Morgunblaðið - 11.02.2001, Blaðsíða 58
ÞRJÁR íslenskar myndirvoru sýndar á hátíðinni aðþessu sinni. Íslenskidraumurinn, 101 Reykja-
vík og Fíaskó. Sú fyrstnefnda var
með í keppninni um titilinn besta
norræna myndin og 101 var ein af
opnunarmyndunum. Fíaskó var síð-
an sýnd síðustu daga hátíðarinnar að
höfundinum og leikstjóranum Ragn-
ari Bragasyni viðstöddum. Sýningin
var vel sótt og kvaðst hann ánægður
með móttökurnar enda eitt af því
góða við Gautaborgarhátíðina að hún
er opin almenningi.
Markaðstorg nýrra norrænna
mynda Nordic Event, er hinsvegar
lokað almenningi, en það var haldið
fjóra síðustu daga hátíðarinnar og
lokkaði gesti í verslunarhugleið-
ingum víða að.
Lokamynd hátíðarinnar var Så vit
som en snö eftir Jan Troell, (f.1931)
en hann var jafnframt heiðursgestur
hátíðarinnar í ár. Um er að ræða
fyrstu mynd Troells síðan hann gerði
Hamsun-myndina árið 1996 og fjallar
hún um flugkonuna Elsa Andersson,
bóndadóttur frá Skáni sem lauk flug-
stjóraprófi árið 1919, fyrst sænskra
kvenna. Myndin byggist á blöndu af
heimildum og hugmyndaflugi höf-
undarins. Við hátíðarsýningu laug-
ardagsins fóru ýmsar verðlaunaaf-
hendingar fram og þar var Troell
gert að taka á móti Sven Nykvist
Award, en Jan Troell er þekktur fyr-
ir að bæði kvikmynda og klippa sínar
myndir sjálfur.
Söngelskir sjóarar
Hápunkturinn í fjölmennu lokahófi
var verðlaunaafhendingin og sér í
lagi norrænu kvikmyndaverðlaunin
sem var úthlutað í þrettánda sinn.
Átta norrænar myndir kepptu um
þrenn verðlaun, fyrir bestu norrænu
myndina, bestu myndatöku og besta
handrit. Stærstu verðlaunin, 100 þús-
und sænskar krónur og gripinn kvik-
myndarefinn, fyrir bestu norrænu
myndina hlaut norski leikstjórinn
Knut Erik Jensen og mynd hans
Heftig og Begeistret (Cool and
Crazy, Norsk Film AS, 2001). Fer
þar heimildarmynd um sjóara á norð-
urhjara sem syngja í kór, Karlakórn-
um í Berlevåg. Verðlaunin voru veitt
fyrir „frásögn af fólki sem lýst er með
virðingu og skopskyni, í orði, tónlist
og tjáningarríku myndmáli sem gef-
ur jafnvel hjarninu líf og hlýju.“
Þannig hljóðaði umsögn dómnefndar
en hana skipuðu vel þekktir norrænir
kvikmyndaleikstjórar: finnski Auli
Mantila, Berit Nesheim frá Noregi,
danska Susanne Bier og sænska Ella
Lemhagen, ásamt Monika Tunbäck-
Hanson menningarfulltrúa Gauta-
borgar-Póstsins.
Norski sigurvegarinn Knut Erik
Jensen (f. 1940) er menntaður við
London International Film School og
hefur gert röð af heimildarmyndum
fyrir sjónvarp og þrjár bíómyndir.
Myndmál hans þykir mörgum ein-
kennast af ljóðrænu og afar persónu-
legri dýpt. Leikna bíómynd hans Når
mörkret er forbi, (Barentsfilm AS,
2000) var einnig sýnd á hátíðinni.
Jensen hefur áður vakið athygli á
Gautaborgarhátíðinnni. Árið 1998
var mynd hans Brent av Frost valin
vígslumynd og djarft myndmál hans
ýmist fældi eða heillaði. Á sviðinu í ár
var það vel sjóaður húmoristi sem
þakkaði fyrir sig og fullyrti að þegar
hann frétti að í dómnefndinni væru
fyrst og fremst konur, hefði hann í
einum grænum ákveðið að gera
karlakórsmynd.
Þá hlutu Eric Kress og danska
myndin Blinkende Lykter (eftir And-
ers Thomas Jensen), verðlaun fyrir
bestu myndatöku og fyrir besta
handrit hlaut Malin Lagerlöf verð-
laun, en hún er handritshöfundur
sænsku myndarinnar Hans og Henn-
es. Í fjarveru hennar tók eiginmað-
urinn Daniel Lind Lagerlöf, leikstjóri
myndarinnar, á móti verðlaununum
og þar sem Canal Plus styrkir hand-
ritsverðlaunin notaði hann tækifærið
að tilkynna þá sérstöku og sér-
kennilegu ánægju að taka á móti
verðlaunum frá Canal plus, því þau
hefðu einmitt sent fjölmiðlarisanum
þetta handrit fyrir löngu en aldrei
fengið svar!
Freistandi er að ímynda sér að
Fyra porträtt: kvinnor, mynd hins
Los Angeles-menntaða Uganda-Svía,
Baker Karim, sem er einn af þrem
Karim-bræðrum búsettum á Skáni
að fást við kvikmyndir, hefði hreppt
áhorfendaverðlaun væru þau í boði,
en þau verðlaun hafa ekki verið veitt
nú um árabil í tengslum við norrænu
keppnina. Fagnaðarlæti bæði yngri
og eldri áhorfenda eftir frumsýningu
föstudaginn 2. febrúar mátti heyra
líkt við annan hápunkt hátíðarinnar:
endurkomu danska leikstjórans Bille
August með A song for Martin (Sví-
þjóð, 2001). Eftir miðlungsvel heppn-
aðar myndir fyrir bandarískan mark-
að, stóðu flestir upp fyrir hinni nýju
mynd hans í innilegum fögnuði á
frumsýningu hátíðarinnar.
Hinsvegar var áhorfendum boðið
að kjósa bestu sænsku myndina árið
2000 af þeim þrem sem tilnefndar
voru til gullbagga, og þar reyndist
Jalla! Jalla! (Memfis Film, 2000) eiga
mestum vinsældum að fagna og hinn
ungi Josef Fares varð einn af verð-
launahöfum lokahófsins. Josef, sem
verður 24 ára á þessu ári (fæddur í
Líbanon 1977), hóf leikstjórnarnám
við Dramatiska Instituet árið 1998,
en á ferilsskrá hans má finna stutt-
myndir allt frá árinu 1995 ásamt
myndinni Coola Killar (Memfis Film
1999).
Mynd Roy Anderssons, Sånger
från andra våningen, hlaut aftur á
móti gagnrýnendaverðlaunin sem af-
hent voru á hátíðinni um helgina en
sú fékk fern gullverðlaun í Stokk-
hólmi á mánudagskvöldið (besta
handrit, besta leikstjórn, besta
myndataka og besta myndin 2000),
en þriðja tilnefnda „besta myndin“
var Vinger af glas eftir Reza Bagher,
sem færði leikkonunni Sara Somer-
feld tilnefningu sem besta leikkona í
aðalhlutverki og leikaranum Said
Ovessi verðlaunin fyrir besta leik í
aukahlutverki karla.
Gott sænskt bíóár
Þegar kvikmyndagagnrýnandinn
(og Íslandsvinurinn) Jannike Åhlund
var beðin að spá fyrir sænska kvik-
myndaárinu 2001, þá spáði hún góðu
og nefndi nokkrar myndir sem vöktu
athygli hennar á hátíðinni. Meðal
þeirra voru hin nýja mynd Troells, en
einnig myndin Hem ljuva hem (Sonet
film 2001) eftir Dan Ying. Fjöl-
skyldudrama þar sem ofbeldi heim-
ilisföðurins ræður ríkjum lengi vel.
Þétt og vel leikin saga eftir fyrrver-
andi áhættuleikarann Dan Ying (m.a.
í Ronja Ræningjadóttir), sem einnig
hefur unnið sem aðstoðarleikstjóri og
handritshöfundur fyrir leikhús.
Norsk heimild-
armynd valin
besta myndin
Vel heppnaðri kvikmyndahátíðinni í
Gautaborg lauk á sunnudaginn var.
Kristín Bjarnadóttir fylgdist með gangi
mála og reifar hvernig til tókst.
Kvikmyndahátíðinni í Gautaborg er lokið
Karim bræður eru allir menntaðir í Kaliforníu og hafa nú
stofnað félag óháðra kvikmyndagerðarmanna á Skáni.
Baker Karim, höfundur og leikstjóri hinnar vinsælu keppnis-
myndar Fyra porträtt: kvinnor, ásamt aðalleikkonunum fjórum.
Ljósmynd/Kristín
Jan Troell að lokinni frumsýningu myndar
sinnar ásamt eiginkonunni Agnetu.
Dan Ying höfundur mynd-
arinnar Hem ljuva Hem,
sem var í keppninni.
FÓLK Í FRÉTTUM
58 SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Síðasti sjens
(3 Strikes)
G a m a n m y n d
Leikstjórn og handrit: D.J. Pooh.
Aðalhlutverk: Brian Hooks,
N’Bushe Wright. (90 mín) Banda-
ríkin, 2000. Myndform. Bönnuð inn-
an 16 ára.
SÚ AMERÍSKA regla að við þriðja
brot eigi fyrrverandi fangar á hættu
að sitja inni ævilangt liggur þessari
gamanmynd til
grundvallar. Rob
Douglas er ungur
blökkumaður sem
tvisvar hefur kom-
ist í kast við lögin og
nú þegar hann er
nýkominn út á hann
sér þá ósk heitasta
að gerast löghlýð-
inn borgari. Honum
verður þó ekki að ósk sinni, heldur
lendir ásamt félaga sínum í skotbar-
daga við lögregluna og þótt hann beri
enga ábyrgð á því sjálfur er hann orð-
inn frægasti sakamaður Los Angeles-
borgar. Þetta er hans síðasti séns, ef
hann verður handtekinn í þriðja sinn
fer hann í ævilangt fangelsi og beitir
því öllum brögðum til að sýna fram á
sakleysi sitt. Óhætt er að segja að efn-
ið bjóði upp á þjóðfélagslega satíru
sem ríkt erindi á við Bandaríki nú-
tímans en öllum slíkum möguleikum
er kastað fyrir róða og í staðinn er
myndin uppfull af fimmaurabröndur-
um. Í rauninni liggur leiðin niður á við
frá fyrstu mínútu, söguþráðurinn
verður sífellt fjarstæðukenndari og
brandararnir langsóttari. Þessi mynd
er síðasta sort.
Heiða Jóhannsdótt ir
MYNDBÖND
Allt er þá
þrennt er
Bólfesta
(They Nest)
H r o l l v e k j a
Leikstjóri Ellory Elkayem. Handrit
John Claflin, Daniel Zelman. Aðal-
hlutverk Thomas Calabro, Dean
Stockwell. 92 mín, Bandaríkin
2000. Háskólabíó. Bönnuð innan 16
ára.
ÞAU ERU fá dýrin sem fara eins í
hinar fínustu á mannfólkinu og
kakkalakkarnir. Sama hvað reynt er,
sama hversu mörg-
um er byrlað
ólyfjan eða flattir
út með skósólan-
um, alltaf skjóta
þeir upp „kollin-
um“ aftur og fjölga
sér hraðar en Kín-
verjar.
Bólfesta gerir
miskunnarlaust út
á þessa viðkvæmni okkar gagnvart
þessum litla iðandi skaðvaldi og áður
en lengra er haldið skal tekið skýrt
fram að hér er á ferð alveg rakin B-
mynd, gerð fyrir sjónvarp. Oft kann
það að vera fráhrindandi sem mest
getur orðið en ekki í þessu tilfelli því
myndin er alveg yndislega léleg.
Sjaldgæft afbrigði kálandi kakka-
lakka dúkkar upp á lítilli fámennri
eyju þangað sem læknir nokkuð er
nýkominn til þess að eiga náðuga
daga og safna kröftum. En þess í
stað þarf hann að berjast við þessa
kakkalakkaplágu sem hægt og bít-
andi fellir íbúa eyjarinnar. En eins
og í öllum „góðum“ hrollvekjum
kaupir það enginn nema aðkomu-
maðurinn snjalli og hugaði. Ekki nóg
með að sagan sé della hedur leikur
gamli læknadelinn Mancini úr Mel-
rose Place aðalhlutverkið. Er hægt
að biðja um það „betra“.
Skarphéðinn Guðmundsson
Kálandi
kakkalakkar