Morgunblaðið - 01.04.2001, Blaðsíða 21
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2001 21
Nýr sýningarsalur
Opið
hús
í dag kl. 11-16
Við erum á horni
Brautarholts og Mjölnisholts,
rétt fyrir ofan Hlemm.
- persónulega eldhúsið
Eldaskálinn
Brautarholti 3, 105 Reykjavík
S: 562 1420, www.invita.com
Invita á Íslandi í 20 ár
Ýmis afmælistilboð
ARI Þór Vilhjálmsson fiðluleikari
heldur einleikaraprófstónleika frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík í
Salnum í Kópavogi í dag, sunnu-
dag, kl. 14. Með honum á píanó
leikur Víkingur Heiðar Ólafsson.
Tónleikarnir eru seinni hluti ein-
leikaraprófs Ara frá skólanum.
„Ég hlakka mjög mikið til,“ seg-
ir Ari og kveðst tilbúinn í slaginn.
Á efnisskránni eru Rómansa í F-
dúr op. 50 eftir Ludwig van
Beethoven, Einleikssónata nr. 3 í
C-dúr S. 1005 eftir Johann Seb-
astian Bach, Sónata fyrir fiðlu og
píanó eftir Jón Nordal og Sónata í
D-dúr op. 94a fyrir fiðlu og píanó
eftir Sergei Prókofieff.
Hljómar miklu betur á fiðlu
Rómansan eftir Beethoven sem
Ari hefur leikinn á er að hans
sögn „fallegt og rólegt verk“. Són-
atan eftir Bach er úr safni sex són-
atna sem Bach samdi í kringum
1720 þegar hann var tónlistar-
stjóri við hirðina í Köthen. „Þá gat
hann samið veraldlega tónlist,
með öðru, og á þeim tíma þótti það
mikil nýjungagirni að semja fyrir
einleikshljóðfæri – annars var allt-
af undirleikur með. Þessar són-
ötur eru mjög vel skrifaðar fyrir
fiðluna og hann notar möguleika
hljóðfærisins mjög vel. Fyrsti kafl-
inn í þessari sónötu er hægur inn-
gangskafli, sá næsti er fúga, þriðji
kaflinn er eins og tríósónata þess
tíma, ein laglína og tveir undir-
hljómar, og sá fjórði er hraður
virtúósakafli,“ segir Ari. „Við
nemendur Guðnýjar Guðmunds-
dóttur erum alltaf að spila Bach
og mér þykir sérstaklega vænt um
þessa sónötu,“ bætir hann við.
„Svo spila ég sónötu eftir Jón
Nordal. Ég held að hann hafi verið
um 24 ára aldurinn þegar hann
samdi hana,“ segir Ari og við-
urkennir að honum hafi ekki þótt
sónatan sérlega árennileg í upp-
hafi en svo hafi hún unnið á og nú
þyki honum hún mjög skemmtileg.
„Mér þykir orðið mjög vænt um
hana núna,“ segir hann.
Sónatan eftir Prókofieff sem er
síðust á efnisskrá tónleikanna var
að sögn Ara upphaflega samin
fyrir flautu og píanó. „En David
Oistrakh, einn frægasti fiðluleik-
ari 20. aldar, fékk Prókofieff til að
umskrifa hana fyrir fiðlu. Hún
hljómar náttúrulega miklu betur á
fiðlu,“ segir Ari.
Stefnan tekin á Bandaríkin
Eins og áður sagði hefur Ari
fengið til liðs við sig félaga sinn úr
Tónlistarskólanum, Víking Heiðar
Ólafsson, sem nýverið hélt einleik-
araprófstónleika sína í Salnum.
„Það er auðvitað frábært að spila
með honum,“ segir Ari.
Aðspurður um framtíðaráform
kveðst Ari taka stefnuna á frekara
nám í Bandaríkjunum. Hann hefur
sótt um skólavist á nokkrum stöð-
um og er að bíða eftir svörum.
Hann hefur mikinn hug á að kom-
ast til kennara í Chicago,
hjónanna Almitu og Roland Vam-
os, sem eru mörgum íslenskum
fiðluleikurum að góðu kunn. „Ef
ég kemst ekki inn í skóla í haust
myndi ég bara vera í einkatímum
hjá þeim fyrsta veturinn,“ segir
hann.
Sala aðgöngumiða í Salnum
hefst klukkustund fyrir tón-
leikana eða kl. 13.00.
Þykir sérstaklega vænt
um sónötu Bachs
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ari Þór Vilhjálmsson
NORRÆN djasshljómsveit hefur
ekki leikið í Reykjavík síðan á
djasshátíðinni í september. Norræni
kvartettinn, sem nefnir sig uppá
ensku The Nordic Quartet, var á
tónleikaför um Norður-Atlantshafið
með viðkomu í Færeyjum og á Ís-
landi og hér hljóðrituðu þeir félagar
geisladisk auk þess að halda tón-
leika. Á diskinum verður íslenskur
andblær því þar má finna verk eftir
Sigurð Flosason auk þess sem Hilm-
ar Jensson og Óskar Guðjónsson
leika í tveimur ópusanna.
Þeir félagar koma frá Danmörku,
utan píanistinn Jacob Karlzon sem
er sænskur og hefur m.a. leikið með
Tolvan-stórsveitinni og kvartetti
Fredriks Lundin og Peters Danemo.
Svíar hafa ungað út djasspíanistum
einsog Danir bassaleikurum. Allir
djassunnendur þekkja Bengt Hall-
berg og Bobo Stenson og flestir
Lars Janson og Esbjörn Svensson.
Margir muna eftir Claes Crona sem
kom á djasshátíð með Putte Wick-
man og Daniel Karlsson sem hér lék
með Fredrik Norén og nú bætist
Jacob Karlzon í safnið. Hann óf
voldugan hljómavef í ópus Sigurðar,
Gengið á lagið, og greinilegt að hann
er af skóla McCoys Tyners frekar en
Bills Evans. Flutningur þessa ópus
var í stjörnumerki Coltranekvart-
ettsins fræga, en strax í næsta verki,
sem var eftir Carlzon, ríkti hin nor-
ræna djassheiðríkja með örlítilli
klassískri slikju. Christian Vuurst er
pottþéttur saxófónleikari þótt hann
búi ekki yfir töfrum Karlzons og
hann blés fallega ballöður Sigurðar:
Vatn undir brúna og Liðin tíð, en
Karlzon lék langan og ljóðrænan
inngang að þeirri síðarnefndu. Verst
að hann drukknaði að mestu í
skvaldrinu frá neðri hæðinni í Húsi
Málarans og er ekki vansalaust í hví-
líkum ólestri hljóðmál Múlans eru.
Nokkur þekkt djasslög voru á efn-
isskránni inná milli frumsamdra
laga þeirra félaga og verka Sigurð-
ar. Best þótti mér tríóhljómsetning
Karlzons á All blues úr Kind of
Blue-svítu Miles Davis, þarsem
Morten Lund sló kraftmikinn
trommusóló, en Monkdúó þeirra
Karlzons og Vuurst, Pannonica, var
heldur daufur. Bassaleikarinn
trausti, Morten Ramsbøl, kom til Ís-
lands fyrir nokkrum árum og heill-
aðist svo af Gullfossi að hann samdi
lag undir fosshrifunum. Að sjálf-
sögðu nefnist það Gullfoss og ríkti
fossniðurinn í rýþmanum. Aukalagið
var blús með frjálsu sniði og ekki er
annað hægt að segja en að þessi
heimsókn frænda okkar hafi frískað
íslenskt djasslíf og gaman verður að
heyra disk þeirra. Ég man ekki til
þess að verk eftir íslenskan djass-
leikara hafi fyrr verið á diskum er-
lendra.
Norrænn djassfossaniður
DJASS
M ú l i n n í H ú s i
M á l a r a n s
Christian Vuurst tenór- og sópr-
ansaxófóna, Jacob Karlzon píanó,
Morten Ramsbøl bassa og Morten
Lund trommur. Fimmtudags-
kvöldið 29. mars 2001.
THE NORDIC QUARTET
Vernharður Linnet