Morgunblaðið - 01.04.2001, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2001 29
efni og vinnu þannig að þau óttist
ekki að takast á við flókin verkefni.
Það er mikli vinna sem lögð er á
nemendur og þeir eru mikið í skól-
anum. Að launum geta þeir átt
spennandi framtíðarmöguleika.“
Strax á fyrstu önn fá nemendur í
tölvunarfræði að spreyta sig á hug-
búnaðargerð. Námið miðast við að
setja þau á fyrstu vikunum inn í
fræðin. Nemendur vinna saman í
hópum og er valið í þá eftir getu
hvers og eins. „Við byggjum námið
þannig upp að þau fá strax að vinna
verkefni á tölvunum þannig að sam-
hengi milli námsgreina verður ljós-
ara og skilningur betri,“ sagði Guð-
finna. „Þegar líður á námið þyngist
það og kröfur verða sífellt meiri.
Þegar þau svo ljúka BS-prófi eru
þau sannanlega búin að spreyta
sig.“
Fyrirmyndin að uppbyggingu
námsins er sótt til ACM (Associa-
tion for Computing Machinery) sem
er bandarískt fyrirtæki og svarar til
Skýrslutæknifélags Íslands en fyr-
irtækið hefur unnið að greiningu á
þeim þáttum sem kenna beri til BS-
náms í tölvunarfræði.
„Sú vinna hefur staðið yfir í mörg
ár og skólar í Bandríkjunum auk
annarra skóla víða um heim sækja í
þessa fyrirmynd,“ sagði Guðfinna.
„Kennarar frá okkur hafa farið á
ráðstefnur hjá þeim og nýtum við
þeirra viðmið í uppbyggingu náms-
ins og reynum að gera betur. Ég er
mjög stolt af tölvunarfræðideildinni,
bæði faglega og fræðilega, og af
starfsfólkinu. Þetta er góður hópur
og andinn er góður.“
Leiðtogar í viðskiptalífinu
Þegar skólinn tók til starfa var
stofnuð viðskiptadeild og hefur
henni verið stýrt á svipaðan hátt og
tölvunarfræðideildinni. „Við erum
alltaf að kenna fræðin og samþætta
námsgreinar með flóknum verkefn-
um,“ sagði Guðfinna. „Á fyrsta ári
þegar nemendur hafa lært fjár-
haldsbókhald, markaðsfræði, stjórn-
un og fjármál og nokkur undirstöðu-
fög spreyta þeir sig á að búa til
fullkomna viðskiptaáætlun. Það er
námskeið sem við höfum sótt í
smiðju til Íra, sem hafa verið fram-
arlega í nýsköpunarfræðum. Þetta
er nýsköpunarnámskeið og fjallar
um hvernig nemendur samþætta öll
námskeið fyrsta námsársins og full-
vinna viðskiptaáætlun. Við höfum
fengið leiðtoga í viðskiptalífinu til
liðs við okkur sem þjálfara. Nem-
endur fara til þeirra með sínar hug-
myndir og þeir segja til um hvernig
þeim lýst á. Það eru dæmi um að
þeim hefur ekki litist á blikuna í
fyrstu en eftir frekari vinnu nem-
enda hefur þjálfarinn dæmt hana
hæfa. Þessi deild hefur farið langt
fram úr mínum vonum.“
Í samvinnu við níu háskóla
Um síðustu áramót var tekið upp
MBA-nám við Háskólann í Reykja-
vík og sagði Guðfinna að námið væri
unnið í samvinnu við níu erlenda há-
skóla í Evrópu og í Ameríku og hafa
Erasmus-háskólinn og Verslunarhá-
skólinn í Kaupmannahöfn lýst mikl-
um áhuga á frekari samvinnu við
uppbyggingu náms á meistarastigi.
„Við sækjum þekkingu þangað
sem hún er í stað þess að endur-
hanna hjólið,“ sagði hún. „Það sem
mér finnst merkilegt er að tveggja
ára gamall skóli, eins og okkar, skuli
vera kominn í samstarf við Köln-
arháskóla sem stofnaður var fyrir
600 árum. Við erum að vinna og
þróa þetta nám með þessum skólum.
Þannig hefur einn af okkar kenn-
urum, Árelía Eydís Guðmundsdótt-
ir, tekið að sér að þróa stjórnenda-
námskeið sem kennt verður í
samstarfsháskólum okkar erlendis.
Það er okkar framlag. Við erum því
að flytja út þekkingu. Við getum
ekki einangrað okkur. Við verðum
að sækja út og vinna með fræði-
mönnum um allan heim. Það er hluti
alþjóðavæðingarinnar.“
Unnið með fyrirtækjum
og stofnunum
Þriðja deild skólans er símennt og
sagði Guðfinna að hún væri þegar
orðin öflug. Tekið hefur verið upp
samstarf við erlenda háskóla og hafa
meðal annars komið hingað prófess-
orar við Harvard til starfa á vegum
deildarinnar. „Símennt hefur byggst
á kennslufræðilegri nálgun með fyr-
irtækjum og boðið þeim lengri tíma
sérsniðnar lausnir og nám, sem þró-
að er í samvinnu við þau,“ sagði hún.
Gerðir hafa verið samvinnusamning-
ar við fjölda fyrirtækja svo sem Ís-
landsbanka, Marel, Toyota og spari-
sjóðina auk þess sem unnið hefur
verið með Fræðslumiðstöð Reykja-
víkurborgar og skólastjórum grunn-
skólanna. „Við tökum að okkur þjón-
ustusamninga og byggjum
markvisst upp þeirra nám,“ sagði
Guðfinna. „Fyrirtækin skynja eins
og við að mannauðurinn er það sem
skiptir máli. Ég er mjög stolt af
þessari deild sem tók til starfa í
byrjun ágúst 1999. Þessi deild sér
einnig um auðarverkefnið sem er
mikið og skemmtilegt. Þar er því
mikið að gerast.“
Símenntun hefur þegar teygt sig
út fyrir landsteinana en á hennar
vegum var haldið námskeið í raf-
rænum viðskiptum í samvinnu við
IESE í Barselóna. Námskeiðið sóttu
nemendur frá 15 þjóðlöndum og
sagði Guðfinna að gaman hefði verið
að taka á móti þeim.
Skólinn býður einng nemendum
að stunda fjarnám í tölvunarfræði.
Fjarnámstæknin var þróuð með
rannsóknarstyrk frá LEONARDO
og stunda 80 nemendur nú fjarnám
við skólann.
„Í raun og veru hef ég allt frá
byrjun séð fyrir mér að Reykjavík á
að verða þekkt sem fræðaborg, borg
mennta og menningar,“ sagði Guð-
finna. „Einn drauma minna, sem ef
til vill er fjarlægur, er að fá útflutn-
ingsverðlaun. Þar á ég við að við
munum flytja út nám. Vera má að
það taki langan tíma en við erum
þegar farin að byggja upp grundvöll
að fjarnámi. Til þess að þetta takist
verðum við að styrkja okkar mennt-
un en hugsaðu þér hvað það væri
gaman ef Reykjavík yrði þekkt sem
menningar- og menntaborg. Þetta
er minn æðsti draumur. Við höfum
alla möguleika í hendi okkar. Við er-
um lítil og saklaus þjóð, við erum
Norðurlandabúar og evrópsk, við
erum mennta- og menningarland,
við stöndum framarlega á tækni-
sviðinu og við höfum ekki staðið í
neinum útistöðum við aðrar þjóðir.
Við höfum því meðbyr. Ísland er í
tísku og við eigum að nýta okkur
það.“
!"
) ."#$ / 0
) ."#$ (
# 1. (
$ / 0
/ 0
) # 1. / 0
) # 1. (
."#$ (
$ / 0
(23 ( 4.
%$ # 1.
2 56 ( ) (. # 7
6.% 8#.+ 9 :;99(; $3 <
=9>% $ ;%993 ? ("$3 : ($ 8#.+3 *9.. (3 9
:6?:3 ;9 3 13 <9 . . 8#.+3 ),$$(
59.+ !;%3 5@)3 A9B ;%99 9 :;99(; 63 3 A9
8#.+ 9 ?#3 ),$$(
4 $
C1 (
:. (.
# !$%&!'(")
krgu@mbl.is