Morgunblaðið - 11.02.2001, Síða 1
MORGUNBLAÐIÐ 11. FEBRÚAR 2001
35. TBL. 89. ÁRG. SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
Andlitslyfting
Evrópusambandsins
26
10
FRAMTÍÐ
FLUGVALLAR
30
ÞETTA ER BARA
FRAMKVÆMDAGLEÐI
COLIN Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, ætlar að fara í fimm
daga ferð um helstu ríki Mið-Austur-
landa 23. febrúar og reyna að fá þau
til að styðja framhald refsiaðgerða
gegn Írak. Hann mun einnig ræða
við Ariel Sharon, nýkjörinn forsætis-
ráðherra Ísraels, og hitta að máli
Yasser Arafat, leiðtoga Palestínu-
manna. Eitt af markmiðunum er að
efla þátttöku Bandaríkjamanna í
friðarferlinu sem margir óttast að sé
í hættu vegna kjörs Sharons.
Mörg arabaríki vilja binda enda á
viðskiptalegar refsiaðgerðir Samein-
uðu þjóðanna gegn stjórn Saddams
Husseins í Írak en Bush og menn
hans eru á öndverðu máli og vilja
auka þrýstinginn.
Powell sagði um viðskiptalegu
refsiaðgerðirnar að þær kæmu í veg
fyrir „að Írakar ógni grannþjóðum
sínum með gereyðingarvopnum í
eldflaugum“ og benti á að Saddam
fengi að selja nóg af olíu til að kaupa
mat handa íbúum landsins.
Ariel Sharon hefur sagt að viðræð-
urnar við Palestínumenn séu „of
háðar Bandaríkjunum“ og hvatt til
þess að Rússar gegni mikilvægara
hlutverki í viðræðunum. Hann kall-
aði fulltrúa Sameinuðu þjóðanna í
Mið-Austurlöndum, Norðmanninn
Terje Rød-Larsen, á sinn fund í gær
og kynnti honum friðartillögur sem
ráðherrann ætlar að ræða við Palest-
ínumenn. Lýsti fulltrúinn ánægju
sinni með hugmyndirnar.
„Ég er sannfærður um að Sharon
hyggst halda áfram að ræða frið við
Arafat og Palestínumenn,“ sagði
hann eftir fundinn með Sharon.
Ehud Barak, sem tapaði í kosning-
unum um embætti forsætisráðherra
fyrir Sharon á þriðjudag, hafði í gær
ekki enn svarað tilboði um að taka
sæti varnarmálaráðherra í stjórn
Sharons en hann hefur áður látið í
ljós vilja til samstarfs. Barak gegnir
embætti forsætisráðherra til bráða-
birgða þar til Sharon hefur myndað
nýja stjórn.
Bandaríkjastjórn vill afla stuðnings við stefnuna gagnvart Saddam Hussein
Powell hyggst ræða
við leiðtoga arabaríkja
Washington, Jerúsalem, Amman. AP, AFP.
FRANCIS Collins, yfirmaður
bandarískrar stofnunar sem
rannsakar genamengi manns-
ins (NHGRI), spáir því að hægt
verði að búa til genabreytta
menn með öruggum hætti inn-
an tveggja áratuga.
Collins segir að í manninum
séu færri erfðavísar en áður var
talið og hægt verði að búa til
genabreytta menn með svoköll-
uðum „kímlínuerfðalækning-
um“ fyrir árið 2020. Hann spáir
því enn fremur að þetta leiði til
„hrollvekjandi umræðu“ um
hvort maðurinn eigi að beita
erfðatækni til að hafa áhrif á líf-
fræðilega framþróun sína.
Hann varaði við ofmati á erfða-
þáttunum og hlutverki þeirra.
„Skilningur á genamenginu
mun ekki gagnast okkur mikið
við að skilja mannsandann, vita
hver Guð er eða hvað ást sé.“
Collins telur að flest algeng-
ustu meingenin verði þekkt
innan áratugar og heimilis-
læknar byrji þá að beita erfða-
lækningum. Hann spáir því að
innan tveggja áratuga verði
m.a. hægt að sérhanna lyf sem
henti erfðafræðilegri samsetn-
ingu sjúklingsins til að tryggja
að þau valdi ekki aukaverkun-
um. Þá telur hann að fyrir 2020
verði hægt að gera við gen áður
en þau berast í næstu kynslóð.
Gena-
breyttir
menn ár-
ið 2020?
Lyon. The Daily Telegraph.
POUL Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, hefur í bréfi til
Anfinns Kallsbergs, lögmanns Fær-
eyja, útskýrt hver stefna Dana sé
gagnvart þjóðaratkvæðinu sem fyr-
irhugað er um sjálfstæðismálið á eyj-
unum 26. maí. Ráðherrann ítrekar
fyrri ummæli sín um að fjárhagsað-
stoð verði hætt fjórum árum eftir
sjálfstæðistökuna verði svar Færey-
inga já. Sjálfstæði fylgi ábyrgð á
efnahagsmálum eyjanna en hægt
verði að semja um að Færeyingar
taki smám saman við varnarmálum,
utanríkismálum og að landsstjórn
Færeyja fái að ákveða hvenær rétti
tíminn sé til þess.
„Danska þjóðþingið mun virða úr-
slitin í kosningum Færeyinga 26.
maí, hvort sem svarið verður já eða
nei,“ segir Nyrup Andersen. Hann
bendir á að heppilegast sé að jafnt
Kallsberg og aðrir Færeyingar viti
vel fyrir fram hvernig Danir ætli að
bregðast við.
Hafni Færeyingar tillögum
stjórnar Kallsbergs vilji Danir, ef
Færeyingar fari fram á það, semja
tillögur um aukið sjálfræði Færey-
inga innan ríkisins, að sögn Ander-
sens. „Niðurstaðan gæti orðið alger-
lega ný heimastjórnarlög,“ segir
danski forsætisráðherrann.
Danska stjórnin
Færeyja-
stefna
skýrð
Þórshöfn. Morgunblaðið.
BJÖRGUNARSVEITIR leituðu í
gær að níu manns af 500 tonna jap-
önsku hafrannsóknaskipi, Ehime
Maru, sem sökk eftir árekstur á
föstudag við bandaríska kjarnorku-
kafbátinn USS Greeneville í gær,
nokkrar mílur frá Honolulu á eynni
Oahu í Hawaii-eyjaklasanum. Skipið
sökk á fáeinum mínútum er kafbát-
urinn reif gat á vélarrúmið. 26
manns komust í björgunarbáta og
sluppu flestir ómeiddir. Um borð í
skipinu sem sökk voru auk áhafnar
tveir kennarar og 13 nemendur við
sjávarútvegsskóla í Ehime-héraði í
Japan. Var ætlunin að veiða túnfisk,
sverðfisk og hákarl. Kennaranna,
fimm nemenda og þriggja skipverja
var saknað en björgunarmenn von-
uðu að einhverjum þeirra hefði tek-
ist að ná taki á braki.
Kafbáturinn skemmdist ekki við
áreksturinn. Hann er fimm ára gam-
all, af svonefndri Los Angeles-gerð,
um 108 metrar að lengd og 6.900
tonn, hann er m.a. vopnaður Toma-
hawk-flaugum. Talsmenn Banda-
ríkjaflota sögðu að kafbáturinn
hefði verið við venjuleg eftirlitsstörf
og ekki var vitað hvað olli því að
hann kom upp á yfirborðið og rakst
á japanska skipið. Á stóru myndinni
sjást björgunarmenn strandgæsl-
unnar hlynna að skipbrotsmönnum
en á innfelldu myndinni er USS
Greeneville á leið af slysstaðnum.
AP
Kafbátur sökkti rannsóknaskipi
SKÝRT verður á morgun, mánudag,
frá dómsúrskurði sem gæti merkt að
netþjónustufyrirtækinu Napster
verði lokað, að sögn BBC. Napster
hefur annast þarfir þeirra sem ná
sér þar í tónlist á Netinu og þurfa þá
ekki að greiða fyrir höfundarréttinn.
Búist er við að margir muni verja
helginni í að vista eins mikið af tón-
list á geisladiska og þeir geta áður en
dómurinn fellur. Litið er á málið sem
prófmál vegna tónlistar sem dreift er
á Netinu án þess að fá leyfi hjá höf-
undum eða einkaleyfishöfum.
Napster
lokað?
B