Morgunblaðið - 07.01.2001, Blaðsíða 15
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 2001 B 15
Verð 2.850 þ.
Land Rover
Defender 110
Storm Country
Grjóthálsi 1
Sími 575 1230/00
bíla
land
notaðir bílar
bilaland.is
B&LNýskr. 8.1999, 2500cc diesel vél,5 dyra, 5 gíra, grænn, ekinn 28 þ.
33" breyttur, topplúga, o.m.fl.
TILBOÐ ÓSKAST
í bifreiðina GMC Yukon 4x4 árgerð ‘96
vél 5,7 vortec (bensín)
og aðrar bifreiðar,
er verða sýndar að Grensásvegi 9
þriðjudaginn 9. janúar kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16
UMSÝSLUSTOFNUN VARNARMÁLA
SALA VARNARLIÐSEIGNA
Útsalan
er hafin
Strandgötu 11,
sími 565 1147
Opið laugardag frá kl. 10.00—16.00
GRUNNSKÓLANEMENDUR
Fyrir samræmdu prófin í 10. bekk
Einnig flestar námsgreinar í framhaldsskólum
Íslenska - stærðfræði - enska - danska
Nemendaþjónustan sf. sími 557 9233
namsadstod.is
Námsaðstoð
NÚ HEFJUM við gönguna á nýju
ári og hlökkum til þriðjudagskvöld-
anna í Laugarneskirkju, þar sem
fullorðinsfræðslan og þriðjudagar
með Þorvaldi opna okkur og öllum,
sem með vilja vera, góða leið að
kristnu samfélagi þar sem trú og
lífsviðhorf eru krufin til mergjar og
lofgjörðin nærir sálina.
Viðfangsefni vorannar fullorðins-
fræðslunnar verður umfjöllun um
þann veruleika sem fátækt og ein-
semd er í samfélagi okkar. Við mun-
um fá sérfrótt fólk á mörgum sviðum
til að kynna okkur þekkingu sína um
þessi málefni og leitast við að greina
vandann í ljósi heilbrigðrar skyn-
semi eins og hún birtist í kristinni
siðfræði og trú. Vonumst við svo til
þess að geta haldið málþing nær
páskum um þetta knýjandi málefni.
Athugið að gengið er inn um aust-
urgafl kirkjunnar til fullorðins-
fræðslunnar en annars um aðaldyr
kirkju.
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra
og vestra: Hádegisverðarfundur
presta í Bústaðakirkju kl. 12 mánu-
dag.
Háteigskirkja. Spjallstund mánu-
dag kl. 10-12 í Setrinu á neðri hæð
safnaðarheimilis fyrir eldri borgara
með Þórdísi þjónustufulltrúa. Eldri
borgarar grípa í spil mánudaga kl.
13.30-16 í Setrinu á neðri hæð safn-
aðarheimilisins.
Laugarneskirkja. 12 spora hóparnir
mánudag kl. 20 í gamla safnaðar-
heimilinu, gengið inn að austan-
verðu.
Neskirkja. Starf fyrir 6-9 ára börn
mánudag kl. 14-15. TTT-starf (10-12
ára) kl. 16.30. Húsið opið frá kl. 16.
Seltjarnarneskirkja. Æskulýðs-
félagið (8., 9. og 10. bekkur) kl. 20-
22.
Árbæjarkirkja. Æskulýðsfélag fyrir
13 ára (fermingarbörn vorsins 2001)
kl. 20-21.30. Æskulýðsfélag, eldri
deildir 9. og 10. bekkingar, kl. 20-
21.30. Kirkjuprakkarar 7-9 ára kl.
16-17 á mánudögum. TTT-starf fyrir
10-12 ára kl. 17-18 á mánudögum.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 9-
10 ára drengi á mánudögum kl. 17-
18. Æskulýðsstarf fyrir 9.-10. bekk á
mánudögum kl. 20-22.
Grafarvogskirkja. Bænahópur kl.
20. Tekið er við bænarefnum í kirkj-
unni alla daga frá kl. 9-17 í síma 587-
9070. Mánudagur: KFUK fyrir
stúlkur 9-12 ára kl. 17.30-18.30.
Hjallakirkja. Æskulýðsfélag fyrir 8.
bekk kl. 20.30 á mánudögum. Pré-
dikunarklúbbur presta í Reykjavík-
urprófastsdæmi eystra er á þriðju-
dögum kl. 9.15-10.30. Umsjón dr.
Sigurjón Árni Eyjólfsson.
Seljakirkja. Fundur í æskulýðs-
félaginu Sela kl. 20 fyrir unglinga
13-16 ára.
Hafnarfjarðarkirkja. Æskulýðs-
starf, yngri deild, kl.20.30-22 í Há-
sölum.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Æskulýðs-
félag 13 ára og eldri kl. 20-22.
Vídalínskirkja. 10-12 ára starf fyrir
drengi í samstarfi við KFUM kl.
17.30 í safnaðarheimili.
Krossinn. Almenn samkoma í Hlíða-
smára 5 kl. 16.30. Allir velkomnir.
Hvammstangakirkja. KFUM og K
starf kirkjunnar mánudag kl. 17.30 á
prestssetrinu.
Fríkirkjan Vegurinn. Fjölskyldu-
samkoma kl. 11. Brauðsbrotning,
léttur hádegisverður eftir samkom-
una. Samkoma kl. 20, brauðsbrotn-
ing. Félagar frá YWAM skóla í Dan-
mörku verða gestir okkar. Högni
Valsson prédikar. Allir hjartanlega
velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía.
Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður
Vörður L. Traustason. Almenn sam-
koma kl. 16.30. Lofgjörðarhópurinn
leiðir söng. Ræðumaður Hafliði
Kristinsson. Barnakirkja fyrir 1-9
ára börn meðan á samkomu stendur.
Allir hjartanlega velkomnir.
Landakirkja í Vestmannaeyjum.
Mánudag kl. 16.50 æskulýðsstarf
fatlaðra, yngri hópur. Ólafur Jó-
hann.
Víkurprestakall í Mýrdal. Ferming-
arfræðsla á mánudögum kl. 13.45.
Frelsið, kristileg miðstöð. Almenn
fjölskyldusamkoma sunnudaga kl.
17.
Þriðjudagur
með Þorvaldi
og fullorðins-
fræðsla í Laug-
arneskirkju
Safnaðarstarf
Morgunblaðið/Árni Sæberg