Morgunblaðið - 01.04.2001, Síða 20
LISTIR
20 SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRESKI myndlistarmaðurinn
John Isaacs fjallar um eigin
verk í LHÍ, Laugarnesvegi 91, á
mánudag kl. 12.30. John er
breskur myndlistarmaður sem
kunnur er á alþjóðavettvangi.
Viðbrögð áhorfenda við verkum
hans eru ýmist hlátur eða hroll-
ur en víst er að listamaðurinn
leggur mikið upp úr því að
hreyfa við fólki, á hvorn veginn
sem er. Sýning með verkum
hans var opnuð í gær í Lista-
safni Reykjavíkur, Hafnarhúsi.
Námskeið
Á námskeiði, sem hefst á
mánudag, verður kennd vinnsla
með „layers“ og möskun við
samsetningu mynda. Námskeið-
ið nefnist Myndvinnsla III
Photoshop. Kennari er Leifur
Þorsteinsson ljósmyndari og
umsjónarmaður ljósmyndavers
LHÍ. Kennt verður í tölvuveri
Listaháskóla Íslands, Skipholti
1.
Á námskeiði, sem hefst 23.
apríl, í umbroti prentgripa verða
kennd undirstöðuatriði umbrots
í QuarkXPress-umbrotsforrit-
inu.. Kennt verður í tölvuveri
Listaháskóla Íslands, Skipholti
1. Námskeiðið er grunnnám-
skeið, ætlað þeim sem hafa
grunnþekkingu á tölvum.
Kennari er Margrét Rósa Sig-
urðardóttir prentsmiður og
kennari í grafískri hönnun í
LHÍ.
John Isaacs
fjallar um eigin
verk í í LHÍ
NÚ stendur yfir kvikmyndahátíðin
Kvikar myndir í MÍR-salnum og
Norræna húsinu. Yfirskrift hátíðar-
innar er Pólitík.
Sunnudagur
Norræna húsið: Opið kl. 14-18.
Loft: Frjáls flokkur. Gólf: Áróðurs-
myndir: Kl. 15: Ýmsir titlar. Gryfja:
Heimildamyndir: Kl. 14: Le Joli Mai
eftir Cris Marker. Kl. 16: Án titils
eftir Pétur Má Gunnarsson.
MÍR-salurinn: Kl. 20. Þýska kvik-
myndin Metropolis, 1926, eftir Fritz
Lang. 120 mín.
Mánudagur
Nýlistasafnið: Loft: Frjáls flokk-
ur. Gólf: Áróðursmyndir: Kl. 15:
Ýmsir titlar. Gryfja: Heimildamynd-
ir: Kl. 14: Mynd eftir John Grierson.
Kl. 16: Triumph des Willens eftir
Leni Riefenstahl.
MÍR-salurinn: Kl. 20: Kvikmyndin
Verkfall, 1924, eftir Sergei Eisen-
stein.
Kvikar
myndir
Í NORRÆNA húsinu stendur
yfir kynning á menningu frá
Norðurbotni í Svíþjóð og stend-
ur til 6. apríl.
Sunnudagur – Luleådagur.
Kl. 12: Skerjagarðssýning
verður opnuð í anddyri með
verkum eftir listamanninn Ole
Taube. Einnig verður sýndur
listiðnaður og hönnun frá Norð-
urbotni og munir verða til sölu í
anddyri.
Kl. 13-14: Undir regnhlíf æv-
intýrisins. Barnadagskrá með
Kotten.
Kl. 14: Göran Wallin heldur
fyrirlestur um völundarhúsa-
leikinn, minjar um hann og sögu
hans í skerjagarðinum í Norð-
urbotni.
Kl. 15:16: Undir regnhlíf æv-
intýrisins. Barnadagskrá með
Kotten.
Kl. 16-17: Heimildarmynd um
kirkjuhverfið í Gammelstad.
Myndin verður sýnd á u.þ.b.
15. mínútna fresti.
Kl. 18: Þjóðlagasveit J. P. Ny-
ström leikur gömul lög fyrir nú-
tímamenn.
Aðgangur kr. 1.000.
Norður-
botnsdagar
DAGSKRÁ Listaklúbbs Leikhúskjallarans verður
helguð söngleikjum og sögu þeirra annað kvöld,
mánudagskvöld, kl. 20.30. Dagskráin er í í tengslum
við væntanlega frumsýningu Þjóðleikhússins á söng-
leiknum Syngjandi í rigningunni.
Árni Blandon flytur erindi og bregður upp mynd-
um úr söngleikjum á fyrri hluta aldarinnar. Stefán
Baldursson gerir grein fyrir stefnu leikhússins í
söngleikjavali.
Leikarar flytja brot úr sýningunni. Heiðursgestur
kvöldsins er leikstjóri og danshöfundur sýning-
arinnar, Kenn Oldfield.
Úr söngleiknum Syngjandi í rigningunni. F.v. Selma Björnsdóttir, Rúnar Freyr Gíslason,
Stefán Karl Stefánsson og Þórunn Lárusdóttir.
Söngleikir í Listaklúbbnum
SIGRÚN Sigurðardóttir sýnir þessa
dagana 20 akrýlmyndir í Skólasafni
Hagaskóla en þar hafa verið mynd-
listarsýningar í allan vetur. Fyrst
var sýning Sigrúnar Gísladóttur,
Moussu, þá Tryggva Ólafssonar list-
málara og loks Hauks Halldórsson-
ar.
Sýning Sigrúnar ber yfirskriftina
Tilraunir til tjáningar á hinum fjöl-
breyttu hliðum lífsins, en myndirnar
sýna áhuga hennar á mannlega
þættinum og ást hennar á fegurð
náttúrunnar.
Sigrún byrjaði að mála fyrir þrem-
ur árum og nýlega lauk hún fimm
mánaða námskeiði í málun í Amst-
erdam.
Hún hefur áður sýnt á NLFÍ í
Hveragerði og tekið þátt í samsýn-
ingu Myndlistarklúbbs Hvassaleitis.
Sýningin í Skólasafni Hagaskóla
er opin á skólatíma til 1. maí.
Myndlistarsýning
í Hagaskóla
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Vita-A-Kombi olía
Við seljum nú síðust sætin til Prag 5. apríl, en
okkur hefur tekist að tryggja okkur viðbótarhótel
fyrir þessa dagsetningu, en allar aðrar helgarferðir
okkar eru nú uppseldar í vor. Spennandi kynnisferðir um kastalann og
gamla bæinn með íslenskum fararstjórum Heimsferða, þar sem þú kynnist
alveg ótrúlega heillandi mannlífi þessarar fögru borgar sem á engan sinn
líka í Evrópu.
Fáðu bæklinginn sendann
Aðeins
14 sæti
Helgarferð til
Prag
5. apríl
frá kr. 39.970
Verð kr. 39.970
M.v. 2 í herbergi, Pyramida,
5. apríl. Flug, gisting og skattar.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is