Morgunblaðið - 01.04.2001, Qupperneq 28
28 SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÚTSÖLUMARKAÐUR
Fálkahúsinu, Suðurlandsbraut 8,
opinn fram að páskum.
M
IKIL uppbygging
hefur átt sér stað í
rekstri Háskólans í
Reykjavík,“ sagði
Guðfinna S. Bjarna-
dóttir, rektor skólans. „Þessi upp-
bygging gerir það að verkum að við
erum nú tilbúin að taka á móti bestu
nemendum í hverjum árgangi. Við
viljum laða að góða og hæfa nem-
endur og vera með bestu kennarana.
Hingað til höfum við fengið til liðs
við okkur frábæra einstaklinga. Það
er ekki síst náið og krefjandi sam-
starf nemenda og kennara sem gerir
deildir skólans fremstar í sinni röð.
Við erum farin að leiða hugann að
nýjum deildum sem taka munu til
starfa haustið 2002 og verða þær
kynntar sérstaklega í haust. Auk
þess verður boðið upp á aukið fjar-
nám.“
Nýbygging
Háskólinn í Reykjavík tók til
starfa árið 1998 og hefur því starfað
í tvö ár og sjö mánuði. Næsta haust
verður tekin í notkun ný viðbygging
við skólann og mun húsnæðið þá
tvöfaldast og verða átta þúsund fer-
metrar. Nemendum mun fjölga og
verða þeir um 750 en þeir voru rúm-
lega 300 á fyrstu önninni.
„Við stóðum vel að vígi í upphafi
því við fengum í vöggugjöf deild,
sem áður hét Tölvuháskóli Verzlun-
arskóla Íslands,“ sagði Guðfinna.
„Deildin varð tölvunarfræðideild
HR. Áður var þetta tveggja ára
kerfisfræðinám, en nú útskrifuðum
við síðastliðið vor í fyrsta sinn nem-
endur með BS-gráðu í tölvunar-
fræði. Í vor er áætlað að um 80 kerf-
isfræðingar og 40 BS-nemar
útskrifist frá tölvunarfræðideild
HR. Þrátt fyrir mikla eftirspurn eft-
ir fólki með þessa menntun hefur
Háskóli Íslands einungis útskrifað
23 BS-tölvunarfræðinga að meðal-
tali á ári síðastliðin 10 ár. Fram-
leiðnin hefur því verið lítil en við
viljum bæta gæði námsins og auka
framleiðni. Við Íslendingar þurfum
að hugsa meira um framleiðni en við
gerum. Við viljum útskrifa fleiri með
BS-gráðu í tölvunarfræði. Einstak-
linga sem eru sterkir fræðilega en
eru jafnframt góðir fagmenn. Ég
trúi því að skilyrði fyrir búsetu hér á
landi, hagvexti, lífsskilyrðum og
menningu byggist á góðri menntun.
Í því sambandi skiptir framleiðni í
menntamálum einnig miklu máli.“
Bandamenn
Skólinn hefur fengið sex fyrirtæki
til liðs við sig, Bandamenn, sem
munu leggja til fjármagn auk að-
stoðar við að efla enn frekar rann-
sóknir og kennslu við skólann. Fyr-
irtækin sem mynda
bandamannahópinn eru Íslandssími,
Íslandsbanki FBA, Baugur, Opin
kerfi hf. (í samvinnu við Teymi og
Skýrr), Íslensk erfðagreining og
Eimskip. „Fyrirtækin sex koma
hvert úr sínum geira í atvinnulífinu
og munu þau styrkja okkur með
samtals 70 milljóna króna framlagi
til ársins 2002. Í Bandamannaverk-
efninu felst að bandamenn fá að-
gang að verkefnum nemenda og sér-
stakir bandamannadagar verða
árlegur viðburður í HR. Einnig fel-
ur samningurinn í sér endurmennt-
un fyrir starfsmenn bandamanna-
fyrirtækjanna. Framlag
bandamanna til skólans gerir okkur
kleift að efla deildir skólans og þróa
og jafnframt gera okkur samkeppn-
ishæfari. Ég vil geta greitt kenn-
urunum há laun. Það skiptir miklu
máli og ég vil að við getum stundað
rannsóknir. Við höfum komið upp
rannsóknarmiðstöð innan skólans en
það er nýmæli. Við höfum sagt að
háskóli væri ekki háskóli nema þar
væru stundaðar rannsóknir. Þetta
er mikill styrkur fyrir skólann að fá
svona öfluga liðsmenn.“
Leiðarljós
Grunninn að hugmyndafræðinni
sem skólinn byggist á hefur Guð-
finna m.a. sótt til Bandaríkjanna,
þar sem hún var í námi og starfi um
nokkurra ára skeið. Sjálfseignar-
stofnun Verslunarráðs Íslands um
verslunarmenntun, SVÍV, setur HR
skipulagsskrá. Verslunarráð Íslands
er bakhjarlinn. „Í skipulagsskrá
skólans kemur fram að hlutverk
skólans sé að efla samkeppnishæfni
íslensks atvinnulífs,“ sagði Guð-
finna. „Við höfum alltaf tekið það
hlutverk alvarlega. Strax voru sett
fram þrjú leiðarljós fyrir skólann,
sem eru nýsköpun en í því felst að
við viljum kenna nemendum okkar
nýsköpun og vera í sífelldri endur-
nýjun og nýsköpun í skólastarfinu.
Annað er tölvu- og tækniþróun og
að fylgjast vel með á því sviði og
vera helst á undan öðrum bæði í
kennslu og í starfsemi skólans. Síð-
asta er alþjóðavæðing en í því felst
að sækja hugmyndir til útlanda og
hafa samstarf við erlenda háskóla og
menntastofnanir. Einnig að kenna
nemendum okkar að fóta sig í hinum
síbreytilega og alþjóðavædda heimi
sem verður starfsvettvangur fram-
sækinna Íslendinga á næstu áratug-
um.“
Valið úr umsóknum
Á vorin er auglýst eftir umsókn-
um um skólavist og hafa borist allt
að þrisvar sinnum fleiri umsóknir en
sá fjöldi nemenda sem hægt er að
taka við. Skólinn getur því valið úr
nemendum og er almennt miðað við
frammistöðu á stúdentsprófi auk
annarra viðmiða. Sagði Guðfinna að
eftir að nemendur hefðu fengið
skólavist væri brýnt fyrir þeim að
hver og einn væri sinnar gæfu smið-
ur. Þau yrðu að leggja mikið af
mörkum, nýta tímann eins vel og
þau gætu og jafnframt að skólinn
væri reiðubúinn til að aðstoða þau
við að byggja sterkar stoðir fyrir
framtíðina. Menntun væri besta
fjárfestingin sem þau gætu valið.
Skólinn gerir þjónustusamning
við menntamálaráðuneytið eins og
aðrir skólar en að auki greiða nem-
endur skólagjöld, sem hafa verið 69
þús. á önn en verða 79 þús. á næsta
ári. Fyrir MBA-nám greiða nem-
endur 1,5 milljónir.
Góður starfsandi
Guðfinna leggur áherslu á að
starfsandi meðal kennara og nem-
enda sé sérlega góður. „Við gerum
ansi miklar kröfur til nýnema og
þeim er veitt gott aðhald og þeir fá
góða þjónustu,“ sagði hún. „Mér
finnst skipta máli að tekið sé á móti
þeim sem einstaklingum og mann-
eskjum. Þau eiga ekki að koma í
kaldan skóla heldur í umhverfi, þar
sem þau fá að þroskast og vinna
með félögum sínum í hópvinnu, sem
við leggjum mikið upp úr. Aðstaðan
er mjög góð og andinn góður. Nem-
andinn finnur að við viljum að hann
standi sig, nái þessu og verði sterk-
ur. Við segjum að verið sé að byggja
tvær sterkar stoðir undir framtíð-
ina. Önnur stoðin er fræðileg og ger-
ir nemendur að öflugum greinend-
um. Hin er hagnýt, sem gerir þeim
mögulegt að nýta sér fræðin í verk-
Mannauðurinn
skiptir máli
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík.
!"#$% &''
$( ) *+, #)
*
-,"
Ákveðið hefur verið að styrkja fjóra framúrskarandi nýnema með 400 þúsund króna styrk og niðurfellingu skóla-
gjalda við Háskólann í Reykjavík í haust. Aðrir sex nýnemar verða styrktir með niðurfellingu skólagjalda og að
auki verða tveir nemar á öðru og þriðja ári styrktir með fjárstyrk og niðurfellingu skólagjalda. Guðfinna S.
Bjarnadóttir rektor kynnti Kristínu Gunnarsdóttur skólastarfið og þær nýjungar sem í boði eru.