Vísir - 03.06.1978, Qupperneq 3

Vísir - 03.06.1978, Qupperneq 3
3 VISIR Laugardagur 3. jiinl 1978 Sumaráœtlun strœt- isvagna Kópavogs 1 dag mánudag gengur i gildi sumaráætlun Strætisvagna Kópavogs. Verður þá ekið á 15 minátna fresti i stað 12 minútna samkvæmt vetraráætlun. Helg- ar- og kvöldakstur er hins vegar óbreyttur. Það er orðin venja hjá S.V.K. að breyta áætlun yíir sumar- mánuöina og hefur það verið gert undanfarin 3 sumur og gef- ist nokkuð vel. „Sumaráætlun” ferðaáætlun S.V.K. erhægtað fá i vögnunum og á Skiptistööinni i Kópavogi. Sá sem getur velt bátnum má eiga hann A inorgun, sunnudag verður sjómannadagurinn haldinn hátiðlegur i 41. skipti. Til Sjó- mannadagsins var stofnað þar eð að sjómenn töldu sig afskipta af annarri starfsemi verkalýðs- féiaga vegna langrar Qarveru sinnar á hafi úti. Einnig vakti fyrir sjómönnum aö vekja at- hygli á störfum sjómanna og efla samvinnu meðal yfirmanna og undirmanna. A Sjómanna- daginn hefur jafnan verið minnst tátínna sjómanna og minning þeirra heiðruð, sér- staklega þeirra, sem látið hafa lif sitt vegna slysfara i starfi. Aður fyrr, þegar vinna var nánast þrældómur til sjós, áttu sjómenn ekki i mörg hús aö venda er þeir komu í land út- slitnir af erfiði. Kom þá upp hugmynd um stofnun dvalar og vinnuheimilis sjómanna. Var hafin geisiviðtæk fjársöfnun og mikið átak gert i þessum efnum og er henni raunar ekki enn lok- ið, en árangurinn hefur veriö stórbrotinn. Nýjasta átakið i þessum efn- um er bygging Hrafnistu i Hafnarfirði. Þar er nú risið dvalarheimili og I tengslum við það hjúkrunarheimili. I hjúkrunarheimilinu verður margs konar þjónustustarfsemi fyrir aldrað fólk, aðstaða til rannsókna i öldrunarsjúkdóm- um og læknamiðstöð i tengslum við nærliggjandi sveitarfélög. Dagskrá Sjómannadagsins verður mjög fjölbreytt að vanda. Fyrir hádegi verður sjó- mannamessa i Dómkirkjunni og lagður verður blómsveigur á leiði óþekkta sjómannsins i Fos svo gs ki rk j uga rði. Eftir hádegi verða svo margvis- leg skemmtiatriði i Nauthólsvik svo sem kappróður milli skips- hafna og vinnuflokka i landi og einnig mun hin vaska kvenna- sveit róa. Björgunarsýning veröur á vegum slysavarnar- deildarinnar Ingólfs og keppt verður i fjölmörgum greinum, sem ekki er keppt i daglega. Meðal annars gefst mönnum kostur á að reyna sig við að velta báti og hlýtur sá sem það tekst bátinn að launum. Hraf nista i Hafnarfiröi verður til sýnis almenningi frá kl. 14.30 til 17.00. Sjómannadagurinn í Hafnarfirði: Bömum boðið í skemmtisiglingu A sunnudaginn verða hátiða- útgerð Hafnarfjaröar. Þar höld i tilefni af sjómannadegin- flytja ræður fulltrúar sjómanna um i Hafnarfiröi. Fjölmörg og slysavarnardéildarinnar atriði eru á dagskrá hátiðar- Hraunprýði og heiðraöir veröa haldanna. Kl. 9.30 verður þrir aldraðir sjómenn. skemmtisigling með börn og kl. Skemmtiatriði verða 10.00 verður guðsþjónusta I björgunarsýning, kappróöur og Hrafnistu i Hafnarfirði. margt fleira. Eftir hádegi verður sjó- Um kvöldið verður sjómanna- mannamessa og að henni lok- hóf I Skiphóli og hefst þaö kl. inni hefst útidagskrá við Bæjar- 19.30. Árni sýnir oð Hallveigarstöðum Arni Finnbogason, sjómaöur frá Vestmannaeyjum opnar i dag. laugardag, kl. 2 sýningu á 70 málverkum aö Hallveigarstöð- um. Þetta er fimmta einkasýn- ing Árna, þar af sú þriðja sem hann heldur á Hallveigarstöð- um. „Mér finnst gaman að dunda við þetta i ellinni”, sagði Arni i stuttu spjalli við Vísi, „en i skóla hef ég aldrei farið til þess að læra að mála”. Sýning Arna Finnbogasonar verður opin til 12. júni og er opin daglega frá kl. 14-22. —Gsal Konan var ekki rekin „Ég vil leiðrétta að hér hafi konu verið vik- ið úr starfi, svo sem sagt er i dagblöðunum. Hér var aðeins um til- færslu á vinnustað að ræða”, sagði Guð- mundur Ingvarsson, forstjóri B.Ú.H. i sam- tali við Visi. En Guðmundur vildi mót- mæla fréttaflutningi dagblað- anna af verkfalli starfsfólks bæjarútgerðarinnar i fyrradag. „Ég trúi þvi ekki að rétt hafi veriðeftir formanni Hlifar haft, að hann fagni þessum aðgerð- um. Við vildum fara samkomu- lagsleið”, sagði Guðmundur, „þar sem starfsfólkið kysi full- trúa til að kanna þetta mál með okkur. Þvi var hafnað”. „Þá má geta þess”, sagöi Guð- mundur, „að nú þegar er bein eyðilegging hráefnis, vegna þessara aðgerða, komin hátt á þriðju milljón”. —H.L. LANGAR ÞIG í ÚTVARPIÐ? Nó er tekið við heimatilbúnu efni Langar þig til að koma i út- varpið? A föstudagskvöidið get- ur sá draumur þinn orðið að veruleika. A föstudagskvöldið hefur nýr þáttur göngu sina í útvarpinu, nefnist hann Kvöldvaktin og verður vikulega. Sigmar B. Hauksson og Asta R. Jóhannes- dóttir munu sjá um þennan þátt til skiptis. „Ég hef komist að þvi að á öðru hverju heimili á landinu er til segulband og m .a. þess vegna ætla ég að biðja hlustendur að búa til sitt eigið efni heima”, sagði Sigmar i samtali við Visi. „Það má vera Ijóð eða stutt saga, leikþáttur eða lag, skritla eða eitthvaö stutt spjall i léttum Umsjónarmenn þáttarins Ásta R. Jóhannesdóttir og Sigmar B. Hauksson ásamt Guðrúnu Gardsjord tæknimanni. Visismynd: Jens. dúr. Hæfileg lengd er svona 3-5 minútur”. Þetta mun vera i fyrsta skipti sem hinum almenna hlustenda er gefinn kostur á þvi aö senda inn sitt eigið efni til útvarpsins. Danir og Sviar hafa verið með slika þætti i nokkur ár og hafa þeir hlotið miklar vinsældir. Ekki verður þetta eina efniö á Kvöldvaktinni og sagði Sigmar aö þátturinn yrði sambland af léttu efni. Jæja lesandi góður þá er bara að drifa sig og taka eitthvað upp á band og senda það til Kvöld- vaktarinnar, c/o Sigmar B. Hauksson, Útvarpinu, Skúla- götu 4, 101 Reykjavik. —JEG w SPIRA svefnbekkirnir Komnir aftur Pöstsendum umallt land

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.