Vísir - 27.05.1978, Qupperneq 2
2
Laugardagur 27. maí 1978. visrn
I KOSNINGASJÁ VÍSIS
UM HVAÐ SNÚAST
KOSNINGARNAR
í REYKJA VÍK
— að mati þeirra sem eru í baróttusœtunum?
Guðrún Helgadóttir
„Einrœði Sjálf-
stœðisflokksins
eða íhlutun
félagslegra afla"
— segir Guðrún
Helgadóttir
Til þess eru kosningar á
f jögurra ára fresti að fólk i borg
og bæ — kjósendur — segi álit
sitt á gerðum þeirra sem meö
stjórn mála hafa farið. Þessi
réttur kjósenda er alltof sjaldan
nýttur. Þess i stað virðast
margir ganga á mála hjá ein-
hverjum stjórnmálaflokki fyrir
lifstið hvernig svo sem allt velt-
ist.
Þeir sem vilja nota kosninga-
rétt sinn svara þvi á sunnudag-
inn hvort þeir vilja hafa einræði
Sjálfstæðisflokksins áfram i
Reykjavik eða hvort þeir vilja
meiri ihlutun félagslegra afla.
Borgarmál snúast um það al-
mennt og yfirleitt á hvað
borgararnir leggja áherslu i
framkvæmdum i borginni og
hverjir skuli njóta þeirra
peninga sem þeir leggja s jálfir i
borgarsjóð. Við Alþýðubanda-
lagsmenn teljum ekkiað hagur
Reykvikinga hafi verið þar efst-
ur á blaði i' stjórnartið ilialdsins
heldur hagur fámennra hags-
munahópa einkagróðans undir
verndarvæng skoöanabræðra
hans i borgarkerfinu. Við höfum
sýnt fram á þetta með óyggj-
andi rökum og lagt fram stefnu-
skrá okkar i borgarmálum sem
menn ættu að kynna sér. Þá
gætu þeir séö að hiín er býsna
ólik stefnu Sjálfstæðismanna.
Reykviskt verkafólk svarar
þvi h'ka i þessum kosningum,
hvort það sættir sig við að
kjarasamningar séu rofnir
skömmu eftir undirskrift allra
aðila. Borgarstarfsmenn svara
þvi hvort framkoma borgaryfir-
valda i launadeilunni 1. og 2.
mars hafi verið þeim að skapi.
Við Alþýðubandalagsmenn
ætlum að vera i þjónustu fólks-
ins i borginni en ekki láta það
hafa okkur á launum við að
þjóna eigin duttlungum eins og
ihaldið hefur gert f 60 ár.
Hálfrar aldar œgi-
vald Sjálfstœðis-
flokksins býður
spillingunni heim
— segir Eiríkur
Tómasson
Eirikur Tómasson
Borgarstjórnarkosningarnar
snúast fyrst og fremst um það
hvort dregið verði úr ægivaldi
Sjálfstæðisflokksins hér i
Reykjavik. Það er i alla staði
óeðlilegt að sami stjórnmála-
flokkur ráði einu og öllu f stjórn
eins sveitarfélags i hálfa öld —
slikt hlýtur að bjóða heim spill-
ingu. Allir æðstu embættismenn
borgarinnar —að ég hcld — eru
f lokksbundnir sjálfstæðismenn
enda sitja hagsmunir flokksins
en ekki borgarbúa i fyrirrúmi
þegar teknar eru mikilvægar
ákvarðanir.
Dæmi um þetta er sú
ákvörðun borgarstjórnarmeiri-
hlutans að synja samvinnu-
hreyfingunni um lóð undir vöru-
markað þar sem hægt hefði ver-
ið að bjóða 10% lægra vöruverð
en annars staðar þekkist. Var
þessi ákvörðun tekin með hags-
muni okkar borgarbúa fýrir
augum? Fleiri dæmi mætti
nefna en til þess gefst ekki tæki-
færi hér.
Sé litið á úrslit siðustu borgar-
stjórnarkosninga stendur
Framsóknarflokkurinn lang-
næst þvi af minnihlutaflokkun-
um þremur að bæta við sig
manni i borgarstjórn. Hætta er
á að atkvæði sem greidd eru Al-
þýðuflokknum og Alþýðubanda-
laginu nýtist ekki þar sem hvort
flokkurinn þarf aö fá tæp þrjú
þúsund atkvæði i viðbót frá
siðustu kosningum til að bæta
við sig manni. Þeir sem vilja
draga úr áhrifum Sjálfstæðis-
flokksins hér i Reykjavik gera
það þar af leiöandi á raunhæf-
astan hátt með þvi aö greiða
B-listanum atkvæði á sunnu-
daginn kemur.
„Jafnaðarstefnu
Alþýðuflokksins"
— segir Sjöfn
Sigurbjörnsdóttir
„Kosningarnarsnúastum það
hvort menn styðji stefnu Sjálf-
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir.
stæðisflokksins, sem aðhyllist
kapftaliskt þjóðfélag líkt og i
Bandarikjunum, eða stefnu Al-
þýðubandalagsins,sem aðhyllist
stefnu sósialisma eins og i rikj-
um Austur-Evrópu, eða
jafnaðarstefnu Alþýðuflokksins,
sem rikt hefur i mörgum lönd-
um Vcstur-Evrópu og á Norður-
löndum.
Það er mikilvægt fyrir alla
lýðræðissinna að styrkja og
styðja Alþýðuflokkinn i kom-
andi kosningum”, sagði Sjöfn
Sigurbjörnsdóttir, kennari þeg- __
ar Visir innti hana eftir þvi um
hvað kosningarnar snúast i
Reykjavik á sunnudag.
Siðastliðið haust tók Sjöfn sæti
sem varaborgarfulltrúi i
borgarstjórn og jafnframt sæti
sem fulltrúi I félagsmálaráði.
Hún hefur mikið tekið þátt i
félagsmálum á undanförnum
árum jafnframt því að sinna
húsmóður- og kennarastörfum,
en hún er kennari við Fjöl-
brautaskólann i Breiðholti.
—H.L.
Sigurjón Fjeldsted
„Ábyrga stefnu
Sjálfstœðisflokks-
ins eða sósíalisma
Alþýðubandalagsins"
— segir Sigurjón
Félsted
,,Það er ekki að furða, þótt
eitt útbreiddasta dagblað lands-
ins varpi fram þeirri spurningu
„Um hvað er kosið”, þar sem i
ljós hefur komið hér i Reykjavik
a.m.k., að andstæðingar Sjálf-
stæðisflokksins hafa reynt að
komast hjá þvi að segja rétt og
satt frá.
Vinstri flokkarnir, nema þá
Framsóknarflokkurinn, ef
dæma má af tölu Kristjáns
Benediktssonar i útvarpsum-
ræðum s.l. þriðjudagskvöld,
ætla kjósendum að trúa þvl, að
hér i Reykjavik verði kosið um
kjaramál og landsmál, þó alls
staðar annars staðar á landinu
sé kosið um sveitarstjórnar- og
bæjarmál.
Satt best að segja, er þessum
mótherjum Sjálfstæðismanna
veruleg vorkunn, vegna slikrar
andlegrar fátæktar f borgar-
málum.
Reykvikingar ganga nú að
kjörborðinu til þess að velja
fulltrúa i borgarstjórn, sem fara
mun með borgarmál, en ekki
landsmál.
Málaflokkar Reykjavíkur-
borgar eru margir og umfangs-
miklir eins og vera ber i borg,
þar sem nær helmingur lands-
manna býr, og þvi snúast þessar
kosningar ekki um neinn ein-
stakan málaflokk, heldur, hvort
Reykvikingar vilja áfram fylg ja
stefnu ábyrgs meirihluta Sjálf-
stæðisflokksins i borgarmálum,
eða kalla yfir sig sósíalíska
stefnu undir forystu Alþýðu-
bandalagsmanna”.
Sigurjón Fjeldsted er fæddur
og uppalinn i Reykjavik. Þar
hefur hann búið lengst af, aö
undanskildum 5 árum, sem
hann bjó á Egilsstöðum og einu
ári sem hann bjó erlendis.
Sigurjón er skólastjóri Hóla-
brekkuskóla i Breiðholti og
hefur auk þess starfað sem
fréttaþulur sjónvarps f tæp 5 ár.
—H.L.
LAUGAVEGI47, BANKASTRÆTI 7
Lee Cooper mótar tiskuna - alþjóölegur tiskufatnaöur smöinn eftir þinum smekk,
þínu máli og þínum gæöákröfum.
Nýju barnabuxurnar frá Lee Cooper