Vísir - 04.10.1978, Síða 2
2
r*.
Mibvikudagur 4. október 1978 VISIR
Hvað kosta dagblöðin i
dag?
Baldur Guömundsson, bilstjóri
„Kosta þau ekki öll 120 krónur. Jú
þaö held ég þau hækkuðu öll nú
nýverið.”
Guðjón Marteinsson, verkamaö-
ur: „Þau kosta 120 krónur en
Þjóöviljinn kostar 110. Visir kost-
ar hins vegar 120. Mogginn? Hann
er svo lélegur að hann hlýtur aö
vera gefinn.
Berglind Gubmundsdóttir, nemi:
„Ég hef bara ekki hugmynd um
það. Eg held samt aö þau kosti 125
krónur.
Lárus Stefánsson, nemi: „Þau
kosta 100 krónur en Þjóðviljinn er
eitthvaö aöeins ódýrari. Annars
veit ég hvaö Valsblaðiö kostar”
Katrin Magniisdóttir, vinnur hjá
heildverslun Kristjáns Ó. Skag-
fjörö: „Ég held aö þau kosti öll
120 krónur. Voru þau ekki aö
hækka?”
Olaffur Jóhannesson á beinu linu Vísis annað kvöld:
Margs er að spyrja
að loknu viðburða-
riku stjórnmálasumri
Ólafur Jóhannesson, forsætisráöherra. Visismynd: GVA.
olafur Jóhannesson,
forsætisráðherra, mun
svara spurningum lands-
manna á ritstjórn Visis
annað kvöld, fimmtu-
dagskvöld, kl. 19.20 til 21.
Síminn er 86611.
Þegar bein lina Visis var
siðast á dagskrá, svaraöi
Matthias Bjarnason, þáverandi
sjávarútvegsráðherra, spurn-
ingum fjölmargra lesenda
blaðsins viðs vegar að af
landinu. Ólafur er hins vegar
fyrsti ráðherra núverandi rikis-
stjórnar sem kemur á beinu
linuna.
Margvíslegar
spurningar.
Telja má vist, að lesendur
Visis hafi hug á að bera fram
margvislegar spurningar viö
Ólaf Jóhannesson að afloknu
mjög viðburðarriku sumri á
sviði stjórnmálanna.
Þar má meðal annars nefna
úrslit tvennra kosninga, langar
stjórnarmyndunarviðræður og
myndun nýrrar vinstri stjórnar
— en Ólafur átti sem kunnugt er
einnig sæti i fráfarandi rikis-
stjórn, sem ýmsirkölluðu hægri
stjórn.
Framsóknarflokkurinn beið
umtalsverðan ósigur i þing-
kosningunum, og vafalaust
munu ýmsir vilja spyrja Ólaf
um orsakir og afleiðingar þeirra
kosningaúrslita.
Þá er þess að vænta, að margs
verði spurt um stefnu og störf
núverandi rikisstjórnar — efna-
hagsráðstafanir hennar til
skamms tima, stefnuna til
lengri framtiðar, vandamál at-
vinnuveganna, verðbólguna,
launamálin o.s.frv.
i einn og hálfan tima.
Ólafur mun svara spurn-
ingum landsmanna á ritstjórn
Visis i eina og hálfa klukkustund
— frá kl. 19.30 til kl. 21.
Reynslan sýnir, að færri komast
að en vilja á beinu linúnni. Það
hefur stundum leitt til þess að
fólk úti á landsbyggðinni hefur
þurft að biða alllangan tima i
simanum, en það er orðið dýrt
nú til dags. Þess vegna gefur
Visir lesendum úti á landbyggð-
inni kost á þvi að hringja sið-
degis á fimmtudag i sima 86611
og láta skrá sig þar, og verður
siðan hringt i þá meðan á beinu
linunni stendur.
Spurningar þær, sem bornar
verða upp við Ólaf, og svör for-
sætisráðherra við þeim, munu
siðan birtast i Visi á föstu-
daginn.
—ESJ.
ÞEGAR ÞINGHÚSIÐ SPRINGUR
Hin viröuiega steinbygging
frá timum Kristjáns niunda á
nú aö hýsa hundraöasta þing
tslendinga samkvæmt timatali
endurreisnar þess i Reykjavfk.
Komiö er þingmannatal meö
myndum, og ætta, prófa og
starfssproki margvislegu, svo
allir megi sjá þaö úrval
sniiidarinnar, sem landiö hefur
haft upp á ab bjóöa allt frá þvi
aö menn reiddu kost sinn til
þinghalds I Reykjavik. Fer ekki
á milli máia, aö á köflum hefur
sópaö aö Aiþingi, þótt nú hafi
um stund verib hokraö aö
meöalmennskunni meö þeim
ágætum, aö almenningur hiröir
ekki lengur aö vita einstök nöfn
á herskapnum, eöa aö hann
nenni aö fylgjast meö þvi hvaöa
sóknarnefndarmenn sitja þar aö
sinni.
Hin viröulega steinbygging
hefur dugaö lengi, enda skammt
siöan þingmannaliöi og
ráöherrahópum hefur fjölgaö
svo, aö til vandræöa horfir um
húsrými. Nýlega hafa nokkrar
tillögur látið á sér bæra til
lausnar húsþrengslunum og er
allt gott um þær aö segja, enda
gera þær fyrst og fremst ráö
fyrir aö byggðar verði nokkurs-
konar hjálparbyggingar á
næstu lóbum, en steinbygging
Kristjáns nlunda veröi látin
standa. Má meö sllkum til-
færslum hýsa enn um sinn þing-
fundi I hinni gömlu byggingu, en
þar viö liggur sómi hennar og
tilgangur. Þó hefur einn vandi
steöjaö aö byggingunni á þessu
hausti, en þaö er niundi ráö-
herrastóllinn. Veröur honum
komiö fyrir vinstra megin I
salnum, I þeim krók miili langs-
umboröa og þversumboröa, þar
sem þingmenn hafa veriö aö
nudda göt á fatnað sinn i
boröhæö á undanförnum áratug.
Ekki rýmkast gönguleiöir milli
borða við þennan niunda ráð-
herrastól, og er ekki úr vegi aö
gera þvi skóna aö þingmenn
þurfi að bera skildi nær sér og
innan klæöa, svo ekki rlfi þeir
undan sér hold og limi i þrengsl-
un um.
A þvl kjörtlmabili sem nú
stendur er fastlega reiknaö meö
þvi aö samþykkt veröi aö þing-
mönnum fjölgi um rúman tug
manna. Fari sex af þeim til
Reykjavikur, fimm til
Reykjaneskjördæmis og einn til
Noröurlands eystra. Fer þá enn
aö þrengjast I þingsölum, en
litið er hægt aö rlfa af inn-
veggjum, enda fátt eftir af þeim
nema buröarveggir. Og þótt
burðarveggirnir séu ekki
miklir i þjóðmálunum, eða orö-
ræöum fulltrúa meöamennsk-
unnar, mun steinbygging
Kristjáns niunda ekki þola
samskonar niöurlag. Buröar-
veggir hennar veröa aö standa
þótt auka þurfi málflóöiö.
Er þá aðeins einn leikur eftir,
en hann er aö byggja þingsal
neöri deildar og sameinaös
þings upp I skeifulaga form meö
hækkandi sætaröðum, og má
aftasta og hæsta sætarööin ná
gólfhæö áhorfendapalla. Meö
þessu móti má fjölga nokkuö
þingmönnum án þess þeir
sprengi af sér hina gömlu og
virðulegu byggingu. En auö-
vitaö veröur ekkert samkomu-
lag um þetta frekar en annaö,
sem horfir til bóta I aöbúnaöi
þingmanna. Þaö er lengi búiö aö
sjá fyrir, aö rýma veröur þing-
húsiö af mestöllu skrifstofuhaldi
og allri þingflokkastarfsemi
með tilheyrandi herbergjum,
þar sem þingmenn skjótast á
fundi undir stigum, eins þeir
séu aö villast inn I kústaskápa.
Samt hafa engar tillögur til
úrbóta náö fram aö ganga,
alveg eins og forhliö lýöveldis-
ins megienga andlitslyftingu fá.
Þaö er ekki verið aö spara I
mannahaldi þess opinbera, og
opinberar framkvæmdir eru
slikar, aö tiu eöa tólf milljöröum
er steypt ofan I eldstöðvar
noröanlands rétt fyrir ^wýja
Mývatnselda heldur en ekkert.
En þegar þrengslin I þinghúsinu
eru oröin sllk, aö menn eru aö
velta þvi fyrir sér hvort nlundi
ráöherrann veröur haföur I stól
eöa hvort hann verður settur á
prik eins og fiöurfé, næst ekkert
samkomulag, m.a. vegna þess
að enginn vill eyöa I sllkan
hégóma. Satt er það, aö
almenningur hefur ekki þaö álit
á Alþingi, aö honum finnist aö
þar þurfi aö fjölga mönnum eöa
um aö bæta húsakynnin. Um þá
skoðun eiga þingmenn viö sjálfa
sig. Liöur í aö breyta henni væri
aö hafa kjark til aö ráöa fram úr
húsnæöisvanda sinum áöur en
þinghúsiö springur.
4