Morgunblaðið - 11.02.2001, Side 35
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2001 35
UNDANFARNA daga hefur
verið í gangi umræða um ágæti
fjarstarta í bifreiðar og samanburð
þeirra við hreyfilhitara. Í grein sem
birtist í Morgunblaðinu 1. febrúar
sl. kemur fram að Aukaraf fagni
óháðri rannsókn á því hvaða aðferð
leiði til minnstrar mengunar og
mests öryggis. Sú rannsókn er til
og er hún hluti af lokaverkefni
mínu í orkutæknifræði við Tækni-
skóla Íslands.
Samanburður á hreyfilhitara
og fjarstarti
Lokaverkefnið er tæknileg út-
tekt á hreyfilhitara og fjallar m.a.
um búnaðinn, kosti hans og galla
og samanburð við aðra möguleika.
Í þeirri rannsóknarvinnu sem ég
framkvæmdi kemur greinilega
fram að hreyfilhitari dregur veru-
lega úr mengun, minnkar eldsneyt-
iseyðslu, eykur líftíma og endur-
söluverð bílsins, minnkar
rekstrarkostnað, eykur umferðar-
öryggi og hefur mikil þægindi í för
með sér. Fjarstart eykur aftur á
móti á mengun, eykur eldsneytis-
eyðslu, styttir endingu bílsins og
eykur rekstrarkostnað hans. Aftur
á móti hefur fjarstartið sömu virkni
þegar kemur að þægindum og ör-
yggi í umferðinni. En hvað um ör-
yggi á bílastæðinu sjálfu? Bíll í
lausagangi einn og yfirgefinn þar
sem krakkar eru að leika sér
hljómar ekki vel. Og hvað með alla
mengunina á bílastæðinu? Tökum
dæmi um bílaplan þar sem nokkrir
bílar eru búnir fjarstarti. Þeir fara
allir í gang á svipuðum tíma á
morgnana og eru nokkrir þeirra
stórir dísilbílar. Við vitum það af
reynslu að bílastæðið mundi hverfa
í reyk, og það í allt að 15 mínútur!
Ekki mundi ég vilja að búa við
þetta bílaplan! Notkun hreyfilhit-
ara sleppir ekki aðeins þessari
mengun, heldur útilokar hún einnig
kaldstartið sem er svo óhollt fyrir
vélina og veldur stórum hluta allrar
mengunar frá bílum. Rannsóknir
hafa sýnt að með reglulegri notkun
hreyfilhitara er hægt að draga úr
útblæstri á gróðurhúsalofttegund-
um eins og kolmónoxíði (CO) og
kolvetnum (HC) um allt að 80% og
minnka útblástur á koltvísýringi
(CO2) og nitursoxíðum (NOX) veru-
lega. Fjarstart er aftur á móti ekk-
ert annað en lúxusbúnaður þar sem
bíleigandinn er að kaupa þægindin
dýru verði með meiri mengun og
auknum rekstrarkostnaði bílsins.
Leiðrétting á staðhæfingum
um fjarstart
Það eru nokkur atriði í greininni
frá 1. febrúar sl. sem mig langar til
að ræða.
1. Í umtalaðri grein segja tals-
menn Aukarafs m.a. að fjarstart sé
umhverfisvænn búnaður og stuðli
að minni mengun! Hvernig getur
bíll í lausagangi kallast umhverf-
isvænn og stuðlað að minni meng-
un! Mér er það gjörsamlega óskilj-
anlegt hvernig hægt er að fá þessa
niðurstöðu út. Það að hafa bíl í
lausagangi eykur augljóslega á
mengun því það er verið að lengja
þann tíma sem bílvélin er í gangi og
á þeim tíma blæs hún út óæskileg-
um lofttegundum. Mesta mengunin
sem kemur frá bílum er við kald-
start og þangað til hvarfakúturinn
er orðinn heitur og byrjaður að
virka. Tilraunir hafa sýnt að bíll
með kaldri vél mengar jafn mikið á
fyrstu kílómetrunum og heitur bíll
gerir við 600 km akstur. Fjarstart
gerir ekkert annað en að lengja
gangtíma vélarinnar og láta upp-
hitun bílsins gerast á lengri tíma
þar sem vélin fer ekki strax undir
álag eins og æskilegt er. Hreyfilhit-
ari útilokar aftur á móti þetta kald-
start og notar umhverfisvæna
orku, framleidda hér á
landi, við að hita upp
bílinn í staðinn fyrir
dýrt og mengandi
eldsneyti.
2. Það kemur einnig
fram í greininni að
kostir fjarstarts séu
þeir að: „Hvarfakútur-
inn er þá orðinn heitur
áður en ekið er af stað
og virkar að fullu, sem
hann gerir ekki ann-
ars fyrr en eftir nokk-
urn akstur.“
Þetta kalla ég að
skjóta sig í fótinn!
Þetta er einmitt
ástæðan fyrir því að
fjarstart er óæskilegur búnaður.
Það getur hver sem er séð að það
er bara verið að færa upphitunar-
tímann aðeins til og þar sem vélin
fer ekki strax í átak þá tekur þessi
upphitunartími lengri tíma en und-
ir álagi og því ávinnst ekkert nema
aukin mengun, meiri eldsneyt-
iseyðsla og aukið slit á vélinni. Með
notkun hreyfilhitara er hvarfakút-
urinn orðinn virkur stuttu eftir
ræsingu og miklu fyrr en með notk-
un fjarstarts, þar sem fyrst þarf að
hita upp vélina og svo upp hvarfa-
kútinn. Með notkun hreyfilhitara
er búið að hita upp vélina áður en
hún er ræst og því fer varminn
strax í það að hita upp hvarfakút-
inn.
3. Sú fullyrðing er einnig sett
fram að „Einnig sé ísettur fjarræsi-
búnaður ódýrari en hreyfilhitari.“
Í grein Morgunblaðsins frá 31.
janúar er sagt að íkominn fjarræsi-
búnaður kosti um 50 þúsund krón-
ur að símanum meðtöldum en það
sé misjafnt eftir tegundum bíla
hversu mikið ísetningin kosti. Fjar-
start með þjófavörn kosti 50–55
þúsund krónur hjá Aukaraf án
símastarts en um 20 þúsund krónur
bætist við með símastarti og er þá
síminn meðtalinn.
Hér er ekki alveg ljóst hvort
kaupa þarf sérstakan síma með
símastartinu eða hvort
hægt er að nota hvaða
síma sem er.
Hreyfilhitari kostar
íkominn frá 15 þúsund
krónum hjá Stillingu
hf. og geta menn bætt
við aukabúnaði eftir
smekk og áhuga.
Hreyfilhitari með far-
þegarýmisblásara,
eins og ég mæli með,
kostar íkominn á milli
30 og 50 þúsund krón-
ur og fer verðið eftir
tegund bílsins og eðli
búnaðarins. Raf-
magnsinnstunga þarf
að vísu að vera til
staðar við notkun hreyfilhitara og
ef það þarf að fara út í kostnað við
uppsetningu hennar, þá fer sá
kostnaður eftir aðstæðum. Oft dug-
ar þó ódýr framlengingarsnúra
eins og í mínu tilfelli. Hreyfilhitari
og fjarstart eru því á svipuðu verði
í innkaupum, en þegar dæmið er
reiknað til enda kemur í ljós að
hreyfilhitarinn borgar sig upp á ör-
fáum árum m.a. vegna minni elds-
neytiseyðslu. Hægt er að spara
milli 100 og 200 lítra af eldsneyti á
hverju ári með reglulegri notkun
hreyfilhitara og einnig minnkar
rekstrarkostnaður bílsins. Kaup og
notkun fjarstarts kostar aftur á
móti talsverða peninga og kemur
ekkert á móti í þeim útreikningum.
4. Að lokum segir: „Lausaganga
bíla hefði umhverfisáhrif, en það
hefði raforkuframleiðsla líka. Því
þyrfti að ræða þessi mál af skyn-
semi og skoða heildarmyndina.“
Hvernig er hægt að bera saman
mengandi innflutt eldsneyti og raf-
orku sem framleidd er hér á landi
með umhverfisvænum hætti? Það
getur hver sem er séð að hér er
verið að bera saman svart og hvítt.
Notkun fjarræsibúnaðar
fer illa með vélina
Það er margsannað með erlend-
um tilraunum að best er að setja
bílinn í gang og keyra strax af stað.
Köld bílvél í lausagangi er lengur
að hitna og við þessar aðstæður
getur t.d. myndast svokölluð lakk-
útfelling í vélinni, sem er efnasam-
band sem myndast við ófullkominn
bruna í köldum vélum og stíflar
hana að lokum. Þetta er brúnleit
skán sem sest inn á strokkana og á
ventla vélarinnar, sem leiðir að lok-
um til þess að ventlarnir stíflast og
vélin missir þjöppu. Þetta er þekkt
vandamál úr bílaheiminum og er
það leyst með því að setja reglu-
lega ákveðið efni á vélina sem leys-
ir lakkútfellinguna upp. Þetta er
t.d. það fyrsta sem gert er á verk-
stæðum þegar bíll kemur í stillingu
vegna ójafns gangs og er lakkút-
felling oftast orsökin. Notkun fjar-
ræsibúnaðar eykur þessa lakk-
myndun.
Lögmæti fjarstarts
Það hefur verið efast um lög-
mæti fjarstarts hér á Íslandi og eru
lögin hér á landi nokkuð óskýr í
þessu tilfelli. Fjarstartsbúnaður er
aftur á móti bannaður á hinum
Norðurlöndunum og í Evrópusam-
bandinu vegna þeirrar mengunar
sem hann veldur. Þar er bannað að
hafa bíl í lausagangi, nema í ör-
stutta stund og þegar sérstaklega
stendur á. Yfirleitt er miðað við
eina mínútu og er því notkun fjar-
starts í allt að 15 mínútur greini-
lega ekki leyfileg. Íslendingar hafa
ekki ennþá tekið upp þann hluta
Evrópulaganna þar sem fjarstart
er bannað og er því ennþá leyfilegt
að selja búnaðinn hér á landi. Þeg-
ar þessi búnaður verður svo bann-
aður þá neyðist fólk til að taka bún-
aðinn úr bílum sínum og sjá þá allir
hversu góð fjárfesting fjarstart er í
raun og veru.
Olíukynding
Sá möguleiki að setja olíukynd-
ingu í bíla er miklu skárri kostur en
fjarstart þar sem hún eyðir mun
minna eldsneyti og mengar ekki
eins mikið. Einnig fer sá búnaður
betur með vélina og eykur endingu
bílsins. Olíukyndingu er m.a. hægt
að fá hjá Bílabúð Benna.
Ég á sjálfur stóran dísilbíl sem á
það til að vera erfiður í gang í mikl-
um frostum og menga verulega
þegar hann er settur kaldur í gang.
Ég var mikið að velta því fyrir mér
hvort ég ætti að fá mér olíumiðstöð
eða hreyfilhitara í bílinn og var
olíumiðstöðin mjög freistandi kost-
ur þar sem ég fer oft á fjöll þar sem
rafmagnsinnstungur eru sjaldgæf-
ar og kuldar oft miklir. Það varð þó
ofan á að ég fékk mér Cal-
ix-hreyfilhitara frá Stillingu hf. í
bílinn þar sem ég gat bæði stungið
hitaranum í samband heima og svo
uppi í Setrinu, skála 4X4 klúbbsins,
sem ég hef aðgang að og fer stund-
um í. Ég finn verulega mikinn mun
á bílnum í miklum frostum og er
hann miklu ljúfari í gang og er sjá-
anlega miklu minni útblástur frá
bílnum. Ég sé alls ekki eftir því að
hafa valið hreyfilhitarann því hann
veitir mikil þægindi og er það alveg
ómetanlegt að setjast inn í 20°C
heitan bílinn á köldum morgnum
þegar nágrannarnir eru að skafa
frosna bílana sína. Í bónus borgar
búnaðurinn sig svo sjálfur upp og í
leiðinni stuðla ég að minni hnatt-
rænni mengun og minnka rekstr-
arkostnað bílsins.
Verið er að vinna að hreyfilhit-
aravæðingu og er Orkuveita
Reykjavíkur m.a. að skoða þann
möguleika að setja upp rafmagns-
innstungur fyrir hreyfilhitaranot-
endur. Orkuveitan styrkir svo alla
þá sem fá sér hreyfilhitara í bílinn
sinn um andvirði árlegrar raforku-
notkunar hitarans, þ.e. um 2.700
krónur, ef viðkomandi er skráður
notandi hjá Orkuveitunni. Ég mæli
því eindregið með hreyfilhitara fyr-
ir hvern þann sem hefur aðgang að
innstungu eða gæti komið sér upp
einni slíkri. Allir þeir sem ég hef
talað við og eru með hreyfilhitara
hafa hrósað honum og vilja alls
ekki missa hann og bara skilja ekki
af hverju þeir voru ekki búnir að fá
sér hann fyrir löngu. Fjarstarts-
búnaður veitir líka mikil þægindi,
en í staðinn auka notendurnir á
hnattræna mengun og þurfa að
bera þann fjárhagslega kostnað
sem hlýst af notkun búnaðarins.
Hreyfilhitarinn borgar sig aftur á
móti sjálfur upp við reglulega notk-
un, hann dregur úr mengun og
rekstrarkostnaði bílsins og eykur
endingu hans. Hreyfilhitari er því
miklu hægstæðari kostur en fjar-
start.
FJARSTART BIFREIÐA EYK-
UR MENGUN OG VIÐHALD
Fjarstart er ekkert
annað en lúxusbúnaður,
segir Ólafur Arnar
Gunnarsson, og
bíleigandinn kaupir
þægindin dýru verði.
Ólafur Arnar
Gunnarsson
Höfundur er orkutæknifræðingur.
...ferskir vindar í umhirðu húðar
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Switzerland
„Þegar ég hafði lokið við að þróa
„Monsoobbbbn-make up“ línuna,
ákvað ég að þróa mína eigin húðkreml-
ínu. Eftir að ég kynntist Karin Herzog
vörunum steinhætti ég við þá hug-
mynd. Í starfi mínu sem útlitshönnuður
nota ég nú orðið alltaf Karin Herzog
hreinsikrem, andlitsvatn og Vita-A-
Kombi krem sem grunn, áður en ég
byrja að farða kúnnana mína.“
www.karinherzog.com
Doddý - Monsoon - make up
Kaupmannahöfn segir:
Steinsteypudagur 2001
á Grand Hótel Reykjavík
föstudaginn 16. febrúar.
Skráning í síma 896 1445, fax 565 2473 eða
tölvupóstur steypais@mmedia.is.
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
Skólavörðustíg ● 21sími 551 4050 ● Reikjavík
Sængurverasett
úr
egypskri bómull m
eð
satínáferð
Póstsendum