Morgunblaðið - 11.02.2001, Page 56

Morgunblaðið - 11.02.2001, Page 56
FÓLK Í FRÉTTUM 56 SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hvað sem það kostar (Whatever it Takes) U n g l i n g a m y n d Leikstjóri David Raynr. Handrit Mark Schwahn. Aðalhlutverk Shane West, Marla Sokoloff. 94 mín., Bandaríkin 2000. Skífan. Öll- um leyfð. UNGLINGAMYNDIR hafa ald- eilis komist aftur í tísku í kjölfar vin- sælda American Pie og Ten Things I Hate About You. Þessi sver sig fremur í ætt við þá síðarnefndu, kannski vegna þess að húmorinn er fremur saklaus og svo er hér á ferð enn ein myndin þar sem rómantíkin byggir á minnum úr sígildum bókmenntum. Hér er það margnotuð flétta úr Cyrano De Bergerac sem sviðsett er í banda- rískum menntaskóla og útkoman er alveg þokkalega viðunandi – þ.e.a.s. ef maður setur sig ekki í allt of alvar- legar stellingar. Vissulega eru klisj- urnar vaðandi eins og venjulega og yfirborðsmennskan keyrir um þver- bak þannig að maður trúir því ekki eina einustu sekúndu að svona sé líf bandarískrar æsku. En afþreyingar- gildið er ríflegt og léttleikandi og grípandi söguþráðurinn heldur manni við efnið. Skarphéðinn Guðmundsson MYNDBÖND Strákar eru í stelpuleit og stelpur eru í strákaleik FLESTIR kannast viðDaniel Karl Cassidy, fiðl-arann snjalla í hljómsveit-inni Papar. „Ég er að- allega þekktur sem maðurinn sem spilar „Devil Went Down To Ge- orgia,“ segir Dan og brosir þegar hann útskýrir að hann sé ansi oft beðinn að leika það lag. En Dan er ekki við eina fjölina felldur í tónlistarmálum og er að spila með tveimur mjög ólíkum hljómsveitum í kvöld. Í kvöld kl. 20 hefjast í Kaffileik- húsinu tónleikar með hljómsveit- inni Alba sem leikur keltneska tón- list. Þar spilar Dan reyndar á gítar, því Wilma Young frá Hjalt- landseyjum leikur á fiðlu með bandinu. Söngkonan Tena Palmer leikur á tinflautu, Eggert Pálsson á bódran og flautu og þau syngja öll. „Lögin eru bæði skosk og írsk og eru öll keltnesk þjóðlög, allt að tvö hundruð ára gömul. Útsetningar okkar á lögunum eru nokkuð nú- tímalegar en við notum hvorki raf- magnsbassa né trommur, þannig að andi laganna er býsna uppruna- legur. Auk þess sem Tena, sem er frá Nova Scotia í Kanada, kann nokkuð fyrir sér í geilísku. Alba hefur þegar æft í tvö ár og spilað á krám af og til en þetta eru fyrstu stóru tónleikarnir okkar, þar sem fólk situr og hlustar, þannig að við erum mjög spennt.“ – Ertu ekki líka að leika kelt- neska tónlist með Pöpunum? „Jú, en Paparnir eru stuðhljóm- sveit sem virkar best á böllum, þar sem tónlistin eru keltneskir jigs og rælar. Alba leikur ekki danstónlist. Þetta eru meira ballöður, falleg og vönduð þjóðlagatónlist, öll óraf- mögnuð.“ Ekta banda- rísk tónlist Og seinna í kvöld og einnig ann- að kvöld hefjast tónleikar kl. 22.30 á Gauki á Stöng með sveitinni Gras sem leikur bandaríska þjóðlagatón- list, „sem er hægt að segja að sé blanda af „bluegrass“og órafmagn- aðri kántrítónlist, og lögin eru bæði gömul og ný,“ segir Dan sem leikur á fiðluna í Gras. Tena Palm- er sér um sönginn, Magnús Ein- arsson leikur á mandolín og gítar, Gummi Pé á gítar og Jón Skuggi plokkar kontrabassann. „„Bluegrass“ er innblásin af blu- es og þjóðlagatónlist frá Bretlands- eyjum, og verður Appalachian-tón- list, nefnd eftir fjallagarði sem nær frá Maine og alla leið niður til Ge- orgíu. Þetta er ekta bandarísk tón- list með fiðlu og mandolíni sem fær fólk til að slá taktinn með fætinum. Íslendingar þekkja lagið „Kærast- an kemur til mín“ sem er ekta „bluegrass“-lag. Tólf ára atvinnumaður Og það er ekki af neinni tilviljun að Dan leikur „bluegrass“ en hann er alinn upp í Maryland-fylki, ekki langt frá Washington D.C. „Það kemur mörgum á óvart að þessi rótartónlist skuli vera vinsæl í Maryland en það er við hliðina á Virginia, sem hefur haft mikil áhrif. Ég ólst upp á sjöunda áratugn- um sem var uppgöngutími fyrir þessa þjóðlagatónlist. Það voru áhrif frá hippatímanum um að vilja leita upprunans auk þess sem for- seti Bandaríkjanna var Jimmy Carter, fyrrverandi hnetubóndi frá Georgíu. Annars er pabbi minn tónlist- armaður og þegar ég var tíu ára kenndi hann mér og systur minni heitinni að leika tónlist. Eva lærði á gítar og að syngja og ég að spila á fiðlu. Við æfðum svo mikið saman að 12 og 13 ára fengum við borgað fyrir að koma fram, sem var góð reynsla. Ég lærði aðallega að spila eftir eyranu en var í fiðlutímum í sex vikur til að byrja með. Það er eina leiðsögnin sem ég hef fengið, fyrir utan nokkra tíma í klassískum fiðluleik hjá Sigrúnu Eðvaldsdóttur til að laga tæknina hjá mér.“ Dan útskýrir að í rauninni sé um tvenns konar hljóðfæraleik að ræða. Þegar „bluegrass“ eða kelt- nesk tónlist sé leikin er spilað á „fiddle“og er maður þá fiðlari upp á íslenskuna en í djass eða klass- ískri tónlist sé hljóðfærið kallað „violin“ og á hana leikur fiðluleik- ari. Meiri persónuleg túlkun „Að leika á „fiddle“ er mun ein- faldara en að leika á „violin“. Það þarf mun minni tækni, þetta eru grunngrip og hljómar og mjög aug- ljós hefðbundinn danstaktur. Fiðl- arinn lærir með því að hlusta og af tilfinningu. Hins vegar er fiðluleik- arinn mun nákvæmari á allan hátt, því honum er bannað að sleppa úr minnstu nótu sem skrifuð er. Fiðl- aranum leyfist meiri persónuleg túlkun.“ En Dan hefur einnig leikið á „vi- olin“ því í gagnfræða- og mennta- skóla var hann í skólahljómsveit, „bluegrass“-bandi, framsækinni rokksveit, auk þess að vera með sitt eigið djasstríó. „Þá ákvað ég að gera fiðluleik að lifibrauði mínu, ekkert annað kæmi til greina,“ segir Dan sem hefur látið þann draum rætast. Ævintýraþráin rak hann til Þýskalands og síðar Stóra-Bret- lands en þar kynntist hann kelt- neskri tónlist mun betur en áður. Etir að hafa millilent á Íslandi sem drengur, heillaðist Dan æ síðan af þessari litlu eyju, sem varð til þess að hann endaði hjá okkur á Íslandi, þar sem hann hefur nú búið í næst- um níu ár samtals og aldrei vantað vinnu, unnið með ótal tónlistar- mönnum og leggur metnað sinn í að vera fjölhæfur og góður leigu- spilari. „Mér finnst mjög gaman að kenna og langar að gera meira af því, sérstaklega eftir að ég fæ leiða á því að spila á reykmettuðum stöðum.“ Það er byrjað að kenna á „fiddle“ í virtum tónlistarháskólum erlendis og áhuginn er að vaxa hér á Íslandi líka. Dan er einn af þeim fyrstu til að kenna spuna á fiðlu hér á landi. „Ég legg metnað minn í að ná til almennings með fiðluleik mínumog mér finnst ég heppinn að hafa tek- ist það með Pöpunum og öðrum sveitum sem ég hef spilað með hér á Íslandi,“ segir Dan sem svo sann- arlega hefur glatt mörg tónglöð hjörtu landans með snilldarlegum fiðluleik sínum í gegnum árin. Hann heldur því áfram í kvöld og á morgun, og áreiðanlega mikið leng- ur en það. Spilað eftir eyranu Morgunblaðið/Árni Sæberg Daniel Karl vill vinna með enn fleiri íslenskum tónlistarmönnum. Hljómsveitirnar Alba og Gras með tónleika í kvöld Þau eru taktföst, amerísk, kelt- nesk, falleg, hvaðanæva og alls konar þjóðlögin sem Dan Cass- idy leikur fyrir landann um helgina. Hildur Loftsdóttir komast að ýmsu um fiðlarann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.