Morgunblaðið - 08.02.2001, Page 11

Morgunblaðið - 08.02.2001, Page 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2001 11 Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776 - ANNO 1929 - K O R T E R 172,5 59,5 56,0 49.410.- 129,0 55,0 55,0 35.910.- 170,0 59,8 58,8 49.410.- 85,0 55.5 52,0 24.210.- 111,0 55,0 55,0 31.410.- 125,5 55,0 55,0 35.010.- 144,0 60,0 60,0 35.010.- 165,0 60,0 60,0 62,910.- 140,0 60,0 60,0 51.210.- 186,0 60,0 60,0 71.010.- 186,0 60,0 60,0 69.210.- 176 89,0 61,0 134.910.- Hæð Breidd Dýpt Verð nú Tvöfaldir Amerískir kæliskápar Kæli-og frystiskápar Kæli-og frystiskápar ♦ ♦ ♦ ÁTTA nemendur við Listaháskóla Ís- lands urðu fyrir eitrunaráhrifum eftir að hafa unnið með svokallað polyur- ethan-plastefni á vinnustofu skólans í Laugarnesi í síðustu viku. Vinnueft- irlit ríkisins og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur rannsaka málið en sam- kvæmt upplýsingum þaðan voru regl- ur um innflutning og sölu á efninu brotnar. Á umbúðunum voru heldur ekki tilskildar merkingar. Þá var loftræsting á verkstæðinu þar sem nemendur unnu með efnin ekki í samræmi við notkunarreglur. Gylfi Már Guðjónsson hjá Vinnu- eftirliti ríkisins segir efnið sem nem- endurnir notuðu vera hættulegt. Efn- ið sé það eitrað að fólk sem það notar eigi að vera í hlífðarfatnaði, með hanska og grímur. Nemendurnir hafi ekki gert það. Efnið getur valdið bruna á hörundi og á öndunarfærum og hugsanlega valdið astma. Við notkun á því eigi að vera kveikt á loft- ræstingu sem veitir afsog. Gylfi segir að það hafi ekki verið gert. Slíkur búnaður er þó til staðar á verkstæð- inu. Þá segir Gylfi að á umbúðunum hafi ekki verið tilskildar merkingar um að efnið væri hættulegt né notk- unarreglur á íslensku. Þá hafi inn- flytjandi ekki haft leyfi til innflutn- ings og kennarinn sem keypti af honum efnið hafði heldur ekki leyfi til þess. Rósa Gunnarsdóttir hjá Heil- brigðiseftirliti Reykjavíkur segir að þar sem innflytjandi efnisins hafi ekki haft leyfi til hans hefði hann ekki átt að fá það afgreitt úr tolli. Heil- brigðiseftirlitið hefur lagt hald á allt efnið. Fjölform hf. flutti inn plastefnið sem nemendurnir notuðu. Gunnar Snæland, framkvæmdastjóri segist ekki hafa gert sér grein fyrir því að hann þyrfti að hafa leyfi fyrir inn- flutningi á efninu þegar hann seldi það. Hann mun sækja um slíkt leyfi á næstunni. Sala á þessum efnum hafi verið stöðvuð. Nemendurnir sendir í læknisskoðun Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskólans, segir að nemandi hafi fyrst kvartað undan ofnæmisvið- brögðum á mánudagsmorgun en svo hafi fleiri fylgt í kjölfarið. Hjálmar segist hafa brugðist við með því að kalla Vinnueftirlitið og Heilbrigðis- eftirlitið á vettvang. Þá var slökkvilið- ið fengið til að hreinsa verkstæðið. Nemendunum var einnig vísað í læknisskoðun. Spurður um heilsu nemendanna segir Hjálmar að hún sé nokkuð góð. Einn nemandi hafi þó haldið sig heima að læknisráði. Daníel Magnússon, verkstæðisfor- maður í Laugarnesi, segir að nem- endurnir hafi verið að vinna á verk- stæðinu upp á eigin spýtur en þeir luku fyrir nokkru námskeiði í plast- mótun. Hann telur líklegt að þeir nemendur sem hafi orðið fyrir eitr- unaráhrifum hafi fengið þau vegna snertingar við efnið en ekki við inn- öndun. Nemendurnir, sem urðu fyrir eitr- un, luku námskeiði í plastmótun hjá Helga Skaptasyni, kennara við Iðn- skólann í Hafnarfirði. Þeir voru að vinna áfram að verkefnum þegar þeir urðu fyrir eitruninni. Helgi segist ekki þekkja vel til atburða en nem- endurnir hljóti að hafa farið óvarlega með efnið. Hann segist þó hafa sagt nemendum að fara varlega við með- höndlun þess. Hann hefði e.t.v. getað brýnt það enn betur fyrir nemendum. Helgi kveðst hafa notast við sam- bærileg efni til kennslu lengi og engin vandræði hafi þá komið upp. Urðu fyrir eitrunaráhrifum af völdum plastefnis Reglur um innflutn- ing og sölu brotnar RÍKISKAUP munu ganga til samn- inga við pólsku skipasmíðastöðina Moskar um viðgerðir á varðskipun- um Tý og Ægi. Júlíus S. Ólafsson, forstjóri Rík- iskaupa, segir að tilboð Pólverjanna haf reynst um 7 milljónum króna lægra en tilboð Vélsmiðju Orms og Víglundar eftir að búið var að reikna með dvalarkostnaði eftirlitsmanna í Póllandi og siglingu varðskipanna til og frá landinu. Það hafi því verið sameiginleg nið- urstaða Landhelgisgæslunnar og Ríkiskaupa að ganga til samninga við Moskar. Áætlað er að viðgerð- irnar kosti um 76 milljónir. Gengið til samninga við pólska skipa- smíðastöð RAGNAR bóndi Guðmundsson á Nýhóli verður senn 78 ára og held- ur þó lífsmynstri sínu og búskapar- háttum. Hann kom í Nýhól fjög- urra ára gamall sunnan frá Holti í Garði í Gullbringusýslu og hefur orkt í þessa jörð síðan. Héðan er móðurætt hans en föðurætt af Rosmhvalanesi. Ragnar hefur búið einn frá 1976 en hafði lengi sum- arstráka og stundum ráðskonu. Hin síðustu ár er hann einn en nýt- ur góðra nágranna þar sem eru Bragi og Sigríður á Grímsstöðum. Ragnar er með tíu kindur, þar af er einn svartur forystusauður og tvær forystuær, önnur mókrúnótt, hin svarkrúnótt. Ragnar var að hýsa fjárhópinn sinn í síðdegissól á sunnudaginn þegar tíðindamann bar þar að. Þessar kindur eru síð- astar af gamla fjárstofninum sem gerði Hólsfjallahangikjötið lands- frægt á sínum tíma. Er ekki full ástæða til að þeim stofni sé haldið við? Á Hólsfjöllum var aldrei skorið niður vegna sauðfjársjúkdóma og því hafa ekki verið þar fjárskipti en gripir sóttir til kynbóta í Öxarfjörð og Þistilfjörð. Landgræðslan samdi við Fjallabændur 1991 um að þeir hættu sauðfjárbúskap og þá var skorið niður í fyrsta og eina skiptið. Síðan eru á Fjöllum aðeins örfáar skepnur á Nýhóli og Grímsstöðum. Á Nýhóli hafa verið geitur lengst af síðan 1930 og voru þá til mjólkur- nytja, en síðustu árin hefur aðeins verið þar ein huðna, mest til ánægju, en sú hefur ekki fengið til sín hafur fyrr en nú í vetur að Möðrudælir sendu ungan hafur sinn til Ragnars með það að markmiði að fjölgun yrði í geitastofni Fjöllunga. Má vissulega vænta þess að kiðling- ur komi með vorinu. Ragnar fer í húsin tvisvar á dag, hann hleypir kindunum út þegar veður er gott og túnin hálfauð svo sem nú er, en geiturnar hefur hann inni við. Hann rýir ekki yfir vetur- inn því húsin eru köld með svo fáum skepnum. Færð var ágæt úr Mývatnssveit um Austurfjöll en svo nefna menn það land sem þjóðvegurinn liggur um úr Mývatnssveit að Jökulsá. Mý- vatnsöræfi eru allmiklu sunnar en þjóðleiðin og mættu menn gjarnan hafa það í huga. Heimreiðin norður til Ragnars er einn svellbunki, ann- ars er þangað fólksbílafæri, sem er eftir öðru í þeirri furðulegu veðr- áttu sem þessi vetur býður upp á. Morgunblaðið/BFH Ragnar bóndi Guðmundsson á leið í fjárhúsin til síðdegisgegninga. Ragnar er með tíu kindur, þar af er einn svartur forystusauður. Ragnar fer í fjárhúsin tvisvar á dag og gefur á garðann. Heimsókn í Nýhól Mývatnssveit. Morgunblaðið. NEMENDUM á háskólastigi fjölg- aði um tæp 6% á milli áranna 1999 og 2000 en fjöldi nemenda á framhalds- skólastigi hélst svipaður á milli ára og fjölgaði aðeins um 0,2%, sam- kvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Fjöldi nemenda á háskólastigi var 10.495 síðastliðið haust en var 9.908 árið 1999. Nemendur í framhalds- skólum voru 19.871 haustið 1999 og 19.909 síðastliðið haust. Nemendum fækkaði um 3% í menntaskólum en fjölgaði um 0,4% í fjölbrautaskólum. Haustið 2000 voru alls 30.404 nem- endur við nám í framhalds- og há- skólum sem er fjölgun um 625 nem- endur, eða 2,1%, frá árinu áður. Á milli áranna 1998 og 1999 fjölgaði framhalds- og háskólanemum hins vegar um 3%. Á síðustu haustönn voru 26.364 þessara nemenda í dag- skóla, 2.468 í kvöldskóla, 1.456 í fjar- námi og 116 utan skóla. Meiri fjölg- un háskóla- nema en í framhalds- skólum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.