Morgunblaðið - 01.04.2001, Side 24

Morgunblaðið - 01.04.2001, Side 24
24 SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ A f hverju telur Flug- málastjórn ekki til- efni til uppsagnar áætlunarsamninga eða leyfissviptingar Leiguflugs Ísleifs Ottesen (LÍO) í ljósi þess að stofnunin hefur komist að þeirri niðurstöðu að flugfélagið hafi sýnt af sér alvarlega vanrækslu á faglegum grundvallarþætti í flug rekstri? „Flugmálastjórn getur ekki svipt aðila flugrekstrarleyfi í refsingar- skyni. Það er hlutverk dómstóla, sem hugsanlega munu fá umrætt slys til meðferðar. Eftir slysið var gengið úr skugga um að flugrekstur félagsins væri í samræmi við öryggisreglur. Ítrekaðar úttektir og skoðanir á starfsemi félagsins, nú síðast 27. og 28. mars sl., staðfestu að ekki væri tilefni til sviptingar á grundvelli ör- yggissjónarmiða. Í bréfi stofnunar- innar er bent á atriði, sem kynnu að varða uppsögn þjónustusamninga ráðuneytanna við LÍO. Við mat á því hvort samningunum skuli sagt upp koma til skoðunar lögfræðileg álita- efni, sem ekki tengjast flugöryggi. Það er hlutverk annarra en Flug- málastjórnar að leggja mat á þau,“ segir Þorgeir Pálsson flugmálastjóri. – Þú segir að Flugmálastjórn geti ekki svipt flugrekendur flugrek- endaskírteini eða öðrum heimildum í refsiskyni, það sé hlutverk dómstóla. Hvaða úrræði hefur Flugmála- stjórn? „Flugmálastjórn getur að sjálf- sögðu svipt flugrekanda flugrekstr- arleyfi ef hún hefur til þess gildar ör- yggisástæður, sem hún getur stutt rökum. Hins vegar mundi slíkri ákvörðun að sjálfsögðu vera beint þegar í stað til dómstóla. Hér verður að hafa í huga, að atvinnuréttindi njóta ríkrar lögverndar, þannig að gerðar eru mjög miklar kröfur um sönnun. Stofnunin mætti gjarnan hafa fleiri úrræði en hún hefur nú lögum samkvæmt,“ segir Þorgeir. – Hefur þú krafist þess að flug- rekstrarstjóra Leiguflugs Ísleifs Ottesen (LÍO) verði vikið úr starfi sökum vanhæfis og hvaða afleiðingar getur það haft varðandi flugrekstr- arleyfi félagsins? „Málið er í rannsókn, sem er á því stigi, að ég tel ekki rétt að ræða það.“ Frávik gáfu ekki ástæðu til að stöðva rekstur félagsins – Í bréfi þínu til samgönguráð- herra kemur fram að í ítarlegri út- tekt á LÍO 27. og 28. mars hafi orðið vart nokkurra frávika en ekkert þeirra er sagt alvarlegt. Um hvaða frávik er þarna að ræða? „Frávik koma fram í öllum úttekt- um. Spurningin er eingöngu hvers eðlis þau eru og hvort þau teljast al- varleg. Í flestum tilvikum er um að ræða atriði, sem viðkomandi flugrek- andi fær allt upp í þrjá mánuði til að lagfæra. Þau frávik, sem fram komu í umræddum úttektum voru þess eðl- is, að engin ástæða var til að stöðva rekstur félagsins eða svipta það rekstrarleyfi á grundvelli þeirra.“ – Bent hefur verið á að hætta sé á trúnaðarbresti á milli almennings og flugmálayfirvalda eins og mál hafa þróast eftir að rannsóknarnefnd flugslysa gaf út skýrslu sína. Ert þú sammála þessu? „Þú ert hér vænt- anlega að vitna til leiðara Morgun- blaðisins í gær (laugardag). Ég get verið sammála því að slík hætta sé alltaf til staðar, sérstaklega þegar válegir atburðir verða eins og hið hörmulega flugslys í Skerjafirði. Það sem ég get sagt í þessu sambandi er að Flugmálastjórn mun gera allt, sem í valdi stofnunarinnar er, til að koma í veg fyrir að slíkt slys verði aftur. Þótt það hafi ekki verið aug- lýst var gripið til sérstaks eftirlits með rekstri LÍO þegar eftir slysið eins og fram kemur í bréfi stofnunar- innar til ráðherra. Þetta eftirlit hefur einnig verið útvíkkað til annarra flugfélaga, sem enn eru ekki að fullu komin inn í rekstrarumhverfið, sem kennt er við Flugöryggissamtök Evrópu. Ég get tekið heilshugar undir þau orð ritstjóra Morgun- blaðsins, að flugfarþegi verði að geta treyst því, þegar hann sest upp í flugvél, að öryggi í flugrekstrinum sé tryggt eins og kostur er. Hins vegar getur ekkert kerfi tryggt það að ekki geti orðið flugslys, þótt vissulega sé það markmiðið. Hjá stofnuninni starfar mjög hæf sveit einstaklinga að því að viðhalda og treysta það flugöryggiskerfi, sem komið hefur verið upp á undanförnum áratugum og gert það að verkum að íslenskur flugrekstur nýtur trausts um allan heim. Ég er þess fullviss, að íslenskir flugfarþegar geta treyst þessu kerfi og við munum vinna að því hörðum höndum að sýna fram á að stofnunin sé traustsins verð,“ segir Þorgeir. – Hvers vegna er fyrirspurn ráðu- neytisins um hvort tilefni sé til upp- sagnar samninga við LÍÓ um áætl- unar- og sjúkraflug í samræmi við uppsagnarákvæði samninganna raunverulega ekki svarað, heldur er í staðinn fjallað um þá spurningu hvort skilyrði séu til sviptingar flug- rekstrarleyfis. Er ekki þarna um tvö ólík mál að ræða? „Í reynd er þessu atriði svarað í bréfi Flugmálstjórnar til samgöngu- ráðherra. Ljóst er, að skýrt kemur fram í bréfinu, að mat stofnunarinn- ar er, að um alvarlega vanrækslu hafi verið að ræða í rekstri flugvél- arinnar sem fórst. Þetta tengist beinlínis því ákvæði samningsins, sem vitnað er til í bréfinu, að um hafi verið að ræða faglegan misbrest í flugrekstrinum, sem getur verið til- efni til uppsagnar. Hins vegar hlýtur það að vera hlutverk ráðuneytanna sem verkkaupa að taka ákvörðun í þessu efni.“ Eftirlit ekki óbrigðult – Fyrir liggur af lestri skýrslu rannsóknarnefndar flugslysa um flugslysið í Skerjafirði að vinnu- brögðum flugrekandans, hafi verið verulega ábótavant og að eftirlit Flugmálastjórnar með flugrekend- um hafi ekki verið sem skyldi. Hvert er þitt svar við þessu? „Þarna kemur í ljós að eftirlitið með þeim aðferðum sem við notum er ekki óbrigðult og ekki er tryggt að allir hlutir komi í ljós í tæka tíð. Nið- urstöður úttektar, sem við gerðum hjá þessu flugfélagi mjög stuttu eftir slysið, eru hins vegar ekki þess eðlis að þær gæfu tilefni til þess að taka af honum flugrekendaskírteinið,“ segir Þorgeir. – Skv. 84. grein loftferðalaga segir að brjóti leyfishafi í mikilvægum at- riðum lagaboð, önnur fyrirmæli um starfsemina, skilyrði leyfis eða hann reynist ófær um að reka starfsemina skuli svipta hann leyfi. Hversu alvar- leg atvik eða vanræksla gefa tilefni til þess að flugrekandi verði sviptur flugrekstrarleyfi? „Leyfissviptingar eru af tvennum toga. Annars vegar er um að ræða flugöryggislegar ástæður, þar sem flugrekandi er stöðvaður, þar til hann hefur bætt úr ágöllum. Hins vegar er um að ræða réttindasvipt- ingu í refsiskyni sem er viðfangsefni dómskerfisins. Ef slíkar brotalamir koma fram í rekstrinum að flugör- yggi sé ógnað með áframhaldi hans mundi reksturinn verða stöðvaður. Misbrestur, sem orðið hefur í fortíð- inni en er ekki viðvarandi, er ekki endilega ógn við flugöryggi til fram- tíðar. Hafi verið framið brot kann það að verða tilefni til að flugrekand- inn sé sviptur réttindum í refsiskyni. Í rauninni vantar okkur fleiri úrræði, t.d. heimild til að beita stuttum tíma- bundnum leyfissviptingum, sem væru ekki áfrýjanlegar, en slíkt er ekki mögulegt í dag. Eða þá að við gætum beitt fjársektum eins og tíð- kast í sumum löndum,“ segir Þor- geir. – Hefur þessi skortur á úrræðum hamlað starfi flugmálastjórnar? ,,Yfirleitt er það ekki svo. Í lang- flestum tilvikum taka flugrekendur ábendingum og fyrirmælum okkar vel. En þess eru einnig dæmi að menn hafa brugðist öðruvísi við og jafnvel haldið því fram að við værum leggja þá í einelti, sem er auðvitað af og frá. Við leggjum mikla áherslu á að gætt sé jafnræðis og að viðhaft sé meðalhóf í þeim aðgerðum sem við þurfum að grípa til.“ Aðspurður segir Þorgeir dæmi um að ákvarðanir Flugmálastjórnar um leyfissviptingu hafi verið ógiltar af dómstólum. „Við höfum upplifað það, þar sem við töldum um skýrt brot á flugreglum vera að ræða og beittum heimildum til bráðabirgðasviptingar, að héraðsdómur felldi ákvarðanir okkar úr gildi. Í öðru tilviki kvað hér- aðsdómur upp þann dóm að um hefði verið að ræða eðlilegt flug, þar sem við vorum sannfærð um að góft brot hefði verið framið. Fyrir nokkrum árum, fyrir mína tíð sem flugmála- stjóri, kom einnig upp tilvik þar sem Flugmálastjórn greip til aðgerða vegna flugvélar sem hafði verið of- hlaðin. Ákæruvaldið sá hins vegar ekki ástæðu til að fylgja því máli eft- ir.“ Þorgeir var einnig spurður hvort dæmi væru þess að stjórnmálamenn reyndu að beita áhrifum sínum á starfsemi stofnunarinnar. „Það hef- ur sem betur fer minnkað mjög í seinni tíð en það verður að segjast eins og er að stjórnmálamenn hafa stundum látið þessi mál til sín taka ÞORGEIR PÁLSSON FLUGMÁLASTJÓRI SEGIR ÍSLAND Í HÓPI ÞEIRRA ÞJÓÐA SEM FYLGJA STRÖNGUSTU ÖRYGGISKRÖFUM Í FLUGI Morgunblaðið/Ásdís Rannsókn flugslyssins í Skerjafirði 7. ágúst sl. hefur leitt í ljós alvarlega misbresti í flugrekstri og að úrbóta er þörf í flugöryggismálum hér á landi. Þorgeir Pálsson flugmálastjóri segist þess fullviss í samtali við Ómar Friðriksson að íslenskir flug- farþegar geti treyst flugöryggiskerf- inu og Flugmálastjórn muni vinna að því hörðum höndum að sýna fram á að stofnunin sé traustsins verð. FLUGMÁLASTJÓRN MÆTTI HAFA ÖNNUR ÚRRÆÐI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.