Vísir - 21.08.1978, Blaðsíða 13
Mánudagur 21. ágúst 1978
„Verið með œgilega
bfladellu í mörg ór"
Rœtt við keppendur í vœntanlegu Vísis-
ralli sem haldið verður um nœstu helgi
Arni Arnason, formaður Bifreiðaiþróttaklúbbsins, leggur rallreglurnar. Myndir GVA
* 13
Birgir Þór Bragason og Magnús Arnason keppa nú f fyrsta sinn I ralli.
Þeir sögðust vera svellkaldir enn, en hins vegar gæti fariö svo aö
hræðslan bankaöi upp á áður en lyki.
Arni, Erna og Sigbjörn. Þau segjast komast öll á iö, ef langt llður milli
ralla.
aldrei þátt i röllum. „Ég hef i
rauninni litinn áhuga á bilum, og
gekk aðallega i klúbbinn til þess
að vera ekki alltaf ein,” sagöi
hún. ,,Annaðhvort var aö sætta
sig við að sjá Arna ekki nema
með höppum og glöppum, eða
mæta á fundi og fylgjast með.”
„Hins vegar finnst mér þetta
agalega skemmtilegt og spenn-
andi eftir að ég fór að fylgjast
með þvi. Éggæti bókstaflega ekki
hætt núna. I fyrsta lagi er spenn-
ingurinn i sambandi við undir-
búning bilanna. Undirbúningnum
fylgir yfirleitt mikill gauragang-
ur og óteljandi vökunætur, og ég
hef ekkert á móti þvi. Auk þess er
gaman að fylgjast með sjálfum
keppnunum. Mér finnst lika bót i
máli.aðlitii ástæða er til að hafa
áhyggjur af að keppendur meiði
sig alvarlega. öryggiskröfurnar
eru orðnar það strangar, meðal
annars með tilkomu veltigrind-
anna”.
Svellkaldir enn
Birgir Þór Bragason og
Magnús Arnason eru nú að taka
þátt i ralli i fyrsta sinn. Þeir sögö-
ust vera alveg svellkaldir enn, en
hræðslan gæti náttúrulega tekið
upp á að banka á dyr á siðasta
augnabliki. „Mest kviðum við
fyrir að biilinn bili i miðri
keppni,” sagði Birgir. „Ég hef lit-
ið keyrt i eitt og hálft ár, svo að
maður er kannski ekki i sem
bestri æfingu. Undanfarið höfum
við farið i dálitla leiðangra, bæði
til að ég gæti rif jað upp kúnstina,
og til að ná bilhræðslunni úr
Magnúsi”.
Magnús aðstoðarökumaður
sagði þaö rétt vera, að hann væri
engin bilhetja, en þaö myndi allt
bjargast. ,,Ég vil endilega prófa
þetta, og sjá hvernig það er. Engu
er að tapa, og ég er viss um að ég
skemmti mér vel”.
Allt á fullu
Bræðurnir ömar og Jón
Ragnarssynir leggja hvor öðrum
lið i rallinu, Jón sem aðstoðar-
ökumaður en ömar sem bilstjóri.
„Við leggjum mikla áherslu á að
hafa sem viðtækasta samvinnu til
þess að við getum gripið inn i
hlutverk hvor annars án nokk-
urra erfiðleika” sagði Jón. „Bill-
inn, sem við verðum á núna er af
sömu gerð og sá, sem við notuö-
um, þegar við unnum páskarall-
ið”.
Það er Simca 1100 árgerð ’75,
meðvél úr Simca.sendiferðatröU-
inu svokallaða. Vökull á bilinn —
„keypti hann reyndar af pabba
gamla”, sagði Ömar — en auk
Vökuls styðja þá bræöurna
Gúmmívinnustofan, Vélsmiðjan
Vörður og Bilaryövörn. ,,Já, það
má nú segja, að töluvert vatn hef-
ur runnið til sjávar siðan maður
tók frúarbílinn i Næturrallið á
sinum tima”, sagði Ömar. „Yfir-
leitt list mér ósköp vel á þetta allt
saman. Ég býst við, að þetta rall
verði afslappaðra en önnur, þvi
að það er alltaf erfitt að vera að
verja fyrsta sæti. Nú erum við
ekki að þvi, og þá er álagið
minna. Erfiðu leiðirnar verða
margar, og það er gaman. Þær
koma til með að reyna mikið á
bílstjóra og bila. Allt verður á
fullu og leiðin skemmtileg, og þá
meina ég djöfulleg”.
— AHO
„Það er einmitt gaman aö vera sklthræddur” sögðu yngstu kepp-
endurnir Þorsteinn Svavar McKinstry og Mikael Hreiöarsson Alfonso.
GODGJÖF
SAMEINAR NYTSEMI
OGFEGURD
Gjafavörurnar hjá Kristjáni Siggeirssyni hf. eru valdar úr
framleiðslu heimsþekktra listiðnaðarfyrirtækja. Við mælum
með finnskum glervörum frá Iittala, þýzkum kertastjökum frá
Rondo, sænskum lömpum frá Lyktan, finnskum stálvörum
m.a. pottum frá OPA, dönskum könnum frá Stelton, að
ógleymdum vörunum frá Dansk Design. Finnsku kertin frá
Juhava eru til í úrvali. Góð gjöf sameinar nytsemi og fegurð.
Látið okkur aðstoða við valið.
HÚSGflGnflVERSLUn
KRISTJflnS
SIGGEIRSSOnflR HF.
LAUGAVEG113. REYKJAVÍK. SÍMI 25870