Morgunblaðið - 11.02.2001, Side 11
FLUGVALLAR
verið frestað vegna þess að málið er í sífelldri
þróun. Þannig hefur enn ekki verið tekin sú
grundvallarákvörðun, um hvað eigi að spyrja
borgarana í atkvæðagreiðslunni. Í upphafi und-
irbúningstímans var rætt um að fjórir kostir
yrðu lagðir fyrir: Reykjavíkurflugvöllur á sín-
um stað, Reykjavíkurflugvöllur með breyttri
legu flugbrauta, nýr flugvöllur á öðrum stað á
höfuðborgarsvæðinu og var þar verið að hugsa
um flugvöll í Skerjafirði eða flugvöll sunnan
Hafnarfjarðar og fjórði kosturinn var flutning-
ur miðstöðvar innanlandsflugsins til Keflavík-
ur.
Síðar sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir í
samtali að í sínum huga snerist málið í aðal-
atriðum um tvennt, hvort völlurinn ætti að vera
í Vatnsmýrinni eða fara úr Vatnsmýrinni, en
mikilvægt væri að sýna fram á að í báðum til-
vikum væri kosta völ. Hugmyndin var að leggja
þessa spurningu fyrir borgarana en gefa þeim
jafnframt kost á því að velja á milli undirkosta.
Í umræðunni var að undirkostir staðsetningar í
Vatnsmýri yrðu flugvöllurinn á núverandi stað
samkvæmt breyttu skipulagi og að ný austur-
vestur-flugbraut yrði byggð út í sjó og notuð
sem aðalflugbraut vallarins. Undirkostir at-
kvæðis um völlinn burt áttu að vera flugvöllur í
Skerjafirði, flugvöllur í Vatnsleysustrandar-
hreppi, sunnan Hafnarfjarðar, og flutningur
flugsins til Keflavíkurflugvallar.
Eins og fyrr segir hefur ekki verið ákveðið
hvað spurt verður um en í umræðunni nú mun
vera að leggja einungis grundvallarspurn-
inguna fyrir, það er að segja hvort Reykjavík-
urflugvöllur eigi að vera áfram í Vatnsmýrinni
eða fara burt eftir 2016. Stefnt er að afgreiðslu
málsins í borgarráði næstkomandi þriðjudag.
Skiptar skoðanir um
atkvæðagreiðsluna
Ingibjörg Sólrún borgarstjóri segir að skipu-
lagsumræða hér á landi hafi snúist mikið um
einstakar lóðir, hvort og hvernig ætti að byggja
á þeim og alltaf komi fram mótmæli við fyr-
irætlanir um byggingu nýrra húsa. „Það fer
aldrei fram umræða um borgarsamfélagið í
heild sinni. Hvað vinnst og hvað tapast við að
leyfa byggingu eða leyfa hana ekki.“ Telur hún
að umræðan sem skapast hefur um skipulag
Vatnsmýrar, meðal annars vegna atkvæða-
greiðslunnar, hafi breytt þessu. Telur hún að í
framtíðinni verði fleiri slík mál borin upp við
íbúana, til dæmis mál sem varða miklar breyt-
ingar á borgarmyndinni. En það byggist á því
að hægt verði að komast út úr átakamenning-
unni, rætt verði um lausnir á verkefnum, sam-
eiginleg hagsmunamál fundin en ágreiningur
lágmarkaður.
Framhald slíkra atkvæðagreiðslna meðal
íbúanna hlýtur að fara nokkuð eftir því hvernig
til tekst nú. Varla er þó við því að búast að borg-
ararnir fái að greiða atkvæði um útsvarspró-
sentuna sem hlýtur að henta jafn vel fyrir at-
kvæðagreiðslu af þessu tagi og flugvallarmálið.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa
gagnrýnt ákvörðun Reykjavíkurlistans um at-
kvæðagreiðslu um flugvöllinn og talið hana al-
gerlega ótímabæra og ekki tekið þátt í ákvörð-
unum um hana. Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti
listans, telur að tillaga um atkvæðagreiðslu sé
sett fram til að mæta gagnrýni sem gangi út á
að Vatnsmýrarlandið sé alltof verðmætt til að
hafa þar flugbrautir. „Meirihlutinn í Reykjavík
hóf umræðuna með því að þyrla upp ákveðnu
moldviðri til að láta kjósendur halda að hann
beri enga ábyrgð á málinu, heldur væri end-
urgerð flugbrautanna alfarið á ábyrgð sam-
gönguráðherra. Þetta finnst mér ómerkilegur
málflutningur. Síðan á að fara fram atkvæða-
greiðsla um framtíð vallarins í nafni lýðræðis
sem að stórum hluta til er tóm sýndar-
mennska.“ Þá gagnrýnir hún meirihlutann fyrir
að gefa í skyn að ákvarðanir um framtíð vall-
arins kunni að hafa áhrif á allra næstu árum.
Breytt umræða
Á síðustu árum hefur umræðan um Reykja-
víkurflugvöll breyst. Áður bar meira á gagnrýni
á flugvöllinn vegna hávaðamengunar og slysa-
hættu. Sú umræða hefur að miklu leyti vikið
fyrir umræðu um mikilvægi Vatnsmýrarinnar
sem byggingarlands í tengslum við miðborgina.
Samtök um betri byggð hafa átt verulegan þátt
í því með því að sýna fram á mikilvægi Vatns-
mýrarinnar fyrir borgina og verðgildi landsins.
Yfirvöld svöruðu einnig gagnrýni vegna
slysahættu og hávaða, en vonum seinna. Flug-
málastjórn fékk bresku flugumferðarþjón-
ustuna til að gera úttekt á hættunni sem flug-
umferð skapar fyrir borgarana. Niðurstaða
sérfræðinganna var að áhættan við Reykjavík-
urflugvöll væri innan viðunandi marka, miðað
við flugvelli í Bretlandi og viðmið á öðrum svið-
um. Þá ákváðu flugmálayfirvöld að draga úr
flugumferð í Reykjavík með því að flytja æf-
inga- og kennsluflug annað og að grípa til marg-
víslegra ráða til að framfylgja þeim reglum sem
gilda um flugumferð um völlinn.
Framkvæmdir við nýjan flugvöll til snertil-
endinga eru áformaðar á árinu 2003, sam-
kvæmt flugmálaáætlun. Til greina koma nokkr-
ir staðir á Reykjanesi, í Melasveit og á
Mosfellsheiði og er unnið að mati á þeim. Áætl-
að er að slíkur völlur kosti um 250 milljónir kr.,
samkvæmt upplýsingum samgönguráðuneytis-
ins. Þegar hann kemst í notkun mun flughreyf-
ingum á Reykjavíkurflugvelli fækka um 19 þús-
und, eða um nærri því fjórðung. Ekki hafa verið
teknar ákvarðanir um framhaldið en hugsan-
legt er að einkaflugið flytjist síðar á þennan
nýja flugvöll. Raunar lýsti samgönguráðherra
því yfir í vikunni á heimasíðu sinni, að verði nið-
urstaðan sú að flugvöllurinn fari úr höfuðborg-
inni hljóti að koma til skoðunar að færa æfinga-
og kennsluflugið strax til Keflavíkur og falla frá
áformum um sérstaka kennslu- og æfingabraut
og aðstöðu fyrir einkaflugið. Flugkennslan
myndi þá færast á Suðurnesin ásamt rekstri
flugskólanna.
Aðeins tveir kostir?
Í upphafi var málið sett þannig upp af yf-
irvöldum, jafnt samgönguráðuneyti, flugráði og
Flugmálastjórn, að aðeins væri tveggja kosta
völ í málinu, að reka Reykjavíkurflugvöll áfram
eða að flytja miðstöð innanlandsflugs til Kefla-
víkurflugvallar.
Í febrúar 1997 skilaði Hagfræðistofnun Há-
skóla Íslands greiningu á hagkvæmni þessara
tveggja kosta en hún vann verkið fyrir Borg-
arskipulag og Flugmálastjórn. Í skýrslunni er
tekið fram að vegna kostnaðar og umfangs þess
að finna besta kostinn til að bera saman við
Reykjavíkurflugvöll hafi orðið að samkomulagi
að bera hann einungis saman við flutning til
Keflavíkur. Þeim kosti fylgdi jafnframt að
Morgunblaðið/Árni Sæberg
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2001 11