Vísir - 27.05.1978, Page 30
30
Laugardagur 27. mal 1978. VISIR
Verslunarhúsnœði óskast
Ca. 100-150 ferm. verslunarhúsnæði óskast
nú þegar i Reykjavik. Upplýsingar um
stærð staðsetningu og verð sendist augld.
Visis merkt „Strax”.
BJÖRNÍNN
Smurbrauðstofan
Njálsgötu 49 — Simi 15105
Auglýsing
Greiðsla oliustyrks i Reykjavik fyrir
timabilið jan.-mars 1978 er hafin.
Oliustyrkurinn er greiddur hjá borgar-
gjaldkera, Austurstræti 16. Afgreiðslutimi
er frá kl. 9.00-15.00 virka daga.
Styrkurinn greiðist framteljendum og ber
að framvisa persónuskilrikjum við mót-
töku.
Skrifstofa borgarstjóra.
í Reykjavík
Umsókn um skólavist
Móttaka umsókna um skólavist i eftirtald-
ar deildir fer fram i skólanum, dagana 31.
mai til 6. júni kl. 9.00-16.00.
Öllum umsóknum skal fylgja ljósrit eða
staðfest afrit af prófskirteini.
Inntökuskilyrði eru samkvæmt reglum
Menntamálaráðuneytisins um nám i
framhaldsskólum.
Upplýsingar verða veittar af starfsmönn-
um skólans við móttöku umsókna.
1. Samningsbundnir iðnnemar:
Nemendur hafi meö sér staöfestan námssamning ásamt
ljosriti af prófgögnum.
2. Verknámsskóli iðnaðarins:
a. Bókagerðardeild:
Offsetiðnir, prentiönir og bókband.
b. Fataiöndeiid:
Kjólasaumur og klæöskuröur.
e. llársnyrtideild:
Hárgreiösla og hárskuröur.
d. Málmiðnadeild:
Bifreiöasmiöi, bifvélavirkjun, blikksmíöi kctil-og plötu-
sntíði, plpuiagningar, rennismiöi og vélvirkjun
e. Kafiönadeild:
Kafvirkjun, rafvélavirkjun, útvarpsvirkjun og skrifvéla-
virkjun.
f. Tréiönadeild:
Húsasmiði, húsgagnasmiöi, húsgagnabóistrun, mynd-
skuröur, skipa og bátasmiði.
3. Framhaldsdeildir verknámsskóla
iðnaðarins.
a. Bifvélavirkjun.
b. Húsgagnasmiöi
c. Rafvirkjun og rafvélavirkjun.
d. Ótvarpsvirkjun
e. Véivirkjun og rennismiöi
f. Húsasmiði (meö fyrirvara um leyfi fræðsluyfirvalda)
g. Blikksmíöi (meö fyrirvara um leyfi fræösluyfirvalda)
4. 1. áfangi:
Nám fyrir nemendur sem ekki uppfylia skilyröi um inn-
göngu i 2. áfanga eöa verknámsskóla iðnaöarins. Innritun
fer fram i Vöröuskóla.
5. Tækniteiknun.
\ æntanlegir nemendur 2. bekkjar sæki einnig um skóla-
vist.
Skólastjóri.
Iðnskólinn
Texti: Halldór Reynisson
Jerúsalem er undarleg blanda af helgidómum, nútimatækni og hversdagsleika. Kúpuliinn er hvolfþakiö
á Oniar moskunni, helgasta musteri múöhameöstrúarmanna I borginni. Og viö hana bera sjónvarps-
Ioftnet og þvottasnúrur.
íslenskir guðfrœðinemar voru í ísrael um það
leyti sem gerð var árásin á rútuna, sem
leiddi til innrásar i Líbanon. Þeir kynntust
baeði Aröbum og Gyðingum og meðal annars
var slátrað fyrir þá geit I bedúínatjaldi
Sá háttur tíðkaðist á miðöldum, að menn gengju
suður til Jórsala eða Jerúsalem. Var þá tilgangurinn
annaðhvort að fara í krossferð eða pílagrimsgöngu,
aðberja á hundtyrkjanum eða afla sér nokkurra verð-
leika í augum Guðs.
I mars síðastliðnum var enn efnt til suðurgöngu. Þó
var það í friðsamlegum tilgangi og án vonar um verð-
leika, þvi slíkur hugsunarháttur sæmir illa í lútersk-
um sið. Var hér á ferðinni hópur guðfræðinema ásamt
mökum. Ennfremur var kennari með í för, prófessor
Þórir Kr. Þórðarson, og kona hans Jakobína Finn-
boqadóttir.
Hér á eftir fylgja nokkrir þættir úr þessari för, at-
vik og viðburðir er komu okkur islendingum spánskt
eða öllu heldur ísraelskt fyrir sjónir.
Byssumenning
Fyrir þegn af „þjóö, er þekkir
hvorki sverö né blóö”, eins og
skáldiö kvaö, var koman á Ben
Gurion-flugvöll viö Tel Aviv að-
faranótt 12. mars vægast sagt
undarleg. Dularfullir borgara-
lega klæddir menn i viðum
skyrtum, gónandi fránum aug-
um á feröalangana og hermenn
með litlar, en ógnarlegar vél-
byssur, rétt eins og þær er
maður sá i draumaheimi kvik-
myndanna, var það sem mætti
sjónum okkar.
Það sem við heyrðum frekar
en sáum, vakti óhug i brjóstum
okkar og fékk hjartað til að slá
ögn hraðar. Okkur var flutt sú
frétt, að 12 timum áður heföu
skæruliðar Palestinu-Araba
ráðist á strætisvagn á
strandveginum norður af Tel
Aviv og stráfellt á fjórða tug
manna. Ekki minnkaði óhugur-
inn, þegar okkur var sagt, að
staöurinn væri ekki ýkja langt
frá flugvellinum og að
farþegarnir hefðu verið ferða-
menn. Það siðasttalda var þó
leiðrétt siðar.
Skyndilega vorum við frið-
samir Islendingarnir,' óvanir
öðru pólitisku ofbeldi en Gúttó-
slag eða rúðubrotum i sendiráð-
um, komnir á vettvang fólsku-
legra mannviga, er skóku alla
heimsbyggðina.Meira að segja
hefðu hinir vegnu getað verið
við — eða svo fannst okkur um
dimma nótt suður i framandi
landi.
Þessa sömu nótt ókum viö upp
til Jerúsalem, og var hópnum
skipt niður á nokkra 7-manna
leigubila.
A leiðinni vorum við stöövuð
við vegatálmanir. Einn billinn
lenti i þvi að vera stöðvaöur af
hermönnum er beindu vélbyss-
um sinum aö farþegunum, við-
búnir að skjóta. Astæðan var sú
að númer leigubilsins var mjög