Morgunblaðið - 11.02.2001, Side 50

Morgunblaðið - 11.02.2001, Side 50
DAGBÓK 50 SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Skipin Reykjavíkurhöfn: Lag- arfoss og Solborg koma í dag. Víðir EA fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Lagarfoss kemur á morgun. Mannamót Aflagrandi 40. Á morg- un kl. 8.45 leikfimi, kl. 10 boccia, kl. 14 félagsvist. Árskógar 4. Á morgun kl. 9 pennasaumur og harðangur, kl. 10.15 leik- fimi, kl. 11 boccia, kl. 13.30 félagsvist, kl. 13 opin smíðastofan, kl. 16 myndlist. Bólstaðarhlíð 43. Á morgun kl. 9–16 handa- vinna, kl. 9–12 og kl. 13 bútasaumur, kl. 10 sam- verustund. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós! Félagsstarfið á Hlaðhömrum er á þriðjud. og fimmtud. kl. 13–16,30, spil og föndur. Leikfimi í íþróttasalnum á Hlaðhömrum á þriðjud. kl. 16. Sund- tímar á Reykjalundi kl. 16 á miðvikud. Pútttímar í íþróttahúsinu á Varmá kl. 10–11 á laugard. Kór- æfingar hjá Vorboðum á Hlaðhömrum á fimmtud. kl. 17–19. Jóga-leikfimi kl. 14 á föstud. í Dvalarh. Hlaðhömrum. Uppl. hjá Svanhildi í s. 586-8014 kl. 13–16. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist í Gullsmára 13 á mánud. kl. 20.30. Skrifstofan Gullsmára 9 er opin á morgun kl. 16.30–18, s. 554-1226. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Á morgun kl. 9 myndlist, kl. 9.30 hjúkrunarfræðingur á staðnum, kl. 10–13 versl- unin opin, kl. 11.10 leik- fimi, kl. 13 handavinna og föndur, kl. 13.30 enska, framhald. Félagsstarf aldraðra, Dalbraut 18–20. Á morg- un kl. 9.45 leikfimi. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Púttæfing í Bæjarút- gerðinni á morgun kl. 10–12. Tréútskurður í Flensborg kl. 13. Félagsvist í Hraunseli kl. 13.30. Á fimmtud. 17. febr. verður opið hús í boði Sjálfstæðisfélagsins í Hafnarfirði, fjölbreytt dagskrá. Leikhúsferð 24. febr., „Á sama tíma síðar“, skráning stendur yfir. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. Spilað í Kirkjulundi á þriðjudög- um kl. 13.30. Fótaað- gerðir. Mánudaga og fimmtudaga. Ath. nýtt símanúmer 565-6775. Félag eldri borgara í Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Félagsvist í dag kl. 13.30. Dansleikur í kvöld, sunnudag, kl. 20 Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Mánudagur: Brids kl. 13. Framsögn kl. 16.15. Danskennsla framhald kl. 19 og byrj- endur kl. 20.30. Þriðju- dagur: Meistarakeppni í skák hefst í dag þriðju- dag kl. 13.30. Allir vel- komnir. Miðvikudagur: Göngu-Hrólfar fara í göngu frá Hlemmi, mæt- ing kl. 9.45. Sjávarfangs- veisla, hausar, hrogn, lif- ur og ýmislegt annað góðgæti úr sjávarfangi, verður haldin 16. febrú- ar, dansað á eftir borð- haldi. Skráning hafin á skrifstofu FEB. Breyt- ing hefur orðið á viðtals- tíma Silfurlínunnar, opið verður á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 10–12 f.h. í síma 588- 2111. Upplýsingar á skrifstofu FEB í síma 588-2111 frá kl. 10–16. Gerðuberg, félagsstarf. Á morgun kl. 9–16.30 vinnustofur opnar frá hádegi, spilasalur opinn, kl. 15.30 dans. Aðstoð frá Skattstofu við skatt- framtöl verður veitt mið- vikudaginn 7. mars. Skráning hafin. Mið- vikudaginn 14. febrúar kl. 14 Kynna Sam- vinnuferðir Landsýn vorferðir umsjón Ásdís Árnadóttir. Allar upp- lýsingar um starfsemina á staðnum og í síma 575- 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Á morgun handavinnu- stofan opin, kl. 9.30 gler- og postulínsmálun, kl. 13.30 lomber og skák, kl. 14.30 enska, kl. 17 myndlist. Myndlist- arsýning frístundamál- ara í Gjábakka stendur yfir til 23. febrúar. Gullsmári. Málverka- sýning Jóns Páls Ingi- bergssonar er í Lista- horninu í Gullsmára, opið virka daga frá kl. 9– 17. Á veggblaðinu er ljóð eftir Valdimar Lár- usson. Hraunbær 105. Á morg- un kl. 9 postulínsmálun og perlusaumur og kortagerð, kl. 10.30 bænastund, kl. 14 sögu- stund og spjall. Lausir tímar í myndlist. Upp- lýsingar í s. 587-2888. Hvassaleiti 56–58. Á morgun kl. 9 keramik, tau- og silkimálun og klippimyndir, kl. 10 boccia, kl. 13 spilað. Félagsstarfið Hæð- argarði 31. Á morgun kl. 9–16.30 opin vinnu- stofa, handavinna og föndur, kl. 14 félagsvist. Norðurbrún 1. Á morg- un, bókasafnið opið frá kl. 12–15, kl. 10 ganga. Vesturgata 7. Á morg- un, kl. 9.15 handavinna, kl. 10 boccia, kl. 12.15 danskennsla, framhald, kl. 13.30 danskennsla, byrjendur, kl. 13 kóræf- ing. Vitatorg. Á morgun kl. 9 smiðjan, kl. 9.30 bók- band, bútasaumur og morgunstund, kl. 13 handmennt, kl. 13. leik- fimi. Gullsmárabrids. Brids- deild FEBK í Gullsmára býður alla eldri borgara velkomna að brids- borðum í félagsheimilinu í Gullsmára 13 á mánu- dögum og fimmtudög- um. Mæting og skráning kl. 12.45. Spil hefst kl. 13. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborgar- svæðinu, Hátúni 12. Á morgun kl. 19 brids. GA-fundir spilafíkla, eru kl. 18.15 á mánudög- um í Seltjarnarneskirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtudögum í fræðslu- deild SÁÁ, Síðumúla 3–5, og í Kirkju Óháða safnaðarins við Háteigs- veg á laugardögum kl. 10.30. Samtök kynferðislegs ofbeldis, fundir á mánu- dögum kl. 20 í húsi Húsmæðraskólans í Reykjavík við Sól- vallagötu. Unnið er eftir 12. sporakerfi AA- samtakanna. Breiðfirðingafélagið. Félagsvist spiluð á sunnudögum kl. 14 í Breiðfirðingabúð, Faxa- feni 14, þriðji dagur í fjögurra daga keppni. Kirkjustarf aldraðra Digraneskirkju. Opið hús þriðjudag frá kl. 11. Leikfimi, matur, helgi- stund og fræðsla. Hana-nú, Kópavogi. Á morgun er spjallkvöld í Gjábakka kl. 20. Dagskrá: Safn til sögu Hana-nú. Upplestur, kvæði, kviðlingar og dagbókarbrot frá liðnum árum m.m. Gestur: Björn Þorsteinsson sagnfræðingur. Allir vel- komnir. Kvenfélagið Hrönn, að- alfundurinn verður í Húnabúð Skeifunni 11 á morgun kl. 20 og hefst með borðhaldi, venjuleg aðalfundarstörf. Slysavarnardeildin Hraunprýði, heldur að- alfund í húsi deildar- innar í Hjallahrauni 9, þriðjud. 13. febrúar kl. 20. Á dagskrá venjuleg aðalfundarstörf, laga- breytingar, húsnæðis- mál, happdrætti. ITC-deildin Harpa held- ur fund þriðjud. 13. febrúar á Borgartúni 22 (3. hæð) kl. 20. Fundur- inn er öllum opinn. Uppl. gefur Guðrún í s. 553- 9004. Slysavarnardeild kvenna á Seltjarnarnesi. Aðalfundurinn verður á morgun kl. 20 í Alberts- búð við Bakkavör. Venjuleg aðalfundar- störf, lagabreytingar. Kvenfélag Kópavogs, fundur verður haldinn fimmtud. 15. febrúar kl. 20.30 á Hamraborg 10, myndasýning. Kvenfélag Bústaða- sóknar heldur aðalfund í Safnaðarheimilinu á morgun kl. 20. Venjuleg aðalfundarstörf. Óvænt uppákoma. Kvenfélag Grensás- sóknar heldur aðalfund á morgun kl. 19 og hefst með kvöldverði. Venju- leg aðalfundarstörf. Þátttaka tilkynnist í s. 553-6911 eða 553-7057. Í dag er sunnudagur 11. febrúar, 42. dagur ársins 2001. Níu vikna fasta. Orð dagsins: Kristur er í gær og í dag hinn sami og um aldir. (Hebr. 13, 8.) MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið. ÞANN 30. janúar sl. var upplýst í Morgunblaðinu á bls. 10 að biskupinn yfir Ís- landi ætlaði að fara til Ind- lands á næstunni að skoða hinar hörmulegu hamfarir þar í landi. Gaman væri að vita hvort biskupar annarra landa0 fyrirhugi einnig skoðunarferð til Indlands. Hvað geta þessir ágætu menn gert umfram fagfólk í neyðarhjálp? Hvað færu margir með Íslands biskupi og hvað kostar svona ferð og hver greiðir hana? Ég tel sjálfsagt að hjálpa en væri ekki nær að senda ferða- peningana í neyðarhjálpina, því heimsóknin er öllum gagnslaus. Gott er að geta sefað sorgir en ég tel það ekki gerast með fyrirhug- aðri ferð. Gott væri fyrir landsmenn að fá svör frá embætti biskups. Guð blessi hina sorg- mæddu. Gamli. Minningarkort ÞEIR, sem sjá um að senda út þakkir vegna minningar- korta, vilja beina þeim til- mælum til fólks, að það láti nafn og heimilisfang fylgja með. Það er oft ansi erfitt að finna út hver er hvað og í sumum tilfellum er bara gælunafn undir kortinu. Tapað/fundið Trefill úr pelsgarni tapaðist VÍNRAUÐUR/rauðbrúnn trefill úr pelsgarni tapaðist, annaðhvort á Fálkagötu eða með leið 4, miðvikudaginn 7. febrúar sl. Upplýsingar í síma 552-0545 eftir kl.17. Svört og vínrauð taska með GameBoy-tölvu tapaðist SUNNUDAGINN 4. febrú- ar sl. tapaðist í Víðigerði í V-Hún. lítil taska, svört og vínrauð. Í þessarri tösku var GameBoy-leikjatölva ásamt leikjum. Tölvunnar er sárt saknað af eiganda sínum og eru ferðalangar, sem voru á ferðinni þarna þennan dag, beðnir um að athuga hvort þetta hafi hugsanlega lent í þeirra höndum af misgáningi. Fundarlaun. Upplýsingar í síma 461-1719, Þórunn eða Gunnar. Málverk tapaðist MÁLVERK eftir Magnús Árnason, málað kringum árið 1968, af ungri stúlku, ljóshæðri og stuttklipptri, í blússu með nælu, týndist, líklega á árunum 1995 eða 1996. Málverksins er sárt saknað. Þeir sem gætu gef- ið upplýsingar um málverk- ið hafi samband við Svein- björgu í síma 555-1931. Svart Guzzi-úr tapaðist SVART Guzzi-úr með gull- rönd tapaðist í lok sumars, sennilega fyrir utan ein- hverja af sundlaugum Reykjavíkur. Upplýsingar í síma 893-3588. Anorakkur í óskilum ANORAKKUR fannst við DV-húsið í Þverholti fyrir stuttu. Upplýsingar í síma 551-8248. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Biskupinn til Indlands Víkverji skrifar... LESTUR Andrés-blaðanna svo-kölluðu lagði grunninn að dönskukunnáttu Víkverja í den tid, en þar eru Andrés Önd og félagar hans í aðalhlutverkunum eins og öll- um ætti að vera ljóst. Nokkuð er síð- an farið var að gefa þau út á íslensku þannig að ekki læra börn í dag dönskuna með sama hætti, og Vík- verji hefur haft á tilfinningunni að ekkert hafi komið í staðinn. Það kom honum því skemmtilega á óvart á dögunum þegar hann gekk fram á börn sem voru að horfa á teikni- myndastöðina Cartoon Network í sjónvarpinu. „Tom og Jerry kommer snart igen,“ sagði þulurinn, það fór ekkert á milli mála, og þegar Vík- verji lagði við hlustir heyrði hann að kynningar á stöðinni eru á dönsku. Myndin sjálf um þá félaga Tomma og Jenna var að vísu talsett á ensku og svo er einnig um annað efni, en það gladdi Víkverja samt að heyra dönskuna þó svo börn læri vafalítið í þeirri enskuskotnu tungu einungis með því að heyra hana talaða í sjón- varpi. x x x VÍKVERJI komst yfir bókinaMinningar úr Menntaskólan- um á Akureyri, sem kom út á vegum bókaútgáfunnar Hóla fyrir jólin, og hefur verið að lesa hana undanfarið, sér til mikillar skemmtunar. Þar rifja gamlir MA-ingar eitt og annað upp frá skólaárunum, sá elsti varð stúdent 1929 og sá yngsti vorið 2000. Gaman er að sjá á texta höfund- anna hve tíðarandinn hefur breyst, sögur af kennurum og ýmsum uppá- komum í skólastarfinu bera þess glöggt merki. Leikarinn góðkunni, Flosi Ólafs- son, er einn greinarhöfunda og segir m.a.: „Ég stend á því fastar en fót- unum að íslenskukennsla í mennt- astofnunum hérlendis hafi að minnsta kosti í heilan mannsaldur og vafalaust lengur haft það öðru frem- ur að markmiði að drepa niður vilja, kjark og löngun góðra manna til að tjá sig í rituðu máli. Ef svo einkennilega skyldi vilja til að það stagl sem ég lærði í skóla sé enn kennt undir því yfirskini að verið sé að kenna fólki að tjá sig í skrif- uðum texta, þá skora ég hér með á alla nemendur að einbeita sér að því að læra ekki það sem í bókunum stendur, og ennfremur á alla kenn- ara að hvetja nemendur sína til að kasta gömlum málfræði- og setning- arfræðikreddubókum á eld, en leggja sig síðan fram við að skrifa frá eigin brjósti það sem hugurinn býð- ur á einfaldan og skiljanlegan hátt, þar sem kommur eru bara settar þar sem manni finnst þær þurfi að vera, stór stafur aðeins þar sem manni finnst hann tilheyra, en upsílon þar sem okkur finnst gaman að hafa skrítna stafi. Og sannið til, pennaleti lands- manna mun hverfa einsog dögg fyrir sólu.“ Er kannski eitthvað til í þessu hjá Flosa? x x x FÓLKIÐ sem hélt upp í ferðalag íkringum hnöttinn frá Þingvöll- um 1. janúar 1999 á gulri Benz-bif- reið, Jim Rogers og Paige Parker, hafði ekið 143.290 kílómetra á föstu- daginn. Víkverji fylgist reglulega með ferðalagi þeirra á Netinu, og á föstudaginn voru þau stödd í Mumbai á Indlandi, borginni sem sumir kalla enn Bombay. „Við erum enn að! Eftir meira en 140.000 kílómetra, 85 lönd og 25 mánuði á ferðalagi, erum við hálfnuð hringinn í kringum hnöttinn, flakk- andi um Mið-Austurlönd. Markmið okkar er enn að komast yfir heims- álfurnar sex á þremur árum, 1999, 2000 og 2001 og skrásetja það sem fyrir augu ber, með ljósmyndum, hljóðupptökum, myndbandsupptök- um og hugleiðingum á prenti,“ skrif- uðu þau á heimasíðu sinni á föstu- daginn. x x x DANSKA dogmakvikmyndinVeislan (Festen) er með þeim allra bestu sem Víkverji hefur séð undanfarin ár. Stórmerkileg mynd en óvenjuleg að mörgu leyti, bæði hvað varðar myndatöku og efnistök. Víkverja finnst rétt að benda fólki á að myndin er á dagskrá Ríkissjón- varpsins í kvöld kl. 22. x x x BIKARKEPPNI í íþróttum hefuroft boðið upp á mörg óvænt úr- slit, nú síðast þegar undanúrslit fóru fram í bikarkeppni karla bæði í handknattleik og körfuknattleik. Í fyrrnefndu greininni sigraði Hamar frá Hveragerði lið Keflvíkinga á úti- velli og ÍR-ingar sigruðu Grindvík- inga, einnig á útivelli. „Litla“ liðið sigraði sem sagt í báðum tilvikum, og í handboltakeppninni gerðu HK-ing- ar úr Kópavogi sér lítið fyrir og unnu Aftureldingu í Mosfellsbæ! Þetta er eitt af því skemmtilega við íþróttirn- ar; það er aldrei hægt að vera viss ... 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 skaut, 4 varkár, 7 auð- an, 8 skoðun, 9 afreks- verk, 11 líffæri, 13 kven- fugl, 14 rífur, 15 rökkva, 17 stund, 20 knæpa, 22 málmblanda, 23 klínir, 24 sigar, 25 fæðir. LÓÐRÉTT: 1 hænan, 2 vol, 3 brún, 4 andvari, 5 landspildu, 6 synja, 10 kærleiks, 12 óhreinka, 13 gott eðli, 15 hula, 16 virðir, 18 nuddhljóð, 19 sér eftir, 20 neyðir, 21 tunnan. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 linnulaus, 8 leðjan, 9 tinds, 10 nía, 11 murta, 13 nýrað, 15 skæða, 18 sakka, 21 kot, 22 öslar, 23 annar, 24 hræringur. Lóðrétt: 2 iljar, 3 nunna, 4 lútan, 5 unnur, 6 Glám, 7 æs- ið, 12 tað, 14 ýra, 15 spök, 16 ætlar, 17 akrar, 18 stafn, 19 kunnu, 20 arra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.