Vísir - 27.05.1978, Side 23
23
vtsm
Laugardagur 27. mal 1978.
„Stundum veröa tilfinning-
arnar skynseminni yfirsterk-
ari”.
„Hjarta mitt er ekki út-
brunnið, þótt logar ástarinnar
liafi leikið um það”.
hafa verkefnin ekki verið af
léttara taginu, svo sem
Mattheusarpassia og Jó-
hannesarpassia, Jólaðratoria,
Magnificat og H— moll messa
Bachs, Messias eftir H9ndel
o.fl. o.fl. bað sýnir hver itök góð
list á i hugum almennings, þeg-
ar flutningur hennar nær að
hrifa áheyrendur,”
„En Pólýfónkórinn hefur lika
verið sumum þyrnir i augum.
Til eru tónmenntastofnanir i
Reykjavik, reknar af almanna-
fé, sem beinlinis virðast styrkt-
ar til að rífa niður starf Pólýfón-
kórsins. bannig er nemendum
Söngskólans i Reykjavik bann-
að að halda áfram að syngja i
Pólýfónkórnum, þótt þeir hafi
sungið þar áður, en samtimis er
Pólýfónkórnum synjað um fjár-
veitingu til starfs sins, og hefur
hann þó árum saman rekið
stærsta söngskóla landsins^með
töluverðum árangri að talið er.”
„Um þetta og fleira, sem
lýtur að tónlistarmálum á
íslandi vil ég helst ekki ræða i
fjölmiðlum að sinni, fremur en
árin sem ég var námsstjóri i
tónlist en var synjað um nokkra
fyrirgreiðslu til starfs mins af
hálfu ráðuneytisins. bað er
geymt en ekki gleymt, og biður
betri tima. Birtist kannski i ævi-
sögunni, þegar þar að kemur.”
#/ Ekki þótt þess verður að
koma fram á tónlistar-
hátíðum Reykjavíkur"
- En er nú ekki afráðið að
Pólýfónkórinn haldi áfram?
„bað er mörgu háð. Skorað
hefur verið á mig aö taka upp
taktstokkinn að nýju, en við bið-
um og sjáum hvað setur. Kórinn
nýtur mikils álits erlendis og
mörg boð hafa borist um að
hann komi fram á tónlistar-
hátiðum, t.d. á Spáni, býska-
landi, Kanada, Bandarikjunum
og Bretlandi. Hins vegar hefur
hann ekki þótt þess verður að
koma fram á tónlistarhátiöum
Reykjavikur.”
„Ég hef ekki tima til að sinna
svo timafreku og kröfuhörðu
starfi lengur. beir sem borga 80
þúsund krónur i skatta alla daga
ársins eiga ekki margar tóm-
stundir frá þvi að vinna fyrir
þeim og styrkja óhófseyðslu
þjóðfélagsins. Og slik skattpin-
ing sér fyrir þvi að ég er ekki af-
lögufær að reka stofnun eins og
Pólýfónkórinn fyrir fé úr eigin
vasa.”
//Heiðarleikinn fyrsta|
boðorð"
„Fyrirtæki mitt krefst lika
allrar minnar starfsorku, svo að
það haldi velli. En ég nýt hvers
starfs, sem ég vinn og geng að
þvi heils hugar. Ferðamálin eru
heillandi, þótt illa sé að þeim
búið hér á landi og gjaldeyris-
málin alveg sérkapituíi i
heimsviðskiptunum. Ég hef átt
þvi láni að fagna að vinna
brautryðjendastarf i ferðamál-
um Islendinga, og það hefur
sparað mörgum stórfé og veitt
gleði og hætta heilsu. Einhvérn
tima verður það ef til vill metið
að verðleikum."
Fyrirtæki þitt er orðið stórt.
Hvernig fórstu að þvi að ná for-
ystu i erfiðri samkeppni?
,.Á islenskan mælikvarða er
Útsýn stórt þjónustufyrirtæki og
er með um 100 manns i vinnu
vfir sumarmánuðina þvi að auk
starfseminnar hér heima eru
skrifstofur og margvisleg önnur
þjónusta á 6 stöðum við
Miðjarðarhaf, i Torremolinos
og Lloret de Mar á Spám.
Lignano á Italiu, Portoroz og
Porec i Júgóslaviu og Vouliag-
meni i Grikklandi. bú komst svo
að orði að Pólýfónkórinn hefði
orðið viðmiðun i sönglifi ts-
lendinga. Margir telja að Út-
sýnarferðir hafi ekki siður orðið
viðmiðun i ferðamálurn þeirra.
bað hefur vakið almenna at-
hygli hve reynt hefur verið aö
stæla Útsýn og apa allt eftir
meira að segja ferðakynning-
arnar sem útsýn heldur reglu-
lega á Hótel Sögu á veturna.
Fyrirtæki mitt hefur aflað sér
almenns trausts og umfangs-
mikilla viðskipta vegna þess að
aldrei hefur verið reynt að
blekkja viðskiptavininn með
fölskum auglýsingum né selja
honum neitt annað en það sem
hann getur reitt sig á. Ferða-
skrifstofan Útsýn tekur á sig
feiknaáhættu á hverju ári til
þess að ná sem hagstæðustum
samningum sem siðan koma
farþeganum til góða i hagstæð-
um fargjöldum og bestu fáan-
legri aðstöðu. Svo gamaldags er
ég i viðskiptum að ég tel heiðar-
leika vera þar fyrsta boðorð. En
tslendingar eru kröfuharðir og
vandlætingasamir. bótt þeim sé
veitt miklu meiri þjónusta og
betri aðbúnaður en tiðkast hjá
erlendum ferðamannahópum,
kunna ekki allir að meta það.
Oft gleymist farþeganum að
verið er að veita þjónustu sem
ella hefði kostað hann tvöfalt
þrefalt eða jafnvel fjórfalt
meira hefði fyrirgreiðsla ferða-
skrifstofunnar ekki komið til og
þó nýtur hann margvislegrar
þjónustu i ofanálag. Ég er fylgj-
andi frjálsri samkeppni sé hún
heiðarleg en ég hef nú ekki allt-
af átt þvi láni að fagna og á
raunar ekki enn eins og aug-
lýsingar keppinautanna bera
með sér upp á siðkastið.”
//Enginn annar er frjáls
maður"
— bú hefur farið viða.
„Vist hef ég séð mikið af
heiminum og margt af þvi lært.
Ég elska Italiu.
— Hefur þig alltaf langað til
að búa á Islandi?
„Nei, stundum hefur þolin-
mæðin verið á þrotum og ekki er
vist að ég verði alltaf hér. begar
ég var litill drengur bað ég til
Guðs á hverjum degi að hann
hjálpaði mér til að verða góður
maður sem gæti gert islensku
þjóðinni gagn. Ég vona að lif
mitt skilii einhver góð spor eftir
sig.Ég hef reynt að hlýða kalli
skyldunnar og leggja minn
skerf til þjóðfélagsins. Mér þyk-
ir vænt um Island og ég reyni
lika að láta mér þykja vænt um
landann, hvernig sem hann er.
betta er margt vænsta fólk”.
Botninn i þetta viðtal sláum
við með þessum orðum Ingólfs:
„brátt fyrir myrkraöfl i hugum
margra, ofbeldi sem birtist i
mörgum myndum, eiröarleysi
og lifsflótta nútimans, trúi ég
enn á hæfileika mannsins til aö
lifa i friði og sátt við náungann
og sig sjálfan, og rétt hans til aö
vera hann sjálfur og móta sitt
eigið lifsmunstur, óháður múg-
hugsun samfélagsins. Enginn
annar er í minum augum frjáls
maöur”
STUÐNINGSMENN
D-LISTANS
Kjósum snemma
Kosning hefst ki. 9 f.h.
og lýkur kl. 11 e.h.
Kosið verður i Melaskóla, Mið-
bæjarskóla, Austurbæjarskóla,
Sjómannaskóla, Laugarnesskóla,
Langholtsskóla, Breiðagerðisskóla
Álftamýrarskóla, Árbæjarskóla
Breiðholtsskóla, Fellaskóla og
Ölduselsskóla.
r n
BIFREIÐAAFGREIÐSLUR
/4ÐALSTÖÐVAR
NES-MELAR- VESTURBÆR-
MIÐBÆR
Héðinn h/f Nýlendugötu 45
simi 29377
AUSTURBÆR-HLÍÐAR-
HÁALEITI
Reykjanesbraut 12 (Landleiðir)
simi 20720 4 linur
LAUGARNES-LANGHOLT-VOG-
AR-HEIMAR - ÁR B Æ R -
SMÁÍ BÚÐ A-BÚSTAÐA-FOSS-
VOGUR
Skeifunni 11
simar 84848-35035
BAKKA-STEKKJA-FELLA-
HÓLA-SKÓGA- og SELJAHVERFI
Seljabraut 54
simi 76366 (3 linur)
UTANBÆJARAKSTUR
Skeifunni 13
simi 82222 (3 linur)
v________________________J
f ^
ALMENN UPPLÝSINtiAMIÐ-
STÖÐ
Allar upplýsingar varðandi
kosningarnar eru gefnar á vegum
D-listans i sima 82900 (5 linur)
UTANKJÖRSTAÐASKRIFSTOF-
AN
i Valhöll, Háaletisbraut 1
simar 84302-84751 84037-85547
SJÁLFBOÐALIÐAMIÐSTÖÐVAR
Það fólk, sem vill starfa fvrir D-
listann á kjördag, er beðið um að
koma eða hafa samband við sjálf-
boðaliðamiðstöðvar D-listans
Skeifunni 11 (suðurhlið)
simar 26562-27038
V__________________________J
SIGUR REYKJAVÍKUR