Morgunblaðið - 11.02.2001, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2001 51
DAGBÓK
Árnað heilla
LJÓÐABROT
ÚR HRYNHENDU
Snörp bitu járn, sem ísmöl yrpi
óðastraums; með heitu blóði
herstefnir rauð hamri ofna
Hildar serki framar merkjum;
grimmum stóð á Göndlar himni
grár regnbogi Hnikars þegna;
harðar lustu fylking fyrða
fáreldingar meginsára.
Ólafur Þórðarson hvítaskáld.
70 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánudag-
inn 12. febrúar, verður sjö-
tugur Gunnar Sæmunds-
son, hæstaréttarlögmaður,
Ljósheimum 10, Reykjavík.
Gunnar verður að heiman á
afmælisdaginn.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman í hjónaband 19. janú-
ar sl. í Brisbane í Ástralíu
Þorvaldur Bragason og
Narelle Hallgath. Heimili
þeirra verður í Alice Springs
í Ástralíu.
lenda í öðru sæti. Hann
stýrði svörtu mönnunum í
stöðunni gegn hollenska
ungmenninu Dennis De
Vreugt (2.452). 26. ... Bxc5!
og hvítur gafst
upp enda verður
hann mát eftir 27.
Dxc5 Dxb2#.
Skákin tefldist
svona í heild sinni:
1. e4 e6 2. d4 d5 3.
Rc3 Rf6 4. Bg5
dxe4 5. Rxe4 Be7
6. Bxf6 gxf6 7. c4
f5 8. Rc3 Bf6 9.
Rge2 Rc6 10. d5
Re5 11. f4 Rg6 12.
g3 O-O 13. Dd2 c6
14. d6 b5 15. c5 b4
16. Rd1 e5 17.
Dxb4 exf4 18. gxf4
He8 19. Rdc3 Ba6
20. Kd2 Hb8 21. Da3 Bxe2
22. Bxe2 Bd4 23. Bc4 Dh4
24. Haf1 Dh3 25. Kc2 Dg2+
26. Kb1.
Einvígið sem sker úr um
hver verður Atskákmeistari
Íslands 2001 fer fram í dag í
sjónvarpssal Ríkissjón-
varpsins.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
STAÐAN kom upp í B-
flokki skákhátíðarinnar í
Wijk aan Zee. Teymour
Radjabov (2.483) frá
Aserbaídsjan þykir efni í
framtíðar heimsmeistara.
Þessi þrettán ára alþjóðlegi
meistari fékk stórmeistara-
áfanga í mótinu ásamt því að
HÉR er enn eitt spilið úr
bók Kantars, Advanced
Bridge Defense; sannkölluð
perla og í þessu tilfelli vörn
sem byggist á hreinni rök-
hugsun án nokkurrar að-
stoðar frá makker. Þú ert í
austur:
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♠ KG1052
♥ Á6
♦ 87532
♣ 7
Austur
♠ 863
♥ DG10
♦ ÁK109
♣ Á83
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 grand *
Pass 2 hjörtu ** Pass 2 spaðar
Pass 3 tíglar Pass 3 spaðar
Pass Pass Pass
* 15-17 HP.
** Yfirfærsla í spaða.
Makker kemur út með
laufdrottningu og þú tekur
fyrsta slaginn með ásnum.
Hvernig viltu verjast?
Ætli 90% spilara myndu
ekki a.m.k. lyfta öðrum tíg-
ulhákarlinum í næsta slag og
sjá hvað setur? Og væntan-
lega halda áfram með tígul
og reyna að byggja upp
trompslag hjá makker, því
það er vitað að tígullinn er
2-2 hjá suðri og vestri (Suður
opnaði á grandi, svo ekki á
hann einspil, og makker kom
EKKI út með tígul og á því
heldur ekki einspil). En
þetta er letileg vörn. Teljum
punkta. Þú átt 14 og blindum
eru 8. Suður á ekki minna en
15. Samtals gerir þetta 37 og
makker kom út með laufd-
rottningu, sem lofar gosa.
Þar á hann því þá 3 punkta
sem eftir eru. Með öðrum
orðum – spaði makkers er of
veikur til að ráða við ÁD suð-
urs og sagnhafi mun þakka
kærlega fyrir að fá tækifæri
til að trompa sem flesta tígla
á þrílitinn sinn heima:
Norður
♠ KG1052
♥ Á6
♦ 87532
♣ 7
Vestur Austur
♠ 94 ♠ 863
♥ 9752 ♥ DG10
♦ 64 ♦ ÁK109
♣ DG1042 ♣ Á83
Suður
♠ ÁD7
♥ K843
♦ DG
♣ K965
Að þessu mæltu blasir
vörnin við: þú trompar út.
Og aftur og aftur. Á endan-
um þýðir það (úr því að
makker á hjartaníuna
fjórðu) að þú færð fjóra slagi
á tígul.
Við kveðjum nú Kantar í
bili, en það er óhætt að mæla
með bókinni, hún er vel upp
sett, skýr og skemmtileg.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert þrautseigur og gefst
ekki upp fyrr en í fulla hnef-
ana. Ævintýraþrá þín leiðir
þig stundum í ógöngur.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þér sækist einkar létt að klára
eitt verkefni og hefjast handa
við annað. Njóttu velgengn-
innar og mundu eftir þeim
sem leggja hönd á plóginn
með þér.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Hugaðu að þeirri mynd sem
aðrir fá af þér. Þótt ekki sé um
nein stórkostleg vandamál að
ræða, eru hlutirnir ekki eins
og best verður á kosið.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú þarft á allri þinni einbeit-
ingu að halda og mátt því ekki
láta hugann reika um of. En
þegar verkefnið er að baki er í
góðu lagi að láta sig dreyma.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú þarft að breyta vinnulagi
þínu til að koma til móts við
auknar kröfur. Skeyttu ekki
skapi þínu á saklausum sam-
starfsmönnum, heldur taktu
þessu vel.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Tækifærin leynast víða; það
er bara að gefa sér tíma til
þess að líta vandlega í kring
um sig. Framundan er góðu
tími vináttu og gamans.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Kannaðu vel alla málavexti
áður en þú afræður að veðja á
einhvern einn möguleika. Í
fjármálum er best að dreifa
áhættunni sem allra, allra
mest.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Að réttu lagi getur þú haft
gríðarleg áhrif á það, hvernig
starfsumhverfi þínu verður
breytt. Sýndu sveigjanleika
gagnvart nýrri tækni.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Haltu þig í hópi vina og vanda-
manna. Þar nýturðu besta
skjólsins og mesta öryggisins.
Gættu þess vandlega að rugla
ekki saman þrá og þörf.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú þarft ekki að breyta svo
miklu til þess að ná athygli
fólks. Og þegar það hefur tek-
ist skaltu nota sviðsljósið til
þess að þoka þér áleiðis.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Gleymdu ekki þeim greiðum,
sem vinir og vandamenn hafa
gert þér, heldur vertu
reiðubúinn til hins sama, ef
eftir er leitað. Góður vinur er
gulli betri.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Áður en þú veist af ertu kom-
inn út í umræður um alheim-
inn og tilgang lífsins. Talaðu
hreint út en gættu þess að
misbjóða ekki öðrum með
orðavali.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Finnist þér þú ekki sitja inni
með nægar upplýsingar í
ákveðnum málum, skaltu gefa
þér tíma til þess að sækja þær
áður en þú tekur afstöðu.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Allir pokarnir voru búnir.
Þetta er í
síðasta
skiptið sem
ég fer með
þér í útilegu.