Vísir - 09.08.1978, Síða 9
9
Hvers vegna láta heimafrúrnar börn sfn á leikskóla þegar ófétin, sem vinna
úti, mega það ekki? spyr bréfritari.
Heimavinnandi
konur taki börn sín
af leikskólum
— fyrst þeim er svo onnt um börnin sín — segir bréfritari
Vinnandi kona skrifar:
Þetta bréf langarmig aB hefja
á sömu orðum og bréf eitt sem
birtst hefur í Visi tvívegis:
„Lengihefurmiglangað til að
koma minu hjartans máli á
framfæri”. — Mitt hjartans mál
er sem sé að reyna að sporna
gegn þeim ranglátu árásum
sem við vinnandi konur verðum
fyrir. Já, vinnandi — dönsku-
slettuna „úti”—vinnandi er mér
meinilla við og nýyrðið heima-
vinnandi, sem reyndar er einnig
dönsk afbökun, hljómar ank-
annalega i eyrum þeirra sem
stunda atvinnu og einnig heimil-
is- og uppeldisstörf.
Tveggja barna móðir hefur
málflutning sinn á þvi að ráðast
á fæðingarorlofið sem hún kall-
ar reyndar styrk. Hvor okkar
skyldi hafa misskilið hlutverk
fæðingarorlofsins? Ég hef talið
það vera leyfi frá störfum af
þeim augljósu ástæöum aö kona
getur hvorki sjálfrar sin né
barnsins vegna komið til starfa
strax eftir fæðingu. Atvinnurek-
andinn hins vegar þarf ekki að
þjálfa upp nýjan starfsmann.
Þetta eru ekki laun fyrir að
eignast börn eins og sumir virð-
ast halda.
Hins vegar er leitt til þess að
vita ef konur eru farnar að mis-
nota þessi réttindi með þvi aö
segja upp störfum sfnum og fá
greitt fæöingarorlof. Orlofið ætti
einmitt að vera trygging fyrir
þvi aö þær komi aftur til starfa.
Vilji þær hætta eiga þær ekki að
fá greitt neitt fæðingarorlof.
Þá er komið að siðari lið
bréfsins sem fjallar um dagvist-
un. Húsmóðirin fárast yfir þvi
hve miklu fé sé eytt í að greiða
með börnum ,,úti”—vinnandi
kvenna og telur sig spara ó-
sköpin öll fyrir riki og bæ. Þeim
sem leyfa sér slikar fullyrð-
ingar skal bent á eftirfarandi: Á
heilsdags -da g vistuna rstof nun -
um eru ekki börn giftra kvenna,
nema um námsfólk sé að ræöa.
Vinnandi konur hafa ekki
sama rétt tii að koma börnum
sinum í leikskóla og þær sem
heima eru. Þær siðarnefndu
skammast sin ekkert fyrir aö
færa sér þjónustu þessara stofn-
ana i nyt.
Þá vaknar ^purningin, hvers
vegna er öðruvisi fyrir barn að
vera á leikskóla ef móöirin er i
vinnunni á meöan en hún er
heima á meðan. Við vinnandi
konur verðum fyrir sifelldum
ásökunum fyrir vanrækslu og
hvað eina en barni húsmóöur-
innar er hollt að vera á leik-
skóla.
Égvilaðendingu hvetja allar
heimafrúr til að ihuga þetta og
helst að bregöast skjótt við og
taka börn sin af leikskólum. All-
ir vilja börnum sinum hið besta
þó vinnandi konum sé stundum
brugðið um annað. Fyrst þessar
konur eru heima barnanna
vegna og telja þaö þeim fyrir
bestu, hvers vegna eru þær að
láta ala þau upp á stofnunum
eins og við hin ófétin? Vonandi
eru þær ekki latar eins og
tveggja barna móðirin leyfir
sér að segja um vinnandi kon-
urnar sem „nenntu” ekki að
vera heima allan daginn.
Endursýnið
Bay City
Rollers
Popp-aðdáandi skrif-
ar:
Ég hafði nú haldið að jafnvel
sjónvarpið hefði eitthvað al-
mennilegt á dagskránni fyrsta
daginn eftir mánaðar fjarveru.
Þegar ég leit i dagskrána i
Mogganum varð ég fyrir mikl-
um vonbrigðum, vægast sagt.
Ennþá er setið við sama hey-
garðshornið, ennþá ersjónvarp-
ið ekki búið að losa sig við
heimildam ynd irnar og
klassisku konsertana i sjón-
varpssal. Gæti sjónvarpið ekki
t.d. endursýnt popp-þáttinn frá
17. júni með Bay City Rollers og
fleirum, sem þeir þurftu endi-
legaað sýna á svo óheppilegum
tima?
Illjómtveitln Bay Clty Kollers veröur
þjóðhátlðardaginn.
S|ónvarp a laugardagskvöldið kl. 22.50:
SKJANUM
POPPSINS A
Unga fólkið hefur löng-
um kvartað yffir þvi aö
sjonvarpið sýni litiö af
þáttum fyrir það. A
laugardagskvöldið mun
sjónvarpið heldur betur
bæta þetta upp. þá verður
sýndur nær eins og hálfrar
stundar |nn« daoskrá með
r ire, Kam Jam, Jackson Rive.og
slðast en ekki sist Billy Joel.
Billy Joel er ein skærasta
sljarna á popphimninum I dag.
Slðasta plata hans ,.The
Stranger" hefur íariðsigurför um
heiminn f Bandarfkjunum einum
hefur hún t.d. selst I 3 milljónum
eintaka. Joel þykir SKemmtilegur
A sviði og hefur fólk flykst a þá
Itl
f Hjúkrunarfrœðingar
Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslu-
stöðina í Árbæ, Reykjavik, er laus til um-
sóknar.
Laun samkvæmt launakerfi rikisins.
Æskilegt er, að umsækjandi hafi sér-
menntun i heilsuvernd.
Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf sendist heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu fyrir 15.
september 1978.
Heilbrigðis- og tryggingamálaróðuneytið
SKYNDIMYNDIR
Vandaðar litmyndir
í öll skírteini.
barna&fjölskyldu-
Ijdsmyndir
AUSnÆSTRtTI 6 SÍMI12644
Lœrið vélritun
Ný námskeið hefjast fimmtudag-
inn 10. ágúst. Kennsla eingöngu á
rafmagnsritvélar, engin heima-
vinna.
Innritun og upplýsingar i sima
41311 eftir kl. 13.00.
Valritunarskólinn
Suðurlandsbraut 20
SOJA-
BAUNA
KJÖT
NUTANA PRO er sojakjöt
(unnið úr sojabaunum). Það
bragðast líkt og venjulegt
kjöt en inniheldur minna af
fitu og meira af eggjahvítu-
efnum.
Fila: Kolvetni: Eggja- hvítuelni:
NUTANAPRO 3% 38% 59%
Uxakjöt 74% 0% 26%
Svínakjöt 73% 0% 27%
Venjulegur málsverður (um 150 gr.) af kjöti samsvarar
um 410 hitaeiningum. Ef NUTANA PRO er notað í staðinn
verður málsverðurinn aðeins 85 hitaeiningar!
Gód keilsa ep gæfa feveps iaaRRs