Vísir - 18.09.1978, Side 12
12
Mánudagur 18. september 1978 vTsm
Hefði vart lifað
— ef hjólp hefði ekki boríst
fró ísiandi
Sagt frú sjúkraflugi Vœngja til Grankmds
Flugvél frá Vængjum
fór til Grænlands í fyrri
viku þeirra erinda að
sækja þangað mann,
sem hafði orðið fyrir
skotárás. Hafði maður-
inn fengið skot i höfuð-
ið, og hefði vart lifað
af, ef hjálp hefði ekki
borist frá fslandi. Er
„maðurinn nú úr allri
lifshættu, en liggur enn
á Borgarspitalanum.
H1Ú6 a6 sjúklingnum fyrir flug-
ferðina
Vtsir ræddi stuttlega við tvo
jæirra manna, sem fóru i þetta
sjúkraflug, þá Viðar Hjálm-
týsson, flugstjóra og Óskar J.
Óskarsson, sem fór með sem
aðstoðarmaður. Alls fóru fjórir
menn héðan i sjúkraflugiö, auk
fyrrgreindra jieir Stefán Carls-
son læknir og Finnbjörn Finn-
björnsson, aðstoðarflugmaður.
Beiöni um sjúkraflugiö barst
hingað um niu leytið á mánu-
dagskvöld, en ekki var hægt að
halda af stað fyrr en eftir mið-
nætti, þar sem ekkivar hægt að
lenda á ákvörðunarstaö,
Skoresbysundi á austur Græn-
landi, fyrr en i birtingu. Milli-
lent var á Akureyri til að taka
eldsneyti, en jjaðan haldiö um
fjögur leytiö aö morgni.
Þegar komið var að áfanga-
stað var þar að myndast þoka i
ljósaskiptunum en þrátt fyrir
nokkra erfiðleika tókst að lenda
þar á sléttlendi nokkru, sem
notast er við sem flugvöll.
Eldsneyti, sem haft var með-
feröis frá Islandi i tunnum, var
fyUt á vélina, en siðan haldið af
stað aftur.
Sagöi Óskar, aö mjög hefði
verið af manninum dregið, og
hefði hann m.a. hætt að anda
sem snöggvast. Lækninum tókst
þó að lffga hann við aftur méð
sérstökum tækjum. Auk þess
hefði þurft að lækka flugið til
þess að sjúklingurinn fengi súr-
efnisrikara loft. Til Reykjavik-
ur var svo komiö um niu leytið
að morgni, og var s júklingurinn
þá fluttur á Borgarspitalann.
Viðar Hjálmtýsson sagði, að
A flugvellinum viö Skoresbysund
þetta væri önnur ferð sin á
skömmum tima tU Grænlands
þessara erinda. Fyrir nokkru
heföi hann sótt þangaö stúlku,
sem haföi veriö stungin á hol.
Sagði hann, að þvi miður virtist
jiað vera algengt á þessum slóð-
um að menn réðu deilumálum
sinum til lykta með vopnum.
Menn heföu þarna greiðan að-
gangað skotvopnakaupum, sem
seld væru sem sjálfsvarnartæki
gegn óargardýrum. Auk þess
væridrykkjuskapur þarna mjög
mikill.
Viðskiptum þeirra tveggja
Graailendinga, sem hér um ræð-
ir, lauk á þann veg, að eftir að
hafa sært þann aðilann skotsári
i höfuðið sem fluttur var til ís-
lands framdi hinn sjálfsmorð.
—GBG
Kldsneyti dælt á vélina i Grænlandi.
á morgun kl:15.QQ
Safnastveróursaman við Sjómannaskólann kl:15.QQ og gengió
þaóan til kgarvalsstaóa þar sem fundur veróur haldinn.
Borgarstjóri og borgarfulltrúar mæta á fundinn.
LúÓrasveit leikurfyrir göngunni.
Stuðningsmenn jafriréttis fjölmennið
Sjálfsbjörg félag fatlaöra, Reykjavík