Vísir - 25.08.1978, Blaðsíða 13

Vísir - 25.08.1978, Blaðsíða 13
VISIR Föstudagur 25. ágúst 1978 artan L. Pálsson Iprbttir 17 3 Víkingur skaust upp í 3. sœtið Eftir sigur gegn FH í gœrkvöldi - FH er því enn í bullandi _____fqllhœttu ásamt KA og Þrótti_ Vikingur skaust upp i 3. sætið I 1. deild tslandsmótsins i knatt- spyrnu,er iiðiö sigraði FH 1:0 á Laugardalsveliinum. Þar með jukust vonir Vikings um sæti i UEFA keppninni að ári allveru- lega, en úrslitin uröu að sama skapi vonbrigði fyrir FH, sem berst nú fyrir lifi sinu i deildinni. Vikingar mættu ákveðnir til leiksins i gærkvöldi, og sóknarlot- ur þeirra skullu á FH-markinu. En i markinu stóð Friðrik Jóns- son, og hann átti svo sannarlega eftir að reynast Vikingum erfið- ur. Hvað eftir annað varði hann af stakri snilld, skot frá Jóhanni Torfasyni, skalla frá óskari Tómassyni, auk þess sem hann greip vel inn i leikinn. Auk þeirra tækifæra sem nefnd hafa verið, áttu Vikingar einnig skot i stöng, Heimir Karlsson þrumuskot, sem | hrökk siðan út á völlinn. — Það hefði ekki verið ósanngjarnt að Vikingur hefði haft yfir i hálfleik 3:0. c STAÐAN ■V” 17 16 1 17 13 3 17 9 1 2 - —- V 0 44:8 33 1 47:12 29 7 26:28 19 6 28:24 18 8 21:28 16 7 21:24 12 9 14:37 11 9 21:34 10 2 1 14 16:44 5 eftir eru, eru 7 4 7 2 6 3 3 5 2 6 Valur Akranes Vikingur Keflavik 17 Fram 17 IBV 16 KA 17 FH 17 | Breiðabl. 17 Þeir leikir sem þessir: | ÍBV-Þróttur ÍBK-Vikingur Þróttur-KA FH-Breiðablik ÍBV-Fram Valur-Akranes Ekkert verður leikið i 1. deild I um helgina, en siöustu leikirnir eru á dagskrá 9. og 10. september. Strax i siðari hálfleik fengu FH- ingar eina umtalsverða tækifæri sitt i leiknum, er Leifur Helgason komst innfyrir, en Diðrik gerði vel að verja lúmskt skot hans i horn. Sigurmark Vikings kom á 66. minútu. Þá tók Gunnar örn auka- spyrnu út á kantinum og gaf vel fyrir markið þar sem Heimir Karlsson var fyrir og skallaði boltann i markið. Sigur Vikings var sanngjarn. Þeir voru betri aðilinn i þessum mikla baráttuleik, sem bar þess greinilega merki hvað I húfi var fyrir liðin: UEFA sæti fyrir Vik- ing, fallbarátta hjá FH. gk.— Ný heimsmet í öílum greinum Þau stoppa stutt við heimsmet- in i sundinu þessa dagana, en nú stendur sem kunnugt er yfir heimsmeistarakeppni i sundi I V- Þýskalandi. t gær var keppt til úrslita I 5 greinum, og I þeim öllum voru sett ný heimsmet, og reyndar var metið tvibætt I einni greininni. Opið mót í Keflavík Eitt opið golfmót veröur haldið um helgina, en það er „Vikur- bæjarkeppnin” hjá Golfklúbbi Suðurnesja. Leiknar verða 36 holur á morgun og sunnudag, og verður keppt i flokkum eftir for- gjöf hjá körlum, og einnig i kvennaflokkum. Kristalkeppnin svokallaða fer fram á Nesvellinum á morgun, en sú keppni er einungis fyrir félaga Nesklúbbsins. Leiknar verða 18 holur, og eru verðlaun mjög glæsileg. Það var i 200 metra bringu- sundi. Þar synti sovésk stúlka, Lina Kachushite á 2.33.11 min. i undanrásunum um morguninn, en þegar hún synti i úrslitasund- inu I gærkvöldi fékk hún hinn ótrúlega tima 2.31.42 min. 1 4x200 metra skriðsundi karla setti bandariska sveitin heims- met, synti á 7.20.82 min. og var um 7 sek. á undan sovésku sveit- inni sem varð önnur. 1 bandarisku sveitinni voru Bruce Furniss (hann var sá eini, sem var I sveit- inni, sem átti eldra metið), Bill Forrester, Bobby Hackett og Ambrose Gaines. Kanadamaðurinn Graham Smith setti met I 200 metra fjór- sundi, synti á 2.03.65 min. en fyrr- verandi methafi, sem var Steve Lundquist frá Bandarikjunum, varð fjórði. Linda Jezek frá Bandarikjun- um bætti heimsmetið i 200 metra baksundi kvenna um tæpar fjórar sekúndur, synti á 2.11.93 min. og I 400 metra skriðsundi kvenna synti ástralska stúlkan Tracey Wickham á 4.06.28 min. gk-. FH-ingar tóku Hauka í gegn Haukar meö alla sina bestu leikmenn urðu að sætta sig við tap fyrir hálfgerðu unglingaliði FH I tslandsmótinu i handknattleik utanhúss i gærkvöldi. Sigraöi FH 23:21 og munaöi þar mest um að markverðir FH vörðu vel, en þeir hjá Haukum aftur á móti litið. Geir Hallsteinsson átti stórleik og skoraði mikið af mörkum — þrátt fyrir að hann væri tekinn úr umferð. Valur sigraði HK með 29 mörkum gegn 12 og tók það leikmenn HK liölega 19 minútur að skora fyrsta markið! t siðasta leiknum sigraði svo KR Armann með 23:18. t kvöld leika Armenningar gegn Val og er það úrslitaleikurinn i þeim riðli. Aðrir leikir eru Fram-tR og Fylkir-Stjarnan. —klp— Teitur skoraði Teitur Þóröarson og félagar hans hjá sænska 1. deildarliöinu öster tóku forustuna i deildinni i gær er öster sigraði Malmö á útivelii með 2:1. Það var enginn annar en Teitur, sem skoraði sigurmark öster I leiknum, og eftir þennan kigur hefur öster 23 stig, en Malmö 21 stig. Eru þvi möguleikar öster á meistaratitli orönir mjög góðir. Pólverjarnir eru búnir að velja Pólverjar hafa nú valið landsliðshóp sinn, sem kemur hingað til lands og leikur á Laugardalsvelli 6. september i Evrópu- keppni landsliða.. Þaö sem vekur mesta athygli viö val Pólverja er aö markvörð- urinn kunni, Jan Tomaszewski, er ekki valinn I liðiö, en hann hefur verið fastamaður I liðinu undanfarin ár. En annars er landsliðshópur Póllands þannig skipaður. Markvörður: Zygmunt (Sigmundur) Kukla, Piotr Owlik. Varnarmenn: Wojciech Rudy, Henryk Maculewicz, Roman Wojcicki, Stefan Manewski, Antoni Szymanowski, Miðju- og framlinumenn: Zbignieew Boniek, Tadesz Blachno, Janusz Kupcewicz, Dam Nawalka, Bohdan Masztaler, Marek Kusto, Gregorz Lato, Anislaw Terleski, Jerzy Dworczyk, Lodzimierz Mazor og Roman Ogaza. Selfoss eða Víðir? Einn af aukaúrslitaleikjunum i 3. deildinni í knattspyrnu fer fram i kvöld, en þá mætast Selfoss og Viðir, Garði á Kópavogs- vellinum, og hefst viðureign þeirra kl. 19. Þessi lið urðu efst og jöfn I sinum riðli, og verða þvi aö leika aukaleik um sæti i úrslitakeppni 3. deildar. TU Luxerabouig mm- ' ® eða lengia!:. eðafengra. Luxembourg er friðsæll töfrandi ferðamanna- staðiu', mótaður af frönskum og þýskum ' menningaráhrifum - þar sameinast franska glaðlyndið og þýska nákvæmnin. Þar sem landið er lítið, er stutt að skjótast til ýmissa stórborga í nágrannalöndunum. Þannig er 25 mínútna akstur til borgarinnar Trier í Þýskalandi og klukkustundar akstur til Koblenz, sem stendur þar sem frægustu fljóta- héruð Evrópu sameinast, á mótum Mosel og Rínar. Luxembourg — einn fjölmargra staða í áætlunarfiugi okkar. flucfélac LOFTLEIDIR LSLANDS

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.