Morgunblaðið - 01.04.2001, Page 30

Morgunblaðið - 01.04.2001, Page 30
30 SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ S nyrtivörumerkið NO NAME er alíslenskt og vörur þess sérstaklega sniðnar fyrir íslenskar konur og íslenska húð. Nú er verið að breikka litaúrvalið og bæta við nýrri snyrtivörulínu fyrir konur með dökkt litaraft, því NO NAME er að hasla sér völl í útlönd- um. Þegar Kristín kom heim úr námi í London stofnaði hún Snyrtistofuna NN á Laugavegi 27 og hóf að láta framleiða snyrtivörur undir vöru- merkinu NO NAME fyrir stofuna. Meðan Kristín var við nám í London hafði hún komist í kynni við stóra snyrtivöruverksmiðju í Bandaríkjun- um, þá þriðju stærstu þar í landi, sem framleiðir vörur fyrir mörg þekkt vörumerki. Að sögn Kristínar er þetta hágæðavara, án ilmefna, of- næmisprófuð og engar dýratilraunir gerðar við þróun vörunnar. Hún fór til Bandaríkjanna og valdi vörur í NO NAME-línuna. „NO NAME er mitt eigið vöru- merki og hefur eingöngu verið til sölu hér á landi undanfarin 15 ár,“ sagði Kristín. „Ég hef sjálf hannað förðun- arlínuna. Litir hafa verið miðaðir við íslenska húð, sem er ljós. Ég hef bæði valið staðlaða liti frá framleiðandan- um og látið sérframleiða liti inn í lín- una.“ Kristín er mjög ánægð með samstarfið við þennan framleiðanda og segir vöruna hafa líkað vel. Umbúðirnar, það er hylki, dósir og baukar, eru framleiddar annars stað- ar, til dæmis í Suðaustur-Asíu, og hefur Kristín valið þær úr staðlaðri framleiðslu eða látið hanna og fram- leiða. Kristín leggur áherslu á að NO NAME sé gæðavara sem standist ýtrustu kröfur, þótt verðið liggi ná- lægt miðju verðbilsins á markaðin- um. Jafn vöxtur Vörurnar urðu fljótt vinsælar og skapaðist töluverð eftirspurn. Bæði vildu snyrti- og förðunarfræðingar kaupa og eins verslanir. Árið 1988 var salan orðin svo mikil að Kristín hætti rekstri snyrtistofunnar og ein- beitti sér að heildsölu með NO NAME-snyrtivörur. „Ég byrjaði smátt, innréttaði bíl- skúrinn þar sem ég bjó fyrir heild- sölu og var með um tíu útsölustaði hér í Reykjavík og úti á landi,“ segir Kristín. Auk heildverslunarinnar var hún iðin við að halda förðunarnám- skeið og fyrirlestra um förðun og snyrtingu. Þetta reyndist kjörinn vettvangur til að kynna NO NAME- snyrtivörurnar. Konur sem sóttu námskeiðin urðu tryggir viðskipta- vinir. Þar kom að Kristín flutti fyrirtæk- ið í Ármúla 38 þar sem það var til húsa 1994–97. Hún segir að þá hafi hjólin farið að snúast fyrir alvöru og sölustöðum, bæði verslunum og snyrtistofum, fjölgað til mikilla muna. Í dag eru NO NAME-snyrti- vörur seldar á um 45 stöðum hér á landi, í snyrtistofum, snyrtivöru- verslunum, hársnyrtistofum, helstu Lyf og heilsu-apótekum, lyfjabúðum og í Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli. Þegar Kristín stofnaði fyrirtækið voru starfsmennirnir tveir. Helga Jónsdóttir förðunarfræðingur starf- aði með henni í átta ár. Nú eru starfs- mennirnir níu talsins. Auk Kristínar skrifstofustjóri, þrjár sölukonur og fjórir kennarar í förðunarskólanum. NO NAME-förðunarskólinn Þegar húsnæðið í Ármúla var orðið of lítið flutti Kristín fyrirtækið árið 1997 í mun stærra húsnæði á Hverf- isgötu 76. Þá skapaðist grundvöllur til að stofna NO NAME-förðunar- skólann sem hlotið hefur góðar við- tökur. Í fyrra flutti fyrirtækið í Bolholt 6 þar sem heildverslunin og förðunar- skólinn eru til húsa. Kristín keypti þar 600 m2 húsnæði í félagi við Ingu Þyrí Kjartansdóttur. Inga rekur heildverslun með hárskraut og húð- vörur ásamt naglaskóla í sama hús- næði. Að sögn Kristínar er mikil aðsókn að NO NAME-förðunarskólanum. „Ég byrjaði með 14 nemendur en nú eru haldin sex námskeið á ári. Kennslunni er skipt í þrjár annir og komast 40 nemendur að á hverri önn. Við höfum útskrifað um 120 nema á ári og nú er verið að skrá nemendur fyrir næsta haust,“ segir Kristín. Nemendur eru á ýmsum aldri, allt frá 18 ára upp í um fimmtugt. Grunnnámið í NO NAME-förðun- arskólanum felst í þriggja mánaða námskeiði í tísku- og ljósmyndaförð- un. Hægt er að velja um dagskóla eða kvöldskóla og er kennt í fjórar klukkustundir á dag, fjórum sinnum í viku, alls 240 klukkustundir. Í fram- haldi af því er hægt að nema leikhús- og kvikmyndaförðun sem kennd er með sama fyrirkomulagi, fjórar klukkustundir á dag, fjóra daga í viku í 13 vikur. Kristín segir að förðunarfræði sé ekki lögvernduð iðngrein og því sé þetta nám með námskeiðssniði. „Þetta er stutt nám og gefur góða at- vinnumöguleika fyrir þær sem vilja. Langflestir nemenda, eða nálægt 80%, eru að læra þetta fyrir sjálfa sig, enda er það mottó skólans að skapa lífsstíl fyrir konur. Þær sem hafa vilj- að leita sér vinnu að loknu námi hafa átt auðvelt með að fá hana.“ Íslensk fegurð Kristín segir að hér á landi sé ótrú- lega mikill áhugi á förðun og snyrt- ingu. Það sjáist vel á því að hér eru starfræktir þrír förðunarskólar en fjórir í heimsborginni Lundúnum. Aðspurð segir Kristín að á Íslandi sé góður markaður fyrir snyrtivörur og salan mun meiri en ætla mætti af höfðafjölda landsmanna. „Íslenskar konur hugsa mikið um útlitið. Þær nota mikið af kremum og öðrum snyrtivörum. Fylgjast vel með því sem er að gerast í tískuheiminum og eru mjög framarlega varðandi tísku. Þær eru einnig mjög nýjunga- gjarnar. Þetta á ekkert síður við um konur úti á landi en hér á höfuðborg- arsvæðinu.“ Auk förðunarskólans hefur Kristín verið dugleg við að halda námskeið fyrir smáa og stóra hópa, eins koma margar konur til hennar á einkanám- skeið og læra að farða sig sjálfar. „Þær koma líka til að fylgjast með því sem er að gerast, endurnýja snyrti- budduna og útlitið. Það er áberandi hvað íslenskar konur fara mikið á snyrtistofur og hugsa vel um útlitið. Það er ekki að ástæðulausu að það er talað um að íslenskar konur séu þær fallegustu í heiminum.“ Andlit ársins Undanfarin tíu ár hefur NO NAME valið Andlit ársins, konu sem hefur verið snyrt með NO NAME- snyrtivörum og prýtt auglýsingar fyrirtækisins það árið. Stefnt er að því að kynna 16. Andlit ársins hér á landi hinn 30. apríl næstkomandi. Þetta val hefur ævinlega vakið mikla athygli, að sögn Kristínar, ekki síst það að konurnar eru ekki valdar úr hópi kornungra fyrirsætna eins og snyrtivörufyrirtæki gera gjarnan. „Við höfum valið þroskaðar konur sem hafa sterkan persónuleika. Kon- ur með jákvæða ímynd og innri feg- urð. Þetta hefur fengið mjög góðar viðtökur. Mér varð ekki ljóst, fyrr en ég fór að vinna að útflutningi á NO NAME-snyrtivörum, að við erum lík- lega fyrsta snyrtivörufyrirtæki í heiminum til að velja andlit tengd af- mörkuðu markaðssvæði til að kynna vöruna.“ Ætlunin er að nota mark- aðssetningu af þessu tagi hvar sem NO NAME nemur land. Á markað erlendis Kristín segir að sér hafi verið ljóst Morgunblaðið/ÞorkellKristín Stefánsdóttir við vörustand með NO NAME vörum. ÍSLENSKAR SNYRTI- VÖRUR ÚT Í HEIM  Kristín Stefánsdóttir, snyrti- og förðunarmeistari, er eig- andi Cosmic ehf. sem á NO NAME-snyrtivörumerkið og NO NAME-förðunarskólann. Kristín fæddist í Vesturbænum í Reykjavík 1964 og ólst þar upp. Hún hóf nám í snyrtifræði árið 1980 hjá Maríu Dalberg á Snyrtistofunni Maju í Banka- stræti. Einnig nam hún tísku- og ljósmyndaförðun við Complection London School of Make-up. Hún opnaði Snyrti- stofuna NN á Laugavegi 27 árið 1982 og hóf um leið inn- flutning á NO NAME-snyrtivörum fyrir stofuna. Hún seldi stofuna og setti upp heildverslun með NO NAME-snyrtivör- ur 1988 og stofnaði síðan NO NAME-förðunarskólann 1997. Kristín hefur haldið fjölda námskeiða og fyrirlestra um förðun og snyrtingu. Hún kenndi förðun á snyrtibraut Fjöl- brautaskólans í Breiðholti í sex ár og kennir við NO NAME- förðunarskólann jafnframt því að stýra fyrirtækinu. „Íslenskar konur nota mikið af kremum og öðrum snyrtivörum, fylgjast vel með því sem er að gerast í tískuheiminum og eru mjög framarlega varð- andi tísku. Þær eru einnig mjög nýjunga- gjarnar.“ eftir Guðna Einarsson. Morgunblaðið/Þorkell Lagerinn kannaður, f.v.: Sölukonurnar Sigríður Guðsteinsdóttir, Bryn- dís Ólafsdóttir og framkvæmdastjórinn Kristín Stefánsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.