Morgunblaðið - 11.02.2001, Síða 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðinu í dag fylgir blað
frá Heilsuverslun Íslands.
MIKIL leikgleði og tilþrif voru
meðal þátttakenda á hinu árlega
Ákamóti HK í handknattleik, sem
hófst í íþróttahúsinu í Digranesi í
Kópavogi í gær. Um 600 drengir og
stúlkur í 7. flokki, níu ára og yngri,
taka þátt í mótinu sem stendur í tvo
daga. Drengirnir spiluðu af miklu
kappi í gær en í dag mæta stúlk-
urnar til leiks. Allir þátttakendur
fá verðlaunapening og óvæntan
glaðning að mótinu loknu.
Morgunblaðið/Jim Smart
600 börn á Ákamóti HK
LÖGREGLAN í Keflavík stöðvaði í
fyrrakvöld bifreið við Sandgerði.
Tveir karlmenn á þrítugsaldri voru í
bílnum. Við leit á öðrum þeirra fund-
ust um 30 g af hassi sem lögreglan
lagði hald á. Maðurinn játaði að eiga
hassið og telst málið upplýst.
Með hass
í bílnum
ÖGMUNDUR Jónasson, þingmaður
Vinstri-grænna og formaður BSRB,
segir að neyðarástand hafi skapast í
húsnæðismálum hjá stórum hópi
fólks og að sá vandi muni aukast stór-
lega verði ekkert að gert á næstu ár-
um. Að sögn Ögmundar þurfa sveit-
arstjórnir, ríkið og lífeyrissjóðir að
koma að lausn vandans með stór-
felldu átaki í félagslega húsnæðis-
kerfinu. Þetta kom m.a. fram í erindi
Ögmundar á fyrstu borgarmálaráð-
stefnu Vinstri hreyfingarinnar –
græns framboðs en á vegum flokks-
ins er nú að hefjast vinna að málefna-
handbók fyrir Reykjavík vegna kom-
andi sveitarstjórnarkosninga.
Í setningarávarpi Sigríðar Stefáns-
dóttur, formanns VGR í Reykjavík,
kom fram að markvisst starf sé fram
undan fyrir borgarstjórnarkosningar
árið 2002 og að skoðað verði á kom-
andi sumri hvernig aðkoma fram-
boðsins verður að kosningunum.
Í samtali við Morgunblaðið sagðist
Ögmundur telja að húsnæðismálin
yrðu eitt af stóru málunum á næstu
mánuðum og hlytu að vega mjög
þungt í komandi sveitarstjórnarkosn-
ingum. Hann sagði að skylda sveit-
arstjórna í húsnæðismálum væri ótví-
ræð, því samkvæmt lögum um
félagsþjónustu sveitarfélaga beri þau
ábyrgð á og eigi að hafa frumkvæði
að því að leysa húsnæðisþörf þess
fólks í sveitarfélaginu sem þarfnist
aðstoðar við að afla sér húsnæðis.
„Þetta er ekki gert sem skyldi. Það
eru hátt á sjötta hundrað umsóknir
eftir félagslegu leiguhúsnæði hjá
borginni. Þar af eru rúmlega 300 um-
sóknir frá einstaklingum og fjölskyld-
um sem eru í bráðri neyð.“
Að sögn Ögmundar hefur þó rík-
isvaldið fyrst og fremst brugðist.
Félagslega húsnæðiskerfinu hafi ver-
ið rústað með breytingum sem urðu
þegar ný húsnæðislög tóku gildi í árs-
byrjun 1998. „Og við erum núna að
sjá afleiðingarnar af þessu og þær
eiga eftir að verða enn þá hrikalegri á
komandi árum ef ekkert er að gert.“
Lífeyrissjóðirnir þurfa
að leggja verulega af mörkum
Ríkisvaldið og sveitarstjórnir
þurfa að mati Ögmundar að koma að
úrlausn vandans en auk þess þurfi líf-
eyrissjóðir að koma að málum. „Sú
var tíðin að drýgstur hluti af fjárfest-
ingum lífeyrissjóða gekk til uppbygg-
ingar í húsnæðiskerfinu. Árið 1987
mun það hafa verið 55% af fjárfest-
ingum þeirra og síðan hefur það farið
dvínandi. Á þessu þarf að verða
breyting. Þeir þurfa að leggja veru-
lega af mörkum í uppbyggingu hús-
næðiskerfisins og síðan þurfa ríkið og
sveitarfélögin að koma og niður-
greiða vextina og þá einnig til bygg-
ingaraðila sem reisa leiguhúsnæði
með einhverjum félagslegum kvöð-
um.“
Ögmundur segir að eina færa leiðin
sé að koma á öflugum húsaleigu-
markaði með þjóðarátaki þar sem
verkalýðshreyfingin komi eðlilega að
sem mótandi aðili auk leigjendasam-
takanna og annarra samtaka sem séð
hafi skjólstæðingum sínum fyrir hús-
næði.
„Það er mjög brýnt að þetta verði
gert. Menn geta ekki lengur lokað
augunum fyrir þessum vanda. Ég sé
fyrir mér að hér sé að skapast neyð-
arástand fyrir stóran hóp af fólki, og
fyrir enn þá stærri hóp eru byrðarnar
sífellt að þyngjast.“
Ögmundur Jónasson segir að neyðarástand hafi skapast í húsnæðismálum
Þörf er á þjóðarátaki
í húsnæðismálunum
SÍMKERFI Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss (LSH), og allra útibúa
þess, ásamt tal- og farsímaþjónustu
sjúkrahúsanna, hefur verið boðið út
og verða tilboð opnuð í mars. Jafn-
hliða þessu verður boðin út fjar-
skiptaþjónusta sem spítalinn hefur
keypt af Landssímanum en þar er
um að ræða afnotagjöld vegna sím-
tala innanlands, til útlanda og í
GSM-kerfinu.
Um er að ræða mjög umfangsmik-
ið og margþætt útboð að sögn Ing-
ólfs Þórissonar, framkvæmdastjóra
tækni- og eignasviðs LSH. Til marks
um það eru um 3.000 innanhússnúm-
er í símkerfi sjúkrahúsanna og ár-
legur kostnaður vegna afnotagjalda
nemur um 70 milljónum króna.
Í útboðsgögnum er miðað við að
ný símstöð verði tekin á leigu til sjö
ára og er sóst er eftir nýjustu tækni í
símstöðvum.
Útboðinu er skipt í nokkra hluta
og geta bjóðendur boðið í allan pakk-
ann eða ákveðna hluta þjónustunnar.
„Samhliða þessu er boðin út leiga á
öllum símtækjum sem þörf er á að
endurnýja. Við bjóðum einnig út af-
notagjöld, m.a. vegna innanlands- og
utanlandssímtala,“ sagði Ingólfur.
„Við höfum einnig áhuga á að
menn bjóði okkur upp á ýmsar nýj-
ungar sem standa til boða í dag eins
og til dæmis þráðlausa síma inni á
spítulunum, þannig að starfsfólk geti
verið með þráðlausa síma á sér,“
sagði hann.
„Við óskum líka eftir því að menn
geri okkur grein fyrir þeirri þjón-
ustu sem þeir gætu hugsað sér að
bjóða sjúklingum. Þar erum við að
ræða um að geta boðið sjúklingum
upp á símtæki, símnúmer og netað-
gang og það er einnig hægt að hugsa
sér fleiri möguleika á borð við að
símafyrirtæki komi upp sjónvörpum
og selji mönnum aðgang að mynd-
böndum sem þeir greiða fyrir með
símtækinu,“ sagði Ingólfur enn
fremur.
„Þessu til viðbótar bjóðum við líka
út leigu á GSM-símum og afnota-
gjöld fyrir GSM,“ sagði hann.
Er gert ráð fyrir að símstöðin
verði komin í notkun í haust.
Ákveðið hefur verið að taka í notk-
un nýtt símanúmer á Landspítala –
háskólasjúkrahúsi og var það valið í
almennri kosningu meðal starfs-
manna á heimavef spítalans. Völdu
starfsmenn númerið 543 0000 sem
verður aðalnúmer spítalans þegar ný
símstöð verður tekin í notkun.
Símaþjónusta Land-
spítala og tæki boðin út
FLEIRI umsóknir hafa borist
Skráningarstofunni um einkamerk-
ingar á bílum en búist var við í upp-
hafi og hefur tilhneigingin orðið sú
að herða frekar reglur í seinni tíð
varðandi leyfilega áletrun á einka-
númerum bifreiðaeigenda. Nokkuð
er um að áletrunum sé hafnað enda
mega einkamerki ekki vera til þess
fallin að valda hneykslun eða hafa
óþægindi í för með sér fyrir aðra.
Að sögn Brynhildar Georgsdótt-
ur, hjá bifreiðaskráningu Skráning-
arstofunnar hf., hefur umsóknum
um einkanúmer oft verið hafnað og
nefnir sem dæmi áletranir eins og
POLICE, FÍKNÓ og KILLER.
Mat hverju sinni
hvað leyfa má
Varðandi það að áletrun eins og
BISKUP sé á sportbíl, sem skráð
var í júlí 2000 og vísar mjög sterkt á
ákveðna persónu kirkjunnar, segir
Brynhildur að auðvitað sé það alltaf
háð mati hverju sinni hvað eigi að
leyfa og það sem einn telji of langt
gengið finnist öðrum tepruskapur
að gera athugasemdir við.
„Það hefur frekar verið tilhneig-
ingin í seinni tíð að herða reglurnar.
Menn voru kannski ekki eins vak-
andi til að byrja með, að það væri
eitthvað vandamál að menn væru
eitthvað sérstaklega að leitast eftir
því að hafa þetta hneykslanlegt en
sumir eru auðvitað að því.“
Samkvæmt reglum skal áletrun
vera tveir til sex bókstafir og/eða
tölustafir og einkamerki mega
hvorki brjóta í bága við íslenskt
málfar né vera fallin til þess að
valda hneykslun eða geta haft í för
með sér óþægindi fyrir aðra. Þá má
áletrunin ekki vera eins og fasta-
númerin, tveir bókastafir og þrír
tölustafir, og ekki vera eins og núm-
er af eldri gerðinni sem enn þá er í
notkun.
Kostar 28.750 krónur
Brynhildur segir að fleiri hafi sótt
um einkanúmer en menn hafi búist
við í upphafi. Að fá einkanúmer
kostar 28.750 krónur og segir Bryn-
hildur að menn setji þessa upphæð
yfirleitt ekki fyrir sig og að oft fylgi
þeim mikið umstang á Skráningar-
stofunni. „Það hafa komið upp álita-
efni og jafnvel árekstrar. Þetta er
alveg ótrúlega mikið tilfinningamál
fyrir marga.“
Einkanúmer-
um á bílum
fer fjölgandi
SLÖKKVILIÐ höfuðborgar-
svæðisins var kallað að fjölbýlis-
húsi við Engihjalla í Kópavogi
um kl. hálftólf í fyrrakvöld þar
sem eldur logaði í sjónvarps-
tæki. Húsráðandi hafði brugðið
sér frá skamma stund og á með-
an kviknaði í tækinu.
Talsverðar skemmdir urðu í
herberginu sem sjónvarpið var
í. Einnig urðu nokkrar skemmd-
ir af völdum sóts í íbúðinni og
reykur barst út á stigagang.
Reykræsta þurfti íbúðina en
skemmdir eru ekki taldar mikl-
ar. Húsráðanda sakaði ekki.
Eldur
í sjón-
varpi