Vísir - 27.05.1978, Blaðsíða 31

Vísir - 27.05.1978, Blaðsíða 31
VÍSIR Laugardagur 27. maí 1978. svipaö númeri leigubils, sem veriö var að leita aö. Var talið aö nokkrir skæruliöanna heföu komist undan i honum. Islenskt veður í Jerúsalem Við höföum búist við sól og hita suöur i Gósenlandi, en raunin varð þó önnur. Næsti dagur, fyrsti dagurinn i Jerúsalem, var regn- og rok- gjarn og kaldur. Hitastigið vart meira en 8 — 10 gráöur á Celsius. Okkur fannst sem leiðinda-útsynningurinn heföi elt okkur suður til Jórsala og vorum súr að vonum. Þetta veöur hélst i tvo daga og fram á þann þriöja. Þann dag vorum viö á ferö niöri við Dauðahafið, en þaö kvað vera um 400 metrum fyrir neðan sjávarmál. Vatnavextir oilu nokkrum erfiöleikum i þeirri ferö, og var ' vegurinn meöfram Dauöahaf- inu sumstaðar á kafi i vatni. Þótti israelska leiösögumannin- um er með okkur var, þetta stórfengleg sjón, en vér landar hlógum. Þóttumst vér vanir slikum smámunum. Hið vonda veður þessa dag- ana hafði meiri áhrif en okkur grunaöi. Viö fréttum nefnilega seinna að þaö heföi orðið þéss valdandi að tvivegis varö að fresta innrásinni i Libanon. Pelestínuvandamálið Fyrstu sex daga ferðarinnar dvöldumst viö i Jerúsalem og þar kynntumst við best þessu flókna og torleysta vandamáli, sem hvilir eins og skuggi yfir landinu — þ.e. Palestinuvanda- málinu. Þessa daga kynntumst við ýmsum mönnum, bæði Gyðingum og Aröbum og feng- um að heyra sjónarmið hvorra tveggja. Þar voru einkum tvö atvik minnisstæð. Hið fyrra var, að okkur var boðið að heimsækja háskóla i Jerúsalem, þar sem bæði Arabar og Gyðingar stunduðu nám. Áttum við þarna fund með stúdentum af báðum þjóðern- um. Fundur þessi lauk þvi upp fyrir okkur, hve gifurlega flókið og viðkvæmt þetta mál var. Hvorir áttu rétt á landinu? Hvorir áttu upptökin að fjand- skapnum? Og fyrst Israelsriki var staðreynd og palestinskir flóttamenn ekki siður — hvernig átti þá að leysa úr þessum hnút? Atti að stofna sérstakt riki Palestinu-Araba á Vesturbakk- anum og Gaza-svæðinu? Eða að stofna blandað riki Gyðinga og Araba? Við komum út af þessum fundi þreytt og dálitið vonsvik- in. Allar ódýru lausnirnar okk- ar, er við höfðum fundið heima á íslandi, hrundu til grunna. Jafnt þær sem tóku einhliða málstað Gyðinga, sem málstað Araba. Samt var þaö eitt sem gladdi okkur. Þarna höfðum við hitt Gyðinga og Araba, er ræddu þessi mál opinskátt og af einlægni — fólk, er þráði frið og var reiðubúið að slaka á eigin kröfum til þess að hann mætti nást. Annað atvik var og minms- stætt. Það var ferð sem við gerðum okkur á krá eina til að komast i kynni við innfædda — fólkið á götunni, ekki sér- fræðingana. Krá þessa sótti einkum fólk um tvitugt, þar af margt i herþjónustu. Eftir nokkra bjóra og fáein islensk ættjarðarlög varð forvitnin tortryggninni yfirsterkari og tunguhaftið losn- aöi jafnt á Islendingum sem Israelsmönnum. Þarna komumst við i kynni við ungt fólk, glaðvært á yfir- borðinu en alvarlegt undir niðri. Fyrir þvi var dauðinn undarlega nálægur — dreptu eða vertu drepinn. Þarna var m.a. einn ungur maður, sem átti heima i nágrenni Tel Aviv. Nokkrum dögum áður hafði hann veriö á heimleið frá Jerúsalem ásamt nokkrum vinum sinum. Á siðustu stundu hætti hann við að fara, en vinir hans héldu heimleiðis. Skömmu seinna frétti hann, að þeir hefðu allir verið drepnir i árás skæru- liðanna á strætisvagninn. Hefði hann farið með, eins og hann ætlaði sér, væri hann ekki lengur i tölu lifenda. Annar ungur maður eða réttara sagt 19 ára unglingur, var þarna i kránni. Sá haföi ver- ið sendur ásamt herdeild sinni á staðinn, þar sem skæruliðarnir Heimili Hassans i eyðimörkinni. ari en gerist á meðal annarra Araba. Bedúinar eru hiris vegar hirðingjar, búa i tjöldum og færa sig oft á milli heimkynna. Meðal þeirra er ættflokkurinn helsta samfélagseiningin og höfðingi ættflokksins nefnist sjeik. Hinir islensku gestir Hassans sátu fiötum beinum á tjaldgólfinu og stiföu geitakjöt úr hnefa með bestu lyst. héldu vagninum og þar hafði hann fellt einn þeirra I návigi. Þetta unga fólk vildi lifa og þess vegna þráði það öryggi og frið við Arabana. Þó svo að mikill hernaðarandi virtist ríkja á yfirboröinu, virt- ist fólk tiltölulega rólegt, enda vant vopnaburöi. í Israel eru allir herskyldir (þó ekki Arabar með israelskan rikisborgara- rétt),karlmenn I þrjú ár og kon- ur I tæp tvö ár. Auk þess verða allir karlmenn að gegna her- þjónustu einn mánuð á ári eftir að hafa lokið herskyldunni, allt til 55 ára aldurs. Auk þess geta þeir átt von á þvi að vera kallaðir út, ef hættuástand skapast. Af Aröbum og Bedúínum I Jerúsalem kynntumst við nokkrum Aröbum. Einn var meira að segja rauöhærður og þótti irskættuöum þrælasonum það skrýtið. Arabarnir komu okkur fyrir sjónir sem vingjarnlegt fólk, kannski ivið vingjarnlegri en Gyðingarnir. Þeir virtust þó kræfir fjármálamenn og við máttum hafa okkur öll við að láta þá ekki plata inn á okkur alls konar varningi fyrir okur- verð. Svo kræfir voru þeir, að einn okkar eltu þeir langt og lengi — og seldu honum að lok- um vöru sina. Það má skipta Aröbum i Israel i tvo hópa, Palestinu- Araba og Bedúina. Palestinu-Arabar eru þeir sem hafa búið I Palestinu frá aldaöðli, ýmist sem borgarar eða bændur. Þeir eiga sér föst heimkynni og eru yfirleitt betur menntaðir en aðrir Arabar. Einnig eru konur þeirra frjáls- Bedúinar eru ákaflega stoltir og gestrisnir og Hassan tók þvert fyrir að við borguðum strætisvagninn, en borgaði allt sjálfur. Þegar komið var út i miðja auðnina, þar sem hvergi sást til mannabústaða og engan gróður var lengur að finna, stöðvaðist strætisvagninn og Hassan sagði okkur að fara út. Eftir u.þ.b. 15 minútna göngu eftir rykugum vegi i grýttu landslagi, komum við að þröngum gilskorningi. Inni i honum stóð dökkleitt tjald, stórt og mikið. 1 kring hlupu nokkrir hundar ásamt geitum, kindum og hænum, en asnatetur stóð þar rétt hjá og mændi döprum augum á aðkomumenn. Þetta voru heimkynni Hassans, og hér bjuggu undir sama þaki menn og málleys- ingjar i friði og spekt. Heima við voru systur hans og móðir og bjuggu þær okkur stað undir berum himni. Brátt kom Hassan og spurði, hvort við vildum geitarkiöling i matinn eða lamb. Við báöum um geit. Tók þá Hassan kiðling, er var þar á vappi, skar hann og fláði og matbjó siöan 1 for- rétt gaf hann okkur lifrina steikta yfir eldi, en svo kom aðalmáltiðin, geitakjötið soðið i geitamjólk ásamt heimagerðu flatbrauði. Allt var boröað með berum höndum og var ekki laust við, að það færi um hin „siðmenntuðu” borgarbörn. Þannig hafa lifnaðarhættir hirðingjanna á þessum slóðum verið i þúsundir ára og þannig hafa ættfeður Israelsmanna, Abraham, Isak og Jakob, lifað fyrir nærfellt fjórum þúsundum ára. Milli þessara tvenns konar Araba hefur oft rikt spenna, stundum hreinn fjandskapur. Dæmi um það eru atburðirnir i september 1970 (svarti septem- ber) þegar upp úr sauð á milli Palestinu-Araba i Jórdaniu og Jórdaniumanna, sem flestir eru Bedúinar eða afkomendur þeirra. Hassan Bedúíni Við komumst i kynni við Bedúina nokkurn, Hassan að nafni. Sá vann sem þjónn i Jerúsalem, en fjölskylda hans bjó I óbyggðum á milli Jerúsalem og Jerikó. Einn góðan veðurdag bauð hann okkur að koma i heimsókn til fjölskyldu sinnar út i auðnir Júda. Við þáðum boðið með þökkum, og daginn eftir héldu þrettán Islendingar, rúmlega helmingur hópsins, út i eyði- mörkina i gömlum og hrörleg- um strætisvagni. munstri vikur bónorð yfirleitt ekki. Landiö helga og ferðamennskan A götu I Jerúsalem ertu kominn þúsund ár aftur i timann. Aður en við fórum i þessa heimsókn, hafði okkur verið sagt að siðareglur Bedúina væru mjög flóknar. Fyrir vikið vorum við alltaf að velta vöng- um yfir þessu og hinu — hvort við ættum að gera hlutina svona eöa á hinn veginn. Gekk þetta svo langt, að Hassan fór að gera grin að þessum vandræðum okkar. Fannst honum við taka siöareglur Bedúina fullhátið- lega. Samt er það staðreynd, að lif Bedúina er mjög fastmótað og siðareglur flóknar. Þannig máttu aðeins karlmenn slátra dýrunum. Hassan sagði okkur einnig frá þvi, hvernig Bedúinar leituðu kvonfangs. ,,Ef gumi girnist mær”, þá fer faðir hans til föður hennar. Honum er boðið upp á disætt te, en hann vill ekki þiggja. Faðir stúlkunnar spyr þá, hvort hann girnist eitthvað af eigum sinum og hinn játar. Hann spyr þá, hvort það sé kvonfang og enn er játað. Þá fyrst setjast þeir niður, drekka teið og skrafa saman um ráða- haginn. Frá þessu fastmótaða Maður stigur varla niður fæti i ísrael, að undir leynist ekki saga i bókstaflegum skilningi. Landið er þakið sögulegum minjum, og fornleifauppgreftir eru firnamargir. Þarna eru lika helgir staðir þriggja af helstu trúarbrögðum heims, gyðing- dóms, kristindóms og Islam eða múhameðstrúar. Gyðingum er sjálft landií helgidómur, Múslimum er Ómarsmoskan I Jerúsalem einkar helg en þaðan telja þeir að Múhameð hafi verið upp- numinn til himna. Kristnir menn eiga sér einnig marga helga staöi og kirkjur eru nán- ast á hverjum stað er tengja má við atburði úr Nýja testament- inu. Þó var það svo, að fæstir þessara helgu staða snertu við okkur guðfræðinemunum. I fyrsta lagi var hefðin fyrir þvi, hvar þessi eða hinn atburðurinn átti að hafa gerst oft mjög óáreiðanleg og i ööru lagi var stundum yfir þessum stöðum þvilíkur bragur feröamennsku að mann óaði við. Oftar en einu sinni rákumst við á „heilaga jörð” eöa „heilagt loft” i niður- suðudósum. Var ekki laust við að okkur þætti stundum súrt i broti að Jesú Kristur skyldi vera geröur að verslunarvöru. Þetta kom þó ekki I veg fyrir að helgi landsins gagntæki okkur. Einkum var það landið sjálft er vakti slikar tilfinningar og þá sérstaklega Galilea, þar sem Jesús Kristur starfaði mestan hluta sins skeiðs. Lifun Aö dvelja I landi sem Israel er undarleg reynsla eða lifun. Þar er að finna andstæður og átök, en samt von um einingu og frið. Þar lifnar fortiðin viö og veröur snar þáttur i reynslu og tilveru manns nú. Þar blundar ógnun við tilveru mannsins i deilum Gyðinga og Araba, en um leið er þarna komin von fyrir allt mannkyn. Sá maður sem heimsækir þetta land, kemst varla hjá þvi að reyna eitthvað af þessu. Ef ekki, þá er sá likast til sneyddur öllum mannlegum til- finningum. Þessir sundurlausu þættir úr Israelsferð tjá einmitt slika lifun okkar af landi, sem hefur haft og hefur enn meiri áhrif á lif okkar en flest önnur. þar lítil tíðindi

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.