skýrariiþ.e. þau fyrirtæki, sem starfa enn eftir þá miklu holskeflu sem fylgdi i kjölfar tilkomu Hljóðrita starfa nú flest á traustum grundvelli og er það vel. — Er mikiö framboö á fólki sem vill komast á plötu? Já, þaðhefur t.d. ekki liðið ein vika það sem af er árinu, að ég hafi ekki fengið eina beiðni eða fleiri, eða upptökur, frá fólki sem vill komast á hljómplötu, þannig að mér er óhætt að full- yrða, að áhugi fólks er mjög mikill og komast færri að en vilja. Enda verður metútgáfa á islenskum hljómplötum i ár. /7/7 o o o oo (S o & [o)©i> temitnigfeD ©feko (finlOO’DínlD e> 2/7/7 Næst hittum við að máli hinn góðkunna hljómlistar- mann Magnús Kjartansson# en hann er einn aðstand- enda Hljómplötuútgáfunnar h.f. Núna skömmu fyrir jólin létu Magnús og félagar hans í veðri vaka/ að út- gáfan myndi sennilega leggja upp laupana uppúr áramótunum/ vegna óhagstæðra rekstrarskilyrða. Hljómplötuútgáfan h.f. er hins vegar enn í fullu f jöri og byrjum við þvi á að spyrja Magnús hvað hafi valdið þvi/ að þeir sáu sér færtaðhalda áfram. sárt ennið, vegna þess að það var farið of harkalega af stað. Þetta plötuflóð var þó mjög eðlilegt upphaf á „nýjum” iðn- aði hérlendis, að minu áliti. En þetta hafði það i för með sér, að sala á islenskum plötum minnk- aði i fyrra, á meðan erlendar plötur seldust betur en nokkru sinni fyrr. Ég tel þó að islensk hljómplötuútgáfa hafi á siðasta ári komist á fastan grundvöll og er bjartsýnn á áframhaldið. — Hvað um útgáfu á þessu ári? — Við munum ekki auka út- gáfuna frá þvi sem var á siðasta ári. Fyrir skömmu kom fyrsta platan frá okkur á árinu.sem er sólóplata söngvarans Herberts Guðmundssonai; og þessa dag- ana er að koma út plata, þar sem Guðrún Tómasdóttir syng- ur lög eftir Sigvalda Kaldalóns og dóttur hans Selmu. Um ann- að vil ég ekki tjá mig á þessu stigi. Mikill kostnaður — Geturðu gefið okkur nokkra hugmynd um hvaö það kostar að gera hljómplötu i dag? — Það er nokkuð misjafnt og fer eftir innihaldi plötunnar, en meðalkostnaður, ef allt er talið með, frá þvi að hugmynd henn- ar fæðist til útgáfudags, er ein- hvers staðar á bilinu 2 1/2—5 milljónir. Stærsti hlutinn er upptökukostnaðurinn, en hann getur verið allt að 50% og er ekki óalgengt að upptaka popp- plötu kosti 1—1 1/2 milljón. Laun til hljóðfæraleikara eru lika stór liður og margt fleira kemur inn i dæmið s.s. Stef- gjöld o.fl. Platan þarf þvi að seljast i u.þ.b. 2000 eintökum til þess að standa undir sér, Það er of mikið, þyrfti að vera 1000. t dag þykir 3000 eintaka sala mjög góð, þannig að það er ekki mikið upp úr þessu að hafa, miðað við það sem lagt er i plöt- una. — Er eitthvað sem þú vilt segja að lokum, Ólafur? — Ég hef nú engan sérstakan boðskap að færa þjóðinni, en varðandi útgáfuna vil ég segja það, að ég held að margir sjái þessa starfsemi ieinhverskonar hillingum. Menn halda að i þessu drjúpi smjör af hverju strái og allt sé sveipað ævin- týralegum blæ. En það er mesti misskilningur. Já, viö vorum búnir að gefa út hljómplötur um tveggja ára skeið og með misjöfnu efni. A siðasta ári náðum við svo samn- ingum við mjög góða listamenn, sem gerðu, að okkar mati, ákaf- lega góðar plötur fyrir hinn islenska markað. En, þrátt fyrir góða framleiðslu, gekk rekst- urinn ekki byrlega. Samt sem áður, vegna þess hve langt viö vorum komnir úti útgáfuhring- iöu siðasta árs, héldum viö áfram og veðjuðum djarft. Nú, það þarf ekki að taka það fram, að verslanir og aðrir voru með það i undirmeðvitundinni að við ættum eftir að pompa. Þegar við gefum svo út þessa yfir- lýsingu voru þær plötur, sem við höfðum gefið út 3-4 mánuðum áður, farnar að seljast bara nokkuö vel, en við að gefa út okkar dýrustu hljómplötu, þannig að ef hún bæri sig ekki væri allur annar árangur á árinu farinn fyrir bi. Sumir hafa það fyrir vana, ef vel gengur um smá tima, aö slá um sig og láta þannig lita út, að allt sem þeir taki sér fyrir hendur sé öruggt og pottþétt. En okkar fyrirtæki var búið aö ganga i gegnum það mikið súrt, að við ætluöum ekki að láta blekkjast af nokkurra mánaða velgengni og fara að gefa út stórar yfirlýsingar. Þá tókum viö þá ákvörðun, að framtið fyrirtækisins skyldi ráðast af stöðu þess um ára- mót, þvi væri hún óhagstæð þá væri mikil vinna, miklir peningar og annaö, búið aö fara i of langan tima til einskis. Núna nýlega hefur það svo komið i ljós, aö þetta hefur komið all- sæmilega út og við ætlum þvi aö keyra eitt ár i viðbót og sjá hvað setur. Við höfum mörg áþreifanleg dæmi um það, hve gæfán getur verið fallvölt i þessum bransa. Eitt árið leikur allt i lyndi, en annað lepur fólk dauðann úr skel vegna þess, að það hefur látið blekkjast, en ég ætla nú ekki að nefna nein nöfn i þessu sambandi. Óskírð átta-manna úrvals hljómsveit — Hvaö ætlið þiö svo að gefa út á þessu ári? Við erum með einar þrjár plötur i vinnslu þessa stundina, sem viö höfum hugsað okkur að komi á markaðinn með vorinu. Þar ber hæst frumsamda plötu með óskirðri átta-manna úr- valshljómsveit. A henni eru m.a. 2lög eftir Ladda, 2 lög eftir Ragnhildi Gisladóttur og þrjú lög eftir Magnús Eiriksson, sem þar sýnir á sér nýja hlið, en hann hefur sýnt að það eru lögin hans sem selja plöturnar, en ekki plöturnar sem selja lögin hans. Um hinar tvær viljum við ekkert segja einsog stendur, en þær verða allsérstæðar. Svo hugsum við okkur náttúrlega til hreyfings með okkar listafólk s.s. Rut Reginalds, Vilhjálm Vilhjáms. og Halla og Ladda og einnig gerum við okkur vonir um, að bæta við okkur nýjum „artista” á þessu ári. En viö förum varlega. Heilbrigð samkeppni nauðsynleg — Nú eru margar plötur sem drukkna hreinlega i öllu plötu- flóðinu sem hér er orðið árvisst fyrirbrigði. Finnst þér ekki aö plötuútgefendur ættu að hafa eitthvert samstarf til þess aö forða þvi? Markaðurinn hérna er ákaf- lega viftkvæmur og menn eru alltaf að taka sjensa og það sem taliö er pottþétt söluefni i dag verður það kannski ekki að morgni. Aftur á móti tel ég að heilbrigö samkeppni sé nauðsynleg og að samstarf myndi hafa alvarlegar afleiö- ingar i för með sér, þannig að einhver gæti ekki gert eitthvað útaf einhverjum. Það myndi eyöilggja einstaklingsfram- takið, sem alltof litið er orðið um i okkar samfélagi og ég tel algeran óþarfa að hafa eitthvert allsherjarráð, þó svo að sumir telji sig vera nú þegar sjálf- skipaöa i þessu ráöi. Nú, hljóm- plötusala var mikil i fyrra og hvað gerast mun i ár veit enginn. Hljómplötur koma til með að hækka mikið i ár, en á móti kemur hin mikla hljóm- tækjaeign landsmanna. — Viltu segja eitthvað að lokum Magnús? — Já, ég vil nota tækifærið til að þakka okkar ágæta listafólki samstarfið á siðasta ári og það sem liðiö er af þessu og sérstak- lega vil ég þakka Jóni Ólafssyni fyrir frábæran dugnað og elju, sem ég tel vera megindstæðu fyrir þvi aö Hljómplötuútgáfan lifir!

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.