Morgunblaðið - 01.04.2001, Page 2

Morgunblaðið - 01.04.2001, Page 2
FRÉTTIR 2 SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ RAGNAR Axelsson, ljósmyndari Morg- unblaðsins, hlýtur í ár heiðursviður- kenningu sem kennd er við Oskar Barnack, höfund Leica-myndavélanna. Franskur ljósmyndari, Bertrand Meunir, hlýtur Oskar Barnac-verð- launin fyrir árið 2001, fyrir ljósmyndir sem hann tók í Kína. Dómnefndin veitir jafnframt Ragn- ari heiðursviðurkenningu fyrir viða- mikið verkefni með myndum sem sýna lífshætti sem eru að breytast á Grænlandi, í Færeyjum og á Íslandi. Ragnar hefur unnið að þessu verki sl. fimmtán ár. Verðlaunin verða afhent á ljós- myndahátíðinni í Arles í Frakklandi í sumar, og þar verða ljósmyndir þeirra Ragnars og Meunir sýndar. Sýningin verður í kjölfarið sett upp á fleiri stöðum, þar á meðal í Tókýó og New York. Vetrargjöf. Ein af myndum Ragnars Axelssonar frá Íslandi. Heiðursviðurkenning fyrir ljósmyndir Ragnar Axelsson NÝR snjótroðari var tekinn í notk- un í gær á skíðasvæði Akureyringa í Hlíðarfjalli. Troðarinn, sem er glænýr og ónotaður, er fenginn að láni í þrjár vikur frá Reykjavík- urborg og hefur staðið verkefna- laus í Skálafelli í vetur. Þar hefur snjóleysi gert það að verkum að svæðið hefur aldrei verið opnað. Guðmundur Karl Jónsson, um- sjónarmaður skíðasvæðisins í Hlíð- arfjalli, sagði við Morgunblaðið að snjótroðarinn muni koma sér vel því miklar annir verða í fjallinu næstu vikur í tengslum við lands- mót skíðamanna, páskahátíðina og loks Andrésar Andar-leikana. Mik- ið álag verði á þau tæki sem fyrir eru. „Við ákváðum að slá tvær flugur í einu höggi þannig að þeir í Skála- felli fái reynslu á troðarann sem fjárfest var í og við getum skoðað aðrar tegundir en við höfum verið að nota,“ sagði Guðmundur Karl. Verkefnalaus troðari lán- aður norður Hlíðarfjall á Akureyri RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í gærmorgun tillögu Halldórs Ás- grímssonar utanríkisráðherra um að leggja fyrir Alþingi tillögu til þingsályktunar um fullgildingu svo- kallaðs Árósasamnings um aðgang að upplýsingum, þátttöku almenn- ings í ákvarðanatöku og réttláta málsmeðferð í umhverfismálum. Að mati umhverfisráðuneytisins kallar fullgilding samningsins ekki á laga- breytingar hér á landi. Markmið samningsins er að stuðla að verndun réttinda hvers einstaklings af núverandi og kom- andi kynslóðum til að lifa í umhverfi sem er fullnægjandi fyrir heilsu og velferð hans. Árósasamningurinn var sam- þykktur á fjórða ráðherrafundinum um umhverfi Evrópu í Árósum 25. júní 1998. Sama dag undirrituðu 35 ríki, þ.á m. Ísland, og Evrópubanda- lagið samninginn og fjögur ríki und- irrituðu hann til viðbótar áður en frestur til þess rann út 21. desember 1998. Aðild að samningnum er opin aðildarríkjum Efnahagsráðs Evr- ópu, Evrópubandalaginu og þeim ríkjum sem hafa stöðu samráðsaðila í Efnahagsráði Evrópu. Tíu ríki hafa fullgilt samninginn, en hann öðlast gildi 90 dögum eftir að sextánda fullgildingarskjalið er afhent til vörslu. Samkvæmt upplýsingum frá ut- anríkisráðuneytinu er Árósasamn- ingurinn ný tegund samnings um umhverfismál. Hann tengir saman umhverfisrétt og mannréttindi og viðurkennir að menn hafa skyldum að gegna gagnvart komandi kyn- slóðum. Samningurinn staðfestir að sjálfbærri þróun verður ekki náð án aðildar allra hagsmunaaðila og teng- ir saman ábyrgð stjórnvalda og um- hverfisvernd. Hann beinir athygl- inni að gagnverkandi áhrifum almennings og stjórnvalda í lýðræð- islegu samhengi og kveður á um ný ferli varðandi þátttöku almennings í viðræðum um alþjóðlega samninga og framkvæmd þeirra. Borgarar verða að hafa rétt til þátttöku í ákvarðanatöku Í formála samningsins er gerð grein fyrir þeim væntingum og markmiðum sem voru hvatinn að samningnum. Hugmyndin er sú að fullnægjandi umhverfisvernd sé undirstaða þess að menn geti notið grundvallarmannréttinda tengd þeirri hugmynd að hver einstakling- ur eigi rétt á að lifa í heilbrigðu um- hverfi og beri skylda til að vernda umhverfið. Í formálanum er dregin sú ályktun að til þess að geta krafist þessa réttar og sinnt þessari skyldu verði borgarar að hafa aðgang að upplýsingum, hafa rétt til þátttöku í ákvarðanatöku og njóta réttlátrar málsmeðferðar í umhverfismálum. Þar er enn fremur viðurkennt að sjálfbær og vistvæn þróun byggist á virkri ákvarðanatöku stjórnvalda sem grundvallist bæði á umhverf- islegum sjónarmiðum og framlagi almennings. Þegar stjórnvöld veiti almenningi aðgang að upplýsingum um umhverfismál og geri honum kleift að eiga aðild að ákvarðana- töku stuðli þau að markmiðum sam- félagsins um sjálfbæra þróun. Tillaga um fullgildingu Árósasamningsins lögð fyrir Alþingi Stuðlað að réttlátari máls- meðferð í umhverfismálum SILUNGSVEIÐI í ám hefst í dag, 1. apríl. Mörg veiðileyfi eru þegar upp- seld fyrstu dagana enda mikil eftir- vænting í veiðimönnum að byrja tímabilið. Ástand helstu veiðiáa er al- mennt talið gott og t.d. lítið um ísi- lagðar ár á Vestur- og Suðurlandi, líkt og í fyrra þegar veiðimenn þurftu víða að byrja á því að dorga niður í gegnum vakirnar. Bergur Steingrímsson, fram- kvæmdastjóri Stangaveiðifélags Reykjavíkur, sagði við Morgunblaðið að veiðimenn væru bjartsýnir fyrir þetta tímabil en þeir hefðu reyndar verið enn kátari fyrir um tveimur vik- um þegar sannkallað vor var í lofti. Síðan hefði kólnað og útlit væri fyrir áframhaldandi kuldatíð. Veiðimenn á Norður- og Austurlandi þurfa að minnsta kosti að klæða sig vel og vera vel tækjum búnir í mörgum ám fyrir dorgveiðar. Menn orðnir spenntir „Nú hefur verið frost á nóttunni og veiðin gæti orðið erfið fyrri part dags. Það getur frosið í lykkjum og línum en allar aðrar aðstæður eru eins og best verður á kosið. Þannig að það ætti að vera silungur og vonandi nóg af honum. Það er sama hvaða dag ber upp á 1. apríl. Margir geta ekki beðið og eru orðnir það spenntir að þeir verða að ná strax úr sér fiðringnum. Sumir eru bara í silungnum en hjá öðrum er þetta upphitun fyrir lax- veiðina sem byrjar ekki fyrr en 1. júní,“ sagði Bergur. Á vegum Stangaveiðifélags Reykjavíkur byrjar silungsveiðin í dag í Hítará á Mýrum, Soginu, Eld- vatni á Brunasandi, Hörgsá, Þorleifs- læk í Hveragerði og fleiri stöðum. Mörg veiðileyfi seldust upp fyrstu dagana Silungsveiði í ám hefst í dag, 1. apríl FRAMTÍÐ Þjóðhagsstofnunar mun skýrast eftir helgi en þá verð- ur farið yfir málin með starfs- mönnum stofnunarinnar, að sögn Ólafs Davíðssonar, ráðuneytis- stjóra í forsætisráðuneytinu. Hann sagði að fulltrúar Seðlabankans, fjármálaráðuneytisins og Hagstof- unnar hefðu ekki átt formlegan fund um framtíð Þjóðhagsstofnun- ar án forstjóra hennar enda hefði aldrei verið ákveðið að stofna formlega nefnd eða starfshóp um málið. Í Morgunblaðinu í gær fullyrti Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóð- hagsstofnunar, að það hefði verið gert. Hann sagðist jafnframt hafa fengið það staðfest að hún hefði komið saman án hans vitneskju, þó hann hafi átt að eiga sæti í henni. Ólafur sagði að það hefði ein- faldlega verið talað um það að haft yrði samband við þær stofnanir sem kæmu að málinu. Það hefði verið gert og Þjóðhagsstofnun og forstjóri hennar hefðu sett fram sín sjónarmið líkt og aðrir. „Þetta hefur síðan verið í vinnslu í ráðuneytinu og haft hefur verið samband við menn til að fá nánari útskýringar og átta sig bet- ur á því hvernig best væri að standa að endurskipulagningunni. Það hefur því enginn hópur komið sérstaklega saman án forstjóra Þjóðhagsstofnunar.“ Ólafur sagði að starfsmönnum Þjóðhagsstofnunar yrði öllum boð- ið starf annars staðar, ef stofnunin yrði lögð niður. Rætt við starfsfólk Þjóðhagsstofnun- ar eftir helgina Segir enga formlega fundi hafa farið fram um Þjóðhagsstofnun UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ hefur í tilraunaskyni opnað tvö „vefsendiráð“, þ.e. vefsetur fyr- ir sendiráð Íslands í Ástralíu og Nýja-Sjálandi, þótt þar séu engar sendiráðsskrifstofur. Ut- anríkisráðuneytið segir að vef- notkun sé mikil í þessum lönd- um og þess sé að vænta að þetta sé hagkvæm leið til þess að vekja athygli á landi og þjóð. Þessi vefsendiráð tengjast því að Halldór Ásgrímsson ut- anríkisráðherra opnaði nýja vefi fyrir íslensk sendiráð, fastanefndir og sendiráðsskrif- stofur. Nokkur sendiráð hafa um langt árabil rekið eigin vefsetur, m.a. sendiráðin í Washington, Helsinki, Brussel, Berlín og Moskvu. Útlit flestra vefsetranna hefur nú verið samræmt og bætt hefur verið við miklu af upplýsingum um Ísland og íslensk málefni. Á vefsetrunum eru einnig hlekkir í vefsetur stofnana, samtaka og fyrirtækja sem tengjast Íslandi. Veffang al- mennrar inngangssíðu fyrir ut- anríkisþjónustuna er www.ice- land.org og er vísað til hennar á nýju vefsetri Stjórnarráðs Ís- lands, sem var opnað 22. mars. Meginkaflar vefjanna eru þessir: Land og náttúra, þjóð og saga, menning og vísindi, ferðamenn og frístundir, við- skipta- og efnahagsmál og ut- anríkismál. Vefsendi- ráð opnuð á Netinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.