Morgunblaðið - 01.04.2001, Page 49
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2001 49
í dag, sunnudag,
frá kl. 13-19
RAÐGREIÐSLUR
Síðasti söludagur
fyrir páska
á nýjum og gömlum, handhnýttum, austurlenskum
gæðateppum á Grand Hótel í Sigtúni
10%
staðgreiðslu-
afsláttur
sími 861 4883
NÝ SENDING af persneskum teppum
Fjölskylduþjónustan - Skipholti 50c
Meðferðar- og ráðgjafarstofa
Viðtöl fyrir einstaklinga, pör og fjölskyldur.
Skilnaðarráðgjöf •sálfræðipróf • greining á vanda barna og unglinga
• uppeldisráðgjöf • handleiðsla • fræðsla • dáleiðsla.
Tímapantanir í stofusíma 551 6530 og í símum meðferðaraðila.
Brynjólfur G. Brynjólfsson,
sálfræðingur/
fjölskyldufræðingur,
sími 867 4135
Rannveig Guðmundsdóttir,
félagsráðgjafi/
fjölskyldufræðingur,
sími 698 9356.
Kolbrún Ragnarsdóttir,
iðjuþjálfi/
fjölskyldufræðingur,
sími 863 8933
Thomas Attlee DO, RCST,
skólastjóri CCST í London,
virtasta skóla Evrópu í
Cranio Sacral Therapy.
Íslenskur túlkur
Margeir Guðrún
s. 897 7469 s. 692 3611
www.simnet.is/cranio
Félag höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnara
Grunnnám á Akureyri
28. apríl til 3. maí 2001
ÉG ÆTLA að byrja á því að óska
andstæðingum Reykjavíkurflugvall-
ar innilega til hamingju með þenn-
an stórkostlega bindandi kosninga-
sigur sem þeir unnu á dögunum.
Þessi stórkostlegi sigur vannst
örugglega vegna málefnalegs rök-
stuðnings hlutaðeigandi og geisl-
andi framgöngu og hafði auðvitað
ekkert að gera með hvernig kjör-
staðir voru staðsettir, hve margir
sátu heima eða neitt annað. Það er
alveg ljóst.
Nú þurfum við hin sem sagt að
fara að huga að annarri lausn. Sext-
án eru ekki langur tími og því þarf
að bregðast við nú þegar. Sturla
Böðvarsson hefur sagt að ef flug-
völlurinn verði ekki í Reykjavík
verði hann í Keflavík. Eftir þetta
afhroð í kosningum er ég alveg orð-
in sammála Sturlu, auðvitað flytjum
við flugvöllinn til Keflavíkur. Að
vísu fékk ég reyndar ekki að tjá
mig um völlinn þar sem ég er
landsbyggðarlýður, sennilega með
heilmikla minnimáttarkennd, eftir
kenningum borgarstjóra Reykjavík-
ur.
En það þarf að flytja fleira, við
þurfum að byggja nýtt hátækni-
sjúkrahús sem þjónar landsbyggð-
inni, auðvitað þarf svo að flytja alla
stjórnsýsluna suðureftir, bæði al-
þingi og aðstöðu alla í kring um það
og stjórnarráðið ítem allar aðrar
opinberar stofnanir. Svo þarf fleiri
gistimöguleika og vert væri að efla
list og menningu þarna og ekki sak-
aði ein kringla eða svo og síðan
kæmi hitt svona af sjálfu sér. Þá er
stutt í Bláa lónið og Keflavík er
mjög snyrtilegur bær og svo er
skemmtileg byggð í kring, Sand-
gerði, Njarðvíkur og Vogar, þetta
heitir víst Reykjanesbær í dag.
Þegar flugvöllurinn væri kominn
þarna suðureftir myndi allt þetta
aukast og stækka og þá munu
byggjast upp veitingastaðir og
skemmtanabransi allskonar. Maður
þyrfti þá ekkert að sækja til
Reykjavíkur. Mér leiðist borgin
hvort sem er og myndi ekki eiga
neina leið þangað nema til að heim-
sækja vini og vandamenn, en þeim
heimsóknum myndi sennilega
fækka, því ekki nenni ég að þvælast
alla leið frá Keflavík til Reykjavík-
ur bara til að skreppa í heimsóknir.
Sérstaklega þegar maður finnur
andann í Reykvíkingum í dag.
Landsbyggðarlýðurinn er bara til
óþurftar. Maður fer hvort sem er
mest suður til að fara utan og þá
þarf ekki lengur að koma sér langa
leið út á Keflavíkurvöll. Þá er allt á
sama stað. Ég á líka þó nokkuð
marga erlenda vini sem gjarnan
koma í heimsókn, það yrði miklu
auðveldara fyrir þá að koma beint
til Ísafjarðar frá Keflavík, enda
finnst þeim flestum lítið til Reykja-
víkur koma, hún er alltof stór til að
vera spennandi fyrir fólk sem kem-
ur frá útlandinu og alltof lítil til að
vera neitt sérstök. Þarna væri líka
hægt að spara breikkun Reykjanes-
brautar.
Ég legg svo til að Keflavík verði
lýst höfuðborg landsins, þar sem
breytt fyrirkomulag krefst þess að
öll opinber stjórnsýsla verði stað-
sett þar. Þetta myndi líka leysa
vandamál og misskilning útlendra
gesta sem koma í heimsókn því þeir
lesa á skiltum flugvalla heimsins
orðið „Keflavík“.
Kæru Reykvíkingar, ég vona svo
að þið njótið háhýsanna sem rísa
munu í Vatnsmýrinni og njótið
hvors annars. Óska ykkur reyndar
alls hins besta og mikið held ég að
þið getið andað léttar að losna við
áganginn af þessum hokurkörlum
og -kerlingum sem endilega vilja
hanga þarna úti í eyðimörkinni,
Guð má vita hvers vegna, þegar það
getur flutt í alsæluna fyrir sunnan.
Og svo eitt að lokum; af hverju
að bíða með að flytja völlinn þangað
til 2016 og eyða fleiri peningum í
flugvöll sem á að fara hvort eð er?
Af hverju ekki að byrja strax á að
byggja upp þjónustuna suðurfrá og
vera með allt á hreinu það herrans
ár 2016.
ÁSTHILDUR CESIL
ÞÓRÐARDÓTTIR,
Seljalandsvegi 100, Ísafirði.
Keflavík verði
höfuðborg landsins
Frá Ásthildi Cesil Þórðardóttur:
MENNINGARMÁL