Morgunblaðið - 11.02.2001, Síða 53

Morgunblaðið - 11.02.2001, Síða 53
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2001 53 Ármúla 21, sími 533 2020 Fagmennirnir þekkja Müpro Rörafestingar og upphengi Allar stærðir og gerðir rörafestinga og upphengja HEILSALA - SMÁSALA Í TILEFNI af 50 ára afmæli Krabbameinsfélags Íslands efn- ir félagið til ráðstefnu um krabbamein og vinnandi fólk. Ráðstefnan verður haldin mið- vikudaginn 14. febrúar í Salnum í Kópavogi og hefst kl. 13. Markmið hennar er að vekja at- hygli á þeim vanda sem skapast og þeim úrræðum sem þurfa að vera til staðar þegar starfsmað- ur greinist með krabbamein. Rætt verður um viðbrögð stjórnenda og vinnufélaga, um veikindarétt, endurhæfingu og starfsmannastefnu. Ráðstefnan hefst með ávarpi Vigdísar Finnbogadóttur, fyrr- verandi forseta Íslands, sem er ráðstefnustjóri, en hún er verndari Krabbameinsfélags Íslands. Þá mun Laufey Tryggvadóttir, faraldsfræðing- ur hjá Krabbameinsfélaginu, fjalla um batnandi lífshorfur krabbameinssjúklinga og Einar Arnalds rithöfundur segja frá eigin reynslu af krabbameini. Kristinn Tómasson, yfirlæknir hjá Vinnueftirliti ríkisins, lýsir aðstæðum starfsfólks sem fær krabbamein. Ari Skúlason, framkvæmdastjóri ASÍ, mun fjalla um veikindarétt starfs- fólks og hvað tekur við er hon- um sleppir. Sjónarhóll stjórn- anda og áhrif á starfsemi fyrirtækisins verður umfjöllun- arefni Hjördísar Ásberg, starfs- mannastjóra Eimskips, og Jón Aðalbjörn Jónsson, verkefnis- stjóri áfallahjálparteymis Skref fyrir skref, ræðir um stuðning við samstarfsfólk. Þá mun Vilm- ar Pétursson, félagsráðgjafi hjá IMG, velta þeirri spurningu upp hvort hægt sé að staðla um- hyggju. Jónas Ingimundarson sér um tónlistarflutning. Að ráðstefnunni standa auk Krabbameinsfélagsins, ASÍ, BSRB, Landssamtök lífeyris- sjóða, Samtök atvinnulífsins, Tryggingastofnun ríkisins og Vinnueftirlit ríkisins. Ráðstefnan hefst kl. 13 og lýkur kl. 16.30. Aðgangur er ókeypis en tilkynna þarf þátt- töku á vefsvæðinu www.krabb.is/radstefna/skran- ing.htm fyrir 13. febrúar. Ráðstefna um krabba- mein og vinnandi fólk ÞAÐ er búið að vera einstakt veðurþað sem af er þorra víðast hvar á Suðurlandi eins og kannski um landið allt og hafa menn og dýr not- ið þess. Vanda litla sem er silki terrier- hundur naut þess til fullnustu þeg- ar hún fékk að fara í göngutúr með fréttaritara Morgunblaðsins og sitja fyrir sem ljósmyndafyrirsæta þegar hann rakst á þessa klaka- skreytingu. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Vanda nýtur sín í sólbaði Fagradal. Morgunblaðið. STYRKUR verður með opið húsi Krabbameinsfélaganna í Skógarhlíð 8 í Reykjavík næst- komandi þriðjudag, 13. febrú- ar, kl. 20.30. Snorri Ingimarsson, fram- kvæmdastjóri lækningasviðs hjá Urði Verðandi Skuld, kynn- ir Íslenska krabbameinsverk- efnið sem fór af stað fyrir nokkru. Allir velunnarar félagsins eru velkomnir. Opið hús hjá Styrk

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.