Vísir - 08.03.1979, Blaðsíða 16
r
16
Fimmtudagur 8. mars 1979.
VÍSIR
LÍFOGLIST LÍFOGLIST LÍF 06 LIST LÍF OG LIST LÉF OG LIST LÍF OG LIST
Gamla bíó:
Astrikur galvaski
Frönsk teiknimynd.
Einhver mesta þjóö-
hetja Frakka eftir aft de
Gaulle leiö er
tvfmæialaust kappinn
Asterix, sem á vorri
tungu hefur veriö nefndur
Astrikur. Myndasögurnar
um hann og félaga hans,
svo sem Steinrik, Sjóörik
og Óörik, hafa notiö
mikilla vinsælda vföa um
heim: m.a. hafa nokkrar
veriö þýddar á isiensku.
Kvikmyndin um Astrik
sem Gamla bió sýnir
þessa dagana er lltiö
annað en hreyfimyndaiit-
færsla á einni bókinni.
Segir þar frá þvi þegar
Rómverjar _ræna
töfralækninum Sjóörlk f
von um aö komast yfir
undradrykk þann sem
veitir Göllunum krafta i
köggla. Meö hjálp
drykkjarins hyggjast
viökomandi Rómverjar
sölsa undir sig völdin j.
Róm og þar meö ná
heimsyfirráöum, enda er
þessu fólki valdafíkn og
heimsvaldastefna í blóð
borin, eins og lesendur
munu vita eftir kynni sin
af Kládiusi og hans slekti
öllu.
Þessi yfirfærsla — frá
bók yfir ikvikmynd — var
ekki að öllu leyti vel
heppnuð, þótt vissulega
Agúst
uömundsson
skrifar
væri hún smellin á köfl-
um. Meö kvikmynda-
tækninni var fátt nýtt lagt
til málanna, þetta var of-
ur einfaldlega gamla
myndasagan á hreyfingu.
Kímnin i bókunum bygg-
ist ennfremur mjög á
oröaleikjum, sem ekki
komust allir til skila. Ein
ástæðan til þess var sú að
Astrikur og félagar töl-
uðu dönsku aldrei þessu
vant: þeir hlutu reyndar
umtalsveröan stuöning af
islenska skýringartext-
anum.
Mikiö væri annars
gaman aö heyra islenska
leikara spreyta sig á að
lesa inn á svona mynd.
Danir tefldu fram mönn-
um á borð við Ove
Sprogoe (sem Ástrik) og
Dirch Passer (sem
Steinrik), og bæði
leiklega og tæknilegavar
danska geröin vel unnin.
Mynd sem þessi er eink-
um ætluö börnum og þvi
kemur danskt tal og
islenskur skýringartexti
að takmörkuðum notum.
Það væri fróðlegt að vita
hversu mikið mætti fá
upp i kostnað af islenskri
hljóðvinnslu með aukinni
aðsókn einni saman.
A.G.
Myndasaga ó hreyfingu
Bðndinn hendir tófuna á lofti I ballettinum Tófuskinni. Hún er eitt af þvf marga sem
hann ágirnist.
Vfsismynd: GVA
Tófuskinn og fóvitar
Nýir ballettar í Þjóðleikhúsinu
Nýr baliett veröur frum-
sýndur i Þjóöleikhúsinu i
kvöld, fimmtudagskvöld.
Ballettinn er byggöur á
smásögunni Tófuskinnið
eftir Guömund G. Hagalin
og samdi finnski danshöf-
undurinn Marjo Kuuseia
ballettinn sérstaklega fyrir
islenska dansflokkinn.
Marjo Kuusela hefur
dvalið hér að undanförnu
og unnið að sviðsetningu
ballettsins fyrir tilstilli
Norrænu leiklistarnefndar-
innar. Hún þykir einn
merkasti danshöfundur
Norðurlanda um þessar
mundir. t fyrravetur var
sýndur i Þjóðleikhúsinu
annar ballett eftir hana,
Salka Valka, sem finnski
dansflokk’ii’.nn Raatikko
dansaöi.
Handritið aö ballettinum
Tófuskinnið samdi Eino
Tuominen, tónlistin er eftir
Stravinsky og leikmynd og
búninga geröi Sigurjón
Jóhannsson. Tófuskinnið
fjallar um ást og ágirnd.
Helstu persónur eru Arni
bóndi, sem örn Guðmunds-
son dansar, tófan, sem
Asdis Magnúsdóttir dansar
og Gróa, kona Arna, en það
hlutverk fara þær Helga
Bernhard og Ingibjörg
Pálsdóttir með til skiptis.
Auk þeirra koma fram
milli 20 og 30 dansarar Ur
tslenska dansflokknum og
Listdansskóla Þjóð-
leikhússins.
Með Tófuskinninu verður
sýndur annar ballett, ekki
siður áhugaverður. Það er
ballettinn Fávitar, sem er
saminn og dansaður af
Tommi Kitti, einum
fremsta sólódansara
Raatikko-dansflokksins.
Kitti hefur unnið ballettinn
upp úr sögu Dostojevskis,
Fávitinn, og vann fyrir
hann fyrstu verðlaun I
keppni danshöfunda sem
Samband finnskra list-
dansara efndi til.
Aðeins tvær sýningar eru
fyrirhugaöar á ballettun-
um, þar sem finnski gesta-
dansarinn er bundinn i
starfi ytra.
—SJ
Ljóðið var
eftir Sigríði
Ljóöiö „Impression”
sem birtist i blaöinu i
gær meö sýningu
Sigriöar Björnsdóttur
er i sýningarskrá meö
sýningu hennar og er
Sigriöur sjálf höfund-
urinn.Ljóöiö segir hún
vera táknrænt fyrir
sýninguna.
„Leikhús fœr þá
aðsókii sem
það á skilið"
— segir Þórunn Sigurðardóttir sem leikstýrir nýju
barnaleikriti „Nornin Baba-Jaga"
Köttólfur Jónsson er stór upp á sig og þaö veröur aö sýna
honum itrustu kurteisi
„Þetta leikrit er um
baráttu milli nornarinnar
Baba-Jögu og Vassilisu
vinnusömu, sem er aö
reyna aö bjarga börnunum
sinum úr álögum hjá norn-
inni" sagöi Þórunn
Si guröa rdó ttir sem
leikstýrir nýju barnaleikrit
sem Alþýðuleikhúsiö er aö
setja á fjalirnar.
Þegar Visir leit inn á æf-
ingu hjá leikhúsinu i gær
voru þar börn úr leikskól-
anum Hólavellir og nokkrir
unglingar sem eru með
leiklistsem valfag I skólan-
um. Þórunn sagði að þetta
væri fyrsta skipti sem börn
hefðu komið á æfingu hjá
þeim en fyrirhugað væri að
viðhalda þessum sið.
Barnaleikritið „Nornin
Baba-Jaga” er eftir
rússneska skáldið Jevgeni
Schwarts, en leikrit hans
Pétur Snæland gaf okkur
svampflögur sem við not-
um i trén sem eru á sviðinu
„Mig skilur enginn nema sá sem dáist aö mér” segir norn-
in Baba-Jaga. Og ennfremur „Mannfólkiö elskar hvaö'
annaö, en ég, þessi elska, elska bara mig” Vassilisa
vinnusama horfir furöu lostin á hana.
Hérna er Vassilisa vinnusama aö biöja hundinn Hnött aö
hjáipa sér aö leysa þrautir nornarinnar. Björninn horfir á
og bak viö þau sjást tvö tré, en þaö eru synir Vassilisu í
álögum
við höfum fengið góða að-
sókn. Auk þess fengum við
styrk frá borginni til að
greiða húsaleiguna.
Hins vegar er þetta
húsnæðisvolitið, að ekki er
um neinn fjárhagslegan
ávinning að ræða. Það
komast svo fáir i hvert
skipti. Við höfum þvi
mikinn hug á að ná sem
flestum sýningum og ætl-
um að sýna þetta leikrit
tvisvar á sunnudögum.
Einnig höfum við áhuga á
að sýna það uppi i
Breiðholtsskóla þar sem
fleiri rúmast fyrir.
Við erum með i undir-
búningi nýtt islenskt leikrit
eftir Ólaf Hauk Simon-
arson, sem heitir Galeiðan
og mun Þórhildur Þorleifs-
dóttir leikstýra þvi. Svo er
Kabarett i vinnslu sem
verður sýndur innan
skamms.
Okkar mesta hjálp er að
fá sem mesta og besta að-
sókn og ég treysti þvi at við
fáum hana, þvi leikhús fær
alltaf þá aðsókn sem það á
skiliö” sagði leikstjórinn,
Þórunn Sigurðardóttir.
—JM
hafa verið sýnd hérlendis
við miklar vinsældir. Má
þar nefna Snædrottninguna
og öskubusku. Þýðandi
„Nornarinnar” er Ingi-
björg Haraldsd.
„1 leikritinu lætur nornin
Baba-Jaga Vassilisu
vinnusömu leysa af hendi
ýmsar þrautir til aö frelsa
syni sina og tekst henni
með h jálp dýranna að leika
á nornina” sagöi Þórunn.
„Þetta er þriðja skipti
sem ég stjórna ieikriti eftir
þennan höfund og mér
finnst alveg einstaklega
gaman að vinna að verkum
hans. Sumir höfundar
leggja ekki eins mikla
vinnu i barnaleikrit og þau
sem ætluö eru fyrir fullorð-
ið fólk og þvi eru verulega
góð barnaleikrit alltof
sjaldséð. Að þessu leyti er
Jevgeni Schwarts á undan
sinni samtið.
Guðrún Svava
Svavarsdóttir gerði bún-
inga og leikmynd i sam-
vinnu við leikarana. Allir
búningar eru úr hveitipok-
um sem við fengum fyrir
litið, og unnum siðan upp
úr þeim sjálf, lituöum,
bleiktum saumuðum og
sniðum. Það var gifurleg
vinna.
allan timann, en þau eru
synir Vassilinu vinnusömu
i álögum.
— Hvernig hefur starf-
semi leikhússins gengið?
„Þetta hefur gengið
mjög vel i allan vetur og
LÍFOGLIST LÍFOGLIST LÍF 0G LIST LÍF 0G LIST LÍF 0G LIST LÍF 0G LIST