Vísir - 12.08.1978, Qupperneq 3
visir Laugardagur 12. ágúst 1978
3
Verður arftakinn frjáls-
lyndur eða íhaidssamur?
Torfi sagðist vera mjög spennt-
ur að sjá, hver tæki við af Páli.
„Það verður spennandi að vita,
hvort arftakinn verður italskur
eða ekki” sagði hann,
„Kardinálarnir hafa ekki kjörið
páfa utan ttaliu siðan á sextándu
öld. Það var Hadrian páfi, en
hann var fæddur i Utrecht i Hol-
landi. Erfitt er að spá nokkru um,
hver úrslitin verða. Þegar
Jóhannes 23. var kosinn kom það
öllum á óvart, og þannig gæti far-
ið núna”.
„Einnig verður spennandi að
fylgjast með þvi, hvort næsti páfi
verður frjálslyndur eða ihalds-
samur. Páll var talsvert gagn-
rýndur fyrir afstöðu sina til pill-
unnar eins og allir vita, og sumir
töldu hann hálfgert afturhald i
þeim efnum. Ekki má þó gleyma
þvi, að margir telja pilluna hafa
ýmsar skaðvænlegar afleiðingar,
svo sem aukna útbreiðslu kyn-
sjúkdóma. Páll átti þvi varla ann-
arra kosta völ en að vera andvig-
ur henni. Fimm hundruð milljón-
ir manna lita á úrskurð hans sem
sannleik, og það hefði ekki verið
gaman fyrir hann að taka á sig þá
ábyrgð sem þvi hefði fylgt fyrir
hann að leggja blessun sina yfir
pilluna.”
—AHO
Af hverju leynd?
— Hvað með hljóðvarpið, eru
engar deilur uppi um flutning á
leiknu efni þar?
„Nei. Samningar þar eru ekki
lausir fyrr en á næsta ári, og það
kemur ekki inn i þetta.” — Marg-
ir hafa komið að máli við blaðið
og undrast alla þá leynd sem yfir
þessum samningaviðræðum hef-
ur hvilt. Blaðamenn fengu ekki
greiðan aðgang að upplýsingum i
þessu máli. Hvað vilt þú segja um
það?
„Það skýrist i þvi bréfi sem ég
sendi fjölmiðlum um þetta mál.
En þegar greinilegur samnings-
vilji er á báða bóga, og þegar
menn eru sáttfúsir i eðli sinu i
svona samningsgerð, þá vilja þeir
ekki gefa yfirlýsingar i blöðum á
viðkvæmu stigi. Það er venjan i
öllum svona samningaumleitun-
um, að það eru ekki gefnar yfir-
lýsingar meðan þær eru á við-
kvæmu stigi, nema þær eigi að
nota i pólitiskum tilgangi. Það er
til dæmis gert hjá Alþýðusam-
bandinu þegar á að klekkja á
rikisstjórninni. En hér var um
það að ræða, að hvorugur aðilinn
hafði hag af þvi að koma ágrein-
ingsatriðunum á framfæri við
fjölmiðla.”
— Taldir þú það geta spillt fyrir
samningum að láta af hendi
tveggja ára samning milli leikara
og Ríkisútvarpsins?
„Ég hef aldrei verið beðinn um
þá samninga, og það hefði verið
sjálfsagt að láta þá af hendi hefði
ég verið beðinn um það.”saeði
Uisli að lokum. —AH
„Veruleg ágreinings-
efni voru jðfnuð"
— segir Hörður Vilhjálmsson, fjármálastjóri útvarpsins
Vegna kjaradeilu leikara og
Rikisútvarpsins — Sjónvarps,
kom Hörður Vilhjálmsson, fjár-
málastjóri Rikisútvarpsins að
máli við Visi, og vildi koma
eftirfarandi á framfæri, tii
áréttingar þvi sem hann hefur
áður látið hafa eftir sér um
þetta mál:
I fyrsta lagi að veruleg
ágreiningsatriði hafi veriö jöfn-
uð i samningsgerðinni. I öðru
lagi, að viðræöur við samninga-
nefndhafi alltaf verið málefna-
legar, og að Félag islenskra
leikara eigi skeleggan forsvars-
mann þar sem er Gisli Alfreös-
son. í þriðja lagi aö þáttur
þeirra Knúts Hallssonar skrif-
stofustjóra, og Sigurðar Reynis
Pétursson, lögmanns, varð til
þess aö sætta mismunandi sjón-
armiö. Og I fjórða lagi vildi
Horður komá þeirri skoðun
sinni á framfæri, að næg ágrein-
ingsefni séu með þessari þjóð
þótt ekki sé reynt að spilla þvi
sem hægt er að ganga frá i frið-
semd og þó með sóma.
Eins og kom fram i yfirlýs-
ingu frá Gisla Alfreössyni i VIsi
I gær, er hinni eiginlegu kjara-
deilu milli Félgas islenskra
leikara og Rikisútvarpsins nú
lokið. Astæðanfyrir þvi að verk-
falli var frestaö til 20. septem-
ber I stað þess aö aflýsa þvi, er
einfaldlega sú, aö samninga-
nefnd leikara hefur ekki umboð
til að aflýsa verfallinu, það
verður að gerast eftir samþykki
trúnaðarmannaráðs. I rauninni
Hörður Vilhjálmsson.
er þvi frestun verkfallsins frem-
ur táknræn en raunveruleg.
Kjaradeilunni er lokið með
samkomulagi.
Eftir er hins vegar aö semja
um ákveðinn fjölda leikrita sem
sjónvarpiö gerir á ári eins og
ákvæði eru um i hinum svo-
nefnda islandssamningi leikara
og sjónvarpsstöðva á
Noröurlöndunum. Ekki hefur
komið til tals aö boða verkfall af
þeim sökum, eins og kemur
fram hér i viötali við Gisla Al-
freðsson. —AH.
okkar
landsfræga
hefst mánudaginn 14.ágúst
Og hvad med verdin ?
M.A.:
Terrelynebuxur fró kr. 5.900.00
Gallobuxur " " 4.500.00
Flauelsbuxur
Shetlandspeysur
Aðrar peysur
Skyrtur
. ## ##
ii ii
4.500.00
2.900.00
3.900.00
1.990.00
Mittisblússur fró kr. 2.900.00
Kvenblússur " " 2.500.00
Sailorjakkar " " 12.900.00
Kjólar " " 6.900.00
OFL ofl. ofl.
r6
Brtt
Ath: Stórkostleg hljómplötuútsala
að Laugavegi 89
Laugavegi37 simi12861
Laugavegi89 simi10353