Vísir - 27.05.1978, Síða 20
20
Húsnœðis-
málalán
greidd
Húsnæhi'iinálastjðrn liggjandi hjá stofnuninni
samþvkkti á fundi 25. mai fyrir 1. april sl. og höfðu
sl. að frumlán (fyrsti jafnframt sent henni fok-
hluti) verði veitt til heldisvottorð fvrir sama
greiöslu eftir 10. júlí n.k. tima.
Lánið verður einungis Gert er ráð fyrir að
veitt þeim umsækjendum lánsveiting þessi nemi
er áttu fullgildar og láns- samtals um 80 milljónum
hæfar umsóknir fyrir- króna.
tslenskir piltar tóku þátt i alþjóölegri keppni á vél-
hjólum og reiðhjólum sem lauk 19. mai siöast liðinn.
Vélhjólapiltarn-
ir i fímmta sœfi
Sigurvegarar i hjólreiða-
keppninni urðu Spán-
verjar, i öðru sæti
Portúgalir og þriðju urðu
Frakkar. Islensku piltarnir
urðu i 10. sæti, næstir á eftir
Xorðmönnum. Fyrstir
Norðurlandabúa i hjól-
i eiðakeppninni urðu Danir,
en þeir urðu i 6. sæti.
1 vélhjólakeppninni báru
hcimamenn, Portúgalir,
sigur úr býtum. Næstir
urðu Ung verjar, Frakkar,
Luxemborgarar og i 5. sæti
og efstir Noröurlandabúa
urðu islensku piltarnir.
Næstir urðu Finnar og
Þjóðverjar.
Islendingarnir rómuðu
mjög gestrisni Portúgala
og sögðu mótið hafa farið
vel fram i alla staði.
—H.L.
53 nem
endur í
Þroska-
þjálfa-
skóla
íslands
Þroskaþjálfa
skólanum var sagt upp i
20. sinn 26. mai.
1 vetur voru 53
nemendur, piltar og
stúlkur, i skólanum en að
þessu sinni voru 14
nemendur brautskráðir,
en skólinn er þriggja
vetra nám. Þroskaþjálfa-
skólinn starfar á vegum
Heilbrigöis- og trygg-
ingamálaráðuneytisins.
Frestur til að skila inn
umsóknum fyrir næsta
vetur rennur út 1. júni.
Laugardagur 27. mai 1978. VISIR
Heimir Hannesson, Clfar Jakobsen og tvar Guðmundsson spjalla saman I fundarhléi
á Ferðamálaráðstefnutanni i gær. Ljósm GVA
Formaður Ferðamálaráðs:
Framkvœmda-
valdið he f ur
vanrœkt
skyldu sina
„Þrátt fyrir skýr laga-
fyrirmæli hefur mjög á
það skort, að fram-
kvæmdavaldiö eða
a. m.k. hluti þess hafi
rækt skyldu sina, sem þvi
ber samkvæmt stjórnar-
skánni og varðar lög-
bundnar greiðslur hins
opinbera til þeirrar starf-
semi Ferðamálaráös sem
þvi er ætlað samkvæmt
lögum að inna af hendi",
sagði Heimir Hannesson,
formaður Ferðamála-
ráðs i ræöu sinni i upphafi
feröamálaráöstefnunnar
i gær. Heimir gagnrýndi
þar mjög framkvæmda-
valdiö fyrir að sinna ekki
þeim störfum sem þvi
bæri samkvæmt lögum.
, ,Af sjálfu sér leiðir, að
umræddar athafnir eða
athafnaleysi hefur valdið
þvi að i of mörgum til-
vikum hefur reynst
ókleift að koma þeirri
starfsemi af stað sem ella
hefði verið gert þegar i
upphafi. 1 mörgum til-
fellum hefur þetta ástand
eðlilega skapað tafir,
óvissu og verulega vinnu
af hálfu Ferðamálaráðs
til að ná þeim rétti sem
þvi' ber samkvæmt
lögum, vinnu sem ella
hefði verðnýtttil annarra
þarfari og meira skap-
andi starfs", sagði
Heimir i ræðu sinni og
bætti siðan við nokkru
siðar: ,,Það er alvarlegt
brot á leikreglum lýð-
Ferðamálaráöstefnan var vel sótt af áhugafólki um
ferðamál en henni lýkur I kvöld.
ræðisskipulagsins þegar
einstakir handhafar
framkvæmdavaldsins
leyfa sér að virða að
vettugi með athöfnum,
athafnaleysi eða af gerfi-
ástæðum skýr fyrirmæli
Alþingis. A þetta ber að
leggja þunga áherslu”.
Þá sagði Heimir i ræðu
sinni sem hann flutti með
skýrslu stjórnar Ferða-
málaráðs: „Við skulum
minnast þess, aö þrátt
fyrir allt okkar tal og all-
ar okkar áætlanir um
vaxandi atvinnugrein,
auknar gjaldeyristekjur
og fjölbreytt atvinnulif i
tengslum við vaxandi at-
vinnugrein verðum viö að
hafa i huga að landið er
fyrst og fremst fyrir
Islendinga sjálfa og okk-
ur ber ekki siður að gera
okkur sjálfum kleift að
ferðast um landið og
njóta þess þegar við
kjósum”.
Heimir gagnrýndi i
niðurlagi ræðunnar þá
„kreddutrú og holtaþoku-
tal” sem hann nefndi svo
hjá varðveislumönnum
„sem ætla mætti að vildu
varðveita landið með þvi
að loka þvi”, eins og
Heimir komst að orði. En
búist var við miklum um-
ræðum um einmitt þau
mál á fundum ráðstefn-
unnar i gær og i dag.
Samkvæmt nýjum
lögum um ferðamál skal
halda sérstaka ráöstefnu
annað hvertárog er þetta
fyrsta ráðstefnan sem
haldin er samkvæmt
þessum nýju lögum. Fjöl-
margir ræðumenn tala,
meðal þeirra má nefna
ivar Guðmundsson, aðal-
ræðismann i New York,
sem i gær talaöi um land-
kynningu og markaðsmál
vestanhafs.
Ráðstefnunni lýkur i
dag.
—H.L.
SÝNING
f SÚM
Kristján Guðmundsson
myndlistarmaður heldur
sýningu i Galleri SÚM um
þessar mundir. Kristján
hefur undanfarin ár verið
búsettur i Amsterdam og
fengist þar við myndlist.
Hann hefur haldið 15
einkasýningar þar af 7
hér á landi og að auki
tekið þátt i fjölda sam-
sýninga bæði hér og er-
iendis. Verk Kristjáns
hafa m.a. veriö sýnd í
Pompidou listamiðstöð-
inni i Paris.
Á sýningunni i Galieri
SÚM eru 9 verk unnin á
árunum 1972—1977, ljóð
teikningar og bækur. Sýn-
ingin er opin daglega frá
kl. 4-8 og lýkur henni 1.
júni n.k. Aðgangur er
ókeypis.
Ný frímerki
Póst- og sima-
málastjörnin minn-
ist 50 ára afmælis
innanlandsflugsins
með nýrri fri-
merkjaútgafu 21.
þessa mánaðar.
Frimerkin sem út verða
gefin að þessu sinni, sýna
annars vegar nýjustu gerð
Fokker Friendship flug-
vélar sem nú er notuð til
flutnings innanlands og
hinsvegar flugvélar af
Junkers-gerð sem notaöar
voru fyrir hálfri öld.
A seinna frimerkinu er
einnig mynd af Dr.
Alexander Jóhannessyni,
prófessor, en hann var for-
göngumaður að stofnun
Flugfélags íslands og fyrir
hans tilstilli voru hafnar á
Islandi reglubundnar póst-
og farþegaflugferðir.
Frimerkin teiknaði
Þröstur Magnússon.
—H.L.
Frimerkin sem út veröa
gefin I tilefni af afmæli
innanlandsflugsins.
Bráðabirgðalðgin
standa aðeins
í þrjá mánuði
— segja Guðmunáur J. og Karl Steinar
„Spá min er sú að ekki liði
nema þrir mánuðir þar til rikis-
stjórnin sjái ástæðu til þess að
endurskoða þessi bráöabirgða-
lög”, sagði Guðmundur J.
Guðmundsson formaður Verka-
mannasambands tslands á
fundi með blaðamönnum er
miðstjórn ASt hélt.
t sama streng tók Karl
Steinar Guönason formaður
Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavikur. Hann sagði að þessi
lög væru dæmd til að mistakast
og myndu ekki standa nema i
hæsta lagi þrjá mánuöi.
A fundinum kom fram sú
spurning hver hefði verið
árangur af útflutningsbanninu.
Guðmundur sagði að þó fullur
árangur hefði ekki náðst væri
það til bóta i þessum lögum frá
fyrri aðgerðum rikisstjórnar-
innar að laun hinna lægst laun-
uöu hefðu hækkað nokkuö. Hins
vegar byggju þeir enn við
skerta yfirvinnu.
Þá var spurt hvort ekki lægi
beinast við að næstu aðgerðir
verkalýðsfélaganna yrðu að
banna yfirvinnu með skertu
kaupi. Svöruðu ASl menn þvi til
að það yrði athugað ásamt
öðrum aðgerðum en ákvarðanir
yröu teknar á næstu dögum.