Morgunblaðið - 11.02.2001, Síða 28

Morgunblaðið - 11.02.2001, Síða 28
28 SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ ANNAR hluti menntaáætlunar Evr- ópusambandsins, Sókratesar, hófst á fyrri hluta síðasta árs og hafa ís- lenskir nemendur, kennarar og menntastofnanir þátttökurétt í henni á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Á undan- förnum árum hefur hátt í annað þús- und manns hlotið styrki til náms og starfa í öðrum Evrópulöndum. Auk fjölgunar atvinnutækifæra eru menntamálin sá málaflokkur sem njóta á forgangs í hugum flestra Evrópubúa. Evrópusambandið sjálft hefur enga formlega menntastefnu og forræðið liggur því hjá stjórnvöld- um í hverju aðildarlandi fyrir sig. Samvinna hefur þó aukist mjög á undanförnum árum enda leggur menntun grunninn að almennum framförum, aukinni samkeppnis- hæfni og velferð framtíðarinnar. Fyrsti hluti Sókrates-áætlunar- innar hófst í mars 1995 og lauk í árs- lok 1999. Á þessum tæplega 5 árum jókst þátttaka Íslendinga stöðugt og sífellt fleiri útlendingar komu jafn- framt hingað til lands til að afla sér þekkingar, stunda nám eða kennslu. Um 50 skólar tekið þátt í samstarfsverkefnum Um það bil 50 skólar á öllum skóla- stigum hafa tekið þátt í samstarfs- verkefnum með evrópskum skólum og rúmlega 800 háskólastúdentar hafa tekið hluta af námi sínu erlend- is. Fleiri en 300 grunn- og fram- haldsskólakennarar hafa hlotið styrki til að sækja endurmenntunar- námskeið í Evrópu og um 50 erlendir kennaranemar hafa komið hingað til lands til að aðstoða við tungumála- kennslu í grunn- og framhaldsskól- um. Þar að auki hafa tæplega 400 nemendur á grunn- og framhalds- skólastigi tekið þátt í samvinnuverk- efnum með jafnöldrum sínum í öðr- um Evrópuríkjum og fela þau tungumálaverkefni m.a. í sér tveggja vikna gagnkvæmar heimsóknir. Fyrsta janúar árið 2000 hófst ann- ar áfangi Sókratesar hér á landi og er hann að flestu leyti byggður upp á sama hátt og sá fyrri. Að þessu sinni verður þó leitast við að gera þátttöku aðgengilegri því fólki sem höllum fæti stendur í skólakerfinu og aukin áhersla lögð á endurmenntun og sí- menntun. Sérstaklega verður hvatt til betri nýtingar upplýsingatækni í menntakerfinu og bættrar tungu- málakunnáttu. Áætlunin skiptist nú í átta þætti:  Comenius, sem snýr að leik-, grunn- og framhaldsskólastigum.  Erasmus, sem snýr að háskóla- stiginu.  Grundtvig, sem snýr að fullorðins- fræðslu og öðrum menntunarleið- um.  Lingua, sem snýr að tungumála- námi.  Minerva, sem snýr að notkun upp- lýsingatækni í menntamálum.  Rannsóknir og nýjungar í menntakerfum og menntastefnu.  Sameiginlegar aðgerðir með öðr- um evrópskum menntaáætlunum.  Hliðaraðgerðir. Auk Evrópusambandsríkjanna 15 hafa Ísland, Noregur og Lichten- stein þátttökurétt í Sókrates svo og þau ríki sem nú undirbúa inngöngu í Evrópusambandið. Samtals eru þátttökuríkin því 31 talsins. Til að hljóta styrk frá sambandinu verður þó a.m.k. eitt fullgilt aðildarríki að taka þátt í hverju verkefni, t.a.m. fá verkefni sem einungis eru unnin af íslenskum og norskum aðilum ekki fjárstuðning. Stefnt er að því að út- hluta samtals tæpum 150 milljörðum íslenskra króna fram til ársins 2006 og mun langstærstur hluti þess fjár renna til Erasmus- og Comenius- undiráætlananna, ekki minna en 51% til þeirrar fyrrnefndu og 27% til þeirrar síðarnefndu. Þátttaka Ís- lendinga hefur enda verið mest í þessum tveimur undiráætlunum auk Lingua sem snýr að tungumála- kennslu. Hvatt til nýjunga í upplýsinga- og samskiptatækni Comeniusar-þátturinn tekur til alls menntasamstarfs á leik-, grunn- og framhaldsskóla. Hún felur í sér yfirgripsmiklar aðgerðir til að efla samstarf milli menntastofnana á leik-, grunn- og framhaldsskólastig- inu, auka fagmennsku kennara og stuðla að því að ungt fólk í Evrópu verði góðrar og víðtækrar menntun- ar aðnjótandi. Hvatt er til nýjunga í upplýsinga- og samskiptatækni til að auðvelda milliríkjasamstarf og gera skólastarfið alþjóðlegra. Helstu markmiðin eru að stuðla að gagn- kvæmri þekkingu á menningu og málefnum Evrópuþjóða, auka tengsl og samstarf milli skóla og efla hina svokölluðu Evrópuvídd (European Dimension) í menntamálum. Unnið er að bættum kennsluaðferðum, málakunnáttu og hreyfanleika nem- enda og kennara milli svæða. Kenn- urum er jafnframt gefinn kostur á að sækja endurmenntunarnámskeið til annarra Evrópulanda og þeim sem stunda eða lokið hafa námi í tungu- málakennslu er gert kleift að dvelja um tíma sem aðstoðarkennarar í öðru Evrópuríki til þjálfunar. Getur sú dvöl varað frá þremur mánuðum til eins skólaárs. Sérstök áhersla er lögð á tungumál sem njóta lítillar út- breiðslu. Áhersla á erlend tungumál Með Lingua-undiráætluninni veit- ir framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins styrki til margs konar fjöl- þjóðlegra verkefna, sem m.a. stuðla að því að fólk læri erlend tungumál, og til þróunar námsgagna. Erasmus-áætluninni var fyrst komið á fót árið 1987 með það að markmiði að auka nemenda- og kennaraskipti á háskólastigi í aðild- arríkjum Evrópusambandsins. Með slíku samstarfi var ætlunin að styrkja stoðir evrópskrar háskóla- menntunar og gera háskóla færari um að standast vaxandi alþjóðlega samkeppni. Annað meginmarkmið Erasmusar var að stuðla að aukinni samkennd meðal Evrópubúa og víð- tæku samstarfi aðildarríkja á sviði félags- og efnahagsmála. Íslending- ar fengu aðgang að Erasmusi 1992 með aðild að EES. Árið 1995 varð hún gerð að undiráætlun Sókratesar. Fjárveitingar til Erasmusar-hluta Sókratesar skiptast í styrki til stúd- enta- og kennaraskipta, þróunar sameiginlegra reglna um námsmat, þróunar námskeiða og námsbrauta, sérstakra tungumálanámskeiða, evr- ópskra námsbrauta, stuttra sam- starfsnámskeiða, undirbúnings- heimsókna og svokallaðra þemaneta. Langstærsti hluti þess fjár sem Ís- lendingar hafa fengið úthlutað er ætlaður til nemendaskipta og hafa þau allt frá upphafi verið uppistaðan í þátttöku Íslands, sem og annarra þátttökuríkja. Þátttakendur hljóta styrki sem ætlað er að mæta ferða- og viðbótarkostnaði sem þeir verða fyrir við að flytjast á milli landa, svo og kostnaði vegna sérstaks tungu- málanáms í tengslum við námið er- lendis. Styrkveitingin er undir því komin að háskólinn í heimalandi námsmannsins gefi fullnægjandi tryggingu fyrir því að námið sem hann hyggst stunda erlendis fáist viðurkennt að fullu heima, sem og því að erlendi háskólinn felli niður skólagjöld sín. Þátttakan hefur vaxið frá ári til árs og hafa Danmörk, Ítalía, Þýskaland, Frakkland og Spánn verið vinsælustu áfangastaðir íslenskra stúdenta á síðastliðnum ár- um. Landsskrifstofur sjá um framkvæmd Í öllum þátttökulöndum Sókrates- ar eru reknar sérstakar landsskrif- stofur sem sjá um framkvæmd og út- hlutun styrkja í viðkomandi landi. Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins gegnir því hlutverki hér á landi og þeim sem vilja afla sér frekari upp- lýsinga um áætlunina og fram- kvæmd hennar hérlendis skal bent hana. Á upplýsingavef Alþjóðaskrif- stofunnar er m.a. að finna gott yfirlit yfir málefni Sókratesar og er hann að finna á slóðinni http:// www.ask.hi.is. Hátt í tvö þúsund Íslendingar hafa hlotið styrki til náms og starfa í öðrum Evrópulöndum í krafti menntaáætlunar Evrópusambandsins, Sókratesar. Þorsteinn Brynjar Björnsson fjallar um Sókrates en annar áfangi áætlunarinnar hófst hér á landi í janúar og verður leitast við að gera þátttöku aðgengilegri því fólki sem höllum fæti stendur í skólakerfinu og aukin áhersla lögð á endurmenntun og símenntun. Morgunblaðið/Ásdís Hólabrekkuskóli er þátttakandi í einu af verkefnum Sókratesar, svokölluðu Comenius-verkefni, sem byggist á samvinnu þriggja skóla, hverjum í sínu landinu á Evrópska efnahagssvæðinu. Hér eru nemendur í Hólabrekkuskóla að fræðast um mataræði ítalskra jafnaldra þeirra. Menntamál sett í for- gang með Sókratesi Höfundur er stjórnmálafræðingur. Erla Björk Sigurðardóttir er nemi við Menntaskólann í Kópavogi og einn fjölmargra Íslendinga sem tekið hafa þátt í verkefnum innan Sókrates- áætlunarinnar. Hún var beðin um að segja stuttlega frá reynslu sinni: „Þegar ég var á ferða- málabraut í MK barst okkur fyrirspurn frá veitinga- og ferðamálaskóla í Madrid hvort við hefðum áhuga á þátttöku í samstarfsverkefni sem m.a. fæli í sér gagnkvæmar heim- sóknir með styrk frá Evrópu- sambandinu. Okkur leist mjög vel á það og eftir nokkurn und- irbúning af beggja hálfu kom hópur til Íslands og dvaldi hér í tvær vikur síðastliðinn vetur. Kynntu þau sér meðal annars skólann okkar, skoðuðu hótel og veitingastaði í Reykjavík og fóru í nokkrar kynnisferðir. Ætlast var til þess að íslensku þátttakendurnir hýstu þá spænsku en þegar allt kom til alls þurftu þó margir að dvelja á gistiheimilum. Að öðru leyti heppnaðist heimsóknin þó vel og voru þau mjög ánægð með dvölina. Þó fannst þeim allt mjög dýrt hér á landi og fengu létt áfall yfir verðlaginu, ekki síst á matvælum. Á þessum tíma var líka allt á kafi í snjó, sem mörg þeirra höfðu vart séð fyrr á ævinni. Ákveðið var fyrir fram að öll okkar sam- skipti skyldu fara fram á ensku og áttum við ekki heldur að tala saman á eigin tungumáli innbyrðis. Enskukunnátta Spánverjanna var þó mjög mis- jöfn en þetta hafðist nú allt saman. Nú í haust héldum við síðan til Spánar og dvöldum þar í 10 daga. Það var mjög áhugavert að sjá hvernig náminu er hátt- að þar í landi og við lærðum mjög mikið. Í stað þess að byggja allt upp á æfingum var t.a.m. ýmislegt gert í formi leikja. Við fórum einnig víða um í Madrid, á veitingastaði, söfn og skemmtistaði svo eitt- hvað sé nefnt. Dvaldi ég hjá fjölskyldu stráksins sem gisti heima hjá mér í fyrravetur. Þau voru mjög almennileg en töluðu aftur á móti afar litla ensku, þetta reddaðist þó allt með einhvers konar handapati. Það var afar góð reynsla að standa nokkurn veginn á eigin fótum í þennan tíma. Okkur gafst líka ómetanlegt tækifæri til að kynnast spænskri menn- ingu og lifnaðarháttum. Til dæmis eru matarvenjurnar allt aðrar en þær sem við eigum hér að venjast, hádegismatur borðaður kl. þrjú á daginn og kvöldmatur klukkan tíu. Það er óhætt að segja að ég hafi verið afskaplega ánægð með ferðina og ég held að aðrir séu mér sammála um það. Sjálf þurftum við einungis að greiða örlítinn hluta kostnaðarins vegna Sókrates/Lingua-styrks frá Evrópusambandinu en skólinn lagði einnig til ákveð- inn hluta.“ Erla Björk Sigurðardóttir Góð reynsla að standa á eigin fótum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.