Vísir - 14.06.1979, Side 23

Vísir - 14.06.1979, Side 23
f f VÍSIR Fimmtudagur 14. júni 1979 Ums jón: Friörik Indriðason Fimmtudagsieikrit útvarpsins: 6CFUSMIBIR „Persónur leikritsins eru að reyna að gera hið ómögulega, það er vera bæði útivinnandi og hugsa um heimili og börn”, sagði Ása Sólveig i viðtali við Visi, „Það er i sjálfu sérekki hægt að gera hvort- tveggja, en það er bara gert”. „Þjóöfélagiö sinnir ekki þörf- um þessara kvenna á viöunandi hátt. Inn i myndina er tekin hin venjulega staöa einstæörar móö- ur og þeir erfiöleikar sem þvi hlutverki fylgja. sérstök tildrög hafi veriö aö þessu leikriti, þaö eru nú um fjögur ár siöan ég skrifaöi þaö, og þvi erfitt að nefna eitthvaö sérstakt. En efnið er vel þess viröi að þvi séu gerð góð skil. Ég styöst ekki við eigin reynslu og hef engar beinar fyrirmyndir, heldur reyni aö fjalla almennt um þessi vandamál. Ég man ekki hvort aö einhver Pérsónurnar njóta ekki stuðnings utanaökomandi frá heldur reyna að basla sjálfar meö sitt heimili og börn”. ,,Ég tel að fjallaö sé á raunsæan Gisli Halldórsson leikstjóri fimmtudagsleikritsins. hátt um stöðu einstæöra kvenna i' þjóðfélaginu I dag”, sagði Asa aö lokum. Að gera hið ómðgulega - Rabbað við Ásu Sóiveigu hdfund fimmtudagsleikrit^ ins í kvöld t kvöld kl. 20.10 veröur flutt leikritið Gæfusmiðir eftir Asu Sólveigu. Leikstjóri er Gisli Halldórsson en með hlutverkin fara Steinunn Jó- hannesdóttir og Saga Jónsdóttir. Flutningur leikritsins tekur tæpa klukkustund. Asa Sólveig, höfundur leikritsins i kvöld. Tvær konur, önnur kölluð sú ljósa og hin sú dökka, báöar frá- skildar, hafa ibúð saman. Þær hafa ekki fariö vel út úr skilnað- inum en ákveöa aö bjarga sér sem best þær geta. Um leiö og þær gera úttekt á fortiö og nútið veröur þeim ljóst aö skilnaöur kostar endurmat, bæöi á sjálfum sér og öðrum. Asa Sólveig er af kynslóö yngri rithöfunda fædd 1945. Hún hefur skrifaö nokkur leikrit bæöi fyrir útvarp og sjónvarp, og á sl. ári kom út eftir hana skáldsagan Leyndarmál Stefaniu. Útvarpið hefur áður flutt tvö leikrit Asu Sólveigar, Gunnu 1973, og Ef ekki I vöku, þá I draumi, 1975. útvarp I kvðld kl. 21.45: A ferð með Jðnl Jónssyni jarðfræð- ingl í þættinum i kvöld fer Jón Jóns- son með Tómasi Einarssyni um nágrenni Hafnarfjarðar. Þeir fé- lagar rabba, á leiðinni, um for- vitnileg jarðfræðileg fyrirbrigði. Fyrst verður farið til Krýsuvfkur, þar skoðað Kleifarvatn, og rabbað um hraunin og eldgosin sem þar hafa verið. Siöan er fariö sem leiö liggur austur meö Geitarhliö, Herdisar- vik þar sem Einar Benediktsson átti heima, sin siöustu ár, og aust- pm ur aö Brennisteinsfjöllum. Siöan veröur fariö aö Vogsósum og Sel- vogsheiði. Að lokum verður Þrengslavegurinn þræddur til baka aftur. A þessu svæöi er margt skemmtilegt aö sjá. Þeir félagar munu þó aöallega ræöa um sögu- leg hraun á þessu svæöi, t.d. Kapelluhrauniö, sem komin er aldursgreining á, en hraunið mun vera frá þvi um 1000. Upptökin þess eru suöur undir Vatnsskaröi, og hinna sögulegu hrauna austur undir Herdisarvik. útvarp 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12. 20 F réttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Viö vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Kapphlaupið” eftir Káre Holt Siguröur Gunnarsson les þýöingu sina (8). 15.00 Miðdegistónleikar: Roger Boutry og Kammersveitin i Saar leika Konsertþátt i G-dúr fyrir pianó og hljómsveit op 92 eftir Robert Schumann, Karl Ristenpart stj. / Rikis- hljómsveitin I Dresden leik- ur Sinfóniu i d-moll eftir César Franck, Kurt Sander- ling stj. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veöurfregnir). 16.20 Tónleikar 17.20 Lagiö mitt: Helga Þ. Stephensen kynnir óskalög barna. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttauki. Tilkynningar. 19.35 Daglegt mál Arni Böövarsson flytur þáttinn. 19.40 lslenskir einstöngvarar og kórar syngja 20.10 Leikrit: „Gæfusmiðir” eftir Asu Sólveigu Leikstjóri: Gisli Halldórsson. Persónur og leikendur: Sú ljósa, Steinunn Jóhannesdóttir. Sú dökka, Saga Jónsdóttir. 21.15 Gestur I útvarpssal: Elfrun Gabriel frá Leipzig leikur pfanóverk eftir Mozart, S jostakovi tsj, Geissler og Debussy. 21.45 A ferð meö Jóni Jónssyni j arö f r æöi ngi, Tómas Einarsson og Jón leggja leiö sina um nágrenni Hafnar- fjaröar. 22.15 Einsöngur:Edith Mathis syngur lög eftir Mozart, Bernhard Klee leikur á pi'anó. 22.30 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.50 Afangar Umsjónarmenn: Asmundur Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson. 23.35 Fréttir. Dagskrárlok. Að fylgjast með pjððmúlum Það vakti óskipta athygli al- þjóðar I siðustu viku, þegar Morgunblaðið birti frétt þess efnis á baksiðu að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefði veriö kallaður saman til þess að ræða þau alvarlegu þjóðfélagsmein (verkföllog olíukreppu) er helst valda landsmönnum áhyggjum um þessar mundir. Stundum hefur þaö hent að stjórnarand- staðan á þingi hefur látið mál af þessu tagi liggja milli hluta i hinu langa og yfirleitt næðis- sama sumarfrii þingmanna. Fyrir þá sök vakti þessi ábyrga afstaða upp áhuga almennings. Daginn eftir þennan merka fund greindi Morgunblaöið frá þvi að Ólafur G. Einarsson þingmaður Reyknesinga heföi kallað saman þennan þing- flokksfund. Ráðsettar konur i Vesturbænum fórnuðu höndum og spurðu hvort uppreisn hefði átt sér stað i þessum prúða hópi þingmanna sem heyra Sjálf- stæðisflokknum til. Þegar betur var að gáð kom fram I frásögn blaðs allra landsmanna, að þessi dagfarsprúði þingmaður væri varaformaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Fjarvera leiötoganna kjör- inna og sjálfskipaöra stafaði af þvi að þeir voru allir farnir af landi brott. Það mun vera venja I Sjálfstæöisflokknum að leiö- togarnir fari úr landi samtímis til þess að sýna einingu og bræðralag, þó að þeir eigi e.t.v. ekki samleið að öðru leyti. Geir mun hafa veriö I ósköp hvers- dagslegu sumarleyfisferðalagi einhvers staðar i Evrópu. Dr. Gunnar fór á hinn bóginn I opin- berum erindagjörðum sem for- maður stjórnarskrárnefndar. Er þess að vænta aö hann hafi náð fundum þingforseta I þeim lýðræðisrikjum er hann metur mest og geti blásið nýju lifi I störf þeirrar endurvöktu stjórnarskrárnefndar, sem kjörið hefur hann til öndvegis. Sá leiðtoga flokksins sem fékk á nýafstöðnum landsfundi (að sögn Dagblaðsins) mest traust þeirra allra meö þvi aö falla I formannskjöri náði sér heldur betur niöur á þeim félögum Geir og dr. Gunnari með þvi að láta kjósa sig heiðursborgara I ein- hverri af borgum Frakklands þar sem hann sparkaöi bolta á stuttbuxum á árum áður. Hefur Albert með þessu hlotnast ekki minni heiöur en dr. Ólafi Jó- hannessyni, sem fyrir skömmu var krýndur viö mikla viðhöfn heiðursdoktor vestur I Kanada. Allt um það má ætla að Albert hafi aukist mjög ásmegin heim- kominn sem heiðursborgari. i fjarveru þessara óumdeildu leiötoga gerði þingflokkur Sjálf- stæöisflokksins þá ályktun að hann hefði einsett sér að fylgjast mjög nákvæmiega meö ástandi þjóðmála og koma siöan saman á nýjan leik ef athuganir glöggsky ggnra þingmanna hefðu leitt eitthvaö athugavert i ljós. Bfður þjóðin nú spennt eftir athugunum hinna óbreyttu þingmanna, sem hlupu til I utanlardsreisum leiðtoganna og geröust ábyrgir þingmenn. Heyrst hefur úr röðum Sjálf- stæðismann a aö óbreyttir þingmenn, eftir aö hafa tekiö á sig rögg og kallað saman þing- flokksfund, heföu mátt kveöa svolitið skýrar að orði. A þaö veröur ekki lagður dómur. En hjá þvi getur ekki farið að menn hljóta biða spenntir eftir skýrsl- um óbreyttra þingmanna um ástand þjóðmála eftir aö hafa fylgst náiö með þvi sem er að gerast I eina eöa tvær vikur. Flokkurinn ætti að minnsta kosti að vera vel undir kosningar búinn. Einnig hlýtur þaðaðvera traustvekjandi fyrir leiðtogana aö mega treysta þvi aðárvökui augu óbreyttra þing- manna fylgist með þvi sem er að gerast þegar þeir allir i einu en hver i sinu lagi halda utan. Segja má aö betur færi á þvi ef stjórnarflokkarnir hefðu gert samþykkt á borð við þessa þannig að þjóðin gæti tekið þvi rólega I trausti þess að þeir sem völdin hafa hefðu ekki slður en stjórnarandstaðan vakandi auga á þjóðmálum. Ekki er fjarri lagi að ætla að þá gæti úr ýmsu ræst. Svarthöfði

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.