Morgunblaðið - 11.02.2001, Síða 45

Morgunblaðið - 11.02.2001, Síða 45
sem það býr til og les sína eigin bók á meðan hún er skrifuð. Þann- ig er óslitinn þráður frá fyrstu ljóðum skáldsins sem fæðast með hávaða og látum til þeirra síðustu og þessi þráður tekinn upp í sí- fellu. Þar er komið að seinni hluta titilsins, sem vísar til nokkurs sem Bonnefoy hefur sjálfur skrifað um og er þessi neikvæða guðfræði, eða innhverfa guðfræði. Hún er nokkuð sem Aristóteles notaði í rökfræði sinni og gengur út á það að byrja innst, og þá jafnvel innst með sjálfum sér, þegar leitað er einhvers sannleika, hvort sem hann heitir Guð eða annað. Þannig er þessari ritgerð ætlað að rekja sig frá innstu hlutum ljóðlistar Yves Bonnefoy, að einhverjum stærri sannleik sem auðvitað verð- ur aldrei fundinn eða skilgreindur til hlítar. Sigurður reynir þó að grafast fyrir um forsendur skáld- skaparins, forsendur þess að ljóð verði til. Sköpunarferlið í veröld þeirri sem ljóðskáld býr til með hverju ljóði er þannig rannsakað í ritgerðinni, en eins og við er að búast fæst ekki nein endanleg nið- urstaða í slíkri rannsókn. Leitin sjálf, býr þó yfir sínum tilgangi og sinni merkingu. Sigurður nýtir sér við rannsókn sína aðferðir sálgreiningar, guð- fræði og miðaldamýtur, sem eru allríkulegar í verkum Yves Bon- nefoy, sem hefur til dæmis tekið saman eitt glæsilegasta al- fræðisafn um goðafræði sem til er á frönsku og endurþýtt Leitina að Gralinum í samvinnu við Albert Béguin. Umsjónarkennari Sigurðar var dr. Paule Plouvier, heiðursprófes- sor við Paul Valéry háskóla, lengi yfirmaður freudískra rannsókna við sama skóla, sérfræðingur í franskri nútímaljóðlist. Andmæl- endur voru dr. Francis Dubost, sérfræðingur í miðaldabók- menntum og dr. Joëlle Gardes- Tamine, lengi yfirmaður Fondat- ion Saint-John Perse í Aix-en Pro- vence, höfundur ýmissa bóka um málvísindi, textafræði og bók- menntafræði. Vörnin fór fram í varnarsal Paul Valéry háskóla í Montpellier.“ Sigurður fæddist 31. júlí 1966. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1986, lauk BA-prófi í almennum bók- menntafræðum árið 1990 frá Há- skóla Íslands og prófi í almennum kennslufræðum árið 1991 frá sama skola. Hann lauk licence-prófi frá Paul Valery háskólanum í Mont- pellier árið 1993, mastersgráðu frá sama háskóla árið 1994 með ein- kunninni très bien, sem er ágæt- iseinkunn, og fordoktorsgráðu, DEA, árið 1995 með sömu ein- kunn, frá sama skóla. Sigurður hefur gefið út þrjár ljóðabækur; Húm árið 1986, Líf árið 1990 og Heim til þín árið 1992. Ný bók er væntanleg á árinu. Sigurður hefur birt nokkuð af greinum og ljóðaþýðingum og vinnur nú að þýðingum á úrvali ljóða Yves Bonnefoy. Móðir Sigurðar er Steinunn S. Sigurðardóttir, læknafulltrúi á Myndgreiningardeild Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri, dóttir Sigurðar Guðmundssonar, vígslu- biskups og Aðalbjargar Halldórs- dóttur. Faðir hans er Ingólfur Steinar Ingólfsson, rafvélavirkja- meistari, sonur Ingólfs Benedikts- sonar, málarameistara frá Dal og Hólmfríðar Björnsdóttur. Kona Sigurðar er Ólöf Björk Bragadóttir, myndlistarkona, en hún lauk meistaragráðu í myndlist frá École des beaux-arts í Mont- pellier vorið 2000 og kennir nú við Menntaskólann á Egilsstöðum. Þau eiga tvo syni, Steinar Braga, tíu ára og Sölva Snæ, átta ára. Sigurður starfar nú sem frönsku- og enskukennari við Menntaskólann á Egilsstöðum. FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2001 45 Austurströnd 4 - opið hús Mjög falleg rúml. 60 fm íbúð á 5. hæð í lyftuhúsi sem er allt nýlega tekið í gegn að utan. Íbúðin er talsvert endurnýjuð, m.a. nýtt parket. Vestursvalir. Frábært útsýni. Stæði í bílhýsi. Stutt í alla þjónustu. Áhv. 4.1 millj. Byggsj. og Húsbréf. Laus strax. Verð 10 millj. Guðlaug og Birgir sýna íbúð- ina í dag, sunnudag frá kl. 14.00 - 16.00. Bjalla 0504. Kvisthagi Falleg talsvert endurnýjuð 70 fm 3ja her- bergja íbúð í kj. í þríbýlishúsi á þessum frá- bæra stað. Íbúðin er talsvert endurnýjuð, m.a. gler gluggar og raflagnir. Nýlegt park- et. Góður garður. Laus strax. Áhv. 3.5 millj. Lyklar á skrifstofu.Húsbréf. Ólafur Stefánsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali, Ingibjörg Þórðardóttir, löggiltur fasteignasali. Til söl u Garðyrkjustöð á Flúðum Eignin er 2.200 m² gróðurhús í tómatarækt. 2.000 m² plastgróðurhús í jarðarberjarækt. 170 m² pökkunarhús með kæliklefa. Íbúðarhús 141 m². Heildar brunabótamat eignar 53 millj. Eignin er í mjög góðu ástandi. Garðland til útiræktar ca 5.000 m². 250 m í skóla, verslun, sundlaug, íþróttahús og aðra þjónustu. Ráðgjöf við ræktun möguleg. Upplýsingar í síma 486 6632 Opið hús Bárugrandi 11 Opið hús, Bárugrandi 11. Gull- falleg 86,6 fm 3ja-4ra herb. endaíbúð á 2. hæð í þessu fal- lega fjölbýli, ásamt stæði í bíl- geymslu. Parket, flísar, suðvest- ursvalir. Sjávarútsýni, gott stæði í lokuðu bílskýli. Áhv 5,5 millj. byggsj. Verð 13,9 millj. Allir vel- komnir milli kl. 14 og 17 í dag. Hóll fasteignasala, Skúlagötu 17, sími 595 9000 Veitingastaður í miðbænum Vorum að fá til sölu öflugan veitingastað, með útibúi, sem rekinn er í miðbæ Reykjavíkur. Fyrirtækið hefur vaxið mjög mikið á stuttum tíma og er veltuaukning veruleg . Þarna er á ferðinni mjög gott tækifæri fyrir fjárfesta eða fagmenn sem áhuga hafa á að taka við góðu búi. Staðirnir eru reknir í leiguhúsnæði. Allar nánari upplýsingar gefur Íslensk-Auðlind Hafnarstræti 20, sími 561 4000 KRINGLUNNI 4-12, s. 800 6000 OPIÐ HÚS - SUNNUDAG Í sölu falleg 89 fm kjallaraíbúð í fjórbýli með sérinngangi. Tvö svefn- herb. og björt stofa. Nýleg eldhúsinnrétting. Parket og dúkur á gólfum. Eign í eftirsóttu hverfi rétt við sundlaugarnar í Laugardal. Verð 10,4 millj. Áhv. 5,4 millj. byggsj. og húsbr. Hún Alma býður ykkur velkomin til sín í dag á milli kl. 14 og 16. Hraunteigur 20 Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði  Hjallabraut - Hf. - raðh. Nýkomið í einkasölu á þessum frábæra stað 135 fm raðhús á einni hæð ásamt 34 fm bílskúr. 4 svefnherb., vinnuherbergi, róleg og góð staðsetning. Ákveðin sala. Verð 18,5 millj. 78569. Langamýri - Gbæ. - einb. Nýkomið í einkasölu óvenju glæsilegt einlyft einbýli með inng. bílskúr, sam- tals 240 fm. Sérsmíðaðar innréttingar, stofa, arinn, fjögur stór svefnh. o.fl. Ræktaður garður. Frábær staðsetning innst í botnlanga. Hagstæð lán. Verð 32 millj. Hraunsholtsvegur - Gbæ. - einb. Nýkomið í einkas. nýl. glæsil. tvílyft einb. með innb. bílskúr, samtals ca 280 fm. Á jarðhæð er sér 2ja herb. íbúð með sérinng. Útsýni. Fallegur garður með verönd. Verð 28 millj. 70680 Brekkubyggð - Gbæ. - raðh. Nýkomið í einkasölu sérlega fallegt endaraðhús á einni hæð, 142 fm, auk 31 fm innb. bílskúrs og 25 fm garðskála með heitum potti. Einstök staðsetning efst í botnlanga. Ræktaður garður. Verönd með skjólgirðingu. Ákveðin sala. Fjarðargata 17, Hafnarfirði Sími 520 2600, Fax 520 2601 netfang as@as.is Heimasíða http://www.as.is TALSVERT ENDURNÝJAÐ 146 fm ENDARAÐHÚS ásamt 25 fm BÍLSKÚR. Stutt í skóla, góð staðsetning við jaðar byggðar. Mikið endur- nýjað að innan. Góð og falleg eign. Verð 18,5 millj. SÓLVEIG TEKUR VEL Á MÓTI YKKUR OG SÝNIR EIGNINA. SÍMAR: 555-1983 0G 691-1983. BREIÐVANGUR 69 - GLÆSILEGT ENDARAÐHÚS ÁSBÚÐARTRÖÐ 11- NEÐRI HÆÐ Gullfalleg 118 fm íbúð á 1. hæð í tvíbýli, útgengt út á góða verönd. Laus fljót- lega. Áhvílandi góð lán. Verð 12,5 millj. SOFFÍA TEKUR VEL Á MÓTI YKKUR. SÍMAR: 555-3580 og 697- 4997

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.