Morgunblaðið - 11.02.2001, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 11.02.2001, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2001 39 LÍKLEGA vita flestir að aðal C-vítamíngjafi okkar er grænmeti og ávextir og hafa kartöflur bjargað okkur mikið í þeim efnum þegar lítið var um ávexti og grænmeti. Því miður hefur kartöfluneysla minnkað til muna og í þeirra stað kemur ekki grænmeti heldur pasta, sem gefur okkur lítið annað en kolvetni. Kartaflan er góður C-vítamíngjafi og hefur auk þess ýmis önnur næringarefni. En hversu mikið C-vítamín er í ávöxtum og grænmeti sem hafa legið lengi í verslunum og heima hjá okkur? Ef epli stendur á stofuborðinu hjá okkur í viku er það búið að tapa nær öllu C-vítamíni en getur samt verið jafn fallegt. Ég setti um miðjan desember fagurrauð smáepli í skál á stofuborðið hjá mér, þau líta alveg jafn vel út núna, sex vikum síðar, en ég gef ekki mikið fyrir næringarefnin í þeim, enda ætla ég ekki að borða þau, heldur fylgjast með hvað þau haldast lengi óskemmd. Á þessum árstíma nota ég lítið ferskt grænmeti nema salat en kaupi frosið grænmeti í staðinn. Frosið grænmeti heldur vel vítamínum, það er fryst ferskt og soðið aðeins upp á því til að gera efnakljúfa óvirka, en þeir eyða vítamínum, líka í frysti. Á þessum árstíma er frosna grænmetið yfirleitt ódýrara en hið ferska, svo þurfum við ekki að þvo það og snyrta, heldur getum skellt því beint í pottinn, sem hafa ber í huga í tímaskorti nútímans. Í þeirri baunablöndu sem hér var notuð eru belgbaunir, grænar baunir, maís og rauð paprika. Að sjálfsögðu má nota annað frosið grænmeti, en þessi blanda hentaði mjög vel. Steiktur fiskur með baunablöndu 600–700 g ýsuflak 2 tsk. salt 3 tsk. milt sinnep ½ dl mjólk 1 dl brauðrasp 2 msk. matarolía 2 msk. smjör 1 pk. (450 g) frosin baunablanda frá Ardo 1. Roðdragið flakið og skerið úr því beinagarðinn, stráið á það salti og látið bíða í 10 mínútur. Smyrjið með sinnepi og skerið í bita, veltið þeim upp úr mjólk og raspi. 2. Sjóðið grænmetið í mjög litlu vatni í 5 mínútur, skemur í örbylgjuofni, setjið ögn af salti út í. 3. Setjið matarolíuna á pönnu, og steikið fiskinn í henni í um 4–5 mínútur á hvorri hlið. Takið þá af pönnunni og leggið á fat. Setjið smjörið á pönnuna og veltið grænmetinu upp úr því sem er á henni. Leggið meðfram fiskinum á fatið. Meðlæti: Soðnar kartöflur. Bakstur með frosnu brokkkáli 12 Ritz-kexkökur 1 dós Campbell’s þykk sveppasúpa (295 g) 2 egg ½ dl mjólk um 150 g frosið brokkkál 150 g mjólkurostur, hér var notaður 17% Gouda Smyrjið eldfast fat. Myljið Ritz-kexkökurnar lauslega á fatið. Hrærið eggin saman við súpuna og mjólkina, hellið yfir kexið á fatinu. Ef brokkkálsgreinarnar eru mjög stórar þarf að skera þær í sundur, annars ekki. Setjið brokkkálið ofan í súpu-eggja- hræruna, það á ekki að fara á kaf. Skerið ostinn í sneiðar eða rífið hann og setjið yfir. Hitið bakaraofn í 190°C, blástursofn í 180°C og bakið í 40 mínútur. Matur og matgerð Frosið grænmeti á þorra Fram yfir miðja síðustu öld var C-vítamínskortur mjög algengur hér á landi, segir Kristín Gestsdóttir, en nú er hann nær óþekktur. Opið hús í dag Síðumúla 27 sími 588 4477 fax 588 4479 Heimasíða: valholl.isF A S T E I G N A S A L A VA L H Ö L L Fallegt 125 fm einbýlishús á tveim- ur hæðum, hæð og ris ásamt 33 fm bílskúr. Húsið stendur á góðum stað innst í lokaðari götu. Góður skjólgóður suðurgarður. 4 sv.herb., 2 stofur. V. 16,8 m. Áhv. 6,3 m. Af- hending í júní. Guðrún tekur á móti áhugasömum í dag frá kl. 14-16. Heiðargerði 100 Glæsil. 170 fm sérhæð. Í einkasölu vönduð hæð í fjórbýli með miklu útsýni. Húsið vel staðsett efst í botnlanga. Eignin er mikið endur- b.og í mjög góðu ástandi. Fallegur garður. Arinn. Glæsil. baðherb. V. 20 m. Hákon og Bryndís taka á móti gestum frá kl. 14-16. 4689 Laugarásvegur 13 OPIÐ Í DAG, SUNNUDAG, FRÁ KL. 12-14 ÁLFHEIMAR Björt og góð 3ja herb. endaíb. á 1. hæð með suðursvölum í góðu fjölb. Tvö svefnherb. Stærð 76 fm. Áhv. 5,2 millj. Verð 9,7 millj. 1334 VEGHÚS - LAUS Mjög snyrtileg 4ra herb. íb. á 7. hæð í lyftuhúsi með fallegu útsýni. 3 svefnherb. Góðar innréttingar. Þvottahús í íbúð. Stærð 101 fm. Verð 13,1 millj. LAUS STRAX. 1331 FLÉTTURIMI - BÍLSKÚR Vönduð og vel skipulögð 3ja herb. íb. á 1. hæð (jarðhæð) með sérverönd og stæði í bílskýli. Þvottahús í íbúð. Parket. Stærð 99,2 fm. Áhv. 8,1 m. Verð 11,8 millj. 1154 LJÓSHEIMAR Mikið endurnýjuð 4ra herb. íb. á 1. hæð í viðgerðu lyftuhúsi. Tvö góð svefnherb. Tvær saml. stofur. Vestursvalir. Eldhús með nýl. innr. Baðherb. allt endurnýjað. Stærð 101 fm. Húsið er viðhaldsfrítt að utan. Verð 12.350 þús. Stutt í alla þjónustu. 1321 NESHAGI - LAUS Góð og björt 3ja herb. í kj. með sérinngang í þríbýli. Parket. Gluggar og rafmagn endurnýjað. Frábær staðsetning. Verð 9,2 millj. LAUS STRAX. 1191 REYNIMELUR - LAUS 90 fm 3ja herb. neðri hæð sem skiptist í tvær stofur og eitt svefnherb. Íbúðin er upprunaleg en í ágætu ástandi. Hús í góðu ástandi. Áhv. 0. Verð 10,5 millj. LAUS STRAX. 1346 GNOÐARVOGUR - BÍLSKÚR Vorum að fá í sölu fallega og vel skipulagða 131 fm sérhæð ásamt 26 fm bílskúr. 4 svefnherb. 2 saml. stofur. Góðar suðursvalir. Hús í mjög góðu ástandi. Verð 17,9 millj. Góð staðsetning. 1318 Sérlega sjarmerandi og glæsilegt 195 fm einbýli á þremur hæðum ásamt nýlegum bílskúr með hellulögðu plani. Húsið hefur verið mikið endurnýjað. Stór og mikill garður í mikilli rækt (603 fm eignarlóð) með pallaverönd og heitum potti. Eignin getur verið laus mjög fljótt. Áhv. ca 6,8 millj. í byggsj. og húsbréf. Lækkað verð. Heitt kaffi á könnunni í dag á milli kl. 15 og 17. Jófríðarstaðavegur 15 - Opið hús í dag Sími 5304500 alltaf á sunnudögum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.