Morgunblaðið - 01.04.2001, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 01.04.2001, Qupperneq 1
MORGUNBLAÐIÐ 1. APRÍL 2001 77. TBL. 89. ÁRG. SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 Flugmálastjórn mætti hafa önnur úrræði 24 10 Íslenskar snyrtivörur út í heim 30 SUNNUDAGUR . APRÍL BLAÐB ÍSINN og lífsbjörgin Íslendingar settust að við Winnipegvatn í Kanada 1875 og síðan hafa fisk- veiðar í því verið ein helsta lífsbjörgin. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON blaða- maður og KRISTINN INGVARSSON ljósmyndari fylgdust með veiðunum á ísnum í fylgd Roberts T. Kristjanson fiskimanns á Gimli nú undir lok vetrarvertíðar í mars./16 B SLOBODAN Milosevic, fyrrverandi forseti Júgóslavíu, virðist eiga sér færri stuðningsmenn en hann taldi. Umsátursástand var í gær við for- setabústaðinn í Dodinje-hverfinu í Belgrad, þar sem Milosevic heldur sig, en sérsveit lögreglu gerði í fyrri- nótt misheppnaða tilraun til inngöngu í húsið. Zoran Djindjic, forsætisráðherra Serbíu, sagði í gær að ætlunin hefði ekki verið að handtaka Milosevic, heldur afhenda honum stefnu til að mæta fyrir rannsóknardómara í Serbíu, en hann er sakaður um glæpi gegn þjóð sinni. Nokkur fjöldi fólks safnaðist að for- setabústaðnum til að sýna Milosevic stuðning en lögregla sló í gærmorgun hring um húsið og rak mótmælendur á brott. Lítill hópur hélt að húsinu að nýju um hádegi í gær og gerði hróp að lögreglu. Ekki gætir mikillar spennu í Bel- grad þrátt fyrir atburði næturinnar en áhlaupið á forsetabústaðinn var gert um tvöleytið í fyrrinótt. Hópur sérsveitar lögreglunnar réðst til inn- göngu en var mætt með byssuskot- um. Særðust tveir lögreglumenn og ljósmyndari en ekki alvarlega. Djindjic forsætisráðherra sagði í gær að þrjár ástæður hefðu verið fyr- ir áhlaupinu, ætlunin hefði ekki verið að handtaka Milosevic. Átt hefði að færa honum stefnu en serbneski rík- issaksóknarinn hefur fallist á máls- höfðun á hendur Milosevic fyrir glæpi gegn þjóðinni. Þá hefði verið ætlunin að fækka lífvörðum Milosevic en þingið samþykkti á föstudag ný lög sem minnka réttindi forsetans fyrr- verandi. M.a. hefur hann nú aðeins rétt á einum lífverði auk þess sem yf- irstjórn þeirra færist frá her yfir til lögreglu. Í þriðja lagi hugðust lög- reglumenn kanna ásakanir þess efnis að mikið magn vopna og sprengiefna væri að finna innandyra. Samkvæmt samþykkt þingsins býr Milosevic í óleyfi í forsetabústaðnum auk þess sem hann á ekki rétt á líf- vörðunum 78 sem gæta hans. Mil- osevic hefur hins vegar beðið um fimmtán menn til að vera persónu- legir lífverðir, auk hluta lífvarðahóps- ins sem gætir hans. Óljóst er hversu margir menn eru innandyra en Mira Markovic, eigin- kona Milosevic, og dóttir þeirra eru með forsetanum. Aðspurður sagði Dusan Mihhajlovic, innanríkisráðherra Serbíu, að forsetinn fyrrverandi væri í stofufangelsi. Engar sakir hafa hins vegar verið bornar á eiginkonu hans. Kveðst ekki fara lifandi í fangelsi Á milli 1:30 og 2 í fyrrinótt réðust sérsveitir til árásar en hröktust frá vegna skothríðar. Síðar komst einn lögreglumaður inn en hann segir Mil- osevic hafa neitað að taka við stefn- unni og lýst því yfir að hann „færi aldrei lifandi í fangelsi“. Þá var haft eftir lögreglumanninum að hluti þess hóps sem hefur öryggi Milosevic með höndum hefði verið drukkinn og látið ófriðlega. Lögreglumaðurinn upplýsti Mil- osevic um efni ákærunnar þar sem fram er tekið að hann verði ekki fram- seldur til stríðsglæpadómstólsins í Haag. Sagði innanríkisráðherrann að gæfi forsetinn fyrrverandi sig ekki sjálfviljugur fram við rannsóknar- dómara, yrði ráðist inn með valdi; um leið og herinn teldi sig reiðubúinn til þess. Djindjic og Mihajlovic, lögðu báðir á það áherslu í gær að um fullkomlega löglega aðgerð hefði verið að ræða. Sagði Djindjic að Vojislav Kostunica, forseti Júgóslavíu, hefði verið látinn vita af árásinni og að hann hefði ekki lagst gegn henni. Yfirmanni hersins vikið frá? Mihajlovic sakaði einstaka foringja í júgóslavneska hernum um að hafa slegið vörð um Milosevic og Kost- unica forseti skipaði þeim að fara þeg- ar í stað út úr húsinu. Innanríkisráð- herrann sagði að enn væri óljóst hver hefði gefið út skipunina um að óhlýðn- ast. Er talið að mál þetta kunni að kosta yfirmann hersins, Nebosja Pavkovic, embættið. Þá ýjuðu forsætisráð- herrann og innanríkisráðherrann að því að fleiri kynnu að verða ákærðir fyrir sömu brot og Milosevic. Umsátursástand við hús fyrrverandi forseta Júgóslavíu í Belgrad Slobodan Milosevic haldið í stofufangelsi Reuters Sérsveit júgóslavnesku lögreglunnar ræðst inn í hús Slobodans Milosevic í Belgrad í fyrrinótt. Belgrad. Morgunblaðið. Stuðningsmenn Slobodans Milosevic rífast við lögreglumenn fyrir utan hús hans í Belgrad í gærmorgun. „Þetta er harm- leikur“ Belgrad. Morgunblaðið. „ÞETTA er harmleikur, mikill harmleikur,“ segir eldri maður, sem staðið hefur alla nóttina fyrir utan heimili Slobodans Milosevic, fyrr- verandi forseta Júgóslavíu, í Bel- grad. Hann er ekki einn á ferð, að minnsta kosti 200 manns og fjöl- mennt lögreglulið berja sér til hita og ylja sér við elda í fínasta hverfi borgarinnar, Dodinje. Það er farið að birta af degi og enn er umsáturs- ástand við húsið, sem sérsveitir lög- reglu reyndu að ráðast til inngöngu í um tvöleytið um nóttina. Innandyra situr forsetinn fyrr- verandi, eiginkona hans Mira og dóttir, auk hóps lífvarða. Fyrir utan standa stuðningsmenn hans, fólk sem vill sýna honum stuðning á ör- lagastundu. Þegar blaðamann Morgunblaðs- ins ber að síðla nætur er allt með kyrrum kjörum. Stuðningsmenn- irnir eru sumir hverjir ágengir og lítt hrifnir af útlendingum á sveimi, vilja að minnsta kosti vita hvaðan þeir eru; enginn vafi leikur á því að Bretar og Bandaríkjamenn eru ekki velkomnir, þar sem þeir beri höf- uðábyrgð á falli Milosevic. Ung kona vindur sér að okkur og vill vita hver við erum. Henni er heitt í hamsi, hún er drukkin og lítið hrifin af enskum hreim á rússnesk- unni sem blaðamenn reyna að tala. Hún er trúfastur stuðningsmaður Milosevic, segist komin eins og aðrir til að gæta hans. Annars eru flestir karlmenn, sum- ir vafalaust lögreglumenn í borg- aralegum klæðum. Dragomir Matic segist hins vegar kominn til að sýna forsetanum fyrrverandi hollustu. „Þetta er mikill harmleikur,“ segir Matic, sem er varaformaður Sósíal- istaflokks Milosevic í gamla hluta Belgrad og fyrrverandi útvarps- maður. Þrátt fyrir að hann sé hjart- veikur, hefur hann staðið fyrir utan heimili Milosevic sl. 45 daga, til að sýna stuðning sinn. „Milosevic er hetja og föðurlandsvinur, hann er maðurinn sem stóð gegn NATO.“ „Fyrir okkur er hann dauður“ Lögreglan hefur lítið hafst að, heldur staðið og spjallað við þá sem bíða. Þegar fer að birta af degi byrj- ar hún hins vegar að stugga við stuðningsmönnum og blaðamönn- um. Ýtir hópnum hægt og rólega frá húsinu við Usjiska stræti 11–15. Engin hróp heyrast, engum er hrint eða ógnað. Eldri kona hellir sér yfir lögreglumenn, sakar þá um föður- landssvik og að vera undirlægjur Bandaríkjanna. Ung kona, Vesna Nestoric, kveðst hins vegar ekki hafa áhuga á mál- inu. „Fyrir okkur er hann dauður, hann skiptir ekki máli lengur. Mér finnst þetta vera uppákoma sem var sett á svið til að fólk hefði eitthvað til að tala um.“ Málshöfðunum gagnvart þriðja að- ila gæti fjölgað
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.