Morgunblaðið - 08.02.2001, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 08.02.2001, Qupperneq 46
✝ Alexander H. Jó-hannsson fæddist í Reykjavík 26. júlí 1912. Hann lést á hjartadeild Landspít- alans í Fossvogi 1. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jóhann Hafsteinn Jó- hannsson, forstöðu- maður manntalsins í Reykjavík, f. 12. september 1885, d. 1. júní 1969 og Guðlaug Árnadóttir, hús- freyja, f. 6. apríl 1885, d. 25. júní 1967. Systkini Alexanders eru; Guðrún, f 1906, d. 1973; Sigríður, f. 22.7. 1908, d. 26.4. 1995; Ferd- inand, f. 2.9. 1910, d. 4.5. 1984; Svavar, f. 2.6. 1914, d. 3.5. 1988; Haukur, f. 11.8. 1916, d. 10.3. 1989; Valur, f. 11.6. 1918, d. 3.11. 1984; Már, f. 22.7. 1920; Hilmar, f. 1921, d. 1922; Droplaug, f. 1923, d. 1969; Birgir, f. 6.4. 1925. Alexander kvæntist árið 1952 eftirlifandi eiginkonu sinni Guð- finnu Þórarinsdóttir, f. 23.7. 1922. Þau eignuðust tvær dætur: 1) Edda, hjúkrunarfræðingur, f. 10.8. 1960, hennar sambýlismað- ur er Örn H. Jak- obsen, viðskipta- fræðingur, f. 22.9. 1948. 2) Rúna, hjúkrunarfræðing- ur, f. 23.8. 1963, gift Þorvaldi Ingvars- syni, lækni, f. 8.10. 1960. Þeirra börn eru a) Alexander, f. 22.11. 1989. b) Hall- dóra Anna, f. 24.4. 1992. Á yngri árum stundaði Alexander ýmis störf en 1932 hóf hann störf sem fulltrúi og staðgengill lóðar- skrárritara Reykjavíkurborgar. Hinn 1. janúar 1973 var hann skipaður lóðarskrárritari Reykja- víkurborgar og gengdi því starfi til starfsloka 1984. Á yngri árum starfaði Alexander mikið fyrir íþróttahreyfinguna og var meðal annars formaður skíðadeildar Víkings en útvist, fjallaferðir og veiðar voru hans áhugamál fram á síðustu ár. Hann var og starf- andi í Lionshreyfingunni. Alexander verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Í dag verður tengdafaðir minn Al- exander Jóhannsson borinn til graf- ar. Alexander var fæddur í Reykja- vík 26. júlí 1912 og hefði því orðið 89 ára í sumar. Móðir Alexanders, Guð- laug Árnadóttir, var fædd í Ölfusi en flutti til Reykjavíkur 1903. Faðir Al- exanders, Jóhann Hafsteinn Jó- hannsson, var fæddur í Reykjavík og bjó þar alla tíð. Meiri Reykvíking en Alexander var og er vart að finna. Alexander var fæddur snemma á öldinni þegar Reykjavík var lítið annað en kvosin og hverfin þar í kring. Óx hann úr grasi á þeim tím- um sem framfarir og breytingar á háttum þjóðar og borgar urðu sem mestar. Hann var fjórði í röð 11 systkina. Alexander fór fljótt að vinna fyrir sér eftir skyldunám, vann hann við ýmis störf þar til hann réð- ist til Reykjavíkurborgar sem fulltrúi á skrifstofu lóðaskrárritara. Vann Alexander við mælingar og teikningar þar til hann var skipaðar lóðarskrárritari Reykjavíkurborgar 1. janúar 1973 og starfaði hann sem lóðarskrárritari þar til hann lét af störfum fyrir aldurssakir 1984. Voru fáir honum fróðari um sögu húsa og lóðaréttinda í gamla miðbænum, enda fór það svo að þegar hann lét af störfum starfaði hann áfram við að skrásetja upplýsingar um hús og lóð- ir í kvosinni. Á fimmta áratugnum kynnist hann eftirlifandi eiginkonu sinni, Guðfinnu Þórarinsdóttur. Byggðu þau sér hús í Steinagerði 17 og hafa búið þar alla tíð, húsinu hélt hann vel við og svo garðinum en síð- ustu árin sat hann löngum og sólaði sig þegar það átti við. Er ég kynntist honum fyrst fyrir um 13 árum var hann hættur störf- um en í fullu fjöri. Hann var hár maður, grannur og myndarlegur, viðræðugóður, fróður um þjóðmál og pólitík. Sat hann oft í fína stólnum í stofunni og réð krossgátur og fór létt með enda hafði hann þann starfa um tíma að búa til krossgátur fyrir blöð. Sjálfstæðismaður var hann fram í fingurgóma þó að á síðustu árum hafi maður greint efa í rödd hans þegar ýmis þjóðmál báru á góma. Fannst honum ýmsir forustumenn flokksins hafa sveigt ansi langt frá upprunalegu stefnu Sjálfstæðis- flokksins. Tók hann mér vel þó mig gruni nú að honum hafi ekki staðið á sama þegar við Rúna fluttum til Sví- þjóðar með einkabarnabarnið og nafna. Sem ungur maður fékk Alex- ander áhuga á fjallaferðum og úti- vist. Stundaði hann fjallgöngur og skíðaferðir langt fram á ævi. Alltaf glaðnaði yfir honum þegar hann ræddi útivist og veiðiferðir sínar en þær voru margar. Lengi vel gekk Al- exander á Snæfellsjökul um hvíta- sunnu ár hvert, kunni hann margar sögur af þeim ferðum. Alexander hafði og mikinn áhuga á stangaveiði og stundaði hana eins lengi og kraft- ar leyfðu, gaf hann svo nafna sínum og barnabarni veiðistöng og fylgdist vel með framförum hans við veiðar. Síðasta árið átti Alexander við van- heilsu að stríða, tók hann veikindum sínum af stillingu. Er kallið kom var hann sjálfur undir það búinn og saddur lífdaga. Við sem eftir lifum kveðjum hann með sárum söknuði og þakklæti. Hvíl þú í friði. Þinn tengdasonur, Þorvaldur. Langri lífsgöngu er lokið. Eftir standa ótal spor og minningar sem hrannast upp í huganum. Alexander varð einn af stórfjölskyldunni á Laugavegi 76, þegar hann og Gulla móðursystir mín felldu hugi saman og hófu búskap. Það var á þeim tím- um í íslensku þjóðfélagi sem miklar framkvæmdir og stórhugur var um allt land. Alexander sýndi það í verki að hann var einn af þeim sonum landsins sem létu ekki sitt eftir liggja. Af miklum myndarskap reisti hann húsið í Steinagerði 17 og það var með lotningu sem við litlu frænk- urnar fórum þar um vistarverur og dáðumst að fallegu heimili þeirra hjóna, þar var ævintýrabragur yfir öllu. Í stórfjölskyldum skiptast á skin og skúrir, sorg og gleði og þann- ig var einnig í þessari tengdafjöl- skyldu Alexanders. Hann tók heils- hugar þátt í því, fyrst með Gullu en síðan einnig með dætrunum Eddu og Rúnu, um það bera vott ótal ham- ingjuóskakort með fallegri rithönd hans. Sunnudagur, snjór yfir öllu og glampandi sól, skyndilega birtist Alli þar sem hann kemur yfir hæðina á skíðum og rennir sér fimlega niður brekkuna – hann hafði gengið á skíð- um úr Steinagerðinu, yfir túnin, þar sem nú er þétt byggð, og naut útiver- unnar til hins ýtrasta. Fjallamaður, skíðamaður – á þeim tímum sem ein- göngu hreystimenni og sérvitringar fóru til fjalla, hvað þá til jökla, skynj- aði Alli kraftinn og orkuna sem býr í íslenskri náttúru, frelsi fjallanna og útiverunnar og ásamt góðum félög- um og fjölskyldunni sinnti hann þessu áhugamáli sínu. Hins vegar voru það ekki ein- göngu snævi þakin fjöllin sem heill- uðu, því garðyrkjan var stór hluti af lífi hans. Hann ræktaði garðinn sinn í orðsins fyllstu merkingu og fór þar ekki troðnar slóðir. Þar fékk list- fengi hans, nákvæmni og þolinmæði notið sín, tré og runnar, að ógleymd- um rósunum og dalíunum sem hann ræktaði af mikilli elju í litla gróð- urhúsinu sínu bak við bílskúrinn – og var örlátur að gefa til ættingja og vina sem flestir höfðu aldrei séð önn- ur eins blóm. Það var reisn yfir honum og virðu- leiki, hann var hár og grannur og í minningunni alltaf vel klæddur, hvort sem var í fermingarveislu í fjölskyldunni, eða að dytta að húsi og garði. Góður drengur er genginn, bless- uð sé minning hans. Auður Sveinsdóttir. Í dag kveðjum við góðan vin okkar Alexander Jóhannsson. Sameiginleg kynni okkar feðga við Alexander hóf- ust með ferðum okkar á Tindfjalla- jökul, en þar höfðu Fjallamenn reist skála. Undu menn sér þar meðal annars við fjallgöngur eða spilamennsku og elduðu sér gott saltkjöt og baunir. Var það haft á orði að alltaf væri gott veður í þessum ferðum, annað hvort gott útivistarveður eða gott spilaveður. Alexander var mikill útivistar- maður og náttúruunnandi og tók meðal annars þátt í á sínum tíma að reisa Víkingsskálann á Hellisheiði. Auk fjallaferðanna var oft farið í laxveiði. Hann var félagi okkar í Lionsklúbb Reykjavíkur auk þess sem við spiluðum reglulega saman bridge. Við þökkum Alexander ánægju- lega samfylgd og sendum fjölskyldu hans innilegustu samúðarkveðjur. Franz og Páll. Kveðja frá Skíðadeild Víkings Skíðadeild Víkings var stofnuð ár- ið 1941. Þegar í upphafi var áhugi og nauðsyn fyrir því að koma upp að- stöðu til skíðaiðkana og byggja skíðaskála fyrir félagsmenn. Fljót- lega fékkst góður staður og lóð fyrir skíðaskála í nágrenni Kolviðarhóls. Skipuð var bygginganefnd og tók Al- exander H. Jóhannsson þar við for- mennsku, en að baki hans var að sjálfsögðu hópur félaga og sjálfboða- liða. Brátt var hafist handa við vega- gerð, efnisflutning og skálasmíði, þótt lítið væri um peninga og efni til framkvæmdanna, en því meiri var áhuginn og starfsgleðin. Alexander átti sinn góða þátt í því að allt gekk þetta vel og verklega fyrir sig, en sjálfur var hann vel handlaginn og greindur, með nokkra skoðun og þekkingu á því hvernig hús ætti að byggja þarna. Handtökin voru mörg og fáir vanir smiðir, en að lokum skilaði byggingarnefndin af sér störfum og Alexander og félagar luku sínu verki með sóma og góðri skálavígslu. Á þennan hátt var upphafið að æv- intýrinu. Í dag er þarna rennivegur, nýr skáli og skíðalyfta, en það er önnur saga. Alexander naut útiveru og skíða- ferða, fann hve styrkjandi og bæt- andi það er fyrir líkama og sál, en öll vitum við einnig að Henglafjöllin eru heillandi og margbreytilegur heimur til útiveru flesta daga ársins. Alex- ander var glaður í lund, léttur og kom sér vel og því góður félagi. Víkingar og skíðadeildin eiga hon- um þakkir að gjalda og senda fjöl- skyldu hans samúðarkveðjur. Skíðadeild Víkings. ALEXANDER H. JÓHANNSSON MINNINGAR 46 FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Gunnþór Guð-jónsson fæddist á Gvendarnesi við Fá- skrúðsfjörð 17. febrúar 1924. Hann lést á Landakotsspít- ala 1. febrúar síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Guðjón Ólafsson, útvegs- bóndi á Gvendarnesi, og Arnleif Stefáns- dóttir, Grund, Stöðv- arfirði. Bræður Gunnþórs voru Guð- laugur Bjarni, f. 1.3. 1915, d. 8.8. 1997, Sigursteinn, f. 21.1. 1917, d. 4.9. 1980, og Gestur, f. 24.10. 1929. Kona Gunnþórs er Sigurbjörg Guðmundsdóttir frá Sætúni, Fá- skrúðsfirði, f. 28.11. 1923. Þau giftu sig 1. 12. 1946 og eignuðust níu börn: Hilmar, f. 17.10. 1943, d. 24.4. 1995. Kona hans Þórunn Ólafsdóttir og eiga þau fjögur börn, Ólaf, Sigurbjörgu, Lindu og Bryndísi. Kristín Arnleif, f. 8.8. 1946, maki Sigurgeir Sigurgeirs- son, og eiga þau tvö börn, Gunn- þór og Ágústu. Guðmundur Þór, f. 22.9. 1949. Sambýliskona hans er Stepanka M. Þorbjörnsdóttir. Guðjón, f. 23.5. 1951, og á hann fjögur börn, Evu Hlín, Gunnþór, Jón Andra og Ríkharð. Eygló, f. 3.6. 1952. Hún á fjögur börn, Vigni Þór, Gunnþór Ægi, Ásdísi Rán og Hrefnu Sif. Rut, f. 19.10. 1958, maki Eiður Sveinsson. Eiga þau þrjú börn, Söndru, Rafn og Kristínu. Rakel, f. 19.10. 1958. Maki Ævar Agnarsson og eiga þau þrjú börn, Írisi Björgu, Rakel Ingu og Jóhönnu Maríu. Þorgils Garðar, f. 16.10. 1963, maki Helga Steinunn Hauksdóttir, eiga þau tvö börn, Tómas Þór og Steinar Darra. Rebekka, f. 31.7. 1965, á hún eina dóttur, Sif. Gunnþór á 23 barnabörn og 13 barnabarnabörn og er von á tveimur í viðbót í vor. Gunnþór og Sigurbjörg bjuggu á Fáskrúðsfirði, fyrst í Bjarkar- lundi sem Gunnþór byggði, síðan í Breiðholti sem hann einnig byggði, til ársins 1995 er þau fluttu suður. Útför Gunnþórs fer fram frá Seljakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Mig langar til að kveðja föður minn með þessum fátæku orðum. Þessi barátta er loks á enda. Og trúi ég að þú sért nú kominn á stað þar sem allar þínar þjáningar séu horfnar og annað betra sé tekið við. Pabbi var frekar dulur maður sem fór sínar leiðir, hann var af- burða brids-spilari og keppti hann oft á mótum við góðan orðstír. Einnig hafði hann gaman af að tefla skák. Fótboltinn var hans íþrótt og fór hann á þá leiki sem hann komst á. Og oft gekk þá mik- ið á. Hann var með mikla veiðidellu og hafði gaman af að fara með strákunum og tengdasonum í veiði. Pabbi var mikill sjómaður og var hann stýrimaður á Búðarfellinu SU á síldarárum. Einnig var hann verkstjóri hjá Kaupfélagi Fá- skrúðsfirðinga í nokkur ár. Hann stofnaði sína útgerð um 1970 til 1976. Er hann seldi bát sinn Guð- jón Ólafsson. Hann var síðustu árin í vinnu hjá Bergi Hallgrímssyni. Og sá hann um alla netavinnu fyrir hann. Vegna veikinda pabba fluttu for- eldrar mínir suður 1995. Blessuð sé minning hans. Eygló Gunnþórsdóttir. Elsku tengdapabbi, þegar ég frétti af því að þú hefðir fengið hvíldina hugsaði ég til allra góðu áranna sem við áttum saman, það er svo margt, stórt og smátt, en þó standa mörgu smáatriðin efst í huganum. Í minningunni er sterk- ast að alltaf var svo gaman í návist þinni. Oftast stríddum við hvor öðr- um og kátínan var alltaf nærtæk. Ég man sérstaklega daginn sem við fórum saman í veiðitúrinn í Gren- lækinn fyrir löngu og hittum Ævar sem kom að sunnan hlaðinn veiði- græjum. Varð þér þá að orði: „Þetta eru meiri græjurnar,“ og þú hlóst svo innilega með gulu veiði- stöngina og plastpokann með spún- unum, svo lallaðir þú í átt að fugla- geri og rótfiskaðir á meðan við stóðum og börðum dauðan hyl þar til þú kallaðir okkur í fiskinn. Mér finnst þetta alltaf sýna best hvers- lags náttúrubarn þú varst. Verstur er söknuðurinn eftir þessu smáa eins og þegar ég leit inn til ykkar Sibbu til að segja þér hvað ég væri ríkur og síðan daginn eftir að ég væri á hausnum og voru þá alltaf sömu tilsvörin: „Þetta er nú meira andskotans montið í þér,“ eða „þetta er nú meiri anskotans þvæl- an í þér“ en alltaf var glottið í aug- unum þegar þessi orðaskipti áttu sér stað. Ég held að við höfum náð svona vel saman því við áttum sama bakgrunn í sjómennskunni, að minnsta kosti var alltaf það fyrsta sem þú spurðir Rut um þeg- ar þú hittir hana: „Er Eiður að fiska?“ Það verður erfitt að fylla þetta tómarúm sem þú skilur eftir og ég veit með vissu að það eru fáir sem hafa létt svo mörgum lífið með skemmtilegum tilsvörum sem verið hafa á allra vörum á Fáskrúðsfirði og víðar en eitt er víst að þú munt eiga stað í minningum hjá mörgu fólki sem kynntist þér á lífsleiðinni. Ég hef misst góðan vin og á eftir að sakna hans mjög en ég veit þú finnur frið að lokum og vonandi fal- lega veiðistaði við árbakka þar sem þér leið svo vel. Ég sendi Sig- urbjörgu, tengdamóður minni sem stóð við hlið þér mestallt lífið, mín- ar dýpstu samúðarkveðjur. Konan mín, Rut, og þið systkinin fáið líka mínar bestu kveðjur og ég hugsa til ykkar þar sem ég get ekki verið heima til að kveðja gamlan vin. Eiður. Elsku tengdapabbi og afi. Nú er baráttunni lokið og þú kominn á áfangastað. Það er með söknuði sem við kveðjum en minnumst um leið allra ánægjustunda sem áttum við sam- an. Ekki gleymast góðar kvöldstund- ir við eldhúsborðið í Breiðholti, sem var alltaf miðpunktur alheimsins í þá daga. Þegar horft er um öxl sækja margar góðar minningar á hugann. Sérstaklega er mér minn- isstætt þegar þú stoppaðir mig á götu úti og spurðir hreint út hvort ég væri að stíga í vænginn við hana Rakel þína. Þessari spurningu var snarlega svarað neitandi en end- irinn á því er lýðum ljós. Það er stór og sterk fjölskylda sem eftir situr og mun minnast þín sem manns sem var trúr sínum skoðunum hvað sem á gekk. Það er erfitt að vera langt í burtu frá fjölskyldu og vinum á stundu sem þessari og þá sérstak- lega fyrir stelpurnar okkar, sem ekki njóta þeirra forréttinda að hafa stórfjölskyldu sína nálægt sér til stuðnings. Hugur okkar er hjá Sibbu, börn- um og barnabörnum, megi Guð vera ykkur stoð á þessari kveðju- stundu. Við munum heimsækja þig í sumar þegar við verðum á Íslandi. Með kveðju frá Bandaríkjunum. Ævar, Íris, Inga og Jóhanna. Elsku langafi. Nú er Guð búinn að koma og ná í þig. Pabbi segir að nú sé þér batnað og sért orðinn engill sem verndar okkur. Snert hörpu mína himinborna dís, svo hlusti englar Guðs í Paradís. Við götu mína fann ég fjalarstúf, og festi á hann streng og rauðan skúf. Úr furutré sem fann ég út við sjó, ég fugla skar og líka úr smiðjumó. Í huganum til himins oft ég svíf, og hlýt að geta sungið í þá líf. GUNNÞÓR GUÐJÓNSSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.