Morgunblaðið - 01.04.2001, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 01.04.2001, Blaðsíða 41
að raunverulegum gæðum lífsins – og maður var aftur með, þar sem þægi- legt var að vera. Ég þakka innilega fyrir að hafa fengið að kynnast Rikka og notið þeirra forréttinda að hafa átt hann að vini. Lisa von Schmalensee Burgess. Kveðja frá Félagi norrænna forvarða – Íslandsdeild Á morgun kveðjum við einn félaga okkar, Ríkharð H. Hördal. Þegar hann kom heim frá námi í Kaupmannahöfn var hann einn þeirra sem hleypti nýju lífi í félag forvarða. Hann sat í stjórn þess í nokkur ár. Á þeim tíma efldist samvinnan við deild- ir annarra landa, lög félagsins voru samin svo og siðareglur forvarða. Undanfarin ár var hann virkur í al- þjóðlegu samstarfi forvarða, þar sem hæfileikar hans til að kynnast fólki og hrífa með sér nutu sín til fulls. Við sendum aðstandendum hans samúðarkveðjur. Halldóra Ásgeirsdóttir, formaður. September 1968. Laugarvatn. Kynningarnámskeið á vegum menntamálaráðuneytisins fyrir er- lenda nemendur og kennara við Há- skóla Íslands 1968–69. Þá kynntist ég fólki frá ýmsum löndum sem ég sá oft þennan vetur, og meðal þeirra var einn sem reyndist vera sannur vinur í rúm 30 ár. Í september 1968 var Rikki Hördal 21 árs, nýkominn frá Vesturheimi, frá bænum Lundar í Manitoba, til að kanna rætur sínar og læra móðurmálið. Eitt fallegt síðdegi gengum við tveir saman upp á Laug- arvatnsfjall, nutum útsýnisins og veð- ursins, eftirvæntingarfullir þess sem beið okkar hér á Íslandi. Rikki stóð sig vel: Hann tók B.Phil.-próf í íslensku fyrir erlenda stúdenta, MA-próf í ensku, kvæntist góðri konu (ég þykist eiga heiðurinn af því að hafa kynnt hann og Álfheiði, enda var hún nemandi minn); þau eignuðust dótturina Láru; hann starf- aði fyrir Loftleiðir í nokkur ár; síðar tók kennsla við, en hann kenndi við Flensborgarskóla í Hafnarfirði. En þetta var ekki nóg fyrir mann með sterkan vilja og næmar tilfinningar fyrir alls konar listum: hann fór til Kaupmannahafnar, skráði sig í Kon- unglegu listaakademíuna og lauk prófi í forvörslu málverka árið 1982. Ári síðar stofnaði hann, ásamt Hilm- ari Einarssyni, fyrirtækið Morkin- skinnu, til þess að annast viðgerðir listaverka. Morkinskinna gekk vel frá upphafi og skiptir miklu máli í ís- lenskum listaheimi. En eins og fyrr þurfti Rikki að spreyta sig á nýju viðfangsefni. Árið 1993 flutti hann til Finnlands, þar sem hann kenndi forvörslu og tók mikinn þátt í uppbyggingu forvörslu- deildar Espoo-Vantaa Institute of Technology, og ég er viss um að hon- um vegnaði þar mjög vel. Við hjónin vorum svo heppin að vera boðið heim til þeirra Álfheiðar þegar hann var hér um jólin, og það var mjög ánægju- legt að sjá að hér var maður sem var sáttur við lífið og þá stefnu sem hann hafði tekið. Af lífshlaupi Rikka sést að hann var ákveðinn, duglegur, djarfur og metnaðargjarn maður. En það sem mér finnst mest um vert var að hann átti samtímis aðra hlið. Hann var, ólíkt mörgum sem hafa náð frama, ljúfur, þægilegur, hlýr, tilfinninga- næmur maður, sem bar mikla um- hyggju fyrir öðru fólki. Bros hans gleymist ekki þeim sem kynntust honum – það minnir á bros Gatsbys í bók eftir F. Scott Fitzgerald: „Þetta var eitt af þessum sjaldgæfu brosum sem hafa eiginleika ævarandi hugg- unar, bros sem maður rekst á kannski fjórum eða fimm sinnum á ævinni. Það sneri að – eða virtist snúa að – öll- um ævarandi heiminum í eitt augna- blik, og svo beindist það að þér með ómótstæðilegum fordómum þér í hag.“ Og þar að auki, eins og ég komst að strax þennan septemberdag 1968 á Laugarvatni, var Rikki maður sem var auðvelt að eiga skemmtilegar og um leið innihaldsríkar samræður við. Robert Cook. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2001 41 Asparfell 10 - opið hús! Mjög rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 6. hæð í góðu fjölbýlishúsi - húsvörður. Komið er inn í rúmgott hol með filtteppi á gólfi og ágætis skápum. Til hægri er eldhús með korki á gólfi, viðarinn- réttingu á tveimur veggjum og ágætis borðkrók með stórum suðurglugga. Stofan er mjög stór. Góðar suðursvalir Annað her- bergið er með skáp og parket-dúk á gólfi. Hitt herbergið er stórt með parket-dúk á gólfi og fataherbergi með góðum hillum. Bað- herbergið er með baðkari og ljósri innréttingu, dúkur á gólfi og flísar á veggjum. Á hæðinni er þvottahús, en fjórar íbúðir hafa sameiginleg afnot af því og eiga saman þvottavél og þurrkara. Sérgeymsla er í kjallara og sameiginleg hjólageymsla. Haustið 2000 voru settir Danfosskranar og -lokar á alla ofna í húsinu. Verið velkomin í opið hús í dag, sunnudag, kl. 13-17 Kristinn tekur vel á móti ykkur Suðurlandsbraut 20, sími 533 6050, www.hofdi.is VERSLUNARHÚS ÓSKAST ! Erum að leita að vel staðsettu 2.000 til 3.000 fermetra verslun- arhúsi á höfuðborgarsvæðinu fyrir fjársterkan aðila. Húsnæðið þarf að vera aðgengilegt og með nægum bílastæðum. Æskilegt er að húsnæðið sé að mestu á einni hæð. Bæði kaup og sala koma til greina. Áhugasamir hafi samband sem fyrst við Ásmund Skeggjason á Höfða fasteignasölu í síma 533 6050 eða 895 3000. Þuríður Halldórsdóttir, hdl., lögg. fasteigna- og skipasali. Aðalsteinn Torfason, sölust t jóri. Þórður Kr. Guðmundsson, sölustjóri, Reykjanesi, sími 893 0007. Símar 551 7270 og 893 3985 - Fasteignavefur www. hreidrid.is Nú er að koma vor og hækkandi sól á lofti. Það er líf og fjör í Hreiðrinu. Vegna mikillar sölu vantar allar stærðir og gerðir eigna á skrá. Fasteignaeigendur í söluhugleiðingum, hafið samband, og leitið eftir hvaða kjör og þjónustu við veitum þér. OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14 - 16 Flétturimi 16 - 1. hæð t.v. Sérlega glæsilega innréttuð 3ja herb. íb. á 1. hæð til vinstri. Fal- legar sérsmiðaðar mahóní-inn- réttingar. Parket og flísar. Hús og sameign í góðu ástandi. Verð 11,9 millj. Árni Þór og Ingigerður bjóða ykkur velkomin milli kl. 14 - 16 í dag. Borgartúni 22 105 Reykjavík Sími 5-900-800 Opið hús í dag, sunnudag milli kl. 14 - 17 Falleg efri hæð og ris í tvíbýlis- húsi á frábærum stað. Fallegt útsýni. 3 góð herb., 2 stofur, aukaherb. í kjallara, sérþvotta- hús og sérgeymsla. Raflagnir yfirfarnar. Gler og gluggar yfir- farnir. Alno-eldhúsinnr. Nýlegt þak. Suðursvalir. Bílskúrsrétt- ur. Áhv. 4 millj. Verð 17,5 millj. Guðrúnargata 10 - Reykjavík Stefán og Kristín taka á móti gestum í dag milli kl. 14 og 16 SUNNUDAGUR OPIÐ HÚS Arnarhraun 4-6 - Hafnarfirði Í sölu mikið endurnýjuð 109 fm íbúð á 1. hæð í góðu fjölbýli. Þrjú svefnherb. og stofa. Suðursvalir. Nýleg eldhúsinnrétting með nýjum tækjum. Parket og dúkur á gólfum. Tengi fyrir þvottavél á baði. Verðtilboð! Þau Sölvi og Margrét bjóða ykkur velkomin til sín í dag á milli kl. 14-16. BÚJÖRÐ TIL SÖLU Á jörðinni er rekið kúabú með 104 þúsund lítra fullvirðisrétti. Ræktað land er 35 hektarar. Á jörðinni er 165 fermetra steinsteypt íbúðarhús, byggt 1980 og 30 kúa fjós með plássi fyrir 20 geldneyti, byggt 1979. Á jörðinni er jafnframt nýtt kálfafjós er rúmar 50 gripi. Hlaða er 350 fermetrar að stærð, byggð 1983, með súgþurrkun og dreifikerfi. Tilboð óskast í jörðina. Upplýsingar veitir Sigurður Pétur Guðjónsson, Vogi. Sími 434-1440. Til sölu er jörðin Vogur, Fellsströnd, Dalabyggð, ásamt bústofni, vélum og kvóta. Haukalind 32 Opið hús í dag frá kl. 14:00 - 17:00 Frábærlega staðsett nýtt 207 fm raðhús á tveimur hæðum með inn- byggðum bílskúr og frábæru út- sýni. Eignin skiptist í anddyri, snyrtingu, eldhús, rúmgóða stofu með útsýni, fjögur svefnherbergi, sjónvarpshol, baðherbergi, stóra geymslu, þvottahús og bílskúr. Eignin er ekki fullkláruð. Verð 19,8 millj. (522) Erla og Skúli taka vel á móti gestum frá kl. 14:00 til 17:00. Teikningar á staðnum. Fasteignasalan Hóll, sími 595 9000 Hamraborg 12, Kópavogi, sími 564 1500, fax 554 2030. Jóhann Hálfdánarson, Vilhjálmur Einarsson, löggiltir fasteigna- og skipasalar EIGNABORG FASTEIGNASALA 564 1500 20 ára Foldasmári 20, Kópavogi 195 fm fullbúið raðhús á tveim- ur hæðum, 5 svefnherb., suður- garður. Glæsilegar innréttingar, parket og flísar. 28 fm bílskúr. V. 22,2 m. (874). Verið velkomin. Olga tekur á móti ykkur frá kl. 15.00—18.00 í dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.