Vísir - 06.06.1979, Side 16
16
Sex Þursar I sólskinsskapi, t.f.v. Karl Sighvatsson, Ásgeir Óskarsson, Egill ólafs-
son, Lárus Grímsson, Tómas Tómasson og Þóröur Árnason. Mynd: Pétur Maack.
Ljósin i bænum.
RISAHUÖMLEIKAR I HÖLLINNI
Þriójudagskvöldiö 12. júni nk.
veröa haldnir rokktónleikar I
Laugardalshöil þar sem fram
munu koma tvær af merkustu
rokkhl jómsv eitum okkar,
Þursaflokkurinn og Ljósin i
bænum. Þriöja númeriö veröur
svo Magnús og Jóhann, en þeir
hafa nú aö einhverju leyti tekiö
aftur upp þráöinn þar sem frá
var horfiö fyrir mörgum árum.
Kynnir á tónleikunum veröur
Helgi Pétursson og er ekki ó-
sennilegt aö hann bregöi á leik
og syngi eitt eöa tvö lög af nýju
plötunni sinni, ,, ti I þess aö
draga standardinn niöur”, eins
og hann komst sjálfur aö oröi á
blaöama nna fundi.
Rokktónleikar af þessum
styrkleikaflokki hafa ekki veriö
haldnir hér i háa herrans tiö og
ekki spillir fyrir að báöar
hljómsveitirnar senda frá sér
nýjar plötur fyrri hluta júni-
mánaðar. Plata Ljósanna i bæn-
um mun koma I verslanir, að
sögn Steinars Berg hjá Steinum
hf., sama dag og hljómleikarnir
eöa þannnæsta. Plata Þursanna
er væntanleg fyrstu vikuna i
júni, aö sögn Egils Ólafssonar
yfirþursa.
Forráöamenn hljómleika-
haldsins ætla aö reyna eftir
fremsta megni aö halda miöa-
veröi i lágmarki. Hefur vériö
skotiö á 3.500-4.000 kr. á miðann
og er þaö nokkuð ódýrara ai á
venjulegt islenskt sveitaball.
Þarf ekki aö draga fjööur yfir
þaö, aö þaö þarf góöa mætingu
til þess aö fyrirtækiö standi und-
ir sér.
I kjölfar þessara hljómleika
munu Ljósin i bænum og Magn-
ús og Jóhann gera víðreist um
byggöir landsins og mun Helgi
Pétursson veröa sérstakur gest-
ur i þeirri ferö. Þursaflokkurinn
sækir hins vegar, aö loknum
hljómleikunum, á erlend mið og
mun ætlun Þursa aö leika viöa á
Noröurlöndunum, en hafa ein-
hvers konar bækistöö i Kaup-
mannahöfn.
Nýr liðsmaður Þursaflokksins
veröur kynntur á tónleikunum i
Laugardalshöll, Lárus Grims-
son hljómboðsleikari, áöur I Eik
og Þokkabót. Mun hann koma i
stað Karls Sighvatssonar i
Norðurlandaferðinni, en i Laug-
ardalshöllinni ætla þeir báöir aö
mæta „spikfeitir og almennileg-
ir” eins og konan sagöi.
Fyrir utan allt þaö merkilega
sem hér hefur verið nefnt að
framan, er einu viö aö bæta,
Fálkinn hf. og Steinar hf. vinna
saman aö þessum hljómleikum
en þessi tvö stærstu hljómplötu-
fyrirtæki landsins hafa ekki lagt
,,kinn viö kinn” um árabil.
Núna er ætlunin að sliöra vopnin
og er vonandi aðþaö megi veröa
til einhverrar frambúðar svo
leiöinlegan blett sem rigur
þeirrahefur sett á allt það sem
snýr að plötumarkaöinum.
—Gs al
HAMARK
HRYLL-
INGSINS?
„DAWN OF THE DEAD”
Handrit og leikstjórn George A.
Romero.
L'ramleidd a f Richard P. Rubin-
stein.
Aöalhlutverk: David Emege,
Ken Foree, Scott H. Reingier,
Gaylen Ross.
30/5 San Jose California.
Allt nær hámarki, ákveöin
tiskatil dæmis. Hér I USA hefur
ákveðin ti'ska i gerö kvikmynda
náö hámarki meö myndinni
„DAWN OF THE DEAD”.
Þessa tisku má einkenna með
oröinu „hryllingur”.
Myndir, sem einkennast af ó-
hugnaöi og viöbjóöi, hafa lengi
fylgt HoUywood en þessi fer
fram úr flestu sem undirritaður
hefur séö. í stuttu máli fjallar
myndin um endurkomu dauðra.
Þeir risa úr þægilegum gröfum
og taka aö þvælast um á meðal
AÐ OFBJOBA FÍNU TAUGUNUM
hinna lifandi. Leggjast á likama
þeirra sem þeir mæta og éta.
Tveir landgönguliðar, þyrlu-
flugmaöur og kona hans eru á
flótta undan herskörum hinna
dauðu sem vegna plássleysis i
helviti æða um jöröina. Þessi
fjögur komast á þyrlu yfir i
mikið og veglegt verslunarset-
ur. Þar tekst þeim aö eyöa hin-
um dauöu sem fyrir eru og
hreiðra um sig mitt i allsnægt-
unum.
Er alveg kostulegt aö sjá
þetta fullorðana fólk breytast i
litla krakka er það kemst I tæri
viö allsnægir stórverslunarinn-
ar. Manni dettur i hug, aö mun-
urinn á hinum fullorðnu og
börnunum sé kannski ekki svo
mikill. Báöa hópana dreymir
um aðgang aö allsnægtunum.
Mvndin vekur upp fleiri
spurningar. Hvort fólkiö i þessu
yfirfljótandi allsnægtalandi
sé ekki oröiö andlega dautt.
Hvort allur þessi tilreiddi mun-
aður drepi ekki manneskjuna,
geri hana að vélrænu sigráðugu
fyrirbrigöi, sem lætur algerlega
stjórnast af sefjandi auglýs-
ingaflóöi sem helst i hendur við
vandlega skipulagt framboö.
Dauða fólkiö i myndinni var
ekki svo mjög frábrugöið þvi
samsafni sem maður sér dag-
kvlkmyndir
Ólafur M. Jó-
hannesson
skrifar frá
S a n J o s e ,
Kaliforniu.
lega velta innum sjálfvirkar dyr
stórmarkaðanna. Augun rauöaf
sjónvarpsglápi miðjan fram-
stæð af bjórþambi.
önnur spurning sem myndin
vakti var: Hvernig liður manni
mitt i paradis sem ekki má
snerta á neinu? Stórmarkaður-
inn i myndinni var sem litill
þverskuröur af paradis. Þar
var allt sem einstaklinginn
dreymir um ogumbúöirnar hin-
ar girnilegustu. En þeir dauðu
voru of sljóir til aö snerta á
neinu, rétt eins og hinn almenni
maður sem i gegnum refsikerfi
uppeldisins lærir að koma ekki
viö neitt sem einhver annar
„á”. Manni varð betur ljóst hve
hlutskipti almúgamannsins i
allsnægtaþjóðfélaginu er ömur-
legt er þeir einstaklingar i
myndinni sem voru „lifandi”
náöu stórmarkaönum á sitt vald
og tóku að gæða sér á gersem-
unum. Almúgamaöurinn veröur
að láta sér nægja aö mestu að
hnusa af réttunum. „Hinir” sem
„eiga” þá lúta ööru kerfi.
Aö fráslepptum sundurskotn-
um likömum, áköfu mannáti og
ööru i svipuöum dúr, var þessi
mynd alls ekki svo hryllileg.
Hún gerir einfaldlega grin að
allsnægtaþjóðfélagi sem senn
hefur náö hámarki.
Handunnin
fegurðli
Aldraö fólk i Bústaöasókn hefur
I vetur komiö saman vikulega og
þá meöal annars unniö viö handa-
vinnu undir leiðsögn kennara.
Fyrir skömmu var haldin i safn-
aöarheimilinu sýning á afrakstr-
inum og kenndi þar margra
grasa.
Bústaðasókn hefur nú um
þriggja ára skeið gengist fyrir
samkomum aldraöra oghefur aö-
sókn að þeim veriö mjög góö.
Samkomurnar hafa verið haldnar
á miövikudögum milli kl. 14 og 17
yfir vetrarmánuöina. Þar hefur
eldra fólki gefist kostur á aö hitt-
ast, spjalla saman og vinna
handavinnu. Auk þess voru
haldnir fyrirlestrar um ýmis
málefai, kórar komu i heimsókn
ogsungufyrir samkomugesti. Þá
veittu sóknarpresturinn og
organistinn fólkinu aöstoö hvor á
sinu sviði.
Safnaöarráö Bústaöasóknar
skipulagöi þessar samverustund-
ir, en formaöur þess er Áslaug
Gisladóttir. Aöalkennari var
Magöalena Sigurþórsdóttir, en
Lára Asbjörnsdóttir sá um veit-
ingar.
A handavinnusýningunni gat aö Hta fjölmarga muni sem margir hverjir báru vott um listrænt hand-
bragö og áratuga þjálfun.